Helgarpósturinn - 23.10.1981, Blaðsíða 6
Fjárlagafrumvarpið er endaleysa:
„Tölurnar byggðar
á röngum
forsendum
Föstudagur 23. október 1981
„Þaö er helvíti hart ef maður
getur ekki lengur treyst þeim
tölum sem maöur fær i hend-
urnar”, sagöi Ragnar Arnalds
fjármálaráöherra I samtali viö
Aöalblaöiö, en sem kunnugt er
hefur komiö i ljós aö fjárlaga
frumvarpið er „ein allsherjar
endaleysa”, eins og ráðherrann
orðaöi þaö.
„Fjárlagafrumvarpiö er byggt
á ýmsum forsendum, en nú i ár
eru þær forsendur augljóslega
rangar”, sagöi Ragnar, „Þetta
þýðir að ýmsar tölulegar upplýs-
ingar i frumvarpinu eru alveg úti
hött. Ég get nefnt sem dæmi að ef
þetta væri látiö standa, þá ætti til
dæmis að hækka framlag til
liknarmála og menningarmála!
Allir sjá að það er fáránlegt. A
sama hátt þá er gert ráð fyrir þvi
i frumvarpinu eins og það er, að
dregið verði úr niðurgreiðslum til
landbúnaðarins, og að aðstoð hins
opinbera við útgerðarmenn verði
minnkuð. Það er hreint brjál-
æði”. sagði Ragnar.
Fjárlagafrumvarpið verður
endurskoðað nú strax, „og þessi
Ragnar Arnalds.
mál færð i rétt horf”, lofaði ráð-
herrann. Hann sagði að i ráðu-
neytinu yrðu gerðar ráðstafnir til
þess að „þetta gerðist ekki
aftur”.
Samhygð gerir jörðina mennska
„Víö viíjun- ekki lata sitja viö
oröin tóm. Þaö er ekki stefna
okkar i Samhygö. Þessvegna
ÆTLUM viö aö gera jöröina
mennska. Það getur ekki haft
annað I för meö sér en þaö aö
jöröin fyllist af mannkærleika og
aö mannfólkiö fyllist hlýju, kær-
leika og jafnvægi”, sagöi Ingi-
björg Guðmundsdóttir, starfs-
maöur Samhygöar, samtakanna
sem starfaö hafa undir slagorðinu
„Gerum jöröina mennska”.
Ingibjörg sagði aö Samhygð
hefði fest kaup á landi við Korp-
Olfsstaöi.og að þar ætti i fyrsta
skipti að gera jöröina mennska.
Sagði hún hugmyndina upphaf-
lega vera komna frá Siló
frá Argentínu, stofnanda Sam-
hygöar og höfundi bókariimar
„Neðri ró”.
Ennfremur sagöi Ingibjörg aö
næsta vor væri von á um þrjú
þúsund erlendum meðlimum
Samhygðar hingað til lands, auk
þess sem allir islenskir meðlimir
hreyfingarinnar munu verða á
túnblettinum við Korpúlfsstaði.
„Til að gera jöröina mennska
þarf manneskjur, ekki satt??”
sagði Ingibjörg.
Korpúfisstaöaland varð fyrir
valinu, vegna þess aö þar er
gljúpt undir og hentugt til að gera
mennskt. Verkinu munu stjórna
fjórir af leiötogum Samhygðar,
þeir SIló frá Argentinu, Talla frá
Indonesiu, höfundur bdiarinnar
„Ytri ró”, Blökk frá Þýskalandi,
höfundurbókarinnar „Efri ró” og
Pétur Guðjónsson, höfundur
bókarinnar „Innri ró”.
Samkvæmt upplýsingum Ingi-
bjargar veröur jörö Samhygðar
plægð og sfðan grafin göng og hol-
ur, þar sem fólk mun nálgast
jörðina. „Þar er svo meiningin aö
vera þangað til jöröin veröur
mennsk, og maöurinn fullur af
kærleika, jafnvægi, og innri ró”,
sagði hUn. „Við erum vongóö um
að þaö takistfyrir næsta vetur”,
sagði hún ennfremur.
Gall Gali, frá Sri Lanka, höf-
undur bókarinnar ,,Róróró”,mun
flytja ávörp á meðan fólkiö er að
mennska jöröina.
Nokkrar meinlegar prentvill-
ur læddust inn i grein Ingvars
Gislasonar, menntamálaráð-
herra, um Videóvæöinguna,
scm birtist i siðasta Aðalblaði.
