Helgarpósturinn - 05.01.1984, Qupperneq 23
HRINGBORÐIÐ
Bókaspjall
Ennþá einusinni er jólabókahol-
skeflan gengin yfir og landsmenn
sem óðast að jafna sig eftir ágjöf-
ina, hver í sínu vari. Vonandi hef-
ur enginn þeirra farið með öllu
varhluta af þessum árvissu ham-
förum, því blindur er bóklaus
maður og betra er berfættum en
bókarlausum að vera. Hitt er á-
hyggjuefni sem traustar heimildir
herma, að verulegur samdráttur
hafi orðið í bókaútgáfu og bóksölu
frá árinu á undan, sem mun hafa
verið metár að því er varðar fjölda
útgefinna bókatitla. Fækkun titla
nam að sögn 13% milli ára. Á hinn
bóginn er ljóst að upplög bóka
hafa minnkað um 20-30% á síð-
ustu tveimur til þremur árum og
bóksala því dregist verulega sam-
an. í því reikningsdæmi eru bóka-
klúbbarnir undanskildir, en þeir
hafa væntanlega að talsverðu
leyti dregið úr bóksölu á almenn-
um markaði. Séu þeir hinsvegar
teknir með í dæmið, er ekki víst
að samdráttur í bókakaupum
landsmanna sé jafngeigvænlegur
og tölur bóksala gefa til kynna.
Þess er ekki að dyljast að bókin
á í vök að verjast í vaxandi sam-
keppni við æ fjölbreytilegra
menningar- og afþreyingarefni,
og má ganga að því vísu að þar
eigi myndbandatískan stóran hlut
að máli ásamt með ódýrari hljóm-
plötum og kassettum og stór-
auknu framboði á tónleikum, list-
sýningum, kvikmynda- og leik-
sýningum. Tómstundum manna
eru nú einusinni ákveðnar skorð-
ur settar og þeim verður ekki var-
ið til allra hluta í senn, jafnvel þó
menn væru allir af vilja gerðir.
Um það er varla deilt að bókin
hafi sínar sérstöku eigindir sem
gera hana á ýmsan hátt eftirsókn-
arverðari en aðra fjölmiðla. Hún
er handhægari og meðfærilegri
en þeir flestir og veitir ánægju
sem ekki er annarsstaðar að finna.
Það finna þeir best sem eiga vönd-
uð heimiiisbókasöfn eða eru tíðir
gestir á almenningsbókasöfnum.
En það er sitt hvað bók og bók, og
óneitanlega er hörmulega stór
partur af bókaflóðinu á ári hverju
bundinn dægurflugum og afþrey-
ingu sem skilur lítið eða ekkert
eftir. Þannig hefur það lengstaf
verið eftir seinna stríð og fátt við
því að gera. Orðlögð bókelska
þjóðarinnar hefur sí og æ tælt fjár-
aflamenn til að taka þátt í árlegu
happdrætti jólabókaflóðsins með
þeim afleiðingum að í landinu
munu nú vera skráðir um 80 bóka-
útgefendur, sem er viðundur
hvernig sem á málið er litið og ó-
tvírætt heimsmet!
Þó vafalaust horfi skuggalega
hjá mörgum þessara útgefenda
eftir síðustu uppskeru, verður
ekki annað sagt en hún hafi verið
venju fremur blómleg, og þá ekki
síst í þýddum bókmenntaverkum.
Nægir í því sambandi að nefna
höfunda einsog Cervantes, Kafka,
Heinesen, Stancu, Graham
Greene, Jersild, Böll, Malraux,
Virginíu Woolf, Alejo Carpentier
og Mohamed Choukri, eh fimm
þau síðastnefndu voru nú í fyrsta
sinn þýdd á ísiensku. Er ekki að
efa að nýstofnaður þýðingarsjóð-
ur, sem Guðrún Helgadóttir beitti
sér fyrir á Alþingi, á sinn þátt í
þeirri grósku.
Ljóðlist virðist hafa verið á und-
anhaldi fyrir lausu máli á liðnum
árum, enda voru þær frumsömdu
ljóðabækur á síðasta ári, sem
náðu máli, innanvið tíu talsins.
Afturámóti hefur mikil gróska
hlaupið í innlendar barna- og
unglingabækur og birtust einar tíu
góðar bækur í þeirri grein, sem er
mikil framför frá fyrri tíð.
