Helgarpósturinn - 10.11.1983, Qupperneq 3
Islenski|^>:::;:%
kristniboöi,
Biblíuþýöandi
og norskur
konsúll
Halló
gott fólk!
Vaxtarræktin hf. hefurnúopnaðlíkamsræktarstöðað
Dugguvogi 7 og er opið kl. 15-22 mánudaga til föstu-
daga og 12-20 á laugardögum, eða eftir samkomulagi.
Hjá okkur starfar einn besti nuddari landsins,
Matsoka Sawamura, og er hann við alla dagana, nema
þriðjudaga og laugardaga, en vissara er að panta tíma.
Starfsemi þessi er í tvennu lagi, það er að segja,
líkamsrækt með tækjum og hinsvegar salur fyrir leik-
fimi og teygjuæfmgar, ásamt æfingum með Vaxtar-
mótaranum, sem eru taldar mjög góðar fyrir alla,
hvort heldur byrjendur eða lengra komna.
Hjá okkur starfa tveir þjálfarar og miða þeir að sjálf-
sögðu alla þjálfun við ástand og óskir viðkomandi.
Gert er ráð fyrir báðum kynjum á sama tíma og er að-
staða til eimbaða í báðum búningsherbergjum. (Eim-
böðin hjá okkur eru sambærileg gufuböðunum á
Laugarvatni, Því um hreina vatnsgufu er að ræða).
Við munum kappkosta að veita sem besta þjónustu á
sviði líkams- og heilsuræktar og munum við versla
með ýmsar vörur á því sviði, svo sem sápur, sjampó,
body lotion og fleira, ásamt því að selja proteindrykki
djús og Firmalosskúra fyrir þá sem vilja grennast.
Jafnframt munum við leitast við að sjá um fræðslu á
þessu sviði og gefum við reglulega út tímaritið
Líkamsrækt & næring, auk þess sem fjöldi annarra
rita mun ávallt liggja frami til aflestrar.
Við bendum á að líkamsrækt er lítil fjárfesting,
sem gefur arð fyrir viðkomandi alla ævi.
npPdljliBKII 11]
DUGGUVOGI 7 - SIMI 35000
-£■ Fyrr f vikunni var stadd-
ur hér á landi Haraldur Ólafs-
son kristniboði i Eþíóplu.
Haraldur var aðalræðumaður
á samkomuviku hjá KFUM og
Kristniboðssambandinu, sem
bar yfirskriftina „Hvað viltu
að Kristur geri fyrir þig?“
eins og sést á meðfylgjandi
mynd. Auk þess notaði Har-
aldur tækifærið og ræddi við
fulltrúa Hjálparstofnunar
kirkjunnar um sendingar á
hinum nýju skreiðartöflum á
aí* Orn Árnason er einn a
okkar upprennandi gaman-
ieikurum, og á ekki langt a
sækja hæfileikana. Hann e
nefnilega sonur eins
fremsta gamanleikara
landsins um áratuga skeið,
Árna Tryggvasonar. Hér sés
Örn I hlutverki slnu I ís-
lensku revlunni, en um aðr,
helgi hefur þessi sýning,
sem miklum vinsældum
náði I Gamla bíói I fyrra,
innreið sína á Hótel Borg.
Þar er ætlunin að bjóöa
upp á revíuna á föstudags-
og laugardagskvöldum og
verður þá rööin þessi: mat-
ur, revía og ball á eftir. Mik-
ið einvalalið stendur að
uppfærslu Revíuleikhússin
á Islensku revíunni, en höf-
undur er Geirharður mark-
greifi og leikstjóri Gísli
Rúnar Jónsson.
sultarsvæði I Eþlópíu og
grennslaöist eftir þvl hvort
reyndir íslenskir bormenn
væru ekki tilkippilegir til að
vinna að borun eftir vatni I
Eþlóplu. Haraldur, sem nú er
norskur þegn, hefur dvalið I
Eþlóplu I hartnær tuttugu ár
og gegnir nú starfi verkefnis-
stjóra Hjálparstofnunar
norsku kirkjunnar, sem held-
ur uppi blómlegu starfi I
Eþlópíu. Verkefnin eru eink-
um fólgin I vatnsöflun, að-
stoð við ræktunartilraunir og
hjálparstarfi á hungursvæð-
um i Norður-Eþlóplu, en af
slíku starfi hefur Haraldur
mikla reynslu siðan í hungur-
sneyðinni miklu 1973:74. Auk
þess hefur Haraldur um
nokkra hríð unnið að þýðingu
Bibllunnar á mál stærsta
ættbálksins I Suður-Eþlóplu,
Órómómál. Haraldur er nú
væntanlega kominn aftur til
Addis Abeba, þar sem hann
gegnireinnig starfi norsks
aðalræðismanns. ★
Revía á Borginni
Tekurðu nærri
þér gagnrýni á
Stundina okkar?
