Helgarpósturinn - 05.01.1984, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 05.01.1984, Blaðsíða 14
Það er bölvaður hraglandi og nœðingur í lofti þennan þriðja dag jóla sem ég heimsœki Erling Sigurðarson. Það er búið að skafa mikil ósköp afsnjó í Vanabyggðina á Akur- eyri þar sem hann á heima í efsta húsi. Sem ég ösla síðustu skaflana að útidyratröppunum kem ég auga á hann ígegn- um eldhúsgluggann. Þar stendur hann svuntuklœddur og berst við að skrúbba leirtau og bolla eftir hádegismat fjöl- skyldunnar. Vinalegur maður, hann Erlingur, skrafhreifinn og lúmskur húmoristi eins og hlustendur útvarpsþáttarins um Daglegt mál hafa fengið að njóta síðustu mánuði. Það er jólalegt í kringum okkur þegar við setjumst niður með kaffi og bakkelsi og förum að spjalla, alla vega skrautlengj- ur á veggjum og prúðbúið jólatré á miðju stofugólfi sem minnir mann á Jesúafmælið. Það er því nœrtœkt að spyrja Erling í fyrstu hvort hann sé mikið kristinnar trúar. eftir Sigmund Erni Rúnarsson mynd: Kristján G. Arngrímsson ,,Ég held að það sé engan veginn hægt að mæla kristni fólks, síst af öllu í jólaskrauti. Menn geta verið sannkristnir í sjálfum sér og breytt betur en margir aðrir, þó svo þeir hengi ekki allskonar dinglumdangl í kring- um sig á þessum tíma árs. En þú spyrð mig hvort ég sé kristinn. Ég get eiginlega ekki svarað því öðruvísi en svo að ég hljóti að taka nokkurt tillit til kenninga Biblíunnar. Það stafar einfaldlega af því að ég er alinn upp í kristnum sið og því líka að kristilegt siðferði hefur sett og setur sitt mark á þá menningu sem þrífst allt í kring- um mig. Ég mætti því vera mjög einangrað- ur og afskiptur ef ég tryði ekki einhverju af kenningum Krists og reyndi ekki að breyta samkvæmt þeim. Hitt er svo annað mál hvernig ég vil túlka margar þessar kenningar. Það samrýmist ekkert endilega lúterskri hefð. Ég er efa- semdarmaður og trúi ekki fyrr en ég tek á. Öll bókstafstrú er fjarri mínum hugsana- hætti." — Lœlurdu þennan snefil af kristinni trú hafa áhrif á hversdagslíf þitt? ,,Mjög líklega er eitthvað í fari mínu sem stjórnast af kristilegum kenningum. Hvað mig varðar er það þó ekki meðvitað. Rétt- lætis- og siðferðiskenndin blundar einhvers- staðar niðri í mér og hún er vafalítið samofin því kristna uppeldi sem mér hlotnaðist í æsku. Ég er því líklega að breyta af og til samkvæmt guðsorðinu. Að þessu leyti er trúin, eða öllu heldur mín túlkun á henni, mjög ósjálfráð. Hún vinnur sitt verk innra með mér, án minnar vitundar og án þess að hennar sjáist mikil ytri merki. Ég krýp til dæmis ekki daglega niður og fer með bænir. Það er af og frá. Ég finn það vel að ég lifi ekki samkvæmt kreddum í þessu efni. Eg sæki til að mynda ekki kirkjur að staðaldri, enda finnst mér kirkjugöngur í sjálfu sér enginn mælikvarði á trú manna. Trúin er einkamál fólks. Það ber miklu fremur að sýna hana í daglegri breytni en bera hana á torg. Ýmis ytri sýnd- armennska í þessum efnum á ekki við trúna að mínum dómi. Hún fer meira að segja oft- lega í taugarnar á mér.“ Óttalegur sveitastrákur Erlingur minntist á æsku sína hér á undan. Hann er fæddur og uppalinn að Grænavatni í Mývatnssveit, skráður í kirkjubækur þar um slóðir á sumarmánuðum 1948. Foreldrar hans eru þau Þorgerður Benediktsdóttir og Sigurður Þórisson. Strákurinn er þannig Þingeyingur í húð og hár „og ber þess öll ytri sern innri merki" að eigin sögn. „Ég er óttalegur sveitastrákur í einu og öllu sem ég tek mér fyrir hendur, enda hlýt ég að bera merki uppruna míns, svo fremi ég afneita honum ekki. Og það langar mig síður en svo til að gera. Sveitin fór vel með mig, ól mig ágætlega upp að því er ég best held, innan um allt það sem hún hefur upp á að bjóða." — Hvaö foröaöi þér frá því aö veröa bóndi? „Ég vil ekki segja að neitt hafi „forðað" mér frá því að gerast bóndi. Þetta starf hefur alla tíð staðið mér mjög nærri og gerir enn. Ég finn mig ákaflega vel við sveitastörf, skepnur og skítmokstur. Það getur meira en vel farið svo að ég gerist bóndi einhverntíma á næstu árum. En það var námið, eins og hjá svo mörgum öðrum sveitapiltungnum, sem hratt mér út fyrir heimasýsluna. Skólakerfið er ekki mið- að við þarfir sveitamannsins og því neyddist maður til að skilja við átthaga sína í land- fræðilegum skilningi, að öðrum kosti hefði maður orðið heimskur í þess orðs fyllstu merkingu, og það hlutskipti vill hver maður forðast. Eftir að maður heldur að heiman til náms gerist það að maður metnast alltaf og mótast af sínum