Helgarpósturinn - 02.10.1981, Qupperneq 13
healrjarpnczil irinri Föstudagur 2. október 1981
13
Ábyrgjumst að gera
jörðina mennska"
Rætt við Ingibjörgu G. Guðmundsdóttur um
Samhygd — sem efnir til hátíðar á sunnudag
„Þessi fundur er haldinn undir
yfirskriftinni „Gerum jöröina
mennska”. Megin tilgangurinn
með honum er sá, aö Samhygð
lýsir þvf yfir, aö viö tökum
ábvrgð á því aö gera jöröina
mennska. Þessi fundur er liöur i
miklu feröalagi upphafsmannsins
Siloog annarra Samhygöarfélaga
viös vegar aö úr heiminum”,
sagöi Ingibjörg G. Guðmunds-
dóttir, félagi i samtökunum Sam-
hygö i viðtali viö Helgarpóstinn,
en Samhygö, félag sem vinnur aö
jafnvægi og þróun mannsins,
gengst fyrir kynningarhátiö i Há-
skólabiói næstkomandi sunnudag,
4. október kl. 14.
En hvaö er Samhygö? Þeirri
spurningu var beint til Ingibjarg-
ar.
„1 sem allta stystu máli, er
þetta ný leið, eða ný lausn. Þá
vaknar spurningin: Ný leið til
hvers, ný lausn tilhvers? Eins og
skilgreining á nafni félagsins ber
með sér, félag, sem vinnur að
jafnvægi og þróun mannsins, þá
er þetta að sjálfsögðu leið til að
vinna að því.
í þessum félagsskap er folk,
sem trúir því, að við getum
breytt, og við vinnum skipulega
að þvi. Það eru alltof margir, sem
segja annað hvort: það hljóta ein-
hverjir aðrir en ég að gera þær
breytingar, sem augljóst þarf að
gera, eða þeir segja: það er ekk-
ert hægt að gera. Slík afstaða
sýnir algert ábyrgðarleysi gagn-
vart lífinu og möguleikum þess.”
— Þú talar mikið um breyting-
ar, hverju ætlið þið.
„Þær breytingar, sem við vilj-
um ná fram, er að fólk fari að lifa
eins og mönnum sæmir, að það
hætti að væflast um hálf sofandi
og fari að lifa lífinu til fulls. Lif-
veran maður hefur ótrúlega
mikla hæfileika, sem hann hefur
alit of lengi látið vera óvirkjaða.
Þær breytingar, sem við viljum
ná fram, eru betri samskipti
manna á meðal, draga úr ein-
angrun og dragaúr ofbeldií hvers
konar mynd.”
— Hvernig ætlið þið að ná fram
þessum breytingum?
„Meðþviað ráðast að rótunum,
með þvi að hver og einn beini sér
að uppsprettu eða rótum mann-
legrar hegðunar, sem er innra
með hverjum og einum. Ef ég vil
breyta einhverju, er dcki nóg, að
ég vinni að þvi að breyta sjálfri
mér. Ég verð samtimis að að
vinna að þvi að breyta, eða hafa
góð áhrif á umhverfi mitt, vegna
x þess, að enginn maður lifir einn
og sér, heldur er alltaf hluti af
einhvers konar umhverfi. Og
þetta umhverfi hefur mótandi
áhrif á hann.
Þeim kenningum hefur verið
haldið á lofti, að leiðin til að
breyta þjóðfélaginu sé sú, að
fyrst breyti einstaklingurinn sér,
ogþá breytist þjóðfélagið, eða, að
fyrst þurfi að breyta þjóðfélag-
inu, og þá breytist ánstaklingur-
inn. Þetta er engan veginn hægt
vegna þess, sem áðurer sagt. Það
breytist heldur aldrei neitt, nema
við beinum okkur að okkur sjálf-
um og okkar nánasta umhverfi.”
— Hvaðan er þessi félagsskap-
ur upprunninn?
„Uppruni hans er i Argenönu,
og það, sem markar upphaf
Samhygðar, er ræða, sem
Argentinumaðurinn Silo flutti 4.
mai 1969, og nefndi Lækningu
þjáningarinnar.”
— Eru þetta alveg ópólitisk
samtök?
„Þau eru hvorki trúarbragða-
legs né pólitisks eðlis. Innan sam-
takanna, er ftílk, sem aðhyllist
mismunandi trúarbrögð, mjög
trúað fólk, trúleysingjar og allt
þar á milli, og fólk með ólikar
stjórnmálaskoðanir. Það er farið
fram á það við þátttakendur, að
þeir reyni ekki að afla þessum
skoðunum fylgis innan félagsins.
Það, sem liggur til grundvallar
öllu þvi, sem við erum að gera, er
það, sem er hagkvæmast fyrir lif-
ið, þvi maðurinn er lifvera, og
sem slikur lýtur hann lögmálum
lifsins. Og ef til vill er hamingjan,
sem allir leita svo stift eftir, ekk-
ert annað en visbending lifsins til
mannsins, um að allt sé i lagi, og
að hann starfi rétt og vel sem lif-
vera. Það, sem viðerum að vinna
að, er að maðurinn sem lifvera
starfi rétt og vel.”
