Helgarpósturinn - 23.10.1981, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 23.10.1981, Blaðsíða 21
—he/garposturinn—Föstudagur 23. október 1981 S- I 21 /unni Guöbjörg Thoroddsen og Hákon Leifsson á æfingu á Jómfrú Ragnheiöi. ,,Það besta er að fá að spreyta sig" — segir Guðbjörg Thoroddsen, sem leikur sitt fyrsta hlutverk sem atvinnuleikari hjá L.A. um helgina Fyrsta frumsýning vetrarins hjá Leikféiagi Akureyrar veröur i kvöld, föstudag. Verkiö, sem sýnt verður, er „Jómfni Ragnheiður”, en það er ný leikgerð af Skálholti Guömundar Kamban. Höfundur lcikgerðarinnar og jafnframt leikstjóri er Briet Héöinsdóttir. Með titilhlutverkiö fer Guöbjörg TTioroddscn, en hiín útskrifaöist úr Leiklistarskólanum siðastliðiö vor. Af þvi' tilefni haföi Helgar- pósturinn samband viö Guð- björgu og var hún beðin aö segja aðeins frá persónu Ragnheiðar. ,,HUn er saklaus og ætlast ekki til neinnar mannvonsku i heimin- um, þvi aö hún hefur fengiö góöa aðhlynningu. Hún heldur að hver geti ráöið sinum örlögum sjálfur, en hún er mjög opin, þegar það kemur i' ljós, að lifið er ekki bara dans á rósum”, sagöi Guðbjörg. Aðspurð sagði Guðbjörg, að hlutverkiö væri erfitt, en þess bæri lika að gæta, að hún væri svo mikill nýliði. HUn sagði hins vegar, að sér þætti gaman aö vera komin Ut i atvinnulifið, en þetta hlutverk væri hennar fyrsta eftir að hún lauk námi. — Ermikillmunur að taka þátt i Nemendaleikhúsinu og svona al- vöru leikhUsi? ,,Já, það er dálitill munur. Manni finnst maður vera svolitið afsakaður i' nemendaleikhúsi.” — Heldurðu, að þú standir und- ir kröfunum, sem gerðar eru til atvinnuleikara? ,,Ég veit það ekki, það verða aðrir aö dæma um þaö. Maður gerir sitt besta. Ég er alla vega mjög spennt fyrir þessum vetri.” — Heldurðu að það að hefja feril þinn Uti á landi hafi einhver áhrif á það hvernig þú kemur til með að mótast sem leikari? ,,Ég er mjög ánægð með þá á- kvöröun mina að koma hingað, vegna þess að i bænum heföi ég ekki fengið eins mikiö að geFa og hér, þannig að það er heilmikið, semmaðurhlýturað læra i vetur. bað hlýtur að vera það besta, þegar maöur er nýkominn Ut úr skóla að fá að spreyta sig”, sagði Guðbjörg Thoroddsen, sem hefur sinn feril sem atvinnuleikari nú um helgina hjá L.A. — GB Bókaútgáfa Bókhlöðunnar: Æviminningar séra Valdimars J. Eylands meðal jólabókanna ,,Við verðum með svipað magn og i fyrra. Þá vorum við með sex titla og þeir verða sex til átta i ár”, sagði Eyjólfur Sigurðsson, þegar hann var spurður um vænt- anlega bókaútgáfa Bókhlöðunn- ar. Eyjólfur sagði, að enn væru ekki öllkurlkomin til grafar hvað varöaði útgáfuna i ár og vildi að- eins nefna fjóra titla: Æviminningar séra Valdimars J. Eylands i Vesturheimi, skrá- settar af honum sjálfum og með formála eftir dr. Kristján Eld- járn. Endanlegur titill er ekki kominn á bók þessa, en væntan- lega mun hún heita Cr Viðidal til Vesturheims. Þá gefur Bókhlaðan út safn af viðtölum við þekkta menn, bæði látna og lifandi, sem Björn Bjarman hefur tekið. Auk þess- ara viðtala er fremst i bókinni fyrsta smásaga, sem Björn skrif- aði,og aftast er síðasta smásaga hans. Haldið verður áfram að gefa út knattspyrnubækur og að þessu sinni er þaö saga Manchester Un- ited, sem skráð er af Derek Hodg- es. Loks fá svo strákamir nýja Bennabók, sem enn hefur ekki hlotið endanlegt heiti, en bækur þessar eru eftir Captain W.E. Jones. BANNAÐ AÐ FA SÉR Á SN/P/NN! I baksiðuslúðri Helgarpósts- ins i siðustu viku var