Helgarpósturinn - 12.01.1984, Side 18
MYNDLISTARÁRIÐ '83
Samskiptin Holland — ísland
Hvað getur maður sagt um kollegana þeg-
ar maður lítur til baka til ársins 1983? Þá
lendir maður í þeim ósköpum að verða kjaft
stopp. Og maður hugsar sem svo að það séu
margar viðkvæmar sálir sem tækju það
óstinnt upp ef maður segði það sem manni
býr í brjósti. Þar af leiðandi tek ég þann pól
í hæðina að segja helst ekki neitt og vera
eins ópersónulegur og ég get.
Arið 1983 hefur, eins og öll önnur ár, verið
því marki brennt að vera ár sýningaflóðs.
Árið byrjaði þó nokkuð vel með sýningu
tveggja góðra listamanna í Nýlistasafninu 8.
janúar, Jörgen Bruun Hansen múrara og
Dagmar Rhodius og þetta virtist lofa góðu.
Á sama tíma var opnaður á Kjarvalstöð-
um stóri textíltríenallinn (vefnaðarsýning)
sem kannski verður sá síðasti ef marka má
blaðaskrif.
í byrjun febrúar var opnuð mjög athyglis-
verð sýning að Hringbraut 119 sem kallaðist
Gullströndin andar og setti af stað „víbra-
sjónir“ hjá mörgum þeim sem hugsað höfðu
sér lífið átakalaust. Viku seinna var opnuð á
Kjarvalsstöðum sýning sem undirstrikaði
þessar víbrasjónir og kölluð var Ungir
myndlistamenn og síðar UM. Juku sýningar
þessar gildi hvor annarrar.
Hér tekur við Magnús Kjartansson í List-
munahúsinu, snoðrakaður með vindil í kjaft-
inum og sýnir myndir unnar með tækni ljós-
næmi og hans eigin sálar, og tekst nokkuð
vel. f mars er sýning á Kjarvalsstöðum
kennd við kirkju og væntanlega trúarbrögð
en ég á von á að hún hafi farið framhjá stór-
um hluta starfandi myndlistarmanna vegna
þunglamalegs skipulags, því miður. Bar hún
þess merki að vera það sem kallað er yfir-
skipulögð og gleyma því að það er kúnstner-
inn í nútíð og fortíð sem skiptir máli.
I mars sýna sjö nýlistamenn svokallaðir í
Listmunahúsinu. Má ætla það beint fram-
hald af Gullströndinni og UM?
Upp úr miðjum apríl opnar gamall súmari
á Kjarvalsstöðum og er það Vilhjálmur
Bergsson og sýnir þar viddir sem honum ein-
um er lagið.
í maí er Brynhildur Þorgeirsd. með sterka
sýningu á Nyló og sýnir þar skúlptúr unninn
í gler og steinsteypu.
Sumarið var fremur rólegt en í byrjun
september er Hagsmunafélag myndlista-
manna með stóra samsýningu á Kjarvals-
stöðum — nokkuð misjöfn sýning en þó
margir góðir sprettir.
Þegar líða tekur á haustið og fólk búið að
jafna sig eftir sumarfríið opnar Ragnar
Kjartansson í Listmunahúsinu sýningu á
keramikskúiptúr og lágmyndum, stórgóða
og skemmtilega og var þetta fyrsta einka-
Frá sýningu
Hollendinganna I
Nýlistasafninu —•
sýningaskiptin risu
hæst á árinu.
eftir Ólaf Lárusson
sýning kappans í mörg ár; svo sannarlega
tími til kominn.
Listasafn íslands heldur stóra yfirlitssýn-
ingu á hinum frábæra myndlistamanni og
myndlista-pedagog Herði Ágústssyni. Því
miður vantaði margt inn í sýninguna til að
gera hana eins góða og efni standa til, t.d.
hlut Harðar í útlitshönnun og þátt hans í
Birtingi.
Nú eru ótaldar þær tvær mikilvægustu á
árinu; er það annarsvegar samsýning
Hollendinga hér og íslendinga í Fodorsafn-
inu í Amsterdam. Eg held að öðru ólöstuðu
séu sýningaskipti þessara þjóða það sem
hæst rís árið 1983. Og vonandi verður fram-
hald þar á í framtíðinni.
