Helgarpósturinn - 16.02.1984, Page 23

Helgarpósturinn - 16.02.1984, Page 23
HRINGBORÐIÐ í dag skrifar Auður Haralds I SVR Við sem eigum rauðan sportbíl með sæti fyrir einn og baksýnis- spegli sem lafir niður nema í mikl- um kulda, þá er hægt að frysta hann uppréttan, og með bjöllu sem urgar svo kurteislega að eng- inn heyrir í henni og brotnu katt- arauga að aftan og vasaljósi að framan og borgum engan þungá- skatt þótt sum okkar séu nokkuð þung, við notum almennings- vagnana lítið. En svo kemur vetur og það fást engin skaflajárn á litla rauða sportbílinn, hann er líka opinn að ofan og ef maður fengi sér yfir- byggingu þá væri örugglega hægt að skattleggja hana á einhvern hátt og það er alveg nógu erfitt að pumpa. Þá notum við stundum al- menningsvagnana. Við hefðum gengið ef Græn- landsjökull hefði ekki haft að- setursskipti og komið sér fyrir á gangstéttunum. En þökk sé þess- um stökkbreytingum i landafræð- inni þá hefur verið vertíð hjá SVR. Mér finnst ævintýralega gaman að fara í strætó. Næstum eins og að fara í flugvél. Ef komið væri upp fríhöfnum'og vegabréfseftir- liti á endastöðvunum væri ferðin fullkomin. Um borð í vagninum rekur hver viðburðurinn annan. I dag þegar ég þurfti að fara þrjár bæjarleiðir eftir kaffipakka af því ég er haldin sérþörfum að því leyti, hófst þessi lukkuferð í Landsbankanum þar sem ég fann tíkall á gólfinu. Þetta var hátt í fargjaldið og ég fann strax að þetta yrði óvenjulega há- tíðleg ferð. Ég kastaði mér um borð og fékk skiptimiða. Ég er kona sem kann að fara með og reyni alltaf að komast heim líka á fargjaldinu. Og síðan rann vagninn af stað og lífs- reynslan hlóðst upp. Fyrst fékk ég armkrikameðferð- ina. Hún er innflutt frá Ítalíu. Mér finnst stórfenglegt að það skuli verahægt að hafa hanaíframmi í þykkum vetrarklæðnaði hér upp við rassinn á heimskautsbaugn- um. En maðurinn sem hélt sér í loftrimina og lagði armkrikann þétt að andlitinu á mér sannaði að allar auglýsingar um svitaúða og þvottaefni og fatahreinsun eru til- gangslausar. Ég yddaði mér fjær og komst undir handarjaðar há- vaxnari manns. Hann var allur á iði, sennilega verið að gá að kennileitum í jökulbungunum fyr- ir utan vagninn, en það var von- laust því strætó brunaði áfram í djúpri rennu og hann hefði bara átt að fá að vera uppi á þakinu úr því hann hélt að hann gæti fengið útsýnisferð fyrir þrettán krónur. I hvert skipti sem hann hélt að eitt- hvað kunnuglegt hefði hrokkið fram hjá, snarsnerist hann og rak olnbogann fast í höfuðið á mér. Þetta endurtók hann hvað eftir annað, án þess að færa þetta í tal við mig, sennilega klæjað á oln- bogann. Ég var að hugsa um aö benda honum á að læra að telja stöðvarnar, þegar dularfulla kon- an sem öðru hverju brosti til mín fékk sæti og ég gat hnikað mér enn aftar.Leyndardómsfull strætó- bros án ávarps flokkast sem þekkir-mig-þekkir-mig-ekki með- ferðin. Það var um þetta leyti sem við tókum krappa beygju og ég vissi að ég átti að fara út á næstu stöð. Þar stökk ég út á glerfjallið sem er oft haft þar sem afturdyr strætós nema við stöðina, og á eftir mér stökk eldri kona. Henni skrikaði fótur af því hún var ekki fjallageit í aðra ættina og slangraði utan í mig sem er á Michelin Radial sól- um og með próf í alpagreinunum eftir langa búsetu hér á landi. Kon- unni varð mikið um að vera svona uppáþrengjandi og ég varð að gera stundarhlé á kaffileiðangr- inum til að fullvissa hana um að fátt veitti mér meiri ánægju en taka fall af eldri konum, mér að skaðlausu. Síðan fór ég eftir kaffipakk- anum og hugsaði um á meðan, að ég hefði þó ekki orðið fyrir herða- blaðsmeðferðinni. Hun er yfirleitt framkvæmd af mögrum konum í poplínkápum sem plægja andlitið á mér upp með hvössu herðablaði sínu. Svo haskaði ég mér á biðstöðina með fjóra kaffipakka og vænan magnsafslátt og tók sama vagn til baka. En valið vandaðist þegar ég veiddi skiptimiðann upp úr skipti- miðahólfi töskunnar. Hann hafði ruglast saman við safnið mitt. Bíl- stjórinn, greinilega vanur mið- aldra rugluðum konum, var mjög ■ hjálplegur og við fundum rétta skiptimiðann. En greiðvikni hans gekk einum of langt, því hann fleygði afganginum af safninu. Ég hafði ætlað að geyma þá þar til á sama tíma að ári. Þótt veran inni í vögnunum sé öfgafull blanda af spennuviðburð- um og drungalegri stemmningu, þá jafnast hún ekki á við dvölina á biðstöðvunum. Við sem sjaldan getum stutt SVR með fjárframlagi í fargjaldsformi, vitum ekki á hvaða mínútu hver vagn á að vera á hverri stöð. Ég hef