Helgarpósturinn - 12.01.1984, Síða 17

Helgarpósturinn - 12.01.1984, Síða 17
LISTUPPGJOR '83 Gagnrýnendur Helgarpóstsins meta stöðu listgreina ó nýliðnu ári og velja helstu viðburði ársins LEIKLISTARÁRIÐ '83 Stúdentaleikhúsiö bar af Þegar maður lætur hugann reika og reynir að gera sér grein fyrir starfsemi leikhúsanna á síðastliðnu ári verður að játa að þar er sorglega fátt um fína drætti. Gagnvart stóru leikhúsunum fyllist maður þeirri tilfinningu að leikhúsin hafi það helst að markmiði að hafa eitthvað að gera fyrir starfsfólk sitt og markmið starfsfólks sé það eitt að vinna vinnuna sína. Listrænn metnaður svo ekki sé talað um listræna áhættu virðist vera nokkuð sem ekki truflar mikið þá sem bera ábyrgð á vinnubrögðum í þessum húsum. Maður hefur oftar en ekki á tilfinningunni að það séu miklu fremur handverksmenn en Iistamenn sem vinna við þessi hús. Nú er þetta álit fremur byggt á tilfinningu en röklegri skoðun eða úttekt á öllum sýn- ingum húsanna á liðnu ári. Auðvitað voru sýningar misjafnar, sumar alveg þokkaleg- ar, aðrar ágætar að mörgu leyti, en sumar reyndar alveg misheppnaðar. Margir ein- staklingar unnu verk sitt meira en ágætlega og sýndu vissulega listræn tilþrif á sviðinu. Samt er eins og það sé eitthvað í vinnumóral innan leikhúsanna sem veldur því að maður minnist engrar sýningar sem ber algjörlega af öðrum, engra sýninga sem hægt er að halda fram með góðri samvisku að séu af- burðagóð listaverk hvernig sem á er litið. Ef vinsældir ættu að ráða hvaða leikrit væri leikrit ársins væri það auðvitað Lína lang- sokkur enda ætti hún það svo sem vel skilið þvj það er harla vel gerð sýning. íslensk leikritun skilaði sér nokkuð vel á árinu. Mér sýnist að ein sjö ný íslensk leikrit hafi verið frumsýnd á árinu. Þar eru einna athyglisverðust leikrit þeirra Svövu Jakobs- dóttur og Nínu Bjarkar Árnadóttur á Litla sviðinu í Þjóðleikhúsinu, Lokaæfing og Súkkulaði handa Silju. Á stóra sviði Þjóðleikhússins er helst að minnast Grasmaðks eftir Birgi Sigurðsson, sem var býsna vel samið vérk. Hinsvegar hefur nánast verið sárt að horfa uppá þau tvö verk eftir íslenska höfunda sem frum- sýnd hafa verið í Þjóðleikhúsinu í haust, verk Odds Björnssonar og Jóns Laxdal. í Iðnó var frumsýnt í vor nýtt íslenskt leik- rit eftir Þórunni Sigurðardóttur unnið upp úr efni Laxdælu. Var þar mikið færst í fang, en því miður var árangur ekki sem erfiði. Nemendaleikhúsið, sem er nú í hvíld, sýndi í vor nýstárlegt leikrit eftir Sigurð Páls- son, Miðjarðarför. Það leikrit gefur von um að einhverra spennandi tíðinda sé að vænta í íslenskri leikritun á næstunni. Starfsemi Stúdentaleikhússins í sumar er ótvírætt það sem mestum tíðindum sætir á síðasta ári í leikhúslífi höfuðborgarsvæðis- ins. Þar var borðið uppá einar sjö sýningar. Þessar sýningar voru auðvitað misjafnar og guldu þess að yfirleitt voru fáir þjálfaðir leik- arar í þeim. Engu að síður voru gerðar mjög margar skemmtilegar tilraunir í uppsetn- ingu og notkun salar Félagsstofnunar stúdenta. Sumar tókust hreint frábærlega eins og t.d. Beckettsýningin undir stjórn Árna Ibsen. Kraftur, leikgleði og áræði til að gera nýja hluti einkenndi sýningar Stúdenta- leikhússins, en þessa alis saknar maður oft sárlega í sýningum atvinnuleikhúsanna. Það er alltaf hæpið að fara að spá, sérstak- lega um framtíðina eins og þar stendur, en það er fátt sem bendir til að breytingar séu í aðsigi. Iðnó er að endurtaka leikárið 1962—3 með Hart í bak og Gísl, ágæt leikrit og bæði vafalaust þokkalega unnin, tryggja jafna og þétta aðsókn, gott fyrir kassann en það er ærið vafasamt að hafa hann að list- rænu leiðarljósi til lengdar. Sýningar Þjóð- leikhússins í haust gefa ekki tilefni til bjart- sýni um framtíðina. Það er ekki að sjá að þar ráði enn sem komið er nein sérstök listræn stefna ferðinni, ekki einusinni kassastefnan. Þetta sem hér að framan er sagt hljómar sjálfsagt sem algjört svartsýnisraus og kann vel að vera að ég ofmeti hina neikvæðu þætti. Enginn yrði samt glaðari en ég ef spá mín reyndist röng og það er reyndar ósk min