Helgarpósturinn - 16.02.1984, Síða 25
A medan
kirkjan
svarar eru
áheitin edlileg
— segir Anna Arnadóttir sem hefur heitiö
á Strandarkirkju undanfarin ár meö mjög
góðum árangri
Anna Arnadóttir er sjötug sjómannsfrú
í Breidholtinu. Hún er ein þeirra fjöl-
mörgu fslendinga sem heitid hafa á
Strandarkirkju á undanlidnum árum, en
jafnframt ein af fáum úr þeim hópi sem
hafa þor til ad tala um þaö. Áheit fólks á
Strandarkirkju eru nefnilega í flestum til-
vikum feimnismál og margir þeir sem HP
leitaöi til um þaö efni voru ófáanlegir til
ad tjá sig um ástcedu þess að þeir hafa
beðið til kirkjunnar á Strönd. En Anna
segir:
,,Ef ég man rétt þá hef ég heitiö á
Strandarkirkju svona fimm sinnum. Ég
byrjaði á þessu fyrir um þaö bil tíu ár-
um.“
Hún segist aldrei hafa heitið á kirkjuna
nema eitthvað mikið hafi legið við.
„Til dæmis þegar maðurinn minn hef-
ur verið mikið veikur, eða einhverjir
erfiðleikar hafa steðjað að börnunum
mínum eða barnabörnum."
— En hefur Strandarkirkja svarað á-
heitunum?
,,Já, alltaf að bragði, nema einu sinni.
En þá var líklega um of stóra bón að
ræða." Um þá bón vill Anna ekki ræða
frekar.
Svo segir hún mér tvœr áheitasögur úr
lífi sínu.
„Ég man að einu sinni var eitt af barna-
börnunum mínum statt á Filippseyjum.
Það skrifaði okkur hjónunum alltaf reglu-
lega á viku fresti og tjáði okkur hvað
hefði á dagana drifið og einnig kom fyrir
að það hringdi. Svo var það þegar hún,
en þetta var stelpa, hafði lokið þessu
ferðalagi sínu og var á leiðinni heim með
flugi að ekkert heyrðist til hennar í fáeina
daga. Við urðum að vonum gripin nokk-
urri hræðslu þar sem hún hafði látið vita
af sér reglulega fram til þessa. Þegar
fimm óþægilegir dagar í bið voru liðnir,
var mér ekki orðið um sel, þannig að ég
ákvað að heita á Strandarkirkju, að ég
held tvöhundruð krónum, í von um að
stelpan léti okkur vita af ferðum sínum.
Og það stóð ekki á svari. Hún hringdi til
okkar, og hvort sem þú trúir því eða
ekki, þá gall hringingin við aðeins tæp-
um klukkutíma eftir að ég hafði heitið á
kirkjuna. Hún sagði mér í símann að hún
væri komin til London þar sem hún biði
eftir flugi heim, en tjáði mér jafnframt að
hún hefði sent okkur símskeyti fyrir
nokkrum dögum. Við nánari athugun
kom í ljós að það hafði misfarist. En
Strandarkirkja kippti því sem sagt í lið-
inn.“
— Og hin áheitasagan?
„Já, hún er á þá leið að einu sinni fyrir
mörgum árum vorum við í sauma-
klúbbnum úti að skemmta okkur. Þetta
var mikið ball og fjörið geislaði af öllum
viðstöddum. Við sátum fjórar við borð
þegar nokkuð var liðið á dansleikinn og
vorum þrjár aö gantast við þá fjórðu um
að enginn hefði nú boðið henni upp enn
sem komið væri. í þann mund gekk þessi
líka laglegi karlmaður yfir dansgólfið, ég
man að hann var mjög sætur og við litum
allar bónaraugum á hann. Þá segir konan
sem við vorum að gantast með, að nú
heiti hún fimm kalli á Strandarkirkju ef
þessi maður komi nú til sín og bjóði sér
upp. Og hún hafði varla sleppt orðinu,
þegar þessi lagiegi karlmaður snerist á
hæli á ferð sinni yfir dansgólfið, gekk
rakleiðis til hennar, hneigði sig djúpt og
bauð henni arminni. Við hlógum allar, en
þó sýnu minnst sú fjórða, þvi hún var svo
hvumsa yfir því hvað Strandarkirkja
svaraði skjótt fyrir sig.“
— Er hér ekki bara um hreinar tilvilj-
anir að rœða?
