Helgarpósturinn - 23.10.1981, Page 15

Helgarpósturinn - 23.10.1981, Page 15
15 he/garpósfurinn Föstudagur 23. október 1981 Sigurveig Jónsdóttir Skemmtilegast að vinna i fréttum „Maðurinn á bak við nafnið”, er að þessu sinni ein úr hópi blaðamanna, Sigurveig Jóns- dóttir, sem' nú starfar á frétta- stofu Sjónvarpsins. Sigurveig byrjaði nýskeð á Fréttastofunni og er þangað komin til að leysa Guðjón Einarsson af, en hann gegnir starfi fréttastjóra um stundarsakir. Við spurðum Sigurveigu, hvort hún reiknaði með að ilendast á sjónvarpinu, en hún kvað nei við þvi. „Ég er þarna sem afleysingamanneskja i tvo mánuði og reikna ekki með að verða lengur”. Sigurveig er reyndar gamal- reynd úr frétta- og blaða- mennsku, hóf störf i ársbyrjun 1976 og þá á Visi. Á Visi var Sig- urveig siðan i rösklega fjögur ár, að hún ákvað að gerast lausarrianneskja i blaða- mennsku. „Ég kann þvi i raun betur, að vera lausráðin. Með þvi móti ræð ég betur minum tima og get jafnframt valið verkefnin og hafnað”. En er ekkierfitt aðfá verkefni — þótt Islendingar gefi út margt blaða og timarita og lesi mikið, er ekki markaðurinn þröngur fyrir utanaðkomandi blaða- menn? „Það er ekki min reynsla. Ég hef haft meira en nóg að gera”. Sigurveig er reyndar, eins og titt er um kvenfólk, húsmóðir að auki og dagur hennar þvi gjarna áskipaður. Hvað fellur þér best að vinna i blaðamennskunni? „Mér hefur alltaf þótt skemmtilegast að vinna i frétt- um. Blaðamennska á blöðum gengur út á margt fleira en fréttaöflun og fréttaskrif. Blaðamenn þurfa að skrifa greinar um ýmis efni, annast lesendaþjónustu og sitthvað sem mörgum finnst kannski ekki sérlega skemmtilegt”. Þannig að þú ert i essinu þinu á sjónvarpinu? „Já. Mér finnst gaman að vinna i fréttum. Starfi sjón- varpsfréttam anns svipar reyndar mjög til fréttastarfa á blaði, nema að þvi leyti, að maður verður að hugsa miklu meira fyrir myndefninu. Á blaði sér ljósmyndari meira eða minna um myndefnið, frétta- maðurinn hefur af þvi litlar áhyggjur. Á sjónvarpinu verður sá hluti starfsins að vera ná- kvæmlega undirbúinn. Og fréttamaðurinn er ekki einn. Hann vinnur við hlið kvik- myndatökumanns og hljóðtöku- manns. Þannig er þetta allt nokkuð þyngra i vöfum”. — GG Janis Carol i stuttri heimsókn á tslandi: „Hef verið heppin i London, aldrei atvinnulaus, og sóló-plata væntanleg i vetur”. Sigurveig Jónsdóttir blaðamaður — leysir af á Sjónvarpinu. Nýja öðustellið frá Glit. Innlendur leir öll veitingahús á tslandi, gömul jafnt sem ný, bera krásir sinar fram á innfluttum diskum. Nú hafa innlendir framleiðendur, Glit h.f., fengið augastað á þessum markaði, sem svo mjög hefur þanist út siðustu árin. „Við ætlum að reyna að keppa á þessum markaði og bjóða fram nýtt stell, hannað af Huldu Marisdóttur leirlistamanni og Eydisi Lúðviksdóttur myndlista- manni. Stellið er afarsterkt, brennt við óvenjuháan hita”, sagði Orri Vigfússon, fram- kvæmdastóri Glits i' stuttu spjalli. „En það er rétt að taka fram, að innfluttur leir er fjöldafram- leiddur en okkar er handunninn. Við erum lika smáir i sniðum miðað við stóru verksmiðjurnar og þvi er hér um stóra ákvörðun að ræða fyrir okkur”. Hvað um verðið; verðið þið samkeppnisfærir? „Við teljum það. Sumt af þvi innlenda er dýrara en okkar stell — sumt ódýrara. Og ég bendi á, að það er ekki aðeins um að ræða að setja stell i framleiðslu — við skuldbindum okkur til að fram- leiða inn i nýja stellið i ein tólf ár. Við settum stell á markaðinn fyr- ir fimm árum og það gekk mjög vel”. ^LIÐARCHDl Klassískt 7 tónlistarkvöld \ Guömundur Jónasson syngur létt klass ísk lög Ólafur Vignir Albertsson leikur á píanó. Boröapantanir frá kl. 2 i síma 11690. S. Opió frá kl. 18.00. y I

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.