Sýnu verst var að setningin:
„Ég er með þessi mál öll til at-
hugunar og hef þegar skipað
þrjár nefndir til að skila áliti”,
varð i greininni að: „Ég hef
ekki hugmynd um hvernig ég á
að snúa mér I þessu frekar en
öðru, — ætli ég skipi bara ekki
nokkrar nefndir til að firra mig
ábyrgð”. Þó svo hugsunin á bak
við setningarnar sé hin sama
verður að lita svo á að merking-
in breytist litillega. Er mennta-
málaráðherra beðinn velvirð-
ingar á mistökunum.
9. tolublað
—---1--------------------------------
Enn einn veitingastaður í Reykjavík:
Herkjan svíkur engan
Alltaf f jölgar veitingastöðunum
I Höfuðborginni. Nú um helgina
opnar enn einn matsölustaðurinn
— Veitingahdsið Herkjan — og er
hann til húsa I gömhi og vinalegu
húsi i efra Breiðholti.
Að sögn eigandans og yfirmats-
sveinsins, Sigurjóns Pálssonar,
verður lögö höfuðáhersla á að
halda I heiöri islenskum matar-
venjum. Fjölmargir réttir verða
á matseðlinum, og eru þeir i anda
„Le Nouvelle Islendische Cuis-
ine”.
„Viö munum hafa heitan mat i
hádeginu”, sagði Sigurjón, ,,og á
kvöldin lika. Yfirhöfuð reynum
við að hafa matinn helviti heitan,
svona almennt’.’Sigurjón sagði að
hann hefði féngið vinveitingaleyfi
eins og aðrir veitingastaðir.
„Munurinn er sáýsagði Sigurjón,
,,að i Herkjunni verður ekkert
rauðvinssull. Ef menn vilja
drekka hér, þá geta þeir drukkið
brennivín og gin, eða ekki neitt.
Vin hússins verður brennivin i
kók. Hér geta því heilu fjölskyld-
urnar komið saman i góðu tómi
og sest niður I huggulegu um-
hverfi, boröað þolanlegan og
seðjandi mat, virkilegan, þungan
og drjúgan I maga, og farið á
súrrandi fylleri. Stefnan er að hér
standi enginn upp frá borðum
hjálparlaust”, sagði Sigurjón.
Ekki er að efa að margir munu
fara upp i' Breiðholtog njóta gest-
risni Sigurjóns. Frá honum fer
enginn ófuliur.
Rætt um inngöngu Samtakanna ’78
í Alþýðuflokkinn:
„Komið aftan
að Aiþýðu-
flokknum”
segir Kjartan
Jóhannsson
Vilmundur Gylfason sagði i
morgun i viðtali við Morgun-
vöku útvarpsins, að hann og Jón
Baldvin Hannibalsson hefðu átt
viðræður við fulltrúa Samtak-
anna '78, um inngöngu samtak-
anna i Alþýöufiokkinn.
Þessi yfirlýsing þingmanns-
ins kemur i framhaldi af við-
ræðum hans og Jóns Baldvins i
sumar við Kommúnistasamtök-
in. Sagði Vilmundur að hann
vonaðist eftir þvi aö þessi mál
yrðu tekin upp á flokksþingi Al-
þýöuflokksins nú um helgina.
t viðtalinu i morgun sagði Vil-
mundur að það væri skoðun
hans að sem flestir ættu að geta
gengið i Alþýðuflokkmn burtséð
frá þvi hvaða stjornmálaskoð-
anir menn hafa. „Alþýðuflokk-
urinn er stór flokkur. Að visu
ekki i meðlimafjölda. En hann
er stórhuga. Hann er hugaöur.
Hanner mannlegur. Þaðerrúm
i Alþýðuflokknum fyrir alla,”
Kjartan Jóhannsson
sagði Vilmundur.
Hann sagði að þeir hefðu hist
á kaffihúsi, hann, Jón Baldvin
og þrir fulltrúar Samtakanna
’78. „Þetta var fundur. Það er
enginn vafi”, sagði Vilmundur,
þegar hann var spurður hvort
viðræðurnar hefðu verið form-
legar. „Við i Alþýðuflokknum
þurfum ekki kerfið til að segja
okkur hvað er formlegt og ekki
formlegt. Við vitum það,” sagði
hann.
„Þaö hefur verið komið aftan
að mér i þessu máli,” sagöi
Kjartan Jóhannsson, formaður
Alþýðuflokksins, þegar Aðal-
blaðiþ bar þessa frétt undir
hann i morgun. „Þetta verður
tekið fyrir á flokksþinginu,
meira vil ég ekki segja.”
T ollstjóraembættið
auglýsir
Laus til umsóknar er staða tollvarðar. Laun
samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna. Auk þess koma til margvíslegar aðrar
greiðslur, ef vilji er fyrir hendLt.d. flaska í
vasann o.s.frv.
