Helgarpósturinn - 07.08.1981, Page 8

Helgarpósturinn - 07.08.1981, Page 8
8 Föstudagur 7. pásturinn— Blað um þioðmal/ listir og menningarmál Útgefandi: Vitaðsgjaf i hf. Framkvæmdast jóri: Bjarni P. Magnússon Ritstjórar: Arni Þórarinsson, Björn Vignir Sigurpálsson. Blaöamenn: Guðjón Arngrímsson Guðlaugur Bergmundsson, Guðmund ur Arni Stefánsson og Þorgrímur Gestsson. Útlít: Jón Öskar Ljósmyndir: Jim Smart Auglýsinga- og sölustjóri: Höskuldur Dungal. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Dreifingarstjóri: Sigurður Steinarsson. Ritstjórn og auglýsingar eru að Síðu- múla 11, Reykjavík. Sími 81866. Af- greiðsla að Hverfisgötu 8—10. Símar: 81866,81741, 14900 og 14906. Prentun: Blaðaprent hf. Askriftarverð á mánuði kr. 24,- Lausasöluverð kr. 8.- Málefni - ekki menn Stjórnmál eru stormasamur heimur, og þeir menn sem hasla sér völl á þeim vettvangi mega una því að verða fyrir ýmsum óþægindum, ekki sist þeir sem valist hafa til forustu i stjórn- málaflokkunum. l)m langt skeið haf a fslenskir kjósendur horft upp á innanflokksófrið í Sjálfstæðis- flokknum og nú siðustu dagana virðistsvo sem Alþýðuflokkurinn ætli sér ekki að verða eftirbátur Sjálfstæðisflokksins i' þessum efnum, þar sém Vilmundur Gylfason hefur eftir öllum sólar- merlijum að dæma sagt flokks- forustu strið á hendur. Það er oft erfitt fyrir hinn almenna kjósanda að gera sér grein fyrir því hvort innanflokks- deilur af þvi taginu. sem Hta hefur mátt i Sjálfstæðisílokknum og nii i' Alþýðuflokknum, snúast raunverulega um persónur eða um málefni.Þó má reikna með að oftast fari þetta tvennt saman. En innanflokksófriður þessara tveggja flokka er nokkuð á dag- skrá f Helgarpóstinum i' dag. í Helgarpóstsviðtali lýsir Geir Hallgrimsson opinskátt viðhorfum sinum til innan- flokksátakanna i Sjálfstæðis- flokknum og stjórnmálabarátt- unnar almenntog á öðrum stað er farið itarlega i saumana á erjunum i Alþýðuflokknum út af stöðvun Alþýðublaðsins i sl. viku. Liklega getur enginn islenskur stjórnmálamaður talað af jafn- mikilli reynslu um innanflokks- erjur og einmitt Geir Hallgrims- son. Og hann á i fórum sinum þessar ábendingar handa Alþýðu- flokksmönnum: „Viðvi"kjandi þessum vanda- málum á Alþýðublaðinu, þá tekur mig sárt að svona hatrammur ágreiningur skuli vera uppi við. Mig tekur það sárt vegna þeirra manna, sem þar eiga hlut aö máli. Það er engum til gagns i ábyrgum st jórnmálaf lokki, að lenda i slikum innanflokkserfiö- leikum. Þetta á við um alla flokka. Það skiptir i minum huga meira máli, að berjast innan flokks sem utan á málefnalegum grundvelii. Þannig vilja kjós- endur að stjórnmálaflokkar séu reknir,” og siðan ennfremur: ,,... ég er sannfærður um, að menn hagnast ekki á slíkum vinnu- brögðum, þar sem persónuvfg taka málefrmm fram. Hvorki flokkurinn né viðkomandi ein- staklingar hagnast, þvert á móti hefna slikar vinnuaðferðir sin.” Liklega er öllum þeim sem í stjórnmálabaráttu standa hollt að íhuga þessi orð manns sem talar af langri og biturri reynslu. Þjóöhátíð Það er hálfgert öfugmæli að kalla þennan pistil Eyjapóst að þessu sinni þar sem skrifari hefur að undanfömu dvalið allfjarri heimaslóðum og er öllu hagvan- ari orðinn i erlendum hafnar- borgum. Þó verður ekki farið út i lýsingar á þeim