Helgarpósturinn - 26.06.1981, Page 30
>30
Föstudagur 26. júní 1981 hpilrjrirpn<ZÍI irínn
Hugmyndir Samtaka óháðra
sjónvarpsstöðva um bætt lands-
hlutasjónvarp:
1. Fleiri þættir fyrir börn, meira
af staðbundnu efni.
3. Meira af leiknu efni, meira af
efni trúarlegs efnis og fleiri
barnaþættir.
4. Meira af staðbundnu eím eink-
um hvað varðar byggöirnar við
Mersey-fljót
\jgesv-
5. Aukinn upptökubúnaður og
meiri áhersla á tungu Wales-búa.
kymrisku..
6. Kemur i stað Southern TV
Meira af staðbundnu efni.
S>xtíCí., etb'-
8. Meira af staðbundnu efni,
einkum hafa jaðrarnir verið af-
skiptir.
9. Aðskilnaður frá Trident, end-
urskipulagning stöðvarinnar.
f0. Aðskilnaður frá Trident, end-
urskipulagning stöðvarinnar.
11. Breyting á skipulagningu og
nafni stöðvarinnar, ATV, og auk-
in áhersla á efni bundið við aust-
urhluta landshlutans.
12. Meira af staðbundnu efni.
13. Betri þjónusta, meira af stað-
bundnum fréttum.
14. Betri þjónusta, meira af stað-
bundnum fréttum.
15. Aukin dagskrá frá öðrum
stöðvum, lengri útsendingartimi
Breytingar á bresku sjónvarpi
í byrjun þessa árs voru boðaðar
mestu breytingar sem hafa orðiö i
sjónvarpi á Bretlandseyjum i 13
ár. Ekki er nóg með að nv rás
auglysingasjónvarps sé i uppsigl-
ingu heldur á að hefja morgun-
sjónvarp, tvær óháðar sjónvarps-
stöðvar verða lagðar niður og hið
kunnuglega ATV-merki hverfur
af skjánum. Það var lafði Plow-
den, stjórnarformaður Samtaka
óháðra sjónvarpsstöðva, sem til-
kynnti þetta á fjölmennum fundi
sem lfktist einna helst skólasam-
komu.
Flestar hinna fimmtán óháðu
sjónvarpsstöðva fengu vitnisburö
eitthvaöá þessaleið: „Efiiilegen
gæti staöið sig betur”. Tossarnir
fengu aövörun en fallistunum,
sjónvarpsstöðvunum Southern og
Westward, var skipað að hætta
starfsemi. En eins dauði er ann-
ars brauð og þegar hefur öðrum
aðilum veriö leyft að hefja sjón-
varp I stað stöðvanna sem hætta.
Margirálita vist að sjónvarp að
morgni dags hljóti að vera dauða-
dæmt en skoðanakönnun bendir
til þess að helmingur þeirra sem
horfa á sjdnvarp að jafnaði, muni
a.m.k. kveikja á tækjum sinum,
og llklegt þykir að morgunsjón-
varpið vinni á ef mönnum fellur
það vel í geð. Þremur aöilum
hefur verið veitt leyfi til að reka
morgunsjdnvarp, m.a. fyrirtæki
sem nefnist TV-AM. Innan vé-
banda fyrirtækisins má finna
ýmsa góðkunningja þeirra sem
horft hafa á sjónvarp i Bretlandi
t.d. Onnu Ford og Angelu Rippon,
en þær hafa til skamms tima
starfaö hvor á sinni sjónvarps-
stöðinni og keppt um hylli áhorf-
enda. Þá má nefna hinn heims-
fræga David Frost, Esther Rant-
zen, Michael Parkinson og Peter
Jay, fyrrverandi sendiherra
Breta í Bandarlkjunum, en hann
er forstjóri Jiessa nýja fyrirtækis
sem hyggst hefja morgunsjón-
varp i ársbyrjun 1983.
Fyrirhugaö er aö TV-AM sjón-
varpi fimm morgna vikunnar,
mánudags til föstudags, þrjár
stundir á morgni, og dagskráin
hefjist kl. 6.15. Fyrst á dagskrá á
að vera eins konar „Morgun-
póstur” sem á að vera með léttu
yfirbragði, notalegur og nyt-
samur. Fluttar verða fréttir,
veðurfregnir og lesið Ur dag-
blööunum. Kl. sjö hefst „Við
morgunverðinn” þar sem fluttar
verða fréttír af öllu tagi, greint
frá því helsta sem er á döfinni og
flutthvers kyns efni sem ætla má
að veki áhuga.
