Helgarpósturinn - 05.01.1984, Side 17

Helgarpósturinn - 05.01.1984, Side 17
 — Kœrasta hlutverk mitt til þessa segir Júlíus Vífill sem syngur tenórhlutverk greifans í Rakaranum í Sevilla ,,Eg tek háa C-id tvisvar", segir Júlíus Vífill Ingvarsson tenór- söngvariþegar HP innir hann eftir raddbeitingu tenórhlutverksins í Rakaranum í Sevilla sem frum- sýndur verdur í fslensku óperunni sunnudaginn 8. janúar. Júlíus Vífill hefur vakið athygli á undanförnum árum sem tenór- söngvari og hann fer með eitt að- alhlutverkanna í framangreindri óperu eftir Rossini. Önnur hlut- verk eru m.a. í höndum Kristins Sigmundssonar, Sigríðar Ellu Magnúsdóttur, Kristins Hallssonar og Jóns Sigurbjörnssonar. Júlíus syngur hlutverk greifans Alma- viva. „Ég leik dæmigert tenór- hlutverk, ungan mann, rangeyg- an af ást. Greifinn eltir unga stúlku, Rosinu, til Sevilla, þar sem hún dvelur hjá dr. Bartolo sem er fjárhaldsmaður hennar. Fígaró eða rakarinn i Sevilla gerist hins vegar milligöngumaður greifans um að nálgast stúlkuna á réttan hátt. Þetta er létt grínópera, full af skemmtilegri og góðri músík sem allir kannast við. Rossini skrifar eins og fyrir kennslubækur söng- skóla. Þess vegna er það mjög hollt fyrir röddina að syngja þetta hlutverk; sannkölluð góð æfing. Þetta er léttur tenór eða „tenore leggiero" eins og italskir kalla röddina". Um hlutverkið segir Júlíus Vífill ennfremur: „Þetta er fjórða hlut- verk mitt á óperusviði eftir að ég lauk námi fyrir tveimur árum á Italíu og sneri heim til íslands. Þrjú þeirra hafa verið aðalhlutverk og þetta er það áreynslumesta og tví- mælalaust það kærasta sem ég hef átt við". Þess má geta að Júlíus Vífill hef- ur áður sungið Baron von Schober í Meyjaskemmunni, Monostados í Töfraflautunni og Nanhí-Pu í Mík- adó. En hvernig skyldu taugarnar vera fyrir frumsýningu? „Þær eru spenntar", segir Júlíus ogbrosir. „Allirsöngvararnir hafa verið meira og.minna með kvef. Júlíus Vlfill tekur háa C-ið fyrir Ijós- myndara HP á æf- ingu I íslensku óperunni. Það er lika komin i mann ákveðin þreyta, æfingarnar hafa verið stíf- ar en hvíldin yfir hátíðirnar hefur þó bætt þetta mikið upp. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt tímabil, hópurinn er samæfður og þekkist vel frá því áður. Ég held að áhorfendur megi búast við skemmtilegu kvöldi. Það er mikið um glens og gam- an og tónlistin víðþekkt. Eflaust munu flestir njóta tónlistarinnar likt og þeir væru að heilsa upp á gamla ástvini". Leikstjóri sýningarinnar er Francesca Zambello, og stjórn- andi hljómsveitarinnar Marc Tardue. Lesendur eru hvattir til að fjölmenna á þennan merka tónlistarviðburð. — IM KVIKMYNDIR Lopinn teygður Laugarásbíó PSYCHO II Bandarísk 1982 Höfundur handrits: Tim Hollard Myndatökustjóri: Dean Cundey Framleidandi: Hilton A. Green Leikstjórn: Richard Franklin Aðalhlutverk: Anthony Perkins, Vera Miles, Meg Tilly, Robert Loggia o.fl. 22 ár voru liðin frá því að hin sígilda spennumynd Alfred HitchcockSjPsycho, var gerð og þangað til mönnum vestra datt það i hug að teygja lopann og skrifa framhald. Geðklofinn Norman Bates (Anthony Perk- ins) er því látinn útskrifast sem heilbrigður. Lia Loomis (Vera Miles) mótmælir hástöfum og segir við dr. Raymond, lækni Normans, að hún geri hann ábyrgan ef Norman taki upp fyrri hætti og stingi menn á hol. Og þá getur fjörið hafist. Þessir tveir leikarar eru þeir einu sem léku í gömlu myndinni hans Hitchcocks og þeir fara með sömu hlutverkin. Perkins hefur misst mikið af hinu hálf-homosexual ungæði sínu sem hentaði hlutverki Bates á sínum tíma. Nú er hann eiginlega svipur hjá sjón; sinaber og ellilegur í gömlu, ljósu flauelsföt- unum sínum og svörtu rúllukragapeysunni. Og hann er alveg hættur að bryðja hnetur á taugaveiklaðan máta. En Perkins er samt alltaf Perkins. í sjálfu sér er Psycho II ágæt hryllingsmynd. Gallinn er hins vegar sá, að Richard Franklin hefur bundið hendur sínar með því að prjóna aftan við fullskapað meistaraverk. Hann verður því háður Hit- chcock og reynir af veikum mætti að endur- vekja gömlu svart-hvítu spennuna með ýms- um hætti án þess að takast það. Þannig hefur hann myndina með því að sýna hið fræga sturtumorð Hitchcocks óstytt sem er gott og vel en síðar í myndinni reynir hann sjálfur að stæla kvikmyndatökuvinkla og klipping- ar