Helgarpósturinn - 07.08.1981, Page 7
7
—halrjarprt€sti irinn Föstudagur 7. ágúst 1981
flokksmanna. Þeirtreystamér og
ég þeim. Mér er ekki gefið um
svonefnda foringja og þeim lik-
lega ekki um mig. Minn móralski
stuðningur kemur ekki frá vald-
höfum.”
Magnús H. Magnússon sagðist
að ýmsu i leyti vera sammála Al-
þýðublaðinu, þegar hanskinn
væri tekinn upp fyrir láglauna-
fólkið. ,,Ég berst fyrir hagsmunúm
þess eins og Vilmundur,” sagði
hann. ,,Hins vegar finnst mér
baráttuaðferðirnar fruntalegar
og ekki til þess fallnar að auka
skilning manna á þessari baráttu
flokksins fyrir góðum málstað.”
Sighvatur Björgvinsson tók i
sama streng.
Enn allt i hnút
En hvaðgeristnæst i málefnum
Alþýðuflokksins og Alþýðublaðs-
ins. Samkvæmt öllu ætti Jón
Baldvin Hannibalsson að taka við
ritstjórastöðu n.k. mánudag. En
mun hann taka við þvi sæti við
óbreyttar aðstæður? „Ég fæ ekki
séð, að mér sé það gerlegt, nema
að þessar deilur verði leystar áð-
ur og þá á þann veg, að sam-
starfsmenn minir haldi störfum
sínum og að við getum haldið
áfram starfinu með fullu trausti
lýðræðislegra stofnana flokksins.
Frá þvi ég kom um siðustu
helgi, hef ég ekki séð aðra lausn
enþá, að framkvæmdastjórn gefi
þessa yfirlýsingu sem ritstjórn
hefur óskað eftir.”
— Hvað gerist ef þessi yfirlýs-
ing fæst ekki?
,,Ég veit það ekki. Ég veit að
afleiðingarnar verða slæmar.
Þær verða slæmar fyrir Alþýðu-
flpkkinn og þær verða slæmar
fyfir Alþýðublaðið.”
Bjarni P. Magnússon sagði að
ekki kæmi til greina að hans áliti
að framkvæmdastjórn gæfi Ut
umbeðna traustyfirlýsingu, þar
sem hún lægi þegar fyrir. „Auk
þess er það ekki á valdi fram-
kvæmdastjórnar að lýsa yfir
samþykki á skoðanir ákveðirma
stofnana i flokknum, hvort sem
það er ritstjórn Alþýðublaðs eða
verkalýðsmálaráð flokksins. í
opnum stjórnmálaflokki eru
menn ekki alltaf jafn sammála
um baráttuaðferðir og ekki allir
alltaf jafnánægðir með málflutn-
ing einstaklinga eða stofnana i
flokknum. Það er ekkert nema
eðlilegt, enda litið li'fsmark i
flokki, þar sem ekki mætti rök-
ræða ýmsa þætti mála, þótt i
grundvallaratriðum séu menn al-
mennt sammála, eins og t.a.m. i
verkalýðsmálunum. Þar liggur
stefnuskráin til grundvallar og
samþykktir flokksþinga.”
Bjarni og fleiri sögðu það
ákveðið, að afsökunar- eða
traustyfirlýsing yrði ekki gefin
út. „Ef ekki gengur saman i mál-
inu á næstu dögum, þá verður
þetta vandræðamál að fara fyrir
flokksstjórn og hún úrskurða i
málinu. Ef svo fer, þá reikna ég
með flokksstjórnarfundi i næstu
viku,” sagði Bjarni.
Að lokum var Vilmundur
Gylfason um það spurður hvort
hann myndi ekki segja sig úr
flokknum, ef þessi mál snerust
ekki á þann veg, sem hann vill.
„Flokksfólk ákveður það,” sagði
hann. ,,Ef flokksfólk trúir ekki á
það, sem ég er að gera, þá kemur
það eflaust fram i dúndrandi van-
trausti. Mörg simtöl við almennt
flokksfólk staðfesta mig hins veg-
ar i þvi, að ég sé að gera rétt. For-
ingjarnir verða að sætta sig við
lýðræðislegar staðreyndir.
Pólitik snýst ekki um foringja —
og ekki um kokteilparti — heldur
um fólk—hagsmuniþess,vilja og
langanir,” sagði Vilmundur
Gylfason.
Að endingu má geta þess, að
umræður eru i gangi milli deilu-
aðila, en litt mun miða. Stór orð
hafa verið látin falla siðustu daga
og þau sviða. Kjartan Jóhannsson
formaður Alþýðuflokksins var
um það spurður hvort lausn væri I
sjónmáli. „Það hefur verið leitast
við að skilja sjónarmið blaða-
manna i þessu máli og úrlausna
verið leitað. Ég stóð i þeirri trú að
málin hefðu verið afgreidd fyrir
siðustu helgi. Hins vegar er ljóst
nú, aö enn verður ekki séð fyrir
endann á þessu máli.”
I gærkvöldi barst Helgarpóst-
inum svo eftirfarandi fréttatil-
kynning frá framkvæmdastjóm
Alþýðuflokksins.
, ,Af gefnu tilefni vill fram-
kvæmdastjórn Alþýðuflokksins
taka fram eftirfarandi.
