Helgarpósturinn - 11.12.1981, Page 12
Hingað til lands eru komnir
góðirgestir: sex menn sem skipa
hljdmsveitina Matchbox ásamt
fylgdarliði. Þeir munu i kvöld og
nokkur næstu kvöld leika i Broad-
way þá tdnlist sem þeir eru frægir
fyrir, — rockabilly.
Rockabilly er tónlist eiginlega
jafngömul rokkinu sjálfu og er
blanda af þvi og Hillbilly, en það
er sú tónlist sem mest er sveitó af
allri ameriskri sveitatónlist.
Rockabilly var mjög vinsæl tón-
list á upphafsárum rokksins, og
er Bill Hailey með lög sin „Rock
Around the Clock” og „See You
Later Aligator” prýðilegt dæmi
um þessa tegund danstdnlistar.
Eftir að hann og samtiðarmenn
hans glötuðu mestu vinsældunum
hefur verið hljótt um Rockabilly,
en nú á allra siðustu árum hefur
vegur þess farið aftur vaxandi.
Frægastur hér á landi er áreiðan-
lega Shakin Stevens, en Stray
Gats! er Rockabiilyhljóm sveit
interRent
car rental
Bílaleiga Akuréyrar
Akureyri
THyOCVABRAuT I
S.2171S ÍÍ515
Reykjavik
SKfc'fAN
S. 3 '.615 P&415
Mesta urvallS. besta þjónustan.
Við utvegum ySur afslátt
a bilalelgubilum er'endls.
Föstudagur 11, desember 1981 hokjPUJin^h irinn
Eftirlætisréttur
Axels
Ahugi tslendinga á matarupp-
skriftum og matargerð framyfir
hefðbundna steikingu og suðu á
kjöti og fiski hefur tvimælalaust
aukist stdrum á undanförnum
árum.
Þennan aukna áhuga má
meðal annars merkja af þvi, að
upp hafa sprottið nánast ,,at-
vinnusælkerar”, sem skrifa um
áhugamál sin, fdlk þyrpist á
veitingahúsin til að eta mat a la
allskonar framandi l'önd og
mataruppskriftir virðast vin-
sælt lesefni i blöðum.
Helgarpósturinn hefur m.a.
haldið úti þessu uppskriftahorni
allt frá byrjun, og það hefur
sjaldnast verið vandkvæðum
bundið að fá fólk tilað grafa upp
girnilegar uppskriftir.
Það er svo i beinu framhaldi
af þessum endurnýjaða áhuga
landans á matargerðsem bóka-
útgáfan Vaka gefur nú út bók
með 50 uppskriftum frá þekktu
fólki. Að sögn útgefandans,
Ölafs Ragnarssonar, spilaði lika
þar inn i, að til þessa hefur litið
verið gefið út af matreiðslubók-
um sem eru fyrst og fremst
miðaðar við það hráefni sem
fæst hér á landi; flestar hafa
þær verið þýddar. Jafnframt
var hugmyndin að fá uppskriftir
sem hafa verið reyndar hér á
landi og virðast falla að islensk-
um matarsmekk.
Það var Axel Ammendrup
blaðamaður sem safnaði upp-
skriftunum— mikill matmaður
sjálfur. Og Helgarpóstinum
fannst upplagt að snúa dæminu
við og biðja hann um uppáhalds
uppskrift hans, þar sem hann
stóð i þvi frá þvi i júli i sumar
þar til i lok nóvember að safna
saman uppskriftum frá öðrum.
Ekki stóð á uppskriftinni hjá
Axel, hún var komin morguninn
eftir að Helgarpósturinn hafði
samband við hann, og hér kem-
ur hún, ásamt formála hans og
útskýringum:
Ég hef hingað til verið þekkt-
ari fyrir goða matarlyst og
athyglisverð tilþrif við matar
borðið en sem matargerðar-
maður. Eftir að ég tók að mér
að safna efni i bókina „Eftir-
lætisrétturinn minn” fyrir Vöku
i sumar, hefur áhugi minn á
matargerðarlistinni þó stórauk-
ist. Hvort aukin afskipti min af
matargerðinni verða til að
draga úr matarlystinni skal
ósagt látið.
Er ég tók saman „Eftirlætis-
réttinn minn” fékk ég fleiri en
eina uppskrift frá nokkrum höf-
undum bókarinnar. Þeirra á
meðal eina frá Auði Laxness,
sem er snillingur við matar-
gerð. Þá uppskrift ætla ég að fá
einhvern til að aðstoða mig við
og gera að helgarveislumatnum
minum.
Entrecote Avignonaise (Nauta-
steik með vinsósu)
Nautakjötið er steikt i ólifu-
oliu við mikinn hita i þykkbotn-
uðum pottieða djúpripönnui 25-
40minútur, eftir þvi hvað stykk-
ið er stórt og hvað það á að vera
velsteikt.Haldiðheitu ieldföstu
fati.
Feitinni er hellt úr pottinum
og soðið upp i honum með
kálfasoði, koniaki og madeira.
Boröa-
panianir
Súni 86220
Veitingahúsiö í
GLÆSIBÆ
Galdrakarlar
leika fyrir dansi
Diskótek
Axel Ammendrup
Ljósu Dijon-sinnepi og súr-
rjóma bætt út i. Sósan látin
sjóða svolitið. Að siðustu er
köldu sm jöri og gráðosti bætt út
iog kryddað með salti og pipar
eftir smekk.
Sósunni er hellt yfir kjötið,
ristuðum möndlum og hökkuðu
persille stráð yfir. Borið fram
með spinatsoufflé og smjör-
steiktum kartöflum.