frá þvi sagt að tvö lög af nýútkominni plötu Kamarorghesta, Bisar i banastuöi, hefðu veriöbönnuð i útvarpinu. Þar sem allt er lykt- ar af ritskoðun vekur áhuga sé þagaö i hel i útvarpinu af þeirri einu ástæðu að þar er mikilvægt liffæri konunnar nefnt sinu rétta nafni? NU er vetrardagskrá sjón- varpsins óðum að taka völdin og liður varla sá dagur (að Fjölmtðlun eftir Þröst Haraldsson minn settiég mig i samband við nýskipaöan tónlistarst jóra gamla gufuradiósins, Jón örn Marinósson, til að spyrja hann um þetta mál. Hann.staðfestifréttina og var ekkert að leyna þvi að hann heföi sjálfur tekið þá ákvörðun að lögin „Bi'tt’i rassgatiö á þér” og ,,Samviskubit”skyldu útlæg ger af þeim öldum ljósvakans sem hann ræöur yfir. — Ég er persónulega ekkert mjög við- kvæmur, en mér þóttu textarnir við þessi lög þess eðlis að óvið- eigandi væri aö flytja þau i út- varpi, sagði hann. Hann sagði lika aðengar regl- ur væru til um það, hvar draga skuli mörkin á milli þess leyfi- lega og hins forboðna. — Enþað verður að taka skjótar ákvarð- anir þegar svona hlutir koma upp.Minn úrskurðmá svo kæra til útvarpsráös ef aðstandend- um plötunnar þykir ástæða til, sagði Jón. Ekki kvaðst Jón hafa orðið fyrir neinum þrýstingi i þá átt að banna þessi lög heldur hefði starfsmaður tónlistardeildar vakið athygli hans á textunum. Eflaust er erfitt aö draga mörk á milli þess hvaö er boð- legt fyrir alþjóð og hvað ekki. Engaman væriefaðstandendur plötunnar kærðu Urskurö Jóns, þóekki væritilannarsen að láta reyna á frjálslyndi útvarpsráðs. Mér finnst það sérstaklega mikilvægt út af laginu „Sam- viskubit” sem er skeleggasta (og eina?) framlag kvenna i poppbransanum til kvenfrelsis- mála hér á landi. Vilja konur sitja undir þvi aö slikt framlag SOGULEG STUND Það var mikil upplifun að vera viöstaddur fyrstu dúótón- leika Niels-Hennings Örsted Pedersens og Philip Catherine, en þeir héldu þá i Háskólabiói á miðvikudagskvöldið var. Mikir spenna rikti i salnum sem á Annað verk tónleikanna var lika splunkunýtt úr penna Philips: Every Day. Hin djang- óska tradisjón er rik i verkum hans sem leik, en þetta voru ekki neinar einfaldar melódiur heldur þrælerfið kammerverk. Þá var komiö aö dönsku deild- inni. Niels lék Future Child, sem hann tileinkaði á sinni tið óbornu barni sinu, seinna telp- Jazz eftir Vernharð Linnet sviðinu, þvi um helmingur efnisskrárinnar var hér fluttur i fyrsta sinni, inná milli voru svo gamlir kunningjar af hinni klassisku efnisskrá djassins. Allt frá fyrsta verkinu: September Start, eftir Philip var ljóst að hin listræna upp- lifun yrði rik án þess að nokkuð glataðist af þeirri rýþmisku spennu sem er aöal djassins. Það er óþarfi aö hafa orö á virtúósiteti Niels, hann þekkja allir Islendingar, sem eitthvað fylgjast meö tónlist. Philip er mörgum minnsstæöur frá tón- leikum Niels i Háskólabiói 1978. Kannski þeir hafi búist við honum kröftugri þetta kvöld, en þess ber aö gæta að dúó er ekki trió. unni Mariu, þá liöu þeir félagar inni beykiskógatónlist hinnar dönsku þjóðar: Jeg gik mig ud en sommerdag og loks var brugðið á leik i uppáhaldslagi islenskra nflsista, ,,Min lille Anna” og þar fékk húmorinn yfirhöndina og margur geggjar- inn tisti þegar brugðið var frá hinni heföbundnu túlkun. Nugaser ein fegursta tónsmið Django Reinhards og svo fagur- lega lék Philip hana að klökkvi settist að i brjóstunum, Niels dró úr klökkvanum og eftir þaö lék Philip á brosvöðvana með tilvitnun i