Helgarpósturinn - 08.12.1983, Síða 8

Helgarpósturinn - 08.12.1983, Síða 8
,,Ekki benda á mig, segir uardsljórinn..." söng Bubbi Morthens í iagi sínu Lögogregla, sem náði vinsældum s.l. sumar. Hann samdi lagið út frá atburði sem átti sér stað fyrir fá- um árum og lauslega er greint frá hér að framan. Að hve miklu leyti skýra má dauða unga mannsins með handvömm lögreglunn- ar eða vangá, verður eilíft matsatriði. Ríkissaksóknari fékk nú í vikunni til að vega og meta niðurstöður úr rannsókn Rannsóknarlögreglu ríkisins vegna kæru Skafta Jónssonar, biaðamanns á Tímanum, sem Skafti lagði fram gegn þremur lögreglu- þjónum í Reykjavík í síðustu viku. Bæði þessi mál, svo og önnur af svipuðum toga sem minnst er á hér, snúast um með- ferð lögreglunnar á fólki sem’hún hefur haft afskipti af. Þessi mál snúast mörg um ásak- anir fólks um slæma meðferð, stundum hrottalega meðferð. Ga^nrýni innan lögregl- Enginn þarf að draga í efa, að lögreglan í Reykjavík starfar í fiestum tilfellum með sóma og að samskipti hennar við borgarana séu oftast nær með fullkomlega eðlilegum hætti. Klögumál borgaranna um hið gagn- stæða eru hins vegar svo mörg og sum svo alvarleg, að framhjá þeim verður ekki litið. Innan sjálfrar lögreglunnar heyrast gagn- rýnisraddir sem segja að hluti lögregluliðs- ins sé varla starfi sínu vaxinn, starfshættir hinna óhæfu í liðinu, fárra manna að vísu, séu með þeim hætti í vissum málum, að til vansa sé fyrir lögregluna í heild. Margir þeirra sem telja sig hafa verið beitta ónauðsynlegu harðræði af hálfu lög- reglu aðhafast ekkert í málum sínum eða láta kvörtun nægja. Aðrir, eins og Skafti Jónsson, kæra framferði lögreglunnar. En Skafti lét ekki nægja að kæra. Sem starfandi blaðamaður hefur hann góðan að- gang að dagblöðunum og i síðustu viku sagði hann þeim sögu sína. Skafti er vel metinn í stétt sinni og talinn heiðarlegur blaðamaður. Af þessum ástæðum m.a. hafa ritstjórar blaðanna talið framburð hans nægilega traustan til að réttlæta birtingu. Þeir hafa sagt sem svo: „Hvers vegna ætti þessi blaða- maður að fara að Ijúga frétt í fjölmiðla?" Samkvæmt frásögn Skafta var hann ásamt konu sinni í Þjóðleikhúskjallaranum laugar- dagskvöldið 26. nóvember. Þau voru að yfir- gefa staðinn um klukkan hálfþrjú og fram- vísuðu miða í fatahengi til að fá yfirhafnir sínar. Þær fundust ekki. Skafti fékk leyfi til að fara sjálfur að leita að frakkanum og káp- unni, fann kápuna, en ekki frakkann. Þar sem Skafti er í fatahenginu þrífur dyravörð- ur í hann og spyr „hvurn djöfulan" hann sé að gera þarna. Skafti segist hafa heimild til að vera þarna, en dyravörðurinn sleppir ekki Skafta, sem segir að hann hafi keyrt sig niður á afgreiðsluborðið. Annar dyravörður blandar sér í þessar ryskingar og þeir hafa Skafta sameiginlega undir. Skafti er stór maður um 1.90 m hár og þrekvaxinn. Annar dyravarðanna fer að hringja á lögregluna en Eg heyröi, aö í hvert sinn sem Skafti reyndi ad reisa höfudid í átt til konu sinnar, sem einnig reyndi aö teygja sig í átt til hans, keyröi lögreglumaöurinn hann niöur aftur. Þessa vitnisburöar er aö engu get- iö í fréttatilkynningu RLR. hinn sleppir taki sínu á Skafta. Skafti er að eigin sögn að halda af stað út úr húsinu ásamt konu sinni þegar þrír lögregluþjónar mæta á staðinn um bakdyr og krefjast þess að hann komi með þeim á lögreglustöðina. Hann segist ekkert hafa til sakar unnið en þá beygja þeir hann yfir afgreiðsluborðið og handjárna fyrir aftan bak, að sögn Skafta. Hver segir ekki satt? „Það voru engir áverkar á mér áður en mér var þjösnað inn í lögreglubílinn," segir Skafti í samtali við Helgarpóstinn „en þegar mér var sleppt úr fangaklefanum var ég al- blóðugur í andlitinu og fötin alblóðug og rif- in.