Ingibjörg sagði, að upphaflega
hafiþað ver® Pétur Guðjtínsson,
sem hafi kynnt félagsskapinn hér
á landi. Það var fyrir tæpum
tveim árum, en Islandsdeild fé-
lagsins var formlega stofnuð
þann 18. ágúst 1980.
Samhygð byggir upp á mis-
munandi stigum þátttöku. A
klukkustundarlanga vikufundi
geta allir komið og farið. Þeir,
sem aftur á mótifinnast þeirhafa
haft gagn og gott af, geta gerst
virkir félagar.Virkir félagar geta
siðan gerst skólafélagar, en
skólafélagar leggja stund á
ákveðið námsefni til þess að geta
orðið góðir leiðbeinendur. Skóla-
félagar og virkir félagar eru nú
einhvers staðar á bilinu 60—70.
Ingibjörg varnæst spurð að þvi
hvenær hún hafi komist i kynni
við félagiö.
„Ég kynntistþessu á námskeiði
hjá Pétri Guðjónssyni i msirs
1980. Ég geröist virkur félagi þá
strax, og skólafélagi i júni sama
ár.”
— Ertu betri manneskja en áð-
ur?
„Það er ekki mitt að dæma um
það, en mér finnst þetta vera það,
sem ég hef haft mest gagn af i
gegnum ti'ðina, og hef ég þó gert
margt. Þátttaka i' þessu starfi
byggir upp á nýtt viðhorf til
lifsins.”
— Liður þér betur en áöur?
„Þetta er engin stökkbreyting
eða patentlausn, þetta er vinna og
aftur vinna. Arangurinn má best
marka af þvi, ef maður lftur til
baka, hvort góöu stundimar eru
betri og þær slæmu ekki eins
slæmar og þær voru. Mér finnst
ég eiga auðveldara meðaðtakast
á við hlutina, hvort sem þeir eru
smáir eða stórir”.
— Hefur þessu verið vel tekið
hér?
„Já. Sem betur fer eru Islend-
ingar tiltölulega heilbrigöir. Þeir
hafa isér bæði löngun og krafttil
að breyta. Það verður mikið
erfiðara viða annars staðar,
vegna þess hversu fólk er orðið
sljóttog sofandi fyrir tilverunni.”.
— Eitthvað að lokum?
,,Við bjóðum öllum þeim, sem
vilja taka þátt i að byggja upp
betriheim, að koma i'H áskólabió
sunnudaginn 4. október kl. 14.”
„uetn samskiptl manna á
meðal, draga úr einangrun og
draga úr ofbejdi i hvers konar
Æ mynd”. Þetta segir
r Ingibjörg G. Guömundsdóttir
m.a. um markmiö Samhygöar.
DRAGHNOÐ
Landsins mesta úrval
Heildsölubirgðir:
ASTRA - SÍÐUMÚLA 32
Vídeó á
Esju
Videóvæöingin lætur engan
ósnortinn,sem kunnugt er, og nú i
vetur munu jafnvel hótelgestir i
Reykjavik geta horft á Videó þeg-
ar þeir vilja. Innan skamms mun
nefnilega veröa sett upp á Hótel
Esju innanhússkerfi sem gerir
kleift aö sýna valdar kvikmyndir
inná herbergjum, áuk efnis fyrir
börn ofl.
Þetta er ein af nýjungum I starfi
Hótel Esju, sem kynntar voru á
blaöamannafundi fyrir skömmu.
Vetrarstarf hótelsins er hafið, og
að þessu sinni verður boðið uppá
ýmsar nýjungar fyrir hótelgesti.
Nýráðinn hótelstjóri er Einar 01-
geirsson, sem áöur var t.d. á Sögu
og Hótel Húsavik.
Meðal annarra nýjunga veröa
þjóöardagar, svokallaðir, en þeir
verða haldnir á sunnudögum i
vetur. A þessum þjóðardögum
veröur leitast við að gera svipmót
Esjubergs sem likast þvi sem
gerist um veitingastaði i viðkom-
andi löndum. Þannig veröur t.d.
ameriskur matur á boðstólnum á
ameriskum degi nú i október, auk
þess sem amerisk tónlist verður
leikin, og svo framvegis.
Að sögn Einars Olgeirssonar
eru gestir hótelsins bæði innlendir
og erlendir, og mikiö er um að
fólk utan af landi notfæri sér
möguleika hótelsins á veturna,
þvi það er mjög vel staösett i
borginni.
=Tómstundavörur SS
Qoir heimili og sköla
Námskeid
Innritun stendur yfir
& Hnýtingar
^ Glermálun
-v< Tágavinna
Myndvefnaður
•v' Jólaföndur
Uppbyggileg tómstundaiökun
sem sameinar fjölskylduna
HANDÍD
Laugavegi 26 og Grettisgötu
sími 2 95 95
^LIÐAR€ND1
A
k
Klassisk? tónlistarkcfild \
meö
Karlakór Rcf/kjacikur. j
Sunnudagskcöl d
klukkan 2I,.'W
Boröcipantanir
fyrir rnatargesti
fra klukkan 14 í sima 1-16-90