„Ekki finnst mér það. Báðar sögurnar
eru svo ótrúlegar að þær eru hafnar yfir
allt tilviljanatal. Þarna er einhver óút-
skýranlegur kraftur að baki. . .“
— Þér finnsl ekkert vafasamt að heita
svona á kirkjuna á Strönd, er það ekki
talsvert hjátrúarkennt?
„Það má svo sem vel vera, en þetta
virkar alltént. Það er mín reynsla. Og
meðan kirkjan svarar mér með þeim
hætti sem hún hefur gert finnst mér í
fyllsta máta eðlilegt að halda áheitunum
áfram.
Annars er ég leiðinlega lítið trúuð, get
ég sagt þér. Ég get að minnsta kosti ekki
ímyndað mér guð sitjandi uppi í himni í
einhverju hásæti eins og mér sýnist megi
túlka af lestri Biblíunnar. En hvað áheit-
unum áhrærir; ef til vill má kalla þetta
einhvers konar leit, og það leit sem jafn-
an virðist bera árangur. Þegar mann
grípur ótti leitar maður til hins óþekkta."
— Hve háum upphœðum hefurðu heit-
ið á kirkjuna hverju sinni?
„Það hefur yfirleitt verið smáræði,
aldrei mikið. Ég held að upphæðin skipti
ekki öllu máli. . .“
— Hvað skiptir þá mestu máli?
„Góður hugur til sjálfrar kirkjunnar
mundi ég segja. Veistu, ég hef nokkrum
sinnum heimsótt Strandarkirkju og það
hafa verið dásamlegar ferðir. Mér finnst
kirkjan eiga svolítið í mér fyrir allt það
sem hún hefur gert fyrir mig.“
— Hvaða kraftar heldurðu að búi í
kirkjunni?
„Eg get ekki almennilega gert mér
grein fyrir því, en þetta eru að minnsta
kosti góðir kraftar. Sagan á bak við kirkj-
una er svo falleg. Hana byggðu skip-
brotsmenn á þeim stað þar sem engill
hafði bjargað þeim úr hafsnauð. Og það
er þessi engill, já, ég held einmitt engill-
inn, sem bjargar enn . ..“
Heiöni okkar
er
ennþá
talsverö
— segir séra Sigurður Guðmundsson
vígslubiskup í Hólastifti um áheit fólks á
Strandarkirkju
Aheitm á Strandakirkju fatla undir
hlutadýrkun, ef strangt er tekið á kenn-
ingum Marteins Lúters. Þessi þýski
munkur, sem evangelísk-lútersk trú er
sprottin af, fordœmdi með öllu hverskon-
ar milliliði í trúariðkan manna, hann
taldi þá ekki vera guði samboðna. Nú er
svo að um aldir hefur Strandarkirkja
verið dýrkuð af Islendingum sem ein-
hverskonar verndarkraftur og hefur þá
engu skipt hvort hér hefur ríkt heiðni,
kaþólska eða lútherstrú. Alltaf hefur
kirkjan á Strönd verið milliliður manna
og guðs. Þessi þversögn íslenskrar þjóð-
trúar hlýtur að vera prestlœrðum mönn-
um talsvert umhugsunarefni. HP leitaði
þvi til eins af lœrimeisturum lúterskrar
trúar á Islandi, séra Sigurðar Guðmunds-
sonar vígslubiskups í Holastifti. Hann var
fyrst spurður að því hvað hann héldi
liggja að baki áheitum Islendinga á
Strandarkirkju.
„Það er ákaflega erfitt að alhæfa nokk-
uð um þetta efni. Þó virðist mér sem al-
menningur sé ennþá mjög blindaður af
helgisögninni sem verið hefur um þessa
kirkju. Það skírskotar mjög til sérstöðu
hennar í sögulegu tilliti.
Ég er þeirrar skoðunar að áheitin stafi
fyrst og fremst af hjátrúnni sem er ís-
lendingum mjög rík í hjarta. Fólk vill
halda i þá þjóðtrú sína að þessi kirkja búi
yfir einhverjum guðlegum krafti, ein-
hverjum mætti sem lætur gott af sér
leiða.