“ Það er í lögreglubílnum sem alvarlegustu þættir þessa máls eiga sér stað, um það er ekki deilt. Þar segist Skafti hafa nefbrotnað og hlotið aðra áverka. En hvernig? Gerðist það við það að lögregluþjónninn, sem var einn í afturhluta „Svörtumaríunnar" með Skafta og hélt honum þar handjárnuðum og liggjandi á maganum, hafi Iamið þéttingsfast í hnakka Skafta, þ.e. hárreitt hann, og hvað eftir annað keyrt andlit hans niður i gólfið á bílnum, án þess að láta sig skipta endurtekna beiðni Skafta og konu hans um vægð, einsog og Skafti og kona hans segja? Eða nefbrotn- aði Skafti vegna eigin mótþróa þegar hann var settur inn i lögreglubílinn? í fréttatil- kynningu sem RLR sendi frá sér síðdegis á miðvikudag í þessari viku, að afloknum yfir- heyrslum í málinu, segir m.a. að „mótþrói mannsins við það (að hann var færður út í bílinn) hafi leitt til þess að hann féll á gólf bílsins og sé ekki útilokað að hann hafi þá hlptið áverka." í fréttatilkynningu RLR er að nokkru rak- inn framburður nokkurra vitna, þ.á.m. starfsfólks Þjóðleikhúskjallarans og lög- reglumannanna þriggja „vegna þess, sem fram hefir komið á vettvangi fjölmiðla um málið," eins og segir í tilkynningunni. Það sem hafði birst i fjölmiðlum um mála- vexti áður en RLR sendi frá sér fréttatilkynn- ingu sína var lýsing Skafta Jónssonar á at- burðunum. Komið hafði fram að dyravörður Þjóðleikhúskjallarans kærði Skafta fyrir áverka og fataskemmdir, en hvorki dyra- verðirnir né lögreglan vildu tjá sig um málið meðan á rannsókn stóð. Neita að hafa meitt viljandi. Það er fyrst í fréttatilkynningu RLR sem framburður starfsfólks Leikhúskjallarans og lögreglunnar kemur fram opinberlega. Þar segir: „Starfsfólk Leikhúskjallara hefir lýst ástæðum þess, að lögreglan var kvödd þang- að til aðstoðar aðfaranótt 27. f.m. Voru ástæðurnar viðbrögð og hegðan Skafta er yfirhöfn hans fannst ekki þegar við fata- hengið. Var hann með illyrði og hótanir í garð þess, auk þess, sem hann réðst að ein- um dyravarðanna, reif föt hans og veitti honum áverka. Hafi hegðan Skafta verið slík, að óhjákvæmilegt hafi verið að kalla á lögreglu til aðstoðar. Lögreglumenn þeir er fóru á vettvang bera og, að framkoma Skafta hafi verið þess eðlis, að ekki hafi verið hægt að fá skýringar hjá honum á málavöxt- um. Hann hafi sýnt tilburði til þess að ráðast á dyravörðinn aftur, og hafi þeir orðið að handjárna hann og færa í lögreglubíl." Þessu næst er rakið hvernig Skafti veitti mótþróa og féll á gólf „Svörtumaríunnar." Þá síegir: „Lögreglumennirnir segja að maðurinn hafi legið á maganum á gólfinu handjárnaður fyrir aftan bak, og vegna stöðugs mótþróa hans hafi einn lögreglumaður orðið að halda honum. Lögreglumennirnir neita því alfarið allir að þeir hafi viljandi meitt manninn og í bilnum hafi aldrei verið tekið um eða þrifið i höfuð hans og það keyrt í gólf bílsins. Vinkona eiginkonu mannsins, sem sat við hlið eiginkonunnar í bílnum hefur borið, að hún hafi ekki séð neitt slíkt gerast." Hlutlaus fréttatilkynning? „Það gengur ekki,“ segir Skafti Jonsson, „að rannsóknarlögregla ríkisins sendi frá sér fréttatilkynningu eins og þessa eftir það sem þeir kalla „hlutlausa rannsókn." í þessari til- kynningu er greint einhliða frá málinu þó minn framburður fái að fljóta með. Það er ekki minnst á framburð a.m.k. fimm vitna, gesta í Þjóðleikhúskjallaranum, hlutlausra vitna, sem ég veit að styðja mitt mál. Svo taka þeir með i tilkynninguna það eina úr framburði Ástu, vinkonu konunnar minnar, sem gæti verið mér í óhag.“ Ásta Svavarsdóttir og Kristín Þorsteins- dóttir, kona Skafta, voru báðar vitni að handtökunni og þær fengu eftir nokkrar for- tölur að fara með í Iögreglubílnum upp á stöð. Þær eru því vitni að þeim atburðum sem áttu sér stað í bílnum og mestu máli skipta. í kjölfar fréttatilkynningar RLR sendi Ásta frá sér yfirlýsingu: „Það er illt til þess að vita, að RLR, sem á að' heita hlutlaus rann- sóknaraðili í kærumáli Skafta Jónssonar, sendir frá sér fréttatilkynningu sem svo aug- ljóslega er skekkt öðrum málsaðila í hag, m.a. með því að tilgreina alls ekki sjónar- votta að handtökunni. Minn framburður er t.a.m. slitinn úr samhengi— augljóst dæmi um það hvernig nota má tilvitnanir þannig að merkingin snúist nánast í andhverfu sína. Það er að vísu rétt að ég sá ekki nema hluta þess sem fram fór í lögreglubílnum; en maðurinn hefur fleiri skilningarvit en sjón- ina, þ.