Helgarpósturinn - 05.01.1984, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 05.01.1984, Blaðsíða 28
s„ Norræna félagsins var auglýst laus til umsóknar fyrir jól. Um tuttugu manns sóttu um stöðuna og kemur sambandsstjórn félagsins saman til fundar um umsækjendur á laugar- dag. Framkvæmdastjórastaðan hef- ur legið niðri í þrjú ár en áður gegndi henni Jónas Eysteinsson kennari í Verslunarskólanum. Af þeim umsóknum sem borist hafa þykja einkum tveir koma til greina, þeir Einar Karl Haraldsson rit- stjóri Þjóðviljans og Sighvatur Björgvinsson fyrrum fjármálaráð- herra. Báðir sækja fast bak við tjöld- in að fá stöðuna og hafa rætt við ýmsa stjórnarmenn félagsins svo sem Hjálmar Ólafsson og Gylfa Þ. Gíslason.... || I H elgarpósturinn sagði frá því fyrir áramót að senn stefndi í hvell í Orkustofnun þegar birt yrði skýrsla sem unnin er á _vegum Sverris Hermannssonar iðnaðar- ráðherra um niðurskurð og hag- ræðingu í rekstri stofnunarinnar. Nú hefur Sverrir varpað annarri bombu af öðrum toga inní Orku- stofnun. Hann skipaði á gamlársdag nýja stjórn fyrir stofnunina, sem ekki er í sjálfu sér í frásögur fær- andi. Úr stjórninni gengu Egill Skúli Ingibergsson, fyrrum borg- arstjóri, og Sveinbjörn Björnsson eðlisfræðingur og í staðinn komu Jonas Elíasson prófessor og Valdimar K. Jónsson prófessor. Fyrir er í stjórninni Kristmundur Halldórsson í Iðnaðarráðuneytinu (og það er stórt I í Iðnaðarráðu- neyti). Báðir eru þessir nýju stjórn- armenn hinir mætustu prófessorar, en það þykir ýmsum sem til þekkja afturámóti siðlaust að verkfræði- stofa Jonasar Elíassonar, Vatnaskil, hefur fengið fjölda verkefna frá Orkustofnun undanfarin ár og sé því ljóst að komin séu bein hags- munatengsl milli þessarar verk- fræðistofu og eins stjórnarmanna. Ekki bætir úr skák að Jónas Elías- son er orðinn formaður stjórnarinn- ar... BANKINN ER í BÆNUM 1 Þú gctur fengió eitthmóaf lrfvtna króna firá okkur ánæsta árl Hvemig? Já það er ekki nema von þú spyrjir — jú með því að eiga miða hjá okkur. Heildampphæð vinninga er tæpar 56 milljónir króna og hún fer til þeirra sem eiga miða. — En jafnvel þó þú eigir miða er ekki víst að þú fáir vinning — þá kemur til heppninnar. Með smá heppni og hundraðkalli á mánuði getur þú hlotíð vinning. við drögum þann 10. janúar. Happdnetti SlBS 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.