Helgarpósturinn - 02.10.1981, Síða 15
__/7e/oarpng/f/r/nn Föstuda9ur 2 október 1981
15
' 1
myndir: Jim Smart
ingar.sem vita allt betur en aðrir, og eru
til þess eins hér á jörðinni að segja öðru
fólki í hverju þvi er helst óbótavant.”
— Það hefur ekki komið Utbók eftir þig
inokkurn tima (frá 1974), ertu hættur að
skrifa?
„Nei, ég get nú ekki sagt það. Arið 1974
fór ég út til náms, og frá þvi námi lauk,
hef ég skrifaö tvö kvikmyndahandrit, eitt
framhaldsleikrit fyrir útvarp, í samvinnu
við Gunnar Gunnarsson, og ógrynnin öll
af blaðagreinum. Ég hef þvi ekki alveg
verið iðjulaus,og hefeinfaldlega ekki haft
tim a til að skrifa langar og þykkar bækur.
En hins vegar hef ég aldrei lofað að fria
fólk við sliku frá minni hendi.”
— Hvaða augum liturþú þessar bækur,
sem þú hefur skrifað fram til þessa dags?
Finnst þér mikið til þeirra koma?
,,Ég lit nú ekki á þessar bækur sem
neina bautasteina til minnis um það hve
ég sé merkilegur maður. Ég held ég hafi
lært ýmislegt á þvi að setja saman þessar
bækur og vona að ég eigi eftir að læra.
meira á þvi að setja saman fleiri bækur.”
TaupsjúKlinpr o<j Svfar
— bú ákvaðst loks á gamals aldri að
læra til kvikmyndastjóra...
„Ertu eitthvað að bilast Gulli minn, ég
er kornungur maður...”
— ÞU varst i Sviþjóð. Geturðu lýst tima
þinum þar i nokkrum hnitmiðuðum setn-
ingum ?
„Nei, ég get ekki lýst honum i nokkrum
hnitmiðuðum setningum. Það er einhver
hópur taugasjúklinga hér á landi, sem
hef ur tekið Sviþjóð upp sem tákn fyrir allt
illt. Ég get ekki verið sammála þvf, en
mér finnst Sviþjóð ekkert ofsalega
skemmtilegt land að vera i. Mér finnst
það vera dálitið stift og stirt þjóðfélag, en
ég kann sænskum mjög miklar þakkir
fyrir t.d. að þeir skuli vera það frjáls-
lyndir, að þeir hleypa útlendingum inn á
þessa dýrustu skóla sina, og ekki nóg með
það, heldur láti þá fá myndarlegan náms-
styrk á meðan á þessu námi stendur, og
það sæti sist á mér að tala illa um Svia.
Ég held meira að segja, að við gætum
margt af þeim lært, einkum og sér i lagi i
sambandi við ýmis sviö þjóðfélagsfræði,
eöa þess háttar. Einkum hvernig búið er
að ýmsum minnihlutahópum i Sviþjóð.”
— Þú hefur nú verið starfandi kvik-
myndagerðarmaður i nokkurár. Hver eru
viðhorf þin tilkvikmyndagerðar á íslandi
i dag?
, ,Ég vona bara að þaö verði framhald á
þeim vexti, sem virðist vera kominn i
þessa grein, og sé reyndar ekki ástæðu til
að ætla annað. Ég held aö almenningur á
Islandi hafi brugðist afskaplega vel við
þessum tilraunum, eða þessari viðleitni
kvikmyndagerðarmanna, sem nýlega
hafa lokið námi og ákveðið að láta til
skarar skriða, og freista þess að koma
heim og starfa hér. Ef viðbrögð almenn-
ings hefðuekki veriðsvona jákvæð, hefði
sú tilraun einfaldlega fæðst andvana.
NUna vona ég bara, að kvikmyndageröar-
menn islenskir bregðist ekki þessum al-
menningi, sem hefur stutt þá svona
hressilega, og sömuleiöis, að stjórnvöld
taki einhvern tima á sig rögg og fari aö
sýna þessu máli sama skilning og annað
fólk i landinu gerir.”
— Attu þá von á þvi, að þessi mikli
áhugi haldist til eiliföarnóns, eða aö þetta
hafi bara verið einhver nýjungagirni hjá
fólki?