á m. heyrn. Þótt þess hafi ekki verið getið í umræddri fréttatilkynningu, bar ég við yfirheyrslu hjá RLR að utan við lögreglu- bílinn heyrdi ég dynki eða högg innan úr honum, en þar var a.m.k. einn lögreglumað- ur auk Skafta. Þegar inn í bílinn kom sá ég Skafta liggjandi á maganum og handjárnað- an fyrir aftan bak og yfir honum lögreglu- mann sem hélt honum niðri. Á leiðinni var hins vegar skuggsýnt i bílnum og auk þess skyggði sætisbak á höfuð Skafta og efri hluta líkamans og ég sá því ekki það sem fram fór. Aftur á móti heyrdi ég að í hvert sinn, sem Skafti reyndi að reisa höfuðið í átt til konu sinnar, sem einnig reyndi að teygja sig i átt til hans (og sá því betur en ég það sem fram fór) keyrði lögreglumaðurinn hann niður aftur. Þessa vitnisburðar er að engu getið í fréttatilkynningu RLR. Öll framganga lögreglunnar í þessu máli var hin harkalegasta og bar þess vott, að hún mat ekki aðstæður sjálfstætt í upphafi og missti bæði stjórn á þeim og sjálfum sér. Með því er ekkert sagt um meðvitaðar líkams- meiðingar. En er það eðlilegt, að maður sem er fullkomlega rólegur þegar hann gengur frá manni sé handtekinn formálalítið og komi heim tveimur tímum seinna stórlega meiddur eftir viðskipti sín við lögregluna?" spyr Ásta að lokum í yfirlýsingu sinni. Séö í gegnum sæti? Kristín Þorsteinsdóttir, kona Skafta, stað- festir framburð hans um atburðina í bílnum. Hún fylgdist með yfir sætisbak aftursætisins, og reyndi að teygja sig í átt til Skafta. Sætis- bakið byrgði hinsvegar Ástu sýn aftur í bil- inn en virðist alls ekki hafa skyggt á útsýni lögreglumannanna tveggja sem sátu þó í framsætunum, því allir lögregluþjónarnir staðhæfa, að aldrei hafi verið tekið um eða þrifið í höfuð Skafta og það keyrt í gólf bíls- ins. Þarna ber lögreglumönnunum og hinum í bílnum ekki saman, frekar en í fjölmörgum atriðum öðrum í þessu máli. Framburður allra vitnanna liggur enn ekki fyrir opinber- lega, en alls voru 20 manns yfirheyrðir hjá RLR. Þetta mál hefur reynt mjög á alla hlutað- eigandi, eins og gefur að skilja. „Við megum ekki sjá lögreglubíl núna án þess að fá sting í magann," segir Skafti. „Eg er nokkurn veginn búinn að ná mér af meiðslunum en andlega er ég enn að ná mér eftir þessa reynslu. „Við höfum sofið illa og ég var í uppnámi alla siðustu viku,“ segir Kristín. „Við eigum fjögurra mánaða gamlan son. Þetta hefur haft greinileg áhrif á hann. Svo missti ég líka mjólkina." „Mér finnst að mörgu leyti hafa verið vasklega staðið að þessari rannsókn RLR en það er hins vegar annað mál hvort hún gefur yfir höfuð rétta mynd af því sem gerðist þarna," segir Skafti. Svona hlutir gerast oft „Ég hef það á tilfinningunni að markmiðið með þessari rannsókn, meðvitað eða ómeð- vitað, sé ekki það að komast að hinu sanna í málinu," segir einn heimildarmanna Helgarpóstsins, sem fylgst hefur með rann- sókninni úr fjarlægð. „Ég held að mark- miðið sé fyrst og fremst það að finna á því lausn sem sé sársaukaminnst fyrir alla, spila niður ógeðfelldustu þætti þess, drepa málinu á dreif og helst af öllu þagga það niður.” „Ég vil reyna að koma í veg fyrir að svona hlutir endurtaki sig. Það þarf að reisa þess- um mönnum einhverjar frekari skorður í sínu starfi," segir Skafti. „Eftir því sem á Ieið þetta mál varð ég sannfærður um að svona hlutir ættu sér oft stað. Fyrstu dagana eftir að ég talaði við blöðin stoppaði ekki síminn hjá okkur að það er ótrúlegur fjöldi sem hef- ur hringt og sagt mér frá svipuöum málum, þó flest þeirra hafi ekki verið jafn alvarlegs eðlis og það sem ég gekk i gegnum." Helgarpóstinum er kunnugt um fjölmörg mál af hliðstæðum toga og mál Skafta. Út- skýringar lögreglumanna á ástæðum sínum fyrir handtökum, sem virðast tilefnislausar 8 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.