vettvangi enda likast til sumt óprenthæft af sliku efni. Nú orðið eru flest skemmtiat- riði aðkeypt að sunnan og er það breyting frá þvi sem áður var þegar slikt heyrði til undantekn- inga. Segja mér fróðir menn að slikt sé nauðsynlegt til að trekkja að aðkomufólk. Að þessu sinni var boðið upp á erlendan trúð- leikara sem hefur sérhæft sig i að apa eftir Elvisi heitnum Presley Eyjapóstur frá Sigurgeiri Jónssyni Enn ein þjóðhátíð er á enda i Vestmannaeyjum og tókst til bærilega eins og oftast áður. Þetta er ein mikil og mögnuð há- tíð svo sem flestir vita,hefur enda verið haldin hátiðleg nokkuð yfir hundrað ár. tþróttafélögin á staðnum skiptast á um að sjá um hátiðarhald annað hvert ár og er ágóðanum varið til aö fjármagna starfsemi þeirra. Það er þvi mik- ið i húfi fyrir þau að allt takist sem best og þá ekki hvað sist að veðurguðirnir séu i góðu skapi. Einn forráðamanna sagði skrif- ara á dögunum að slæmt veður á þjóðhátíð gæti þýtt fjárhagslegt hrun hjá viðkomandi íþrótta- félagi. Fáum mun og ljóst hversu gifurleg vinna liggur að baki há- tið sem þessari. Nærri hundrað manns hafa verið heilan mánuð að undirbúa allt i sjálfboðavinnu og siðustu vikuna er unnið allt upp i 24 tima á sólarhring. Mest mæðir þó á aðalnefndinni sem yfirleitt byrjar að vinna að undir- búningi i marsmánuði. og er ekki nema gott eitt um það að segja. Þó vakti öllu meiri hrifningu heimamanna það atriði sem minna var auglýst, þegar gamli popparinn (skaliapoppar- inn) Erling Agústsson tritlaði upp á sviðið og söng gömlu slagarana si'na. Þá hlýnaði mörg- um um hjartaræturnar enda stældi Erling engan heldur söng með sinum eigin stíl. Þá hoppuðu tveirfrændur vorir færeyskir upp á svið og sungu nokkur erindi úr færeyskum kvæðabálki. Var það sömuleiðis hin ágætasta uppá- koma þótt óundirbúin væri og sýniraðoft á tiöum er vatnið sótt yfir lækinn. Það olli miklu fjaðrafoki að þessu sinni á þjóðhátið að gestum var gert að drekka ropvatn frá einu ákveðnu fyrirtæki i Dalnum samkvæmt samningi. Það er að segja, i Dalnum var einungis seld drykkjarvara frá þvi fyrirtæki en hverjum og einum var heimilt að hafa með sér drykk frá öðrum. Þessu fylgdu og nokkur aug- lýsingaslagorð og plaköt frá fyrirtækinu sem komið var fyrir á hátiðasvæðinu án þess þó að mjög áberandi væri. Fengu margir sting i augu og maga yfir þvi fargani og sögðu að aldrei áður hefðu auglýsingarfengið aðvera i Dalnum. Ekki mun það nú vera alls kostar rétt, þvi eftir nokkurt grugg i' minnisbankanum kom það upp i hugann að fyrir nálægt tuttugu árum var merki Flug- félags tslands nokkuð ráðandi i Dalnum og hafa þeir sjálfsagt eitthvað þurft að reiða af hendi fyrir þær skreytingar. Hins vegar vorugárungar fljót- ir á sér að útbúa hinar ágætustu sögur sem sjálfsagt myndu ekki allar standast lygamælisprófanir. Götur i tjaldborginni eru ævin- lega með nokkuð föstum nöfnum og þar af eru tvær sem heita Týs- gata og Þórsgata eftir fþrótta- félögunum tveimur. Ein sagan var á þá leið að Sanitas hefði viljað greiða væna upphæð fyrir að breyta nafni Týsgötunnar i Pepsi Cola Street en þvi verið al- farið hafnað af forráðamönnum. Þá var ein sagan á þá leið að Sanitas hefði boðið prestinum nýjan hökul við messugjörðina á hátiðinni. Þó fylgdi sá böggull