aðstæðum á hverjum tíma og eftir því sem lengra er haldið til náms, þá verður náttúrlega uppruni manns lengra frá manni en daglegur vettvangur hinsvegar nær. Það verður því ekki svo auðveldlega aftur snúið." — Menntun, hljómfagurt orö, en misnot- aö finnst þér ekki? „Jú, mér finnst það misnotað að því leyti að það er farið að hafa það eingöngu um þá menn sem halda til langskólanáms. Það er farið að kalla menn menntaða af því einu að þeir hafa verið lengi í skóla. Þetta er oft fjarri raunveruleikanum. Menntun og skóli fara ekki endilega saman. Menn geta verið fram- úrskarandi vel menntaðir þó svo þeir hafi aldregi stigið fæti inn fyrir skóladyr, að sama skapi og menn eru sumir fádæma heimskir þrátt fyrir langtímanám, þótt svo vissutega vonast sé eftir hinu gagnstæða af skólunum. Ég vitna oft til Stephans G. Stephanssonar þegar skilgreiningu menntunar ber á góma, enda tel ég hann hafa útskýrt þetta hugtak öðrum betur í einu kvæða sinna sem hljóðar svo: „Þitt er menntað afl og önd/eigirðu fram að bjóða/hvassan skilning, haga hönd /hjartað sanna og góða." Ég vil bæta því við í þessu sambandi að mér hrýs oftlega hugur við því þegar menn eru að hrósa sjálfum sér fyrir úthald og ár- angur í langskólanámi. Það eru sumir því miður mjög gjarnir á að líta stórt á sig í þessu efni. Rembingur í þessa veru hefur allt of lengi fengið að þrífast óáreittur. Ég held að Erlingur Siguröarson það sé einmitt glöggt vitni um menntunar- skort öðru fremur, ef menn gangast upp í þessu drambi. Sem langskólagenginn maður og kennari sem sakir standa, tel ég að skólamenntun nái hámarki sínu, ef hún getur leitt til víðsýni, umburðarlyndis og virðingar fyrir skoðun- um annarra. Þetta er að minnsta kosti sú inn- ræting sem ég vildi sjá bera árangur af mínu starfi. Og ég hygg að kennurum eigi að geta auðnast þetta með því að miðla nemendum sínum jafnt af mannlegri sem bóklegri þekk- ingu sinni. Kennarinn á að því er mér finnst að vera hann sjálfur í kennslutímum, fyrst og fremst maðurinn, en ekki kennarinn." — Þú kennir íslensku viö Menntaskólann á Akureyri, aukinheldur sögu. Þaö hefur ver- iö rœtt um aö söguleg þekking unglinga fari sífellt minnkandi. Hvaö segirðu um það? „Svona samanburður á milli unglinga nú og þeirra sem voru að alast upp á árum áður, er óttalega vitlaus í mínum huga, fyrir utan það að vera ómarktækur.Það hefur líkast til verið sagt um aldir að unga fólkið sé að fara með heiminn til andskotans. Það hafi verið illa upplýst, sljótt og æ dónalegra í fram- göngu. Én tímarnir breytast og mennirnir með, og við höfum vitanlega ekki sömu for- sendur að dæma út frá nú og áður. Hafi heimurinn verið að fara fjandans til fyrir nokkrum áratugum eða öldum, þá er hann vafalaust kominn þangað á þeirra tíma mælikvarða. Ég gæti samt trúað að það víti væri jafn langt undan okkur og forfeðrum okkar fannst það vera á fyrri tímum. En hvað sem þessum samanburði líður, þá geri ég nú samt ráð fyrir því að í vitund flestra sé sagan allmiklu fjær íslendingum en hún var fyrir örfáum áratugum. Við verð- um að hafa í huga að við háðum okkar sjálf- stæðisbaráttu á síðustu öld og fram á þessa undir merkjum rómantíkur, ættjarðarástar og þjóðernisstefnu. Þessa baráttu háðum við með söguna að eiginlegum bakhjarli. Við notuðum söguna sem vopn á þá sem við börðumst gegn. Og um leið og við otuðum henni fram, var sagan okkur vakning og við notuðum hana í mótandi tilgangi til þess að hvetja hvert annað til dáða. Á þennan hátt er sagan okkur ekki eins lif- andi fyrir hugskotssjónum og hún var á bar- áttuárunum fyrir sjálfstæði, og nokkuð langt frá því að vera eins snar þáttur í daglegu tali almennings og hún var þá. Ég held þó að sagan sé síður en svo að gleymast okkur, eða að við séum að missa áhuga á henni. Sagan hlýtur að vera grundvöllurinn að lífi okkar og til að vekja skilning á samtíð okkar. Og til að móta okkar framtíð hljótum við að þurfa að leggja rækt við grunninn; sögulega þekk- ingu okkar og þar á ég bæði við íslandssögu og almenna mannkynssögu. Mér dettur í hug í þessu sambandi að ég var að lesa í gær- kveldi ágæta bók sem ber heitið „Þeir settu svip á öldina" og segir þar frá ýmsum okkar merkustu stjórnmálamönnum á undanliðn-' um áratugum. í einum kafla bókarinnar sem fjallar um Magnús Kjartansson er vitnað í pistil sem hann skrifaði í tímaritið Frón árið 1943, aðeins 24 ára gamall, en tímarit þetta var gefið út af innilokuðum íslendingum í

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.