Myndlist á íslandi hefur undanfarið orðið
fyrir dóminerandi áhrifum frá Evrópu og þá
helst Þýskalandi, þar sem expressjónismi
virðist vera einhverskonar einkenni, en á
hinn bóginn fara ítalir hina ljóðrænu leið;
hvorttveggja virðist henta okkur vel og ekki
er að sjá annað en að útkoman af þeirri
blöndu hafi orðið þokkaleg. Mörgum finnst
þetta kannski skrítið og fulldjúpt í árinni tek-
ið að bera okkur, þessa sjálfstæðu söguþjóð,
saman við eitthvað sem á sér stað úti í heimi,
en nú er stællinn sá að sért þú góður kúnstn-
er þá áttu ekkert eitt föðurland: þú ert
international.
POPPÁRIÐ '83
eftir Gunnlaug Sigfússon
Það þykir jafnan hæfa í lok hvers árs að
gera upp alla mögulega og ómögulega hluti.
Gagnrýnendur hafa þá gjarnan sett upp ein-
hverslags lista yfir það besta sem að þeim
hefur snúið, hverjum og einum. Hér á eftir er
úttekt mín á þeim tíu plötum sem mér þóttu
hvað merkastar á því ári sem nú er nýliðið.
Listi sem þessi er nú kannski meira til gam-
ans gerður, heldur en að það eigi að taka
hann of hátíðlega.
1. The Undertones — The Sin Of Pride
Það var nokkuð áberandi með árið 1983
að hljómsveitir voru að gefa út góðar plötur
en hættu svo skömmu eftir útkomu þeirra.
Þannig var þessu farið með Fun Boy Three,
Soft Cell, Yazoo og Undertones. Plata þeirra
síðastnefndu, The Sin Of Pride, var að mínu
mati það langbesta sem þessir norður-írsku
strákar sendu nokkru sinni frá sér. Á henni
er að finna popptónlist í hæsta gæðaflokki.
Áhrifin eru víða að, en þó eru áhrif soul tón-
listar sjöunda áratugarins einna mest áber-
andi, og svipaðra áhrifa gætti einnig á mörg-
um öðrum góðum plötum sem út komu á ár-
inu. Það er mér með öllu óskiljanlegt að The
Sin Of Pride skyldi ekki seljast betur en hún
gerði og það er almennt álitið að dræm sala
á henni hafi átt stóran þátt í þvi að hljóm-
sveitin hætti. Það var leitt að svo fór því þeir
höfðu lagt sig alla fram við að gera góða
plötu og tekist það.
2. Elvis Costello — Punch The Clock
Það hafa fáir eða engir sent frá sér jafn
margar góðar plötur og Elvis Costello hefur
gert á síðustu sex árum og á nýliðnu ári bætt-
ist enn einn góður gripur í safnið, sem er
platan Punch The Clock. Costello hefur nær
allt til að bera. Hann er góður lagasmiður,
textahöfundur og söngvari. Hann hefur
góða yfirsýn yfir hvað hefur verið að gerast
í poppheiminum undanfarna áratugi og hef-
ur haft lag á að notfæra sér þá þekkingu í
tónlistarflutningi sínum. Á Punch The Clock
eru áhrif gamallar soul tónlistar áberandi en
þó ekki meir en svo að Costello glatar ekki
sínum sérkennum.
3. Tom Waits-Swordfishtrombones
Tom Waits er annað nafn sem kemur upp
í hugann ef ég ætti að nefna einhverja sem
ekki hafa sent frá sér annað en góðar plötur
hingað til. Swordfishtrombones er plata sem
Asylum hljómplötufyrirtækið, sem gefið hef-
ur út Tom Waits fram að þessu, neitaði að
gefa út. Þess vegna hefur hann nú fært sig
yfir á annað merki. Hvers vegna Asylum
neitaði útgáfu get ég engan veginn skilið, því
þessi plata er ein sú besta sem Waits hefur
sent frá sér fram að þessu. Hún er nú ekkert
sérlega aðlaðandi í fyrstu en venst óhemju-
vel.
Waits semur sérlega ljúfar laglínur en þær
eru oft faldar undir hrjúfu yfirborðinu. Text-
ar hans eru góðir og söngurinn einstakur.
4. Soft Cell — The Art Of Falling Apart
The Art Of Falling Apart var ein af fyrstu
plötum ársins 1983 og raunin varð sú að það
sem eftir lifði árs komu ekki út margar betri.
Tónlist þeirra flokkast víst undir tölvupopp,
en tónlist þeirra er þó öllu þyngri en flestra
slíkra sveita sem trónað hafa á vinsældalist-
um.