Spinatbúðingur:
1 pundsdós af spinati
1 bolli hvi't sósa (þykk) "
4 egg
1/4 tsk. sódaduft
múskat, ögn af sykri.
Búið til þykka hvita sósu úr
smjöri, hveiti og heitri mjólk,
bætið spinatinu út i ásamt vel
hrærðum eggjarauðunum, sykri
og múskati á hnifsoddi, kælið.
Þeytið eggjahviturnar, bætið
sódaduftinu út i og þeytið
áf ram.
Blandið öllu saman og hellið i
vel smurt mót. Bakið við meðal-
hita i um það bil 1 klukkustund.
Gott að setja vatn i ofnskúffu
undirristina sem mótiðstendur
á.
Sm jörsteiktar kartöflur má
hafa annaðhvort skrældar og
skornar i mjög þunnar sneiðar á
eldföstu fati, með smjörklipum,
salti og pipar á milli laga og
sm jör efst,bakaðar i 3/4 klukku-
stund, eða litlar kartöflur,
steiktar i' smjöri og stráð á þær
ögn af papriku.
Verði ég ekki orðinn saddur
eftir þetta (sem ég verð sjald-
an) má bæta á sig smá eftirrétti
frá Davið Scheving Thorsteins-
syni.
Vaniiluis með irsku viskii.
(Uppskriftin miðuð við 8
manns)
4 eggjarauður
4 msk flórsykur
1/2 litri rjómi
2 dl. irskt viski
150 grömm rúsinur
100 grömm möndlur
200 grömm suðusúkkulaði
2 1/2 peli rjómi.
Skolið rúsinurnar og setjið i
litla skál. Hellið viskiinu yfir og
látið standa i einn sólarhring.
Hrærið vel saman eggjarauðun-
um og sykrinum. Stifþeyttum
eggjahvitunum má bæta út i, þá
verður meira af isnum og isinn
ekki eins feitur. Frystið siðan
isinn þar til hann er orðinn all
stifur, en ekki fuilfrystur.
Skerið isinn i smá bita og
blandið gróft hökkuðum möndl
unum, niðurbrytjuðu súkkulað-
inu og rúsinunum og þvi, sem
eftir kann að vera af viskiinu
saman við. Gætið þess, að isinn
má ekki bráðna.
Frystið siðan isinn i hringlaga
kökuformi. Berist fram með
þeyttum rjóma, sem settur er i
miðjuna i hringnum.
Borgartúni, sem flytur fyrirbærið
inn.
Flugpúðinn er uppblásinn, og
undir honum eru gúmmimottur
sem eiga að koma i veg fyrir að
hann snúist um sjálfan sig, og að
sögn innflytjenda á að vera mjög
auðvelt að stjóma honum.
Galdurinn er einfaldlega sá að
setjast niður, taka um handföng
og láta sig flakka. Beygjur eru
teknar einfaldlega með þvi að
flytja þungann til.
En snjórinn lætur standa á sér,
að minnsta kosti hér i Reykjavik.
A meðan beðið er eftir honum
„æðið” á Islandi er ekki gott að
segja. Liklegt er þó, að verðið
dragi heldur úr likunum á þvi.
Hann kostar nefnilega hvorki
meira né minna en 569 krónur
(stærri gerðin) og 495 krónur
(minni gerðin, ætluð fyrir börn).
ÞG
Matchbox er hljómsveit sem leggur allt uppúr f jöri og gleði, eða þann
,ig-
„Likara að maður svifi en fljúgi”
tveimur árum siðar, 1979, að þeir
vöktu verulega athygli, þá fyrir
lagið „Rockabilly Rebel”.
Þeir hafa nú gefið út fjölda li't-
illa platnaog þrjár breiðskifur,
nú siðast „Flying Colours”. Allir
eru Matchboxmenn lagnir hljóð-
færaleikarar, og þeir spila i bland
gamla slagara og eigin tón-
smiðar. Einkum er það gitar-
leikarinn Steve Doolfield sem
leggur þeim tillög, en hann þykir
sniðugur i þvi að gera lög sem eru
nánast alveg eins og gömlu lögin.
Matchbox koma hingað á veg-
um Steina hf. og Broadway, og
munu eins og áður sagði leika i
Broadway i kvöld, laugardags-
kvöld, sunnudagskvöld og jafnvel
einnig á mánudagskvöldið.
—GA
Það nýjasta fyrir snjdinn er
flugpúöi. Clipper kalla þeir það i
útlandinu, og það kom að sögn
fyrstfram i fyrra í skíðabrekkum
Alpaf jalla.
— Ég prófaði þetta upp i Ar-
túnsbrekku um daginn, og það er
likara þvi að maður svifi en
fljúgi, segir Katrin Holton af-
greiðslustúlka hjá Hildu h/f i
Flugpúði á snjó og vatn:
Flugpúðinn — þaö nýjasta i
skiðabrekkurnar.
væri tilvalið að bregða
sér i sund laugarnar með
hann. Flugpúðinn ernefnilega
ekki aðeins fyrirsnjó og
brekkur, hann kvað vera ágæt-
is leikfang á vatni, og jafnvel lika
á grasi.
Hvort flugpúðinn verður næsta
Matchbox leika hér um helgina:
Stuðstrákar sem
spila rockabilly
sem einnig á sér marga aðdáend-
ur hér á landi.
1 Bretlandi eru hinsvegar
Matchbox með allra vinsælustu
Rockabillygrúppum. Meðlimir
hennar eru engin unglömb, og
hafa starfað saman lengi. Hljóm-
sveitin hefur verið eins skipuð frá
1977. Það var þó ekki fyrr en