pata af að flestar leiðar eigi að gera vart við sig á 15 mínútna fresti og ein meira að segja á 12 mínútna fresti. Því geng ég mig streitulaust á næstu stöð og tek mér þar stöðu, æðrulaus í fasi og lund. Og bíð bara. Ég veit að einhvern tíma, alla vega í vor, kemur vagn sem mun soga mig upp og flytja mig á ákvörðunarstað. En þetta jafnaðargeð í garð SVR er ekki útbreitt. Nú vill svo til að lögmálið um mig og almennings- vagnana er yfirleitt þannig að ég sé í bakhluta vagnsins þegar ég nálgast stöðina og síðan líða 23 mínútur þar til næsti vagn með þessu númeri kemur. Ég er löngu sátt við þetta fyrirkomulag, helst að ég finni til með öðrum farþeg- um sem ætluðu með sömu leið. Þessar langdvalir mínar í bið- skýlum gera mig að ómetanlegri upplýsingamiðstöð. Þreyttir og velktir ferðalangar þyrpast inn á stöðina og allir vilja þeir vita hvort vagninn þeirra sé nýfarinn. Mér er löngu ljóst að þorri íslenskra strætófarþega ætlaði að taka vagninn á undan þeim sem þeir náðu. Tilgangsleysi spurninganna er mér endalaus uppspretta umhugs- unar. Aðeins rétt til að byrja með þá standast engar áætlanir ef ögn skvettist úr lofti ( 4000 milli- metrar). Það kemur annar vagn, sennilega. Maður nær ekki vagni sem er farinrí. Svo af hverju spyrja ákaft svo maður megi strax vita hvort maður hefur 7 eða 11 mínút- ur til að ergja sig yfir tapaða vagn- inum? 10 ára KM-hÚSgÖgn 10 ára Vegna 10 ára afmælis okkar bjóðum við 10% afslátt af öllum vörum KM-húsgögn Langholtsvegi 111 — Reykjavík 10 ara símar 37010 — 37144. 10 ára «S/LA» Bremsuklossar abriel Höggdeyfar GSvarahlutir Hamarshöföa 1 símar 83744 — 36510 Um daginn kom kona á jaka- hlaupi inn á biðstöðina og spurði ör: ,,Er vagninn til Kopavogs bú- inn að koma?“ ,,Já, já, hann kom áðan,“ svar- aði ungur maður. ,,Kom hann?“ spurði konan og röddin skar hjarta manns, ,,og fór hann alveg?" Sjálfsstjórn mín bilaði. Ég sneri mér við og sagði: „Já. Hann kom og svo fór hann — ALVEG. Alveg. Hann renndi ekki við, opnaði, laðaði inn nokkra farþega, lokaði til hálfs, fór nokkur skref frá, sneri svo við og snuðraði kringum skýlið, reyndi að þefa uppi fáeina farþega til viðbótar, skutlaði sér svo út á horn og setti í afturábak og kom á fullu aftur á stöðina. Heldur fór hann alveg. En það kemur annar vagn. Alveg þangað til í nótt kemur annar og svo aftur annar." Konunni var brugðið. Aldrei hafði hún fengið svona greinar- góðar upplýsingar um vagninn sem hún hafði misst af. Skömmu síðar, uppveðruð af velgengni minni með konuna úr Kópavoginum, átti ég leið um Laugaveginn. Þar slufsaðist ung þreytuleg kona inn á biðstöð og spurði aðra lúna konu, hvort hún hefði séð leið 3 fara fram hjá? Konan hafði ekki orðið leiðar 3 vör. Það lá við að ég léti Hag- kaupspokana dúndra í götuna og segði: „Leið 3? Jú, hvað eftir annað. Hann er búinn að fara hér niður Laugaveginn, ja, látum oss sjá, hvað er langt síðan nýja leiða- kerfið kom? ætli það séu ekki allt að 10 ár. Og hann f er á 15 minútna fresti virka daga og hálftima fresti um helgar og á kvöldin — það gerir — viltu að ég slái á hvað hann hefur oft farið hér fram hjá?“ En ég hætti við. Og dauðsá eftir því. Svo á heimleiðinni plottaði ég nýtt svar. „Vagninn þinn? Hefurðu týnt honum? Hvernig leit hann út? Var hann í dökkblárri úlpu?“ Ferðamálaráð íslands Ferðamálaráö islands hefur ákveðið að efna til sam- keppni um slagorðerverði rauði þráðurinn í átaki til að vekja athygli Islendinga og erlendra ferðamanna á mikilvægi þess að virða og vernda viðkvæma náttúru landsins. Slagorðin eiga að minna á einfaldan og skýran hátt á þennan megintilgang átaksins. Textinn verður að vera stuttur og hnitmiðaður og auðvelt að snúa honum yfir á önnur tungumál. Samkeppnin stendur til 1. mars nk. og verða veitt þrenn verðlaun: 1. verðlaun eru ferð til Parísar fyrir tvo, hótel og morg- unmatur í viku. 2. verðlaun eru ferð til Amsterdam fyrir tvo, hótel og morgunmatur í viku. 3. verðlaun eru ferð til Akureyrar fyrir tvo, hótei og morgunmatur í viku. Aðrargóðarhugmyndirverðakeyptarfyrir 5.000 kr. hver. Dómnefnd metur hugmyndirnar og áskilur sér eignar- rétt á þeim sem hún verðlaunar og kaupir. Tillögur skal senda undir dulnefni á skrifstofu Ferða- málaráðs íslands, Laugavegi 3, 101 Reykjavík, merktar; „Átak ’84“. Rétt nöfn eiga að fylgja í sérstöku umslagi. Ferðamálaráð íslands. Symfoni og Bucha Barna-, dömu- og herrasokkar Faliegir, ódýrir og vandaðir y>i> ^tainavöt ká HELGARPÖSTURINN 23

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.