Helgarpósturinn - 16.02.1984, Blaðsíða 3
Islenskar brúður sló í gegn erlendis
■Í^Norska stórblaðiö Aften-
posten birti nýverið mikla og
langa grein um Leikbrúðu-
land undir fyrirsögninni
„Saga um vilja og elju“. í
greininni er ferili brúðuleik-
hússins rakinn og sagt frá
starfsemi þess. Inn í greinina
er fléttað viðtali við Helgu
Steffensen sem er ein að-
standenda Leikbrúðulands.
Helga segir við HP að það
gleðji sig þegar erlend
pressa sýni Leikbrúöulandi
áhuga en brúðuleikhúsið hef-
ur sýnt utan landsteinanna,
m.a. verið i Finnlandi og
Noregi og áætlar reyndar
ferð þangað I sumar. Af Leik-
brúðulandi er það annars
markvert að frétta að auk
sýninga þess á sunnudögum
í Iðnó (sem ávallt er uppselt
á) ráðgerir Sjónvarpið upptök-
ur innan skamms á verkum
leikhússins. „Þá hafa allar
sjóvarpsstöðvarnar á Norður-
löndum keypt sýningar okkar
á þremur íslenskum þjóðsög-
um, sem íslenska Sjónvarpið
tók upp fyrir ári, og sýndar
voru í Stundinni okkar á sín-
um tíma,“ segir Helga Steff-
ensen.
ÞAKRENNUR
úr plasti eöa stáli?
Ekkert mun verða af næstu
Stjörnumessu DV. Þessar
„snobbhátíðir smáborgar-
anna“ eins og þær hafa
stundum verið kallaðar, hafa
verið haldnar árlega frá 1978
við misjafnar undirtektir. Lið-
tækustu poppurunum hefur
verið stefnt til þessa mann-
fagnaðar hverju sinni og þeir
látnir flytja það sem valiö
hefur verið „besta dægur-
músikin frá árinu á undan.
Fyrirlitning framsæknustu
rokkaranna á þessari messu
hefur verið með ýmsum
hætti, annaðhvort hafa þeir
hundsað vinsældavalið al-
gjörlega og ekki mætt, eða
gert sér leik að flottræfils-
hætti gestanna með því að
ausa svívirðingum yfir þá, en
menn minnast orða Bubba
Morthens frá síðustu Stjörnu-
messu í því sambandi. Þegar
hæst hefur látið hafa rokkar-
arnir stofnað til sinna eigin
tónleika og nefnt þá „Tjöru-
klessu", þar sem óspart
hefur verið gert gys að sýnd-
armennsku smáborgaranna.
DV-veldinu mun nú þykja
nóg komið af þessari niður-
lægingu og hefur því afráðið
að halda ekki fleiri pnessur
l bráð,svo sem fyrr segir...
★
Plátisol er lausnin
Plátisol þakrennur, niðurföll og tilheyrandi er
framleitt úr 0,7 mm þykku galv. stáli sem er húðað
með PVC efni f lit. • Með þessari aðferð hefur
rennan styrk stálsins og áferð plastsins. • Efniö
er einfalt í uppsetningu. • Við seljum það og þú
setur þaö upp án þess aö nota lím eöa þéttiefni.
• Hagstætt verö.
Kaupið þakefnið hjá fagmanninum
| W) Lindab Plátisol
Þakrennukerfi framtíðarinnar
Heildsala — smásala.
BREIÐFJÖRÐS
BLIKKSMIÐJA HF
Leitió nánari upplýsinga
aó Sigtúni 7 S/mi.*29022
-^Meira um DV-veldið. Hægri-
lögfræðingurinn Haraldur
Blöndal hefur um nokkurra
missera skeið verið í hópi
fastráðinna kjallarahöfunda
DV og hafa meiningar hans
birst hvern föstudag við
hlið leiðarans í blaðinu. En
ekki meir. Lögfræðingurinn
lenti nefnilega í rimmu við
ritstjóra blaðsins út af viðtali
sem þeir birtu við fyrrum
eiturlyfjasala en sá gaf í skyn
að til væru þingmenn sem
neyttu hass. Síðan hefur
Haraldurekki fengið inni í
leiðaraopnunni. Þetta minnir
óneitanlega á brottför Indriða
Svarthöföa Þorsteinssonar
af blaðinu, en honum sinnaö-
ist einmitt við ritstjórana.
