Helgarpósturinn - 05.01.1984, Side 10
ft '99* *#.«•» *#•#> ' 9 tk
'./ •■ j j. »."«•.».■• < ír * • r » * #• í * .4
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar: Árni Þórarinsson
og Ingólfur Margeirsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Hallgrímur Thorsteinsson
Blaöamenn: Egill Helgason
og Sigmundur Ernir Rúnarsson
Utlit: Björn Br. Björnsson,'
Björgvin Ólafsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Hildur Finnsdóttir
Útgefandi: Goögá h/f.
Framkvæmdastjóri:
Guðmundur H. Jóhannesson
Auglýsingar:
Áslaug G. Nielsen
Skrifstofustjóri:
Ingvar Halldórsson
Innheimta:
Jóhanna Hilmarsdóttir
Afgreiösla: Þóra Nielsen
Lausasöluverö kr. 30.
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavik, sími
8-15-11. Afgreiösla og skrif-
stofa eru aö Ármúla 36. Slmi
8-15-11.
Setning og umbrot:
Alprent hf.
Prentun: Blaöaprent hf.
Áramótaklisjur
Svo lengi sem miöaldra ís-
lendingar muna hafa helstu
forvígismenn þjóðarinnar flutt
þeim hjartnæmar hugvekjur
um áramót. Þessi ávörp eru
orðin að ríkulegri hefð sem
þykir jafn sjálfsögð á þessum
tímamótum og flugeldar og
fyllerí.
Þessir ávarpsmenn áramót-
anna renna blint í sjóinn með
þaö hversu margir hlusta á
boðskap þeirra, nema hvað
heyrst hefur úr horni að þeim
fari æ fækkandi með árunum.
Ástæðuna er sjálfsagt að
finna i þvf viðhorfi að áramóta-
ávöroin séu að miklum hluta
orðin endurtekningar frá ári
til árs.
Eða hver hefur ekki áður
heyrt álfka setningu hljóma
fyrir eyrum um áramótin:
„Þrekvirki okkar hefur verið að
gera hér allt úr garði sem hér
byggju milljónir en ekki 240
þúsund manns er standa hér
undir sjálfstæðum þjóðarbú-
skap.“ Þetta hafa menn heyrt
allt frá barnæsku og heyrðu
enn um sfðustu áramót.
í Helgarpóstinum f dag er
farið grannt ofan f áramóta-
ávörp helstu forvfgismanna
þjóöarinnar. Þar mátti víða
greina klisjur, heilar máls-
greinar sem mega teljast end-
urtekningar á gömlum ávörp-
um. Áherslan er sem fyrr lögö
á þjóöerniskenndina, ríka
menningararfleifð, nauösyn á
samstilltu átaki f efnahags-
málum, fegurð landsins og
þjóðartungunnar og mikil
landgæöi,
i Þessi ræðutónn viröist vera
oröinn hefðbundinn, jafn ó-
rjúfanlegur þáttur af sjálfum
ræðunum sem þær eru sjálf-
um áramótunum. En er þá um-
ræðuefni áramótanna að þrot-
um komið? Þeirri spurningu
og fleirum er varpað til helstu
forvígismanna (Djóðarinnar í
Helgarpóstinum í dag.
Forsetinn okkar, biskupinn
og forsætisráðherrann svara
fyrirþað hvort ávörp þeirrahafi
verið klisjukennd eða endur-
tekningar frá síðustu áramót-
um.
„Við deilum líklega um
flest,“ sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráð-
herra í áramótaávarpi sfnu.
Meðal þess sem við höfum
deilt um er tunga okkar, ís-
lenskan. Deilur þessar hafa að
langmestu leyti snúist um
framburðog íslenskukennslu í
skólum. Áhugamenn um fs-
lenskt mál hafa hins vegar
sjaldnar fjallað opinberlega
um þann þátt tungunnar sem
e.t.v. skiptir mestu máli: mál-
notkunina. Grein Helgarpósts-
ins í dag er innlegg í þetta van-
rækta svið umræðunnar um
fslenskt mál.
