Helgarpósturinn - 10.11.1983, Side 23

Helgarpósturinn - 10.11.1983, Side 23
HRINGBORÐIÐ „Látiö blómin tala..“ I dag skrifar Sigríður Halldórsdóttir Manrti er svosem ýmislegt í barnsminni. Ég man t.d. vel þegar móðir mín var aði. fá bæturnar. Einn morguð í fýrstu snjóum haustsins heyrðist í jeppa fyrir utan og út steig Stefi hreppstjóri með hreppstjórahúfu og alltuppí 50 rósir í búkett, sem hann rækt- aði sjálfur. Hann hneigði sig djúpt, kyssti á hönd mömmu minnar og sagði ,,þá egu það bagnabætugnag." Svo var hitað kaffi handa hrepp- stjóra sem skrollaði glaðlega um landsins gagn og nauðsynjar og neri saman höndum ánægjulega. Það var upplyfting öllum konum í byggðarlaginu að koma rósunum fyrir í vasa, stinga umslaginu hátíðlega undir kökudiskinn og drekka kaffisopann með Stefáni Þorlákssyni hreppstjóra. Bagna- bætugnag voru hátíðleg afhend- ing, viðurkenning til allra mæðra fyrir þann sjálfsagða hlut að eiga börnin sín og njóta þeirra. Það vildi auðvitað vefjast fyrir manni á þessum árum hvar Stefi kom inní heimilisreksturinn. En þetta var fyrir þá daga þegar börn þurftu og áttu að vera vel að sér um þjóðfé- lagið svo maður fékk í friði að geta sér til um hlutdeild hans allar göt- ur þangaðtil maður varð sjálfur bótaþegi. Nú, þarsem Stefi bætti öllum konum í nágrenninu þetta ,,tjón“ svo elskulega og höfðing- lega þá hlaut hann að eiga okkur öll á einhvern hátt. Það þótti manni líklegt og sjálfsagt, því maðurinn var ókvæntur og barn- laus, en afturámóti sá eini sem færði konum blóm og drakk með þeim kaffi á miðmorgni. Mamman varð líka duiarfull eftir þessar heimsóknir Stefa, það var af því hún ætlaði að gera svo margt fyrir bæturnar. Ekki var laust við að maður skammaðist sín svolítið fyrir að vera til, þegar verið var að bæta fyrir Wvist manns, og sum börn litu fejður sinn hornauga fyrstu daganayéftir hreppstjóra- visittið, að láta Stefa plata sig svona. Einn hlutur var regla: ekkert barna heyrði móður sína nokkurntíma segja föðurnum frá umræddu umslagi. Þetta voru heilagir peningar, nátengdir augnablikunum þegar börnin litu fyrsta skipti dagsins ljós. Þetta vissi Stefná Þorleifsson hrepp- stjóri, þessvegna sætti hann lagi, skaust milli húsa með bætur og rósir á þeim tíma dags þegar síst var von á óviðkomandi í stofu. Því nefni ég Stefá hér, að hann hefði aldrei látið viðgangast að all- ar konur á íslandi væru reknar einsog kvíaær frá ungum börnum sínum til þess að eiga fyrir nauð- synjum. Ekki nokkur kvenmaður getur lengur samviskunnar vegna leyft sér að stinga barnabótunum undan til þess að kaupa lakkskó og matrósaföt með flautu. Þá segir ríkisstjórnin náttúrlega: „mæður vorar voru vanar að sauma á okk- ur matrósafötin þegar við vorum litlir." En á þessum 50 árum sem liðin eru síðan þeir stunduðu jóla- böllin hefur margt breyst. Þá dugði oft ein fyrirvinna þessi 4-6 ár sem börnin voru ung og allar konur urðu að sauma nokkur kíló á ári til þess að teljast ekki van- gefnar. En það er ekki þarmeð sagt að gæði uppeldis liggi í því að konur séu alltaf að gera eitthvað nógu leiðinlegt, ef þær eru heima. Það er heldur ekki verið að ræða gott eða slæmt uppeldi heldur mannréttindi. Fjögur til sex ár er ekki langur tími í mannsævinni, en ef þau kosta líf, í besta falli heilsu, framfærandans, þá verða ungar mæður að hugsa sig um tvisvar. Þá er skárra að drösla ungviðinu útí rokið klukkan 7 á vöggustofu og standa í sjoppu og afgreiða eitthvað frameftir degi þessi ár meðan endar ná aldrei saman. Það held ég að ráðherr- arnir dyttu niður dauðir ef íslensk- ar konur heimtuðu að fá að vera heima í nokkur ár meðan börnin þeirra eru lítil — á barnabótum tólf mánuði ársins, tvö ár per barn. En það er víst langt í það. Við erum svo snauð þjóð. Enda sagði ráðherra einn í útvarpinu orðrétt í fyrrakvöld: „Við verðum bara öll að gera okkur grein fyrir því að meðalþungi þriggja ára þorsks er um þessar mundir ekki nema fjegur kíló.“ Hvað eiga svona yfirlýsingar að þýða við Pétur og Pál? Ef þorskurinn er all- ur að horfalla í sjónum, þá er ríkisstjórninni borguð laun til þess að bæta þjóðinni þorsktjónið. Með öðrum orðum, ríkisstjórnin var kosin til að díla við þessa fiska. Hvernig væri að rækta iimandi rósir til útflutnings? Það held ég hann Stefi hefði farið að abbast uppá fólk með þorsktali. Manni dettur stundum í hug þegar unga fólkið er að pota ungbörnum útí hrímaða blöðruskóda að hér sé ákaflega erfitt að framfleyta tvö- hundruð og eitthvað þúsund manns, með fiskimið, stórt land, raforku, jarðhita, kalt vatn, og feitar rollur einsog villigelti um öll foldarból. Og ekki er fólkið latt. Hér sést meira púl og lengri vinnu- dagur en nokkur staðar annars staðar. Því er ekkert óeðlilegt að vel upplýstir stritarar geri nokkr- ar kröfur til þess að lifa á þokka- lega vestræna vísu. En íslenskum stjórnvöldum er ekkert heilagt, þeir subba framaní fólk dónaskap frá morgni til kvölds í fjölmiðlum, bulla um ratsjárstöðvar og sultar- ólar, gleðjast yfir vopnaskaki útí heimi, tíma ekki að sjá af rófupoka til sveltandi þjóða, sparka kelling- um og krökkum útí myrkrið. Það er von maður væli liðna hrepp- stjóra sem töldu það hátíðlegast í sínu starfi að afhenda barna- bæturnar. Pepsi Askorun! 52% 0 völdu Pepsi af þeim sem lóku afstöðu Pepsi Coke Jafn gott 4719 4429 165 Alls 9313 Láttu bragÖið ráÖa X Ert þú \ búinn að fara í Ijósaskoðunarferð? •I , tíxFEROAB HVAÐ MEÐÞIG m U NU ER SNJORINN KOMINN Akið ekki út í óvissuna - akið á fjórhjóladrifnum SUBARU Þeir hjá Subaru voru fyrstir allra að framleiða fjórhjóladrifna fójksbíla sem náðu hylli almennings. íslend- ingar hafa líka áttað sig á yfirburð- um Subaru. Subaru er mest seldi blllinn hérálandi þaðsem af er1983 (skv. síðustu tölum Hagstofnu ís- lands). SUBARU Fjárfesting sem skilar sér INGVAR HELGASON H/F SÝNINGARSALNUM RAUÐAGERÐI 27. SÍMI: 91-33560 HELGARPÓSTURINN 23

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.