Helgarpósturinn - 05.01.1984, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 05.01.1984, Blaðsíða 5
Kirkjud jass ☆ Gunnar Reynir Sveinsson djassgeggjari og kompóser til margra ára lætur ekki deigan síga við tónsmiðar, rétt nýbúinn að afgreiða músik ( heila blómynd (Skilaboð til Söndru). Hann hyggur nú á nýstárlegt konserthald I Laugarnes- kirkju um miðjan þennan mánuð, þar sem frumflutt verða að minnsta kosti þrjú djassverk eftir hann. Þetta verður I fysta sinn sem djasstónleikar verða framdir f guðshúsi á íslandi. Fyrsta verkið á efnisskrá tónleikanna verður einleikur Gústavs Jóhannessonar fyr- ir orgel á fjórþátta sónötu númer tvö. „Þetta er djass- kennd melódla, óskaplega ljúf“, segir Gunnar um þessa sónötu slna. „Mig hefur alltaf langað tij að láta orgelið svínga. Ég er svo mikill barokkmaður I mér, samfara djassgeggjun- inni“. Um annað efni þessara óvenjulegu kirkjutónleika sinna segir Gunnar Reynir: „Ef guð lofar og tlmi vinnst til, verð ég með söngverk við texta Lilju (sem allir vildu kveðið hafa). Síðan má búast við nokkrum lögum fyrir djassextett. Það verð- ur flutt af sömu gæjum og spilað hafa með mér nokkur síöustu ár, þ.e.a.s. sjálfu djasslandsliðinu: Guðmund- unum báðum, Rúnari Georgs, Reyni Sig, Birni Thorodds og Árna Schev- ing“. En hvað liggur að baki þessum kirkjudjassi? „Þetta er gamall draumur rninn", segir Gunnar. „Það er viss upphafning I djass- inum sem á sér hliðstæðu I trúnni. Þess vegna á djass vel heima I guðshúsi“.jf Dátt er í gömlum dansi ☆ Gömlu dansarnireru stignir af miklum llfsmóð og kúnst sérhvert sunnudagskvöld á Hótel Borg. Þar kemur gamla fólkið saman og rennir sér liðuga fótskriðu I polka, ræl, marzúrka og skottls eftir rennisléttu parkett-gólfinu. Það er nokkuð slðan for- ráðamenn Borgarinnar tóku upp á því að helga sunnu- dagskvöldin fótmenntaþörf gamla fólksins I bænum. Þessari þjónustu hefurver- ið tekið með kostum og segja kunnugir að jafnan sé staðurinn þétt skipaður glaðværu fólki á aldrinum milli fimmtugs og níræðs sem njóti helgarlokanna með þessum gamla og gilda sið. HP rakst inn á Borgina eitt sunnudagskvöldið hvar þessari mynd sem hér fylgir var smellt af: „Hingaö kemur fólk til að skemmta sér, liðka útlimina eftir hreyfingarleysi undanliðinn- ar viku og gleðjast I góðum hópi jafnaldra sinna. Gleðin er óblandin og ósvikin, og spenningurinn náttúrlega mikill eftir þvl hver verði næsti dansfélagi" sagði okkur kona á dansleik þess- um og mega það vera orð að sönnu þvl óneitanlega réð brosiö rikjum á Borginni þetta glaðværa sunnudags- kvöld.^. TÍ? Jan Sneum heitir frægur dansk- ur útvarpsmaður sem sérhæft hefur sig I rokktónlist. Hann velur m.a. bestu alþjóðlegu rokk- plötur ársins fyrir hið þekkta danska tónlistarrit MM — tid- skrift for rythmisk musik. Nú á dögunum birti hann I tlmaritinu lista yfir bestu rokkplötur sem út komu I heiminum 1983 og viti menn: Þar er Mávastell Grýlanna númer tvö! Þessi sami Sneum skrifaði nýlega rokkbók sem heitir Rock-Nu og hlaut hún verðlaun Politikens sem besta tónlistarbók ársins I Danmörku. i þeirri bók minnist Sneum reynd- ar á tvær íslenskar hljómsveitir, þær Purrk Pillnikk og Þey... ^ Umsjón: Sigmundur Ernir og Einar Gunnar vinum okkar upp á almenna gjaldeyrisþjónustu s.s.: • stofnun innlendra gjaldeyrisreikninga • afgreiðslu ferðamanna- og námsmannagjaldeyris • útgáfu Eurocard kredltkorta auk allrar almennrar bankaþjónustu. ÁÆRZlUNflRBANKINN Bankastræti og Húsi verslunarinnar. HELGARPOSTURINN 5 AUK hf. Auglýsingastofa Kristfnar 43.53

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.