gamla meistarans án þess að úr verði fugl né fiskur. T.a.m. klæmist Franklin á sturtu- atriðinu, notar sömu sjónarhorn og forveri hans á bílinn sem dreginn er úr feninu (loka- atriði gömlu myndarinnar), frá mótelinu upp að húsinu, og stigaganginn séðan úr lofti, svo eitthvað sé nefnt. Loks bregður leikstjór- inn á það vonda ráð að ganga mörgum skref- um lengra en Hitchcock og sýna morðin í smáatriðum en þar bregst honum bogalistin, því snilld Hitchcocks fólst m.a. einmitt í því að láta hroðaverk og aðra spennuvalda ger- ast utan tjaldsins og þenja taugar áhorfand- Sálir til sölu Regnboginn. Mephisto. Ungversk — þýsk. Árgerð 1981. Handrit István Szabo og fleiri eftir skáldsögu Klaus Mann. Leikendur: Klaus-Maria Brandauer, Rolf Hoppe, Krys- tyna Janda og fleiri. Leikstjóri: István Szabo. Það hefur tekið sinn tíma fyrir Mephisto að komast á hérlendan dúk. Þegar 1981 vann hún til verðlauna á Cannes-hátíðinni, og var sýnd fljótlega á eftir í öllum nágrannalönd- um okkar. Skáldsagan, sem myndin byggist á, er eftir Klaus Mann, sem var annaðhvort bróðir eða sonur Tómasar Mann. Hún fjallar um leikar- ann Hendrik Höfgren, mikinn hæfileika- mann, semalltaf er átoppnum hvað sem á dynur í kringum hann, fús til að varpa fyrri sannfæringu sinni fyrir róða, ef hún er ekki að skapi nýrra valdhafa. Dæmisaga um hvernig (lista)-fólk fargar sannfæringu og siðferðilegum viðmiðunum í eltingarleik sín- um við veraldargengið. Sagan byggist á manni sem var til og starf- aði í Þýskalandi á sama tíma og sagan gerist. Það er engum blöðum um það að fletta að Klaus Mann hefur haft þessa persónu í huga. Sá hét Lofgren, og var hann enn sleipari en sögupersónan, því hann hélt sér fljótandi eft- ir stríð, þótt hann hafi verið aðalleikari og leikhússtjóri nazistanna. Eftir að hafa látið af störfum þegar nazistarnir voru sigraðir, kom hann til baka fram á sjónarsviðið og var gerður að þjóðleikhússtjóra tveimur eða þremur árum eftir stríðslok. Kann raunar ans til hins ítrasta. Myndatökustjórinn reynir ennfremur að ná stemmningu John L. Russ- ells (kvikmyndatökumaður Psycho) í ein- staka atriðum með löngum hreyfingum (krana) en kemst ekki í hálfkvisti við sumar tökur Russells eins og upphafsatriði gömlu Psycho þar sem beinlínis er flogið yfir borg, að hverfi, inn að húsi og innum gluggann þar sem leikararnir Janet Leigh og John Gavin eru í heitum ástarleik. Psycho II á allan sinn tilverurétt undir Psycho sem stendur áfram óhögguð sem meistaraverk og gæti reyndar vel án þeirrar síðari verið. — IM fleira að hafa komið til en jafnvægiskúnst hans í pólitíkinni, því mörg eftirlætisbörn nazistanna risu fljótt að völdum og virðingu í Þýskalandi eftirstríðsáranna. Aður en István Szabo gerði þessa mynd var Mephisto ofarlega í hugum fólks í Vest- ur-Evrópu, því að nokkrum árum áður hafði Klaus-Maria Brandauer I Mephisto Regnbogans. hið fræga Sólar-leikhús í Frakklandi gert rómaða leiksýningu eftir bókinni — sama fólk og seinna gerði myndina góðu um Moli- ére. Ekki er að undra þótt listafólki finnist efni- viðurinn heillandi. Þarna er ekki bara fjallað um hina sígildu spurningu um ábyrgð lista- mannsins gagnvart list sinni og lífsskoðun- um, heldur er þetta þema spunnið á marg- slunginn hátt með grunninn í ekki ómerkara verki en Faust eftir Goethe. Faust fórnar sálu sinni og því sem honum er heilagast fyrir viskuna og máttinn. Hann selur sig fjandan- um (Mephisto). Glansrulla Höfgrens er ein- mitt Mephisto, en í lífinu er hann í hlutverki Faust og er nazistahershöfðinginn (der min- istergeneral) hans eigin Mephisto, og er raunar ennþá mergjaðri sem slíkur en Höf- gren á sviðinu. Styrkur þessarar myndar er hve snilldar- lega er farið með þetta þema og svo af- bragðsgóður leikur í öllum hlutverkum. Hæst ber Brandauer í aðalhlutverkinu og Rolf Hoppe í hlutverki erkinazistans. Ennig má geta eftirlætisleikkonu Vajdas í seinni tið Krystyna Janda. Mjög vel er leikstjórnarlega unnið úr öllum þeim atburðum sem lýst er, það er að segja hvað varðar athafnir leikar- anna og hreyfingar í stórgóðri sviðsmynd. Nokkuð vantar þó uppá að hinn kvikmynda- legi (filmíski) seyður hljómi þar með. En ekki verður á allt kosið. Allténd er þetta besta myndin í bænum. -LÝÓ HELGARPÓSTURINN 17

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.