Marseiinn. Að lokum skelltu þeir sér i The Puzzle, sem þeir léku i Háskólabiói ’78 og er á Trió 2. Þá var nú heitt i kolunum og Niels rakti blússög- Philip Catherine og Niels-Henning i Háskólabiói i fyrrakvöld — glæstir tónleikar mikilla listamanna, segir Vernharður m.a. i um- sögn sinni. una og um tima gat maöur att von á að Ben heitinn Wesbster labbaöi inn með tenorinn og hoffinn. Svo kom hlé. Kannski var hinn listræni kraftur ekki alveg eins sterkur seinni hlutann. Orginalar Philips, Janet og Spirale ekki eins gripandi viö fyrstu heyrn. Þá léku þeir Autum Leaves en Philip sleppti sér ekki lausum og kildi einsog ’78. Svo léku þeir þann fræga tangó Gades um af- brýðina og var þaö góð skemmtun, en i loka verkinu Air power frá ’78 var allt komið á fulltaftur og Niels einsog Bird á bassann og allt trylltist. Auka- lögin urðu tvö og að sjálfsögöu það slöara Litla lestin hans Villa-Lobos og uröu mikil fagnaðarlæti er innganginum lauk og fólkið þekkti sitt lag. Glæstir tónleikar mikilla listamanna og á fimmtudags- kvöldiö leika þeir á Hótel Sögu og þá er ég viss um að Philip lætur gamminn gejsa i Autum Leaves og Niels blæs á bassann af sama krafti og Bird og Trane blésu saxana sina. , P.S Oft hefur verið kvartaö yfir hljóöstjórninni á tónleikum djassleikara á Islandi, en nú var ástæöa til að gleöjast. Magnús Kjartansson vann verk sitt af slikri prýöi að á betra varöekki kosið i Háskólabiói. fimmtudögum frátöldum) að ekki byrji nýr framhaldsþáttur. Fréttaspegill hóf göngu sina á fóstudaginn var og eru þeir Guðjón Einarsson og Bogi Agústsson alls góðs maklegir fyrir þátt sinn um videómálið. Þar var á ferö lifandi frétta- mennska, hæfilega ýtin og þess gætt að menn kæmust ekki upp meö að vikjast undan spurning- um. Hins vegar má Bogi — og reyndar öllfréttadeildin— vara sig á þvi'sem geröist ierlendum fréttaspegii á þriðjudaginn. 1 kaflanum um • Egyptaland missti ég hvað eftir annað þráð- inn vegna þess aö myndefnið sem sýnt var undir lestri Boga var ekki i samhengi við textann og rændi þess vegna athyglinni. Þetta er þvi miöur allt of al- gengt I fréttum sjónvarpsins. A þriöjudaginn hleypti sjón- varpiö af stokkunum þáttaröö Magnúsar Magnússonar um vikingana. Ég sá nokkra af þessum þáttum i Danmörku i vor og man aö þarlendir kolleg- ar minir gagnrýndu Magnús „okkar” fyrir að láta „show” mennskuna ráöa feröinni um of á kostnað fræöimennskunnar. Ekki treysti ég mér til að dæma um slikt, en Magnús kann til verka, hann er fantagóöur sjó- maöur. A m illi Magnúsar og Boga var einn þessara útsöluþátta sem sjónvarpiö hefur einstakt lag á að grafa upp, Hartá mótihörðu. Sjáifs mi'n vegna og lesenda ætla ég ekki að hafa þessi orð fleiri. „Nálægt því að vera dagbók í Ijóði” — segir Ólafur Haukur Símonarson um nýja bók sína ,,6g er með litla bók, sem kem- ur væntanlega út fyrir jólin. Það erstuttsaga, sem heitir Almanak Þjóðvinafélagsins”, sagði ólafur Haukur Simonarson, þegar Helg- arpósturinn leitaði frétta hjá hon- um af ritstörfunum. Ölafur Haukur sagði, aö bókin væri nokkuö nálægt þvi að vera dagbókiljóði, og i henniværikikt á hið daglega lif, bæði innan dyra og það, sem vofði yfir manni. „Ég myndi segja, að þetta væri létt og skemmtileg bók, þó að við- fangsefniö sé náttúrlega ótrúlega alvarlegt, eins og alltaf”, sagöi Ólafur Haukur. Ekki vildi hann segja meira um verkið og verðurþvialmenningur að biða eftir útkomu þess.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.