Helgarpósturinn - 10.11.1983, Side 2

Helgarpósturinn - 10.11.1983, Side 2
Bókaklúbburinn Veröld sendir þessa dagana frá sér plötu meö einsöng Krist- jáns Jóhannssonar við und- irleik Lundúnasinfóníunnar. Mun þetta vera ein vand- aöasta plata sem gerö hef- ur veriö hér- lendis. Vinnsl- an fór þó ekki fram hér á landi, heldur var platan hljóðrituð í London. Upptak- an gekk oft brösótt, því hljóðfæraleikararnir urðu svo snortnir af söng Krist- jáns að þeir stóðu margsinnis upp og klöpp- uöu. Það sama gerðist þeg- ar þeir höfðu lokið við að leika nokkur íslensk lög sem Jón Þórarinsson hefur útsett fyrir sinfóníuhljóm- sveit. Hjómsveitarstjóri og hljóðfæraleikarar voru alveg heillaðir að leik loknum og stóðu upp og hylltu þennan Islending sem hafði annast útsetninguna. Jón var hins vegar ekki viðstaddur til að veita fagnaðarlátunum við- töku, þvf hann var á ís- landi... -¥■ Nú er ákveðið að Ijóð- skáldið og reggaesönvarinn Lynton Kwesi-Johnson komi hingað til lands á vegum hljóm- plötubúðar innar og — útgáfunnar Gramms og haldi hljóm- leika I Reykjavík 1. desem- ber. Með Johnson kemur heil reggaehljómsveit undir stjórn eins fremsta manns Breta á þessu sviöi, Dennis Bovell.... PRJÚNAGARN - ÚTSAUMUR - SMYRNA •vot Parið á ströndinni ásamt mörgum ísaumsmyndum fyrir- liggjandi Sjón ersögu ríkari Póstsendum daglega Mikið úrval af prjónagarni | Tugir tegunda Hundruð lita Með haustinu bendum við sérstaklega á mohairgarn fyrir grófa prjóna og ! ullargarn HOF INGÚLFSSTRÆT11 B 1W B (GEGNT GAMLA BÍÖI). SÍM116764. J NYJUSTU TEPPAFRETTIR BERBER gólfteppi á ótrúlega hagstæðu verði. Vegna sérstaklega hagstæðra magninnkaupa bjóðum við BERBER gólfteppi á aðeins kr. 390,- m2. Dæmi: Þú kaupir 40 m2, heildarverð ca kr. 15.600,-, þú greiðir aðeins kr. 3.000,- í útborgun og eftirstöðvar færðu lánaðar í 6 mánuði. Opið: Mánud.—fimmtud. 9—18 Föstudaga kl. 9—19 Laugardaga kl. 9—12 r 1 II. BYGGINGAVORUR1 llli L A C HRINGBRAUT 120: Simar: Timburdeild .. . 28-604^ I Byggingavörur 28-600 Malningarvörur og verkfæri. 28-605 I L Góllleppadeild 26-603 Flisar og nreinlætistæki 28-430 J HRINGBRAUT 120 (Aðkeyrsla frá Sólvallagötu) Lystaukandi tón- list I kvosinni „Það er svolítið skemmtilega erfitt fyrir okk- ur að spila núna ( kvöld. Hér inni sitja nefnilega tutt- ugu kollegar, lunginn úr strengjasveit Sinfóniunnar," sagði Guöni Þ. Guðmunds- son píanóleikari þegar Helgarpóstsmenn vitjuðu hans í veitingahúsinu í Kvosinni í hjarta Reykjavík- ur eitt sunnudagskvöldið. Þar leikur hann lystaukandi tónlist undir borðum hvert fimmtudags- og sunnudags- kvöld ásamt Hrönn Geir- laugsdóttur fiðluleikara. Bæði eru þau hámenntað tónlistarfólk: Guðni er organisti við Bústaðakirkju og kennir auk þess við Tón- listarskólann I Hafnarfirði og Hrönn kennir við Tón- menntaskólann I Reykjavík, sem eitt sinn hét Barna- múslkskólinn. „Við byrjuðum að spila saman í kirkjunni fyrir svona sex árum. Þá æxlað- ist það þannig að við fórum að spila I giftingarveislum og við önnur hátlðleg tæki- færi. Slðan hefur þetta smám saman hlaðið utan á sig og hér erum viö og höf- um gaman af, þrátt fyrir tlmaskort og annir.“ Guðni og Hrönn leika hina fjölbreyttustu tónlist — léttklassísk lög, sígildan djass og geta slegið upp fjörugum polkum og rælum ef svo ber undir. Sér til halds og trausts hafa þau mikinn doðrant með 3000 lögum, sem þau fletta upp I til að mæta óskum matar- gesta í Kvosinni.-Ar Diskóda nsmeist- ari íslands TV„Ég er náttúrlega alveg I skýjunum. Ég átti ekki von á að þetta gengi svona vel“, segir Ástrós Gunnarsdóttir, nltján ára Reykjavíkurmær, sem um daginn sigraði með glæsibrag I mikilli diskó- danskeppni sem haldin var I Hollywood. Þ.e.a.s. veit- ingahúsinu. Þar bar hún sigurorð af sjö öðrum kepp- endum, sigurvegurunum- 'V úr undanriðlum ----■? sem fóru fram víða um land. Ástrós er enginn nýgræðingur I dans- inum. Slðustu þrjú árin hef- ur hún lagt stund á djass- ballett og nú dansar hún I sýningarflokki Sóleyjar sem slðasta árið hefur oft glatt hjörtu dansunnenda á höfuðborgarsvæðinu. En líf- ið er ekki bara dans á rós- um — Ástrós stundar einn- ig nám I Menntaskólanum við Hamrahlíð og þaðan lýk- ur hún stúdentsprófi á ný- málasviði nú um jólin. „Dansinn er mitt lif og yndi", segirÁstrós. „Stóri draumurinn er að verða at- vinnudansari. Ég hef hugs- að mér að reyna að komast I nám I djassballett og nú- tímadansi annað hvort I Bandaríkjunum eða Vestur- Þýskalandi. En fyrst er auð- vitað að reyna að ná þokka- legu stúdentsprófi". Ástrós verður fulltrúi ís- lands á heimsmeistaramót- inu I diskódansi sem fer fram I London slðar I vetur.^. Skrifstofuhúsgögn ALLAR GERÐIR! Leitiö eftir nánari upplýsingum Veljum íslensk húsgögn fyrir íslensk fyrirtæki og heimili. Sendum um alit land ÁV HÚSGÖGN Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími 73100 Smartmynd

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.