Umsækjendur þurfa hvorki að hafa fulla
sjón né heyrn. og þurfa ekkert endilega að
vera mjög samviskusamir. Þeir eiga t.d.
bara að taka það smygl sem þeir eiga að taka,
eða þannig.
Útsala Útsala
Af sérstökum ástæðum verður haldin
RISA-útsala á akureyrsku jólahangikjöti nú
um helgina, í öllum matvörubúðum landsins.
Þeir sem fæddir eru í október, f á sérstakan
RISA-afslátt.
Hangikjötið er unnið samkvæmt viður-
kenndum aðferðum læknisf ræðinnar.
Hangikjötiðer herramannsmatur.
Hangikjötið mitt og
hangikjötið þitt
Hangikjötsframleiðendur
og Heilbrigðiseftirlitið
Útsala Útsala
SPURT OG SVARAD_______________
Geir Hallgrímsson svarar spurningum lesenda
um stjórnmálaviðhorfið
Jóhann Pálsson 2974-3824:
Nú hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn ekki setiö við stjórn árum
saman. Ef Sjálfstæðisflokkur-
inn kæmist til valda i samstarfi
við aðra flokka — hvaða flokkur
yrði fyrir valinu?
SVAR:
Hver yrði þá stefnan, spyrð
þú, Jóhann. Það er góð spurn-
ing. Ég þarf vist ekki að segja
þér, Jóhann, aö Sjálfstæðis-
flokkurinn er stór flokkur, og að
innan hans rúmast margvisleg-
ar skoðanir. Sjálfstæðisflokkur-
inn erfjöldaflokkur, og við meg-
um ekki taka upp stefnu sem
hugsanlega gæti styggt ákveðna
hópa innan flokksins. Sem fyrr
byggist stefna Sjálfstæðis-
flokksins á viðsýnu, umburðar-
lyndu frjálslyndi, Jóhann, og
þaö er stefnan I dag.
Karl Jónsson 3428-8957:
Ef SjáIfstæöi sflokkurinn
kemst til valda, mun hann þá
beita sér f yrir þvi aö togaraflot-
inn verði minnkaður?
SVAR:
Þetta er góð spurning, Karl.
Sjálfstæðisflokkurinn sækist
eftir völdum i þjóöfélaginu til
þess að gera lif einstaklingsins
betra. Þaö er æðsta markmið
flokksins, Karl, aö hver Islend-
ingur geti með stolti stundað
sina vinnu, og sofnað ánægður
að kvöldi dags, aö loknum erfið-
um vinnudegi. Sjálfstæðisflokk-
urinn vill auka frelsi einstakl-
inganna og efla framtak þeirra.
Við skulum ekki dylja okkur
þess að meginvandi frjálsra
þjóðfélaga er að sameina vel-
ferðarriki.frelsiogauka ábyrgð
einstaklingsins útávið, þannig
að hver Islendingur, Karl, geti
stundað sina vinnu með stolti og
sofnað ánægður að kveldi. Ann-
ars sé ég ekki að þetta komi þér
við.
Magnds Sveinsson, 2897-4539:
Hvemig yrði okkar þjóðfélag
ef Sjálfstæðisflokkurinn fengi að
ráða?
SVAR:
„Þetta er góð spurning,
MagnUs. Ég tel að hver höndin
veröi ekki ipp á móti hver ann-
arri.né heldur að við Mjótum
hlutskipti austantjaldsþjóð-
anna, þar sem þjóöimar búa i
stóru fangelsi. Þjóðfélag Sjálf-
stæðisflokksins er þjóðfélag ein-
staklingsfrelsis, þar sem hver
tslendingur getur stundað sina
vinnu með stolti, Magnús, og'
sofnað ánægður að kveldi. Það
þjóöfélag veröur þjóöfélag viö-
sýni, umburðarlyndis ogjrelsis.
Akveðin öfl innan Sjálfstæðis-
flokksins vilja mig eflaust burt
áður en til þessa kemur en ég,
MagnUs, fer hvergi.
Gunnar Thoroddsen, 2647-
8973:
Ingimundur og hans hundur
sátu báöir og átu.
NU nefni ég hans nafn.
Gettu mina gátu.
SVAR:
Þetta er það sem ég átti við,
Magnús. Þetta er gallinn við
víösýnan, umburðarlyndan og
frjálsan stjórnmálaflokk. En
hvað get ég gert?
Gunnar Thoroddsen, 2647-
8973:
Hvað heldurðu maður?
SVAR:
(framhald næst)