og von að svo verði. Kannski að það birti eitthvað yfir leikhúslífinu með hækkandi sól. KVIKMYNDAÁRIÐ '83 Veronika Voss og Húsiö myndir tíöindalítils árs Kvikmyndaárið 1983 einkenndist í stuttu máli ekki af neinu sérstöku. Vér kvikmynda- áhugamenn fengum okkar heðbundna skammt af erlendum og innlendum kvik- myndum — -í kvikmyndahúsum og á sjón- varpsskjám. En þróunin sem hófst fyrir nokkrum árum heldur áfram. Áhorfendum kvikmyndahús- anna fækkar en kvikmyndunum fjölgar. Hið síðara er reyndar bein afleiðing af hinu fyrra, og öfugt ef út í það er farið. Með til- komu vídeós, og ef til vill af fleiri ástæðum, tók áhorfendum að kvikmyndum að fækka fyrir fáeinum árum. Um svipað leyti fjölgaði kvikmyndasölum höfuðborgarsvæðisins nokkuð vegna byggingar Regnbogans. Síð- an fylgdi Bíóhöllin í kjölfarið, og Stjörnubíó, auk þess sem það fór mjög í vöxt hjá einstök- um kvikmyndahúsum að sýna fleiri en eina mynd á dag — eina kl. 5, aðra klukkan 7 og e.t.v. þá þriðjii kl. 9. Þannig mættu kvik- myndahúsin fækkuninni að nokkru leyti með því að „mjólka" myndirnar betur en áður var hægt. Samt hefur fjöldi kvikmynd- anna aukist verulega. Þannig getur kvik- myndaáhugamaður nú valið um 22-25 myndir daglega í Reykjavík. Þetta eru ekki afleit tíðindi fyrir kvik- myndaáhugafólk; aukið úrval er ekki af hinu illa. En öðrum þræði er þetta engin sérstök gleðifrétt. Fjölgun myndanna felst ekki í auknu streymi evrópskra gæðamynda, sem hér sjást ekki nema á tyllidögum, heldur einkum og sér í lagi í magni bandarískra hasarmynda og hasar/grínmynda sem gjarnan heita Big Brawl, Junkman, Fist Fightin’eða Hard Stuff. Þetta veldur því að þegar rennt er yfir kvikmyndaauglýsingar síðasta árs er meðalmennskan allsráðandi. Hér er boðið uppá þrjár slakar kvikmyndir fyrir hverja eina sem telst vera þekkt og vönduð. Þetta með evrópsku kvikmyndirnar er auðvitað gömul tugga, og ég á ekki von á breytingum nú fremur en endranær. Þeir sem reka kvikmyndahúsin eru flestir þokka- lega fróðir um kvikmyndir og vita vel að í Veronika Voss — makalaust vel gert verk Evrópu eru gerðar ágætar kvikmyndir, og betri en sumar þær afleitu hasarmyndir frá Bandaríkjunum sem þeir sýna. Það hljóta því að vera peningaástæður sem ráða valinu — þær bandarísku eru ódýrari í innkaupum og fleiri vilja horfa á þær. Og við því er ekkert að segja í stöðunni annað en andskot- ans. Þótt kvikmyndum í kvikmyndahúsunum hafi fjölgað á árinu voru það smámunir hjá þeirri grósku sem virtist vera á vídeóleigun- um. Nú er hægt að labba inn á þær velflestar í nokkurri vissu um að finna góða mynd og myndir innanum. Þótt bandarískar hasar- myndir séu þar í miklum meirihluta er nú, öfugt við það sem var í ársbyrjun, kominn fjöldi þokkalegra kvikmynda á vídeóleig- urnar og margar þeirra nýlegar. Margar frambærilegar og nokkrar góðar kvikmyndir voru sýndar í kvikmyndahúsun- um á árinu. Ég nefni nokkrar þær helstu: ET, Four Friends, Diva, The Wall, Einfaldi morðinginn, Missing, Tootsie, Stunt Man, Rocky 3, Gandhi, Reds, Poltergeist, Andra Dansen, Black Stallion, Blade Runner, Veronika Voss, Sophie’s Choice, Return of the Jedi, Octopussy. Þá voru fjórar íslenskar kvikmyndir frumsýndar á árinu: Húsið, Á hjara veraldar, Nýtt líf og Skilaboð til Söndru. Það hefur tíðkast í þessum pistlum að velja mynd ársins, innlenda og erlenda, meira til gamans en hitt. Það er einfaldara þetta árið en oftast áður því aðeins ein mynd fékk hæstu einkunn gagnrýnenda Helgarpósts- ins, fjórar stjörnur, á árinu: Hin margbrotna og makalaust vel gerða kvikmynd Fassbin- ders, Veronika Voss. Við skulum kalla hana mynd ársins ásamt annarri gjörólíkri, Gandhi, sem var sjaldgæft fyrirbæri — gífur- leg stórmynd þar sem nostrað var við smáu atriðin. Svo skulum við kalla Húsið innlenda mynd ársins, einkum vegna þess að þar sýndu ís- lenskir kvikmyndagerðarmenn að þeir geta staðið jafnfætis eða framar erlendum kolleg- um sínum í tæknilegu hliðinni, sem jafnan er veikasti hlekkur íslenskra kvikmynda. HELGARPÓSTURINN 17

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.