Þar með var hann látinn víkja.
en hvort það var „af frjálsum
og óháðum vilja" vitum við
ekki ■ • •
Við^
iW
Áttirðu
Þetta er nú þvílík endaleysa hjá Þjóðviljanum að
maðureralveg steinhissa. ígærvarég að reynaað rifja
þettaupp, en það ernú orðið býsnalangt um liðið. Þjóð-
viljinn segir að við höfum reist hús á Keflavíkurflugvelli
fyrir meira en þrjátíu árum og rekið þar fsbúð. Þetta
stenstekki. Það varfyrirtæki sem hét Biðskýli sf.og rak
á þessum árum nokkur biðskýli á höfuðborgarsvæð-
inu, sem setti líka upp þetta biðskýli á Keflavíkurflug-
velli.
— Varst þú einn af eigendum þessa fyrirtækis?
Nei, alls ekki. Það var Þorvarður bróðir minn og mað-
ur sem heitir Gylfi Hinriksson. Hvorki ég né Vilhjálmur
bróðir minn áttum nokkurn hlut í þessu fyrirtæki, hvað
sem Þjóðviljinn segir. Þannig að ég visa þessum dylgj-
um algjörlega á bug.
— Blaðið fullyrdir líka að Aðalverktakar hafi keypt
húseignina af ykkur bræðrum?
Já, af skrifum blaðsins er helst að skilja að þeir hafi
það eftir Thor Ó. Thors, forstjóra íslenskra aöalverk-
taka, að þeir hafi keypt húsið af okkur Vilhjálmi. Ég
hringdi einmitt í Thor i morgun og spurði hann hvernig
á þessu stæði. Hann var mjög undrandi á þessari frétt
og sagði að hann hefði aldrei sagt neitt í þessa veru.
Hins vegar er ég ekkert hissa á því þótt Þjóðviljinn ráð-
ist á mig. Ég hef aldrei haft neitt dálæti á kommunum
og aldrei farið í felur með þá skoðun mína að i þeim
rikisstjórnum sem ég sat i með þeim hafi þeir aldrei
haft dug í sér til að takast á við verðbólguna og efna-
hagsvandann. Þetta held ég nú að sé ástæðan fyrir
þessum skrifum, einhverólund í Þjóðviljanum.
— Þú hefur þá aldrei átt húseignir á Keflavikurflug-
velli?
Nei, það er ekkert hæft í því. Hvorki til leigu né sölu.
Þetta minnir mig reyndar svolítið á grein sem kom fyrir
mörgum árum í annað hvort Þjóöviljanum eða Frjálsri
þjóð þar sem var fullyrt að ég ætti svínabú á Vatns-
leysuströnd. Þetta mun hafa verið á þeim árum þegar
ég starfaði að varnarmálum í utanríkisráðuneytinu. Þá
var það að Þorvaldur í Slld og fiski gerði samning við
varnarliöið um að hirða matarleifar og nota þær sem
svínafóður. Síðan skolaðist þetta eitthvað til og útkom-
an varð sú að ég ætti þetta svínabú á Vatnsleysuströnd.
Ég kann ekki aðra skýringu á þvi en að menn hafi
ruglast á nafni Þorvarðar bróður míns og nafni Þorvald-
ar í Slld og fiski. Þetta er ekki alveg ólíkt.
— Þjóðviljinn stendur á því föstum fótum að þú
hafir rekið ísbúð og leigt bandarískum hermönnum
húsnæði. Bar blaðið þessi tíðindi ekki undir þig?
Nei, það var ekki. Og ég hef heldur ekki haft fyrir því
að svara þessu enn sem komið er. Það er líka svo langt
um liðið að það tekur svolítinn tíma að átta sig á þvi
hvað þeir eru að fara.
— Nú fullyrðir blaðið líka að nokkur hópur ís-
lendinga eigi húseignir á Vellinum. Þykir þér það óeðli-
legt?
Mig grunar að þessar húseignir séu hluti af langri
sögu. Þeaar vamarliðið kom hingað fyrst voru ýmsir (s-
lenskir aðilar með ýmiss konar þjónustustarfsemi á
Vellinum. Það var talið eðlilegt, enda voru Bandarlkja-
menn sjálfir með litla þjónustu á eigin vegum fyrstu
árinT Hún hefur síðan færst i aukana og hlutur ís-
lendinga minnkað að sama skapi. Mig grunar að þessar
eignir séu leifar frá þeim tíma. Annars er ekki mitt að
segja af eða á um þessi mál, það eru orðin meira en
tuttugu ár siðan ég hafði nokkuð af þessum hlutum að
segja.
Tómas Árnason alþingismaður Framsóknarflokksins er eins og all-
ir sennilega vita fyrrum fiórmólaráðherra og viðskiptaráðherra
og núverandi forstjóri Framkvæmdastofnunar. Reykvískt dag-
blað hefur síðustu daga fullyrt að Tómas hafi á árum áður átt hús-
næði á Keflavíkurflugvelli, rekið þar ísbúð, leigt það til hermanna
og síðan selt það íslenskum aðalverktökum.
HELGARPOSTURINN 3