Helgarpósturinn - 26.06.1981, Blaðsíða 32
he/garpósfurinn Föstudaqur 26. iúní 1981
2. tbl. 2. árg. 1981
Glæsilegt timarit um tsland fyrir tslendinga.
80 bls. fjöldi litmynda. —
Meðal efnis: Fjallvegir á lslandi.
Akstur yfir ár, greinar um Vesturland og Ódáðahraun.
Skófatnaður fyrir göngufólk, læknaspjall, Ferðafélag ts-
lands — (Jtivist — björgunarsveitir o.fl. o.fl.
Askriftarsiminn 29499.
Ritið fæst einnig i bókaverslunum og á blaðsölustöðum um
allt iand.
• Atkvæðagreiðslan innan út-
varpsráðs um umsækjendur um
sex mánaða afleysingastarf á
fréttastofu sjónvarps hefur valdið
töluverðu fjaörafoki innan ráðs-
ins. A siðasta fundi ráðsins mun
Eiður Guðnason hafa látið bóka
frá sér athugasemdir við niður-
stööur atkvæðagreiðslna inn-
an ráðsins, þar sem Arnþrúð-
ur Karlsdóttir rannsóknarlög-
reglumaður, hlaut fjögur atkvæði
Framsóknarmannanna Markúsar
A. Einarssonar og Iiákons Sigur-
grimssonar og Sjálfstæðismann-
anna Markúsar Arnar Antons-
sonar og Ernu Ragnarsdóttur
meðan Bolli Héðinsson fjölmiðla-
fræðingur og fyrrum blaðamaður
hlaut atkvæði Ellerts B. Schram,
Eiðs og Ólafs R. Einarssonar.
í bókun Eiðs mun efnislega
gerð athugasemd við að niður-
staða atkvæðagreiðslunnar sé i
engu samræmi við auglýsingu um
starfið, þar sem krafist hafi verið
góðrar menntunar, sem Eiður
mun telja lágmark að sé
stúdentspróf en Arnþrúður hefur
ekki — enn sem komið er. Eiður
mun hafa verið beðinn um að
draga bókun sina til baka en hann
neitað þvi og einhverjir aðrir
ráðsmenn þá krafist bókunar á
móti. Hákon Sigurgrimsson mun
þá hafa látið þau orð falla, að það
| væri ekki hægt ,,að menn veifuðu
! prófskirteinum á annarra kostn-
að” og munu textaskýrendur enn
vera að rýna i merkingu þessarar
gullvægu setningar. Niðurstaðan
| i ráðinu mun þó hafa orðið sú, að
samþykkt var samhljóða tillaga
Ólafs R. Einarssonar um að setja
I á laggirnar 4ra manna nefnd til
að semja einhvers konar starfs
reglur um það hvernig útvarps-
ráð skuli i framtiðinni standa að
| mannaráðningum. Við heyrum
I einnig að á útvarpsráðsfundinum,
þar sem atkvæðagreiðslan fór
fram, eigi Guðjón Einarsson,
aðstoðarfréttastjóri sjónvarps, að
hafa sagt eftir að úrslit atkvæða-
greiðslunnar lágu fyrir, að hann
skyldi ekki hvað þarna væri að
gerast, þegar sá umsækjandinn
sem hefði minnstu menntunina og
enga starfsreynslu væri valinn
umfram alla aðra. Mun útvarps-
ráðsmenn hafa sett hljóða við
þessa ádrepu...
• Ráðningarmálin i útvarps-
ráði hafa verið mikið rædd
manna á meðal undanfarna daga,
og segja gárungarnir að vilji ein-
hver núna fá fréttamannastöðu á
sjónvarpinu þá verði sá hinn sami
fyrst að fá opinbera niðurfellingu
á prófunum sinum...
• Við heyrum að um þessar
mundir sé verið að skrifa bók um
Flugleiðiri eins konar Valdatafls
i Valhöll-stil, þar sem rakin er
saga félagsins eins og hún blasir
við utan frá og innan með tilheyr-
andi uppljóstrunum um innan-
hússerjur og valdatafl stjórnar-
manna og hluthafa. Höfundurinn
sem enn er ónafngreindur, er
sagður þekkja vel til innan
félagsins og jafnframt hafa kom-
ið nærri blaðamennsku áður.
Þeir sem til þekkja segja að i bók-
inni muni koma fram sitthvað
sem munu þykja töluverð tiðindi,
þrátt fyrir alla þá umræðu sem
verið hefur um félagið nú undan-
farið...
• Skýrsla bandariska ráðgjafa-
fyrirtækisins um framtið
Atlantshafsflugs Fiugieiða hefur
nú veriö um nokkurt skeið á borð-
um stjórnvalda og ráðamanna
Flugleiða, auk þess sem sömu
aðilar i Luxemburg eru með hana
til athugunar. Eins og Helgar-
pósturinn hefur áður skýrt frá er
meigintillaga þessa bandariska
fyrirtækis sú, að stofnað verði
nýtt fyrirtæki flugfélaga þessara
tveggja landa, Flugleiða, Luxair
og Cargolux að fyrirmynd t.d.
sam-skandinaviska félagsins
SAS. Hugmyndin er að slikt flug-
félag héti Euro-air.