W*
■r-jr * -» -v* 1
i
A
í
menningarmiðstöðinni að
Kjarvalsstöðum hefur um árabil ríkt
ófriður, ekki síst milli listráðunauta
Kjarvalsstaða og forstöðumannsins
Alfreðs Guðmundssonar, sem
ekki þykir sérstaklega virkur eða já-
kvæður í samstarfi, auk þess sem oft
hefur slegið í brýnu milli starfsfólks
og stjórnar Kjarvalsstaða. Slík staða
A
w, -y*\ w m’. v»t» ’ísb. vss, wv, m w w. w. wi W*
er nú komin upp einn ganginn til, og
heyrum við að Þóra Kristjáns-
dóttir, sem verið hefur Iistráðu-
nautur undanfarin ár, ætli að hætta,
nú síðast vegna deilna við formann
stjórnar Kjarvalsstaða, Einar Há-
konarson listmálara, auk þess sem
samstarf þeirra Alfreðs mun síður
en svo hafa verið elskulegt....
E
yrsti alvarlegi ágreiningurinn
milli sjálfstæðismanna og fram-
sóknarmanna í ríkisstjórninni virð-
ist nú orðinn vegna hugmynda
Halldórs Ásgrímssonar sjávarút-
vegsráðherra um að Islendingar
taki yfir þyrluflug- og björgunar-
starfsemi varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli. Þykir þetta frumkvæði
Halldórs óvænt, því hingað til hefur
hann ekki beitt sér í þessum málum.
Tók Morgunblaðið m.a. þessar hug-
myndir óstinnt upp í leiðara á mið-
vikudag, þótt ráðherrann hafi í
reynd aðeins bent á að með þjálfun
geti íslendingar leyst þessi störf jafn
vel af hendi og Bandaríkjamenn.
Það gustar mikið af Halldóri núna,
og segja kunnugir að þrátt fyrir
margumrædda einveldisstöðu hans
í kvótamálinu sé full samstaða og
náið samráð þessa dagana milli
hans og Kristjáns Ragnarssonar
hjá LÍU og forystu Sjómannasam-
bandsins og Farmanna- og fiski-
mannasambandsins í öllum þessum
máium...
I ins og sést hefur í fjölmiðlum,
aðallega Morgunblaðinu, eru land-
eigendur við Apavatn ákaflega ó-
hressir með eldistöð sem Laugalax
hf. er að reisa þar eystra. Vilja sumir
ábúendur allt til vinna að losna við
stöðina, og hafa útmálað hættuna
sem stafa á af henni. Þeir reyndust
hins vegar heldur bráðir, þegar þeir
ræddu við blaðamann Tímans rétt
fyrir jól. í viðtalinu lýstu þeir því
hve mjög þessi væntanlega eldistöð
myndi spilla mikilli og góðri veiði í
Apavatni, og þar með valda mikilli
tekjurýrnun hjá veiðiréttarhöfum.
Þetta þótti skattstjóra Suðurlands-
umdæmis merk tíðindi og mikil, því
hann hafði ekki hugmynd um nein-
ar tekjur bænda af veiði í vatninu.
Slíkt hafði aldrei komið fram á
skattframtali. Hann hyggst því láta
skoða málið og kanna hvað orðið
hefur af þessum tekjum...
Lllt er orðið vitlaust í skreið-
arútflutningsgeiranum vegna
þeirra ummæla sem Þjóðviljinn
hafði á þriðjudag eftir Braga
Eiríkssyni hjá Samlagi skreiðar-
framleiðenda þess efnis að íslenskir
skreiðarseljendur hefðu mútað
• röngum manni í Nígeríu, þ.e. þeim
spillta Shagari sem nú hefur verið
steypt af herforingjum. Hin nýja
herforingjastjórn mun hafa gefið til
kynna að hún ætli að virða alla
skreiðarsamninga sem staðið hefur
verið að með lögmætum hætti, og
óttast menn nú að þessi mútuvið-
skipti íslendinga og Shagaristjórn-
arinnar verði ekki flokkuð undir
lögmæta samninga þegar opinber
ummæli framkvæmdastjóra Sam-
lags skreiðarframleiðenda hafa ver-
ið þýdd fyrir sendiherra Nígeríu í
Osló...