Vissulega er þetta ekkert annað en
angi af hlutadýrkun. Fólk virðist hafa
sjálfa kirkjubygginguna í huga þegar á-
heitin eru annarsvegar. Ég hef oftar en
ekki reynt að fá fólk úr mínum sóknum
til að láta af þessari dýrkun. Mér finnst
eðlilegra að það styrki sínar eigin kirkjur
og láti þessa áheitspeninga renna til
þeirra. Fyrst fólk er að þessu á annað
borð finnst mér eðlilegra að fjármunirnir
haldist innan sókna hvers og eins. . . “
— En ertu ekki með þeim hœtti að
halda hlutadýrkuninni til streitu. Áheitin
fœrast þannig aðeins milli kirkna?
„Nei, mér finnst tvennt ólíkt að fólk
styðji við eigin kirkju en að það sendi
peninga til annars guðshúss sem er því
alls óviðkomandi."
— Heitir það ekki friðþœging sálarinn-
ar þegar fólk eys peningum í musteri
guðs síns, samanber aflátsbréf páfanna í
Róm sem Marteinn barðist svo hatramm-
lega á móti?
„I þessi sambandi verðum við að hafa
í huga að kirkjubyggingar njóta engra
styrkja frá hinu opinbera, hvorki ríki né
bæ. Það fyrirkomulag hefur verið ríkj-
andi um áratugaskeið að sóknarbörn
reisi sínar krikjur fyrir frjáls fjárframlög."
— Hinn almenni kirkjusjóður er að
nœr öllu leyti til kominn vegna álieita
fólks á Strandarkirkju. Þetta hlutadýrk-
unarfé er síðan notað til að lána öllum
kirkjubyggingum í landinu. Er ekkert
erfitt fyrir presta landsins að kyngja því
að guðshús þeirra séu að mestum Iduta
byggð upp í skjóli dýrkunar nokkurra
einstaklinga á fasteign suður með sjó?
„Ég held nú að flestir þeir sem heita á
Strandarkirkju séu að því til að láta eitt-
hvað gott af sér leiða. Ég býst ekki við
öðru en fólk sé mjög þakkátt fyrir það að
peningum þess sé variö til uppbyggingar
allra kirkna í landinu."
— Þannig að þið prestar réttlætið
þessa hlutadýrkun með því einu að segja
að hún sé iðkuö í góðri trú?
„Við getum vel sagt það. Fólk er að
biðja til máttar guðs með þessum áheit-
um sínum og ég get ekki ímyndaö mér
annað en það sé góö trú sem þar liggi á
bak við..
— En þarna erum við komnir að þeirri
staðreynd að Strandarkirkja er milliliður
manna og guðs. Og Marteinn fyrirleit
alla. milliliði, hvorl lieldur þeir hétu
dýrlingar, kirkjumunir, eða heilu guðs-
húsin. Þessi áheit hljóta því að vera and-
stœö trúarvitund lúteskra presta?
„Aheitin eru náttúrlega ekki kenning-
um Lúters að skapi, strangt til tekiö. En
þá skulum við spyrja okkur hvað liggi að
baki þessum áheitum? Þetta mun vera
vani hjá sumum og ekki önnur hugsun á
bak við áheitin hjá þeim en þetta stafi aí
fagurri þjóðtrú. Aðrir eru beinlínis að
leita máttar guðs með þessum áheitum,
og já, nota þá þennan millilið. En erum
við ekki öll einmitt að leita máttar guðs,
notum aðeins misjafnar leiðir til þess. Ég
get vel haldið því fram að þeir sem leita
krafts guðs í Strandarkirkju séu þeir sem
séu orðnir óþolinmóðir eftir einhverju á-
þreifanlegu í sinni guðstrú, vilji verða
vitni að kraftaverkinu."
— 409 þúsund krónur komu inn af á-
heitsfé til Strandarkirkju á síðasta ári.
Þetta voru smáir skammtar og því má í-
mynda sér að margir hafi heitið á kirkj-
una í fyrra. Er þetta ekki einfaldlega til
marks um heiðni landans, er hann bara
ekki ennþá ginnkeyptur fyrir slokka og
steina-leiðinni?
„Ég get vel játað það hér, að við þjón-
andi prestar í landinu erum sífellt að reka
okkur á stokkatrú fólks. Það er furðu-
mikið til af henni ennþá. Ef við getum
kallað áheitin á Strandarkirkju ávinning
aí heiðni, já þá ríkir hún töluvert í
Islendingum enn þann dag í dag."
klerks, sem átti einn og óstuddur
að sjá um viðhald hennar, eins og
tíðkaðist á öðrum kirkjujörðum
biskupsembættisins.