Ég fagna því að fá gagnrýni, en mér finnst stundum
verið að hengja bakara fyrir smið, þegar við Ása erum
gagnrýnd. Það sem hamlar því að við getum gert eins
góða barnatlma og við gjarnan vildum er I fyrsta lagi
tímaleysi og I öðru lagi peningaleysi. Ég get nefnt sem
dæmi að ef við réðum rithöfund til að skrifa 15-20
mínútna leikrit og réðum leikstjóra, þá hefðum við ekki
peninga til að ráða leikara. Ég get llka nefnt til saman-
burðar að Glugginn, sem er 10 mínútum lengri þáttur,
hafði I fyrratvo pródúsenta, meðan við höfum einn. Það
er mjög erfitt að fá þann tíma I stúdíói sem maður þyrfti
til að vinnaeins vel og maður vildi. Auðvitað er hægt að
vinna gott barnaefni án mikils tilkostnaðar, en þá setur
tæknivinnan takmörk.
Hvernig veljið þið efni i Stundina okkar?
— Það er alltaf erfitt að velja, en við reynum að hlusta
á álit krakkanna. Það er nóg úrval af erlendu efni, sem
við skoðum og veljum úr, en við þurfum að undirbúa og
láta taka upp innlenda efnið. Það er töluvert um að
krakkar láti okkur vita um efni sem þau eru að vinna í
skólunum og við tökum upp sumt af því. Þar kemur aft-
ur að tímanum, við vildum svo gjarnan vinna betur með
krökkunum, æfa með þeim, stundum mætti jafnvel
gera stuttar kvikmyndir, en þess er ekki kostur. Það er
aldeilis hroðalegt framboð á sögum, sem er gott að
grípa tit, m.a. vegna þess að þær eru fljótunnar, en ég
er alveg sammála þeirri gagnrýni að sögur eigi betur
heima i útvarpi.
Svo að ég komi aftur að aðstæðunum, get ég sagt
þér að í Danmörku er sérstakt stúdíó fyrir barnaefni, en
hér þurfum við aö deila þvl með öllu öðru efni sem unn-
ið er í sjónvarpinu.
Vitið þiö eitthvað um ykkar áhorfendahóp, fáið þið
viðbrögð frá krökkum?
— Okkur berst töluvert af bréfum, t.d. þegar við vor-
um með getraunina, bættu krakkarnir oft ýmsum at-
hugasemdum við, um það hvað þeim þætti skemmti-
legt. Þegar könnun Rikisútvarpsins var gerð s.l. vor var
Stundin okkar hætt, svo við vorum engu nær um það
hverjir horfa á eða hversu stór sá hópur er. Mín tilfinn-
ing er sú að yngri krakkarnir séu sólgnir i þáttinn og að
foreldrarnir horfi á með ööru auganu.
Reynist ekki erfitt að mæta tii vinnu viku eftir viku
meö f rjóar hugmyndir um það hvað muni gleðja börnin?
— Ef ég á að vera hreinskilinn þá hef ég bara verið
fyllilega ánægður með tvo þætti sem við höfum gert frá
því að við byrjuðum. Ég reyni að halda sjálfsgagnrýn-
inni vakandi, en frjósemin gengur i bylgjum. Það koma
þær stundir að maður veit ekkert hvað á að gera næst,
en stundum streyma hugmyndirnar fram. Við Ása eig-
um reyndartil óskalistayfirefni sem við vildum gjarnan
vinna, en hann hefur ekki ræst, m.a. vegna þeirra að-
stæðna sem boðið er upp á.
ÞÚ kemur aldrei fram sjálfur, hvers vegna?
— Við völdum þá leið að hafa einn kynni.
Eruð þið bæði í fullu starfi?
— Þetta er hálft starf fyrir hvort um sig.
Hvað ætlið þið að halda lengi áfram með Stundina
okkar?
— Við erum ráðin fram á vor.
Þorsteinn Morelsson rithöfundur stjórnar Stundinni okkar í sjónvarpinu
ósamt Ásu Ragnarsdóttur. Þorsteinn kemur aldrei fram sjólfur, heldur er að
baki, kemur með hugmyndir og setur þóttinn saman ósamt Ásu. I Helgar-.
póstinum fyrir viku varð þóttur þeirra fyrir harðri gagnrýni og því þótti
okkur við hæfi að spyrja Þorstein nokkurra spurninga.
HELGARPÓSTURINN 3