Innlendar skáldsögur og smá-
sögur settu sterkan svip á útgáf-
una á liðnu ári, og var eftirtektar-
vert að sex kunn ljóðskáld gáfu út
skáldverk í lausu máli: Ólafur Jó-
hann Sigurðsson, Ólafur Haukur
Símonarson, Þórarinn Eldjárn,
Steinunn Sigurðardóttir, Einar
Már Guðmundsson og Sigurður Á.
Friðþjófsson. Aðrir ungir prósa-
höfundar sem athygli vöktu voru
meðal annarra Einar Kárason,
Vigdís Grímsdóttir, Páll Pálsson
og Stefanía Þorgrímsdóttir. Þetta
hlýtur að teljast dágóð uppskera í
vondu ári.
Tvennt vakti sérstaka eftirtekt á
síðustu vertíð: Annarsvegar fjórar
veglegar bækur um íslenska
myndlistarmenn, Arngrím ' mál-
ara, Finn Jónsson, JÓhann Briem
og Þorvald Skúlason. Hinsvegar
einar sjö bækur um innlenda
stjórnmálamenn lífs og liðna: Ein-
ar Olgeirsson, Bjarna Benedikts-
son, Ingólf Jónsson, Guðlaug
Gíslason, Eystein Jónsson, Ólaf
Jóhannesson og safnritið „Þeir
settu svip á öldina" með 16 ævi-
söguþáttum. Er ekki fjarri lagi að
álykta, að niðurlæging stjórnmála
á líðandi stund hafi kallað á upp-
rifjun fyrri tíma, þegar talsvert
meiri reisn var yfir stjórnmála-
vafstrinu, eða þannig horfir það
að minnstakosti við núna og kann
að vera einber missýning.
Af fræðiritum sem mikilí fengur
var að ber að nefna „íslenska sjáv-
arhætti" (3. bindi), „Hugtök og
heiti í bókmenntafræði", „ís-
lenska flóru“ , „Landið þitt“ (4.
bindi) og „Ferðabók Sveins Páls-
sonar," og er ekki'að vita nema
einhverju gagnmerku riti hafi ver-
ið gleymt í þessari fljótaskrift.
Erfitt er að spá nokkru um það,
hvert stefnir eftir þau áföll sem
bókaútgáfan hefur nú orðið fyrir,
því uppgripahneigðin og happ-
drættishugsunarhátturinn munu
VARAHIUTIR
í ALLA JAPANSKA BÍLA
Honda, Mazda, Mitsubishi, Toyota og Datsun
NP VARAHLUTIR
Ármúla 22 — 105 Reykjavík. Sími 31919
Draupnisgötu 2, 600 Akureyri. Sími 26303.
Hvergi hagstæðara verð.
I dag skrifar Sigurður A. Magnússon
héreftir sem hingaðtil ráða ferð-
inni. Meðan nokkrir helstu útgef-
endur sjá sóma sinn í því að halda
til streitu góðum bókmenntum,
innlendum og erlendum, er óþarft
að örvænta. Hafi einhverjir stór-
huga útgefendur farið flatt á sín-
um góðu bókum, er hinsvegár full
ástæða til að staldra við og varpa
fram þeirri tímabæru spurningu,
hvenær ráðamenn bókmennta-
þjóðarinnar hyggist setjast á rök-
stóla og móta einhverja skynsam-
lega heildarstefnu í menningar-
málum, meðal annars með hlið-
sjón af völtu gengi bókmennta í
landinu. Þar kynni afnám sölu-
skatts af bókum að vera eitt hald-
bært úrræði, ef það raunverulega
leiðir til lægra verðs á þessari
nauðsynjavöru, en hitt er miklu
afdrifarikara að finna leiðir til að
veita bókaramennt þjóðarinnar
hliðstæð lífsskilyrði og til dæmis
landbúnaði eða sjávarútvegi. Það
sannaðist áþreifanlega á Islend-
ingum á myrkum öldum þreng-
inga og hörmunga, að maðurinn
lifir ekki á einu saman brauði,
heldur líka á þeim verðmætum
sem mölur og ryð fá ekki grand-
að. Það mættu iandsfeðurnir
gjarna hafa hugfast oftar en á há-
tíðis- og tyllidögum.
LEIKHÚSSQESTIR — ÓPERUQESTIR
Lengið ferðina og eigið ánægjulegri
kvöldstund.
Arnarhóll býður upp á stórkostlegan
matseðil, fyrir eða eftir sýningu.
J Húsið opnar kl. 18.00.
Borðpantanir í síma: 91 — 18833.
HELGARPÓSTURINN 23