skammrifi að hökullinn átti að hafa sevenup merki að framan en pepsikóla merki að aftan. Þvi mun klerkur hafa hafnað og þar með orðið af höklinum góða. Sem fyrr segir er sannleiksgildi þess- ara sagna ekki öruggt og tekur skrifari enga ábyrgð á þeim. En hátiðin er sem sé búin svo nú getur m aður farið að hlakka til þeirrar næstu.Og ævinlega er það svo að þótt maður segi i hvert sinn að nú verði ekki verið heima á þjóðhátið, þá er maður alltaf einn með þeim fyrstu i Dalinn. Kannski er það það sem gerir þjóðhátið allt öðruvisi en aðrar hátiðir. „Fljúgöu, fljúgðuv klæöi...7 Það hefur einatt þótt sjálfsagt mál að nota verslunarmanna- helgina til ferðalaga, enda hafa verslunarmenn löngum verið hinir mestu ferðagarpar. Má þar til dæmis benda á auðugan kaup- mann, sem bjó i Bagdað á dögum Harún-El-Rashiðs og hét Sindbað, sæfari að viðurnefni. Sindbað þessi var kaupmanns- steig þar aldrei fæti á land og varð þar með af þeirri upphefð að verða fyrstur til að opna fjölþjóð- lega verslun vestanhafs. Ferðalögum geta raunar fylgt hinar mestu skelfingar, eins og piltur einn frá borginni Jórvik i Englandi fékk að reyna. Sá var fæddur árið 1632, sonur efnaðra foreldra, og vildi faðirinn að sonurinn lærði lögfræði. Þetta vildi stráksi ekki og stakk af frá lögfræðinni og lagði upþ i sjóferð Heimir Pálsson— Hrafn Gunnlaugsson — Jónas Jónasson — /Wagnea J. Matthías- dóttir — Páll Heiðar Jónsson — Sigurður A. AAagnússon — Þráinn Bertelsson Hringbordið I dag skrifar Þráinn Bertelsson son, en lagðist i óreglu þegar hann tók við föðurarfi sinum, uns þar kom að hann uppgötvaði sér til skelfingar, að hann var að verða snauður maður. Greip Sindbað þá til þess ráðs að fara i verslunarferð og hófst handa um að útvega sér startkapítal: „Afréð ég nú að ferðast til ann- arra landa og afla mér fjár að nýju og verja til þess viti og striti, svo sem unntvar .Fyrirnokkuð af peningum minum keypti ég varn- ing til að versla með i fjarlægum löndum.Ennfremur keypti ég það sem ég sjálfur þurfti til farar- innar. Að þvi' loknu slóst ég i för með öðrum kaupmönnum og steig á skipsfjöl. Var ferðinni heitiö til borgarinnar El-Basrah. Marga daga og nætur sigldum viö um höfin, tókum lönd við eyjar þær, sem á vegi okkar urðu, og áttum þar viðskipti við eyjarskeggja.” Þannig hófst hin fyrsta af sjö frægðarferðum Sindbaðs, sem æ siðan hafa verið bæöi verslunar- mönnum og ööru fólki mikil hvatning til ferðalaga. Annar góður kaupmaöur hét Bjarni Herjólfsson og fór i ár- legar kaupferðir milli íslands og Noregs á skipi sinu fyrir hartnær tiuöldum. Eins og gjarna hendir á ferðalögum lenti hann i þoku og leiðindaveðri og fann óvart Ameriku. Bjarni var þó ekki meiri kaupmaður en svo, að hann frá borginni Hull hinn fyrsta dag septembermánaðar 1651. Pilt- urinn hét Róbinson Krúsó, og hafa raunir hans jafnan siðan verið viti til varnaðar þvi fólki sem ekki nennir að lesa lögfræði og fýsir að leggjast i ferðalög. Ekki eru þó öll ferðalög farin i viðskiptaerindum eða af ævin- týraþrá, að minnsta kosti ekki núorðið, heldur miklu fremur til tilbreytingar, fróðleiks og hress- ingar. „Gullfoss-reisan i april 1966” er til að mynda dæmigerð fyrir sli'kar ferðir i nútimanum sem farnar eru til andlegrar og likamlegrar upplyftingar, enda