Helgarpósturinn - 03.07.1981, Blaðsíða 6
6
Fostudagur 3. júii i98i._he/garpósturinn
Þegar ég f letti í gegnum gamla leikhús albúmið mitt
hérna um daginn, í lok leikárs, rakst ég m.a. á þessar
snortu Ijósmyndir, sem hér ber að líta, af góðkunnu leik-
húsfólki. Þessir listamenn hafa nær allir staðið í eldlínu
islensks leikhúss, haftofanaf fyrir þúsundum manna og
spígsporað um hinar margvíslegustu f jalir s.l. fimmtán
til tuttugu eða þrjátíu ár— já sumir jaf nvel þetta allt upp
ísextíuog fimm ár svei mér þá. Eins og eðlilegt má telj-
ast létu allir þessir kúnstnerar mynda sig, unga og
spengilega, eldhressa til sálar og líkama, í upphaf i f erils
síns og jafnvel fyrr sumir hverjir. AAætti því, með skír-
skotun til talnaleiksins hér að framan, með réttu gera
ráð fyrir að þeir..hérna haf i sko....að þeir séu sem-
sagt...ja....hvernig á ég nú að koma orðum að því......
að...að ýmislegt haf i tekið svona.... ja svona smávægi-
legum breytingum í sveit og borg sjáiði til — ég á við síð-
an Kaldal og kollegar kreistu gúm-túðurnar sínar hér um
árið vildi ég sagt hafa. En við skulum ekki prútta meira
um það og lesendur mega góðfúslega spreyta sig á að
þekkja andlitin en myndir af sama fólki, úr öðru yngra
albúni, munu svo birtast á sama stað, hér í H.P. eftir
eina sjö daga eða svo. —
GÍSLI RÚNAR JÓNSSON GLUGGAR í: Æ r
„GAMLA LE/KHUS ALBUM
S/L FURLA MP/NN
Hér áöur fyrr var það árlegur viðburður i leikhúslifi borgarinnar að
hið vinsæla „Félag islenskra leikdómara” veitti Silfurlampann, þeim
leikara eða leikhúsmanni, sem aö þeirra mati (þ.e. „leikdómara”)
haföi sýnt hvað besta frammistöðu og „skaraö fram úr” þaö leikárið.
Var þetta einskonar þjóölegur, islenskur „Oscar”, sem „leikdómarar”
höfðu af hugviti látið útbúa, sem viöurkenningarvott til leikara, sam-
visku sinni til friöþægingar, i lok hvers leikárs, eftir hnútukast vetrar-
ins. En þetta er nú bara min skoöun og hér er semsé litil gestaþraut:
Fyrsti hluti
1. Hver varö fyrstur til aö hljóta
Silfurlampann?
2. Fyrir hvaða hlutverk?
3. í hvaöa leikriti?
4. Eftir hvern?
5. Hvaða ár?
6. f hvaða leikhúsi?
Annar hluti
1. Hverjum var siðast veittur
Silfurlampinn til varðveislu?
2. Fyrir hvaða hlutverk?
3. I hvaða leikriti?
4. Eftir hvern?
5. Hvaða ár?
6. í hvaða leikhúsi?
SVIPMYNDIR ÚR
LEIKHUSINU
Hér má sjá nokkrar býsna merkilegar svipmyndir úr leiksýningum
frá árum áður en þessar eftirprentanir fann ég framarlega i gamla
leikhús albúminu — þó ekki eins framarlega og andlitsmyndirnar
hérna hinumegin. Og það þarf vart aö taka þaö fram að lesendum er
svo hjartanlega velkomið að velta fyrir sér eftirfarandi:
1. Hver(jir) er(u) leikar(arnir) inn?
2. f hvaða hlutverki?
3. í hvaða leikriti?
4. Hver er höfundurinn?
5. Hvaða leikár?
6. t hvaöa leikhúsi?
— Búast má viöloðnum svörum snemma n.k. föstudag — jafn-
vel kvöldiö áöur. — Engin verðlaun —