I þessari þriggja stunda sjón-
varpsdagskrá verða þrir frétta-
b'mar og auk þess verður tvisvar
flutt fréttaágrip i stuttu máli. 1
morgunsjónvarpinu verða einnig
þættir um neytendamál, fjármál,
matreiðslu, heilbrigðismál
o.s.frv.
Breska rikisútvarpið, BBC,
hyggst einnig hefja morgunsjón-
varp sem starfi i nánum tengslum
við fjórðu rás útvarps BBC.
Ætlunin er að þetta morgunsjón-
varp ri'kisfjölmiðilsins verði ein
hvers konar sambland af Utvarpi
og sjónvarpi.
Talsmenn TV-AM þykjast
hvergi smeykir við morgunsjón-
varp BBC sem þeir kalla „mynd-
skreyttdtvarpsefni” en BBC gæti
sett strik i reikninginn ef það
verður fyrst til að hefja Utsend-
ingu að morgni dags.
Það liggur >ekki ljóst fyrir
hvers vegna Westward og Sout-
hern sjónvarpsstöðvarnar misstu
leyfið. Nýju stöðvarnar nefnast
TSW (Television South West) og
TVS (Television South) og eru
Góðan daginn. Innstu
koppar i búri AM-TV
fyrirtækisins sem ætlar
að hefja morgunsjónvarp
1983. Frá vinstri: David
Frost, Michael Parkin-
son, Anna Ford og for-
stjórinn, Peter Jay. Og á
innfelldu myndunum eru
Esther Rantzen og Ang-
ela Rippon.
hvor í sínum landshluta eins og
aðrar óháðar sjónvarpsstöðvar.
Hugmyndin að stofnun TVS
varð til i vínstúku járnbrautar
lestar sem er i förum frá Char-
ing Cross-stöð til Hastings. Þarna
hittust reglulega blaða- og frétta-
menn á leið heimtilsin að loknum
vinnudegi og oft var drukkið
ótæpilega. Á fyrrgreindum fundi
fengu hinar óháðu landshluta-
stöðvar fyrirmæli um að sinna
betur aðalhlutverki slnu: að
þjóna betur hver sinum lands-
hluta. Einkum voru það ATV i
Birmingham og Yorkshire TV i
Leeds sem fengu orð i eyra, en
efni frá þessum stöðvum er oft i
islenska sjónvarpinu.
Þeir sem gagnrýna ATV eru
óánægðir með að stöðin skuli
rekin i Lunddnum en aðalfor-
sprakki stöðvarinnar, Lew Grade
lávarður, er bUsettur þar og hann
virðist haf a meiri áhuga á að gera
dýrar bfómyndir á borð við
„Lyftið Titanic” en leggja á ráðin
um staðbundna dagskrárgerð.
Afleiðingin hefur orðið sú að lá-
varðurinn er ekki lengur sá ein-
ráður sem hann hefur verið.
Loks var þvi lýst yfir á fund-
inum að fyrirtækið Trident sem
rekur tvær landshlutastöðvar,
Yorkshire TV og Tyne Tees TV
yrði að láta báðar af hendi en i
staðinn yrði þeim stjórnað hvorri
á sinum stað.
Það er greinilegt að i Bretlandi
vilja margir starfrækja sjónvarp.
Samkeppnin er hörð og þeir, sem
standa sig ekki, eru sviptir
rekstrarleyfi. Að lokum skulu
taldar upp þær óháðar breskar
stöðvar sem hefur ekki borið á
góma f þessari grein. Mörg
stöðvarnöfnin eru kunnugleg hér
á landi.
London: Þar eru tvær óháðar
stöðvar Thames TV og London
Weekend.
Austur-England: Anglia TV en
sú stöð er einkum þekkt fyrir
dýralífsmyndir (Survival). Wales
og Vestur-Englandi: Harlech TV
(HTV), nefnd eftir stofnand-
anum, Harlech lávarði.
Norðvestur-England: Granada.
Norður-trland: Ulster TV.
Mið-Skotland: STV.
Norður-Skotland: Grampian.
Landamærin: Border TV.
Ermarsundseyjar: Channel
TV.