„Ég býst við, að það nýjabrum sem er á
islenskum kvikmyndum eigi sinn þátt i
þvi hvað þær kvikmyndir, sem hingað til
hafa verið gerðar, hafa gengið vel, en ég
vona, að þegar nýjabrumið fer af þessari
grein, haldi áfram að vera jarðvegur fyrir
kvikmyndagerð, og sé ekki ástæðu til að
ætla annað. Ég held, að þessi fyrstu ár i
alvöru kvikmyndagerð hér á landi, gefi
fyllstu ástæðu til að vera hóflega bjart-
sýnn. Og það er ég i sambandi við þessa
kvikmyndagerö.”
— Hvað heldurðu að verði að gera til að
fólk haldi áfram að koma að sjá þær
myndir, sem verða gerðar?
„Fjalla um eitthvað, sem fólki finnst
þvikoma við, held ég, þ.e. að halda áfram
að gera kvikmyndir fyrir fólk og um fólk.
Það held ég að sé hlutur, sem nauðsynlegt
séað hafa í huga. Ekkiþarfyrir, að það er
að sjálfsögðu öllum mönnum frjálst að
gera kvikmyndir bara fyrir sjálfa sig, en
það er dálitið dýrt egótripp.”
Vii irekar næiia eigin lé
— Nú er meiningin aö þin fyrsta bió-
mynd verði frumsýnd um jólin. Ertu
ekkert kviðinn fyrirþvi? Heldur þú að hún
muni hljóta svipaðar móttökur og fyrri
myndir hafa hlotið?
,,Þú spyrð dálitiö mikið um kviða fyrir
þvi að senda verk sin frá sér. Ég finn
miklu frekar fyrir tilhlökkun. Eins og við
töluðum um fyrst, þá er þetta ákveðinn
lokapunktur i langri þróun, og til þess
lokapunkts horfi ég yfirleitt með tilhlökk-
un. Hvað viðbrögð almennings áhrærir,
þá get ég varla sagt aiinað en það, en ég
held að yfirleitthljóti verk m jög svipaðar
undirtektir hjá almenningi og þessi verk
eiga skilið. Vissulega eru til undantekn-
ingar frá þessu, en yfirleitt held ég, að
undirtektir séu mjög i hlutfalli við það,
sem verkin eiga skilið. Þetta er hlutur,
sem ég sættimig afskaplega vel við, þvi ef
ég gerði þaö ekki, væri óhugsandi að
maður stæði i því að búa eitthvað til fyrir
fólk.”
— Sá kviöi, sem ég tala um núna er ekki
sama eðlis og sá, sem ég nefndi i upphafi.
Þá hafðir þú opinbera stofnun á bak við
þig, og þáðir aðeins þi'n verkmannslaun
fyrirgerð myndarinnar, en nUna tekur þú
mikla fjárhagslega áhættu sjálfur.
„Þá verð ég að segja, að mér finnst
mikill léttir að þvi að þessi mynd, sem
mynd, sem við erum að koma með núna,
skuli ekki vera gerð fyrir afnotagjöld alls
almennings. Þær myndir, sem Sjónvarpið
gerir eru gerðar fyrir afnotagjöld neyt-
enda, og töluvert margir af þessum neyt-
endum eru hundfúlir yfir þvi, að þeirra
peningar skuli vera lagðir i hin eða þessi
verk. Aftur á möti er þessi mynd, Jón
Oddur og Jón Bjarni, gerð með þvi að
stampa húseignum fólks, sem trúir á
verkið og vill gjarnan hætta öllu til aö
gera það að veruleika. Miklu frekar vil ég
taka áhættu fyrir mina eigin peninga, en
peninga einhvers fólks úti i bæ, á Nes-
kaupstaö, eða einhvers staðar.”
— ÞU ert þvi bjartsýnn á að geta fengið
að stunda sjálfstæða kvikmyndagerð I
náinni framtið?
„Ég er það. Að visu mundi ég ekki orða
það þannig, að ég gæti fengiöað stunda
hana. Það hljómareins og það sé einhver
sem leyfi manni að gera það. 1 kvik-
myndagerð hér, eins og viðast annars
staðar, þá liggja tækifærin ekki á götunni,
heldur verður maður -að búa þau til
sjálfur. Þótt ég sé með flensu i dag, efast
ég ekkert um að mér endist heilsa og
kraftar til að skapa einhver tækifæri i
framtiðinni.”