Soft Cell var eitt af þessum ágætu nöfnum
sem ég minntist á hér að framan, sem hættu
starfsemi á árinu. Þetta var dúett og var það
Dave Bell, sem sá um nær allan hljóðfæra-
leik og hefur hann góð tök á þessum ýmsu
hljóðgervlum. Söngvarinn var Marc Almond
sem um margt er sérstæður náungi og ágæt-
ur söngvari.
5. Miles Davis — Star People
Það voru áreiðanlega margir búnir að af-
skrifa Miles Davis. Gamli maðurinn lætur þó
ekki að sér hæða, því platan Star People er
sú besta sem hann hefur sent frá sér í árarað-
ir. Bestu lögin á henni lt Gets Better og Star
People eru mjög blúskennd. Miles fer sjálfur
víða á kostum á plötunni en stjarna hennar
er þó, að öðrum ólöstuðum, gítarleikarinn
John Scofield.
Með Star People kom Miles Davis sér aftur
í fremstu röð — á því er enginn vafi.
I
6. The The — Soul Mining
The The er nafn á hljómsveit, sem er eigin-
lega engin hljómsveit lengur. Þetta er eigin-
lega bara náungi sem heitir Matt Johnson og
hvort sem það verður undir því nafni eða
nafni The The, þá er ég viss um að hann er
maðúr sem á eftir að gera góða hluti í fram-
tíðinni.
Soul Mining er plata sem kom mér sérlega
á óvart. Áhrifin i tónlistinni eru víða komin
að og eiginlega má segja að helsti galli henn-
ar sé að það er nánast vaðið úr einu í annað
og heildarútkoman verður því frekar sund-
urleit. En þarna skýtur sem sagt upp mörg-
um hugmyndum og það flestum góðum.
7. Depeche Mode — Construction Time
Again
Ég var nú satt að segja búinn að afskrifa
Depehce Mode eftir plötuna A Broken
Frame. Það kom mér því mjög á óvart þegar
ég heyrði Construction Time Again, hversu
góð hún var.
Depeche Mode flytur tölvupopp og er tón-
list þeirra mun léttari en t.d. Soft Cell. Const-
ruction Time Again er með öðrum orðum
létt og góð poppplata en textarnir innihalda
flestir hverjir pólitískan boðskap.
8. Stevie Ray Vaughan — Texas Flood
Stevie Ray Waughan náði alþjóðaathygli í
vor sem leið, fyrir gítarleik sinn á plötu
Davids Bowie, Let’s Dance.
Hann gaf svo sjálfur út plötu í haust og
segja má að sú tónlist sem hann þar flytur, sé
ekki í neinu sambandi við annað sem er að
gerast í rokkinu í dag. Texas Flood er nefni-
lega besta blúsplata sem ég hef heyrt lengi.
Vaughan hefur ágæta blúsrödd og gítarleik-
ari er hann mjög góður. Ef ætti að líkja hon-
um við einhvern, þá væri nóg að benda á að
hann hefur greinilega einhverntíma hlustað
á Jimi Hendrix.
9. Richard Thompson — Hand Of
Kindness
Richard Thompson er einn af bestu gítar-
leikurum undangenginna fimmtán ára, eða
svo, en hann hefur þó aldrei verið settur á
stall með öðrum gítarhetjum. Á undanförn-
um árum hefur hann einkum komið við sögu
á plötum með Lindu fyrrverandi eiginkonu
sinni. Hann hefur einnig leikið töluvert sem
session maður og komið víða við sögu sem
slíkur.
Richard og Linda eru nú sem sé skilin og
er Hand Of Kindness hans fyrsta sólóplata
eftir skilnaðinn. Thompson svíkur ekki frek-
ar en fyrri daginn, en auk gítarspilsins gefur
að heyra frískan harmónikku- og saxófón-
leik. Raunar er hljóðfæraleikurinn allur pott-
þéttur en þar koma aðallega við sögu gamlir
jálkar, sem flestir hafa mest haldið sig við að
spila folk-rokk.
10. The Jam-Snap
Ég veit að það er vafasamt að vera að setja
samsafnsplötu sem þessa á lista yfir bestu
plötur ársins. Ég tala nú ekki um þar sem
hljómsveitin var hætt þegar árið byrjaði.
En hún er höfð hér með vegna þess að hún
er að mínu mati lang besta samsafnsplata
ársins, auk þess að vera veglegur minnis-
varði um einhverja merkustu hljómsveit
Breta á árunum 1977-1982. Af innlendum
plötum tel ég að plötu Baraflokksins, Gas,
beri hæst. Hún stendur jafnfætis því besta af
erlendri framleiðslu ársins.
18 HELGARPÓSTURINN