Eftir þvi sem næst verður kom-
ist fær þessi hugmynd ekki mik-
inn hljómgrunn innan Flugleiða,
en það frekar talið koma tií
greina að gerast hluthafi i sam-
eiginlegu hlutafélagi um þennari
rekstur. Ekki mun ákvarðana að
vænta i málinu fyrr en stjórnvöld
hér taka afstöðu til tillagnanna og
það verður vart fyrr en eftir fund
Steingríms Hermannssonar með
samgönguráðherra Luxemborg-
ar sem hingað er væntanlegur
ásamt f'öruneyti i næsta mánuði...
• Sex ungar, framsæknar og
djarfar konurhér i bæ hafa nú nv-
verið stofnað kvikmyndagerðar-
íélagið Anok. Munu þær ætla að
búa til kvikmynd um konur
(surprise, surprise). Handritið er
nú i smiðum og er merki fyrir-
tækisins Isbirna Það höfðar til
þess ástands sem konur þurfa að
búa við á þessum siðustu og
verstu timum (t.d. eiga konur nú
um 1% af auðæfum heims)
þ.e.a.s. þær eru settar út á kald-
an klakann..
• Bingó er vinsæl skemmtun og
fjáröflunarleið hjá félögum og
flokkum. Jafnan er réynt að hafa
veglega vinninga. Framsóknar-
flokkurinn hefur greinilega
nokkra sérstöðu i bingómálum
sem öðru, ef marka má auglýs-
ingu i Timanum i gær um „stór-
bingo” á sumarhátið Fram-
sóknarfélags Bolungarvikur. Þar
trónir efst á vinningaskránni 20
kfló af kaffi, en siðast er hins
vegar utanlandsferð fyrir tvo
með Samvinnuferðum-Landsýn.
Er þeíta gagnmerk heimild um
verðmætamat Framsóknar-
manna i Bolungarvik...
®Um siðustu helgi var auglýst i
fasteignadálkum blaðanna að til
sölu væri veitingahús i fullum
rekstri á stór Reykjávikursvæð-
inu. Fullyrt er að veitingahúsið
sem þarna um ræðir sé Versaliri
Kópavogi en það var eitt fyrsta
veitingahúsið sem opnað var i
litlu-veitingahúsbyltingunni fyrir
rúmu ári...
• Þá heyrum við úr sama bransa
að Tommii Tommaborgurum sé
að fara að færa út kviarnar og
hyggist hann á næstunni opna
annan hamborgarastað i Hús-
gagnahöllinni á Laugavegi. Og
hamborgararnir hljóta að seljast
eins og heitar lummur, þvi að
sömu heimildir herma að Tommi
hafi i leiðinni pantaö sér nýjan
Mercedes Benz upp á 400 þúsund
krónur eða 40 milljónir gamlar...
Kvikmynd sjónvarpsins um
Snorra Sturluson verður frum-
sýnd i Danmörku i haust, eins og
fram hefur komið i fréttum, — og
fá Danir þvi að sjá myndina á
undan islenskum sjónvarpsnot-
endum og allt i lagi með það.
Hins vegar mun gæta töluverðrar
undrunar og óánægju með það
meðal þess starfsfólks islenska
sjónvarpsins sem vann að gerð
myndarinnar, að það hefur al-
mennt ekki fengið að sjá hana i
endanlegri útgáfu. En útvarps-
ráð fær að sjá hana i dag...
• Hiðárlega Fiflafestival i Köben
hófst 20. júni sl. Þar munu troða
upp leikhópar frá ýmsum löndum
og heyrst hefur að fslenska
Götuieikhúsiðsem nýlega hóf æf-
ingar, taki þátt i fiflalátunum og
er ætlunin að leikhúsið sýni þar
magnaða performanca i byrjun
júli...
• Nýr forstjóri mun taka við
störfum hjá gosdrykkjaverk-
smiðjunni Sana á Akureyri. Hann
heitir Jóhann Asgrimsson og er
viðskiptafræðingur og hefur
starfað hjá Hampiðjunni...
• Fræðslustjóraembættið á
Norðurlandi eystra hefur nú verið
auglýst til umsóknar. Sturla
Kristjánsson, sem gegnt hefur
embættinu sagði stöðu sinni
lausri vegna miskliðar við
menntamál aráðuneytið og
fræðslustjórn, eftir þvi sem við
heyrum. Hann mun lengi hafa átt
útistöðum við kerfið, þótt dugandi
maður en að mati kerfisins vann
of sjálfstætt. Sturla mun nú hafa
sótt um skólastjóraembættiö i
Þelamerkurskóla...
Sölu og þjónustumaöur Þjálfaöur viðgeröarmaöur yfirfer allt gangverk og Bíllinn afhentur kaupanda I
Bílaborgar h.f. tekur við bíl öryggisbúnað og lagfærir það sem þörferá. I- flokks ástandi og meö 6
til sölumeöferöar. mánaöa ábyrgð.
Notaðir Mazda bílar með 6 mánaða ábyrgð.
Þeir sem kaupa notaðan Mazda bíl hjá okkur geta verið fullvissir um
að bíllinn sé yfirfarinn, nýstilltur og í fullkomnu lagi og að ef leyndir.
gallarkæmu íIjós myndi Bílaborg h.f. lagfæra þá að kostnaðarlausu.
Firrið yður óþarfa áhættu í kaupum á notuðum bíl...
Kaupið notaðan Mazda með 6 mánaða ábyrgð.
Smiöshöföa 23, /símí 812 99.