ferðalýsing Guðmundar Haralds- sonar rithöfundar frábær heim- ild: „Svo bar til að höfundur sögunnar smitast af löngun að fara eina Reisu með Gullfossi, þvi oft varnú Gullfoss búinn að Reisa áður og með góðum árangri og al- mennum. Svo ég fæ tækifæri til að fara með einum ferðahópnum i april 1966, þann 15. klukkan 12 á hádegi og kaupi tvo farmiða að vi'su, að upphæð — 30 þúsund — með gjaldeyri og var boðsgesturinn herra E. Sigurjónsson starfs- maður hjá Eimskip hf., þ.e.a.s. pakkhúsmaður og umsjón með glerkistunum og girðingaefninu út á land og svo framvegis. Svo þetta gekk snurðulaust með gjaldeyrí og annað og samþykki konu hans einnig, og þurftum við að hafa miðlungstösku f förina undir nærföt, tvenna sokka, eina , manchetskyrtu og rakáhöldin, vasahnif og tvo penna, þessa ódýru frá Lárusi Blöndal eða Bókabúð Æskunnar, það var og. Nú, svo er skipið stóra leist reisulega frá bryggjunni klukkan tólf sem áður er minnzt á, og það i vestangoluog léttskýjuðu loftfari og sólskin annað veifið.” Segir þá ekki af ferðum höfundar fyrr en komið er til Hamborgar: „Jæja, þá er lagt I hann um klukkan 3 eftir mat, með E. Sigurjónssyni félaga og göngum viö fyrsta spölinn en sleppum bil og komum á eina götuna meðal- stóra og er þá veður bara gott, gola og bjart yfir, að við veitum athy gli einum dyraverði og kallar hann upp á þýzku, að þarna inni i tveggja hæða húsi af eldri gerð séu dömur (Fráulein) að sýna á sér Venusarsköpunina, á þetta litillisenu, og hátta þær smátt og smátt, þar til ekki er eftir nema buxur úr næloni, sokkarnir og hælaháu skórnir, og sveigja sér til og frá í nokkrar minútur. Á meðan sitjum við við borð ásamt tveim tæfum þýzkum, önnur þokkaleg ljóshærð um 23 ára, en hin svarthærö, búlduleit, þétt- vaxinog um 25ara. Drukkum viö með þeim tvo sjússa um hálf timabil, var þá önnur þeirra i sama businessinum með skapn- aðinn. Geri ég mér þá trissu að venda mér upp á senu og dansa við eina blondínuna, var hún um 28 ára, ekkert meira um það. Vorum við hlunnfarnir með vin- kvittunina, ogvar hún vist á tvö- földu verði, og urðum fegnir að komast út á götuna aftur — erum bara gramir yfirþvi'að láta svona barþjónsdóna haga sér þannig.” Og lýkur hér tilvitnun i ferða- sögu Guðmundar Haraldssonar rithöfundar, sem birtist i heiid i bókinni „Sö’gur og ljóð”, sem prentuð var á kostnað höfundar i Reykjavik 1971. Höfundur þessa greinarkorns er þvi m iður ekki vi'ðförull maður og hafði heldur ekki döngun i sér tilað halda verslunarmannahelg- ina hátiðlega á vegum landsins. Hins vegar lagðist hann i' ferðalög á annan hátt og fór viða i tima og rúmi i' góðum félagsskap þeirra Sindbaðs sæfara, Bjarna Herj- ólfssonar, Róbinsons Krúsó og Guðmundar Haraldssonar og vill nú nota tækifærið og þakka þeim samfylgdina. Til þessa eftirminnilega ferða- lags þurftiekki annað en teppi og þá töfra sem finna má i' bókum. Liggjandi i makindum á rúm- teppi með góða ferðabók i hönd hitti hann fuglinn Rok, kom að ströndum Vi'nlands, sá spor eftir mannsfót i' sandi eftir fimmtán ára einveru á eyðieyju, og gerði trissu upp á senu i Hamborg að dansa við blondinu á nælon- buxum. Allt þetta á fridegi verslunar- manna 1981 og kom óþreyttur heim.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.