1. Þriðjudaginn 28. júlf undirbjó
ritstjórn Alþýðublaðsins mið-
vikudagsútgáfu blaðsins með
þeim hætti, að útgáfustjórn sá sig
tilneydda að hætta útgáfu
Alþýðublaðsins um tima.
Deilan um miðvikudagsút-
gáfuna var leyst með samkomu-
lagi föstudaginn 30. júli og með
laugardagsútgáfu Alþýðublaðsins
fylgdi hin umdeilda miðvikudags-
útgáfa sérmerkt.
1 yfirlýsingu, sem blaðstjóm
birti i’ laugardagsblaðinu segir
m.a. „Blaðstjórn Alþýðublaðsins
hefur átt i deilum við ritstjórn
blaðsins vegna þess tölublaðs,
sem koma átti út siðastliðinn
miðvikudag. Telur blaðstjórnin,
að efnismeðferð sé öll með þeim
hætti, að ekki sé boðlegt les-
endum blaðsins án þess, að þeir
séu aðvaraðir um, að hér sé um
gamanskrif að ræða” segir að
lokum í yfirlýsingu blaðstjórnar
frá laugardegi.
2. Framkvæmdastjóm var með
ofangreindu samkomulagi búin
fyrir sitt leyti aðafgreiða ágrein-
inginn. Jafnframt fylgdi heit rit-
stjómar, að þessu máli væri lokið
af hennar hálfu, og að ritstjórn
myndi hefja störf strax að nýju,
sem hún gerði með útgáfu laugar-
dagsblaðsins.
A laugardag kom ennfremur
fram i hádegisfréttum útvarps
yfirlýsing frá ritstjóra blaðsins
þess efnis, að málið væri leyst.
3. Þriðjudaginn 4. ágúst bárust
blaðstjórn Alþýðublaðsins hins
vegar þær fregnir, að ritstjórnin
neitaði að vinna sin störf á
blaðinu i samræmi við almenna
vinnuskyldu og samkvæmt sam-
komulaginu frá föstudegi. i sam-
ræmi við hlutverk og ábyrgð út-
gáfustjórnar var blaðamönnum
sent bréf i gær, miðvikudag, tíl
staðfestingar á þvi, að þeir hefðu
slitið vinnusamningi, en i bréfinu
segir svo: „Þar sem upplýst er,
að þú neitar að sinna störfum
þinum við Alþýðublaðið á venju-
legan hátt verður að lita svo á, að
þar með hafir þú einhliða slitið
vinnusamningi þinum við blaðið.
Ekki er ástæða til annarra
aðgerða i málinu að svo stöddu en
að taka við framangreindri ein-
hliða uppsögn þinni og fella niður
launagreiðslur frá og með
deginum i gær að telja” segir að
lokum i' bréfi framkvæmdastjóra
til ritstjórnar i gær, miðvikudag.
Hér er ekki um uppsögn að
ræða, heldur um einhliða slit á
vinnusamningi af hálfu blaða-
manna, sem framkvæmdastjóri
Alþýðublaðsins varð að svara
með þessum hætti samkvæmt
hlutverki sinu.”
Af þessu virðist ljóst, að fram-
kvæmdastjórn Alþýðuflokksins
telur málinu lokið af sinni hálfu,
og greiddu allir ellefu fram-
kvæmdastjórnarmenn ofan-
greindri samþykkt atkvæði sitt.
RMI Felagsmalastofnun Reykjavikurborgar
i i i Vonarstræti 4 sími 2550(5
Staða forstöðumanns við dagheimilið Dyngju-
borg er laus til umsóknar. Fóstrumenntun
áskilin. Laun samkvæmt kjarasamningi
borgarstarfsmanna. Umsóknarfrestur er til
24. ágúst. Umsóknir sendist til skrifstofu dag-
vistunar Fornhaga 8, en þar eru veittar nánari
upplýsingar.
Félagsmálastof nun Reykjavikurborgar,
Vonarstræti4, simi: 25500.
íbúð óskast
Aburðarverksmiðja ríkisins óskar að taka á
leigu 3—4 herbergja ibúð frá 1. september n.k.
Tilboð ásamt viðeigandi upplýsingum leggist
inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 11. ágúst.
Áburðarverksmiðja ríkisins
[rrs/s
' ;
of London
FiecmQn/
ndon
Skrifið eða hringið strax í
dag eftir nýja
pöntunarlistanum og
njótið þess að versla í
rólegheitum heima í stofu.
Verð kr. 59.-
Póstburðargjald kr. 18.-
lá tafefe
Vinsamlega
sendið mér
nýja Freemans
pöntunarlistann í póstkröfu
Nafn:
Heimili
Staður
Sendist til:
FREEMANS
OF LONDON
c/o BALCO hf.
Reykjavíkurvegi 66,
220 Hafnarfirði,
sími 53900
Hausttískan frá London - heim til þín
Freemans, stærsta
póstverslunin í London,
býður nú glæsilegra^^
úrval og s
hagstæðari
^ap^^verðen nokkru
^ sinni fyrr. Nýi Freemans
pöntunarlistinn með haust-
og vetrartískunni ‘81 er 676
blaðsíður hlaðnar f jölda
hagstæðra tilboða um
vandaðan fatnað á alla
fjölskylduna.