f//í W, W, 'f/i Wi
Kátt.í
koti
dagur ó barnaheimili
Falleg bók
d lágu verði
- fyrir börn
fullorðna
s
kthygli vakti hversu mikið fé
Alexander Stefánsson félags-
málaráðherra tókst að fá til hús-
næðismálanna í fjárlögunum. Við
heyrum að ein meginástæðan fyrir
þessu greiða fjárstreymi milli fjár-
málaráðuneytisins og félagsmála-
ráðuneytisins sé sú að þeir Alexand-
er og Álbert Guðmundsson fjár-
málaráðherra eru gamlir skóla-
bræður úr Samvinnuskólanum,
spiluðu saman fótbolta og Alexand-
er studdi þar fyrir utan Albert í for-
setakosningunum. Þannig geta
menn sameinast um pólitíska bolta
þótt þeir séu sinn í hvoru liði...
' teingrímur Hermannsson -
forsætisráðherra hefur stungið upp
á því í ríkisstjórninni að „fram-
kvæmt verði langtímamat og spáð
um þjóðfélagsþróun næsta aldar-
fjórðúng," eins og hann sagði í ára-
mótaávarpinu sinu. Ekkert smá
verkefni það! Gert er ráð fyrir að 5-9
manna hópi fólks verði hóað saman
inn í þennan fyrsta íslenska „think
tank" eða hygmyndageymi, og að
verkefnið verði sett niður hjá Þjóð-
hagsstofnun. En það er erfitt að
kortleggja, sérstaklega framtíðina,
og verkefnisstjórinn þarf því að
vera skarpur, helst skyggn líka.
Steingrímur mun vera kominn með
mann á blað hjá sér sem hann ætlar
þetta verkefni. Sá er enn huldu-
maður. Nú er að sjá hvort sjálf-
stæðismenn geta sætt sig við mann-
inn...
I já Flugleiðum á Reykjavík-
urflugvelli er nú verulegur urgur út
af mannabreytingum. Þannig er
mál með vexti að umdæmisstjóri
Flugleiða á Akureyri, Sveinn
Kristinsson, var fluttur úr þeirri
stöðu vegna einhverra erfiðleika í
starfi og stöðvarstjórinn í Keflavík
fluttur norður. Sveinn var gerður í
staðinn að verkstjóra í innanlands-
fragtinni á Reykjavíkurflugvelli, óg
mun sú ráðstöfun hafa mælst svo
illa fyrir þar að hafnar voru mót-
mælaaðgerðir starfsfólks og undir-
skriftasöfnun. Þau mótmæli munu
þó engan árangur hafa borið......
Ótrúlega hagstæöir
greiðsluskilmá/ar
20%
A/lt niður i
útborgun
og eftirstöðvar allt að
6 mánuðum
• FLÍSAR • HREINLŒTISTÆKI •
• BLÖNDUNARTÆKI • BAÐHENGI •
• BAÐTEPPI • BAÐMOTTUR •
• MÁLNINGARVÖRUR • VERKFÆRI •
• HARÐVIÐUR • SPÓNN •
• SPÓNAPLÖTUR • GRINDAREFNI •
• VIÐARÞILJUR •
• PARKETT • PANELL • EINANGRUN •
• ÞAKJÁRN • ÞAKRENNUR •
• SAUMUR • RÖR • FITTINGS O.FL., O. FL.
Dl
10
mánudaga—fimmtudaga kl. 8-18.
Föstudaga kl. 8-19. Laugardaga 9-12.
ID
[
l
|TTll BVCBMBflVÖBDRl
Hrinabraut 120 — sími 28600 III
Hringbraut 120 — sími 28600
(aðkeyrsla frá Sólvallagötu).
1
IU
CNDURSKOÐUN OG RCIKNINGSSKIL SF
Hér með tilkynnist
að við höfum opnað nýja endurskoðunarstofu.
Veitt verður öll þjónusta á sviði
endurskoðunar og reikningsskila.
Gf
CNDURSKOÐUN OG RCIKNINGSSKIL SF
LfiUGflVEGUR 18 101 REVKJflVIH SIMI 91 27888 NNR2133 8362
LÓGGILTIR ENDURSKOÐENDUR
ERNfl 6RVNDÍS HflLLDÓRSDÓTTIfl
GUÐMUNDUfl FRIÐRIH SIGURÐSSON
JÓNflTflN ÓLflFSSON
10 HELGARPOSTURINN