Um þetta leyti vígðist ungur
prestur til Selvogssóknar. Þar sem
hann var nú orðinn fjárhaldsmað-
ur kirkjunnar, ætlaði hann að
flytja hana til Vogsósa þar sem
hann bjó svo auðveldara væri fyr-
ir hann að sjá um hana. Hann fékk
til fylgis við sig Ólaf Gíslason bisk-
up og Illuga prófast í Hruna. Kvað
biskup svo á um að Strandarkirkja
skyldi flutt samkvæmt beiðni nýja
prestsins í sókninni. En áður en til
þess kom dóu bæði biskup og
prófasturinn í Hruna og Selvogs-
presturinn hrökklaðist úr sveit
sinni af einhverjum ókunnum
ástæðum. Þetta varð til þess að
sóknarbörnin töldu að Strandar-
kirkja hefði verið að hefna sín. Um
þetta mál fjallar saga Elínborgar
Lárusdóttur sem áður var getið.
að kom einnig fram áð-
ur að Bjarni riddari Sív-
ertsen hefði heitið á
Strandarkirkju árið 1778 um að
honum mætti auðnast einhver
frami í lífinu. Hvort sem það var
vegna þess að áheit hans rættist
eða einhvers annars, þá tók alls-
konar áheitum að rigna yfir
Strandarkirkju skömmu fyrir og
um aldamótin 1800. Fátækum
prestum kirkjunnar til óblandinn-
ar gleði fóru að berast gjafir frá
mönnum hvaðanæva af landinu.
Fjárstreymið hélt áfram nokkuð
fram á öldina, þangað til svo var
komið árið 1856 að þáverandi
prófasti Strandarkirkju var farið
að blöskra hve miklir fjármunir
voru komnir til kirkjunnar. Að því
er virðist til að friða samvisku sína
skrifaði hann biskupi bréf þess
efnis hvort honum leyfðist ekki að
taka þessum gjöfum sem hverjum
öðrum reka, hlunnindum ellegar
óvæntum höppum sem brauðinu
fylgdu. Biskup gaf hinsvegar þau
fyrirmæli að presti bæri að gefa
skýrslu um áheitin og upphæð
þeirra á hverju ári. Það varð síðar
til þess að farið var að birta reglu-
lega í blöðum, einkum Þjóðólfi,
áheitin á Strandarkirkju. Sú lesn-
ing blöskraði skynsemistrúar-
mönnum nítjándu aldar. A ofan-
verðri nítjándu öld reyndu þeir af
öllum mætti að kveða þessi áheit
niður, þar sem þeir töldu þau
dæmi um vafasama hlutadýrkun.
Margir skynsemistrúarmennirnir
voru á þeirri skoðun að áheitun-
um væri beint að síra Eiríki á
Vogsósum sem þá var orðinn
frægur í þjóðsögum sem vondur
galdramaður. Einn þessara skyn-
semistrúarmanna, Þór'nallur
Bjarnason, orðaði þetta á þá leið
að fólk héldi að kraftur síra Eiríks
loddi enn við kirkjuna. Síra Eirík-
ur Magnússon hafði á sínum tíma
verið einn mesti kunnáttumaður
íslendinga í náttúrufræðum, svo
mjög að hann fékk á sig galdra-
orðið.
Hvað sem þessum áróðri
leið, héldu áheitin
áfram að streyma til
kirkjunnar á Strönd. Strandar-
kirkja þótti borga vel fyrir sig.
Samt sem áður fékk kirkjan þá
orðið lítils að njóta af þeim fjár-
munum sem heitið var á hana. I
upphafi tuttugustu aldar stóð
kirkjan ein á ströndinni, afskipt
hvað varðaði prestsþjónustu og
ekki var gert við hana svo áratug-
um skipti. Hjá biskupsembættinu,
eiganda Strandakirkju, hafði ver-
ið stofnaður Hinn almenni kirkju-
sjóður og þangað runnu og renna
allir peningar sem heitið er á guðs-
húsið upp af Engilsvlk.
Hin síðustu ár hefur nokkrum
hluta af þessum sjóði verið varið
til viðhalds og endurbóta kirkj-
unnar á Strönd, enda er ekki of-
sögum sagt að hún eigi fyrir því.
Uppistaðan í Hinum almenna
kirkjusjóði sem fer í að viðhalda
öllum kirkjubyggingum í landinu,
er nefnilega að þremur fjórðu
hlutum til orðin fyrir þau áheit
sem Strandarkirkju berast enn á
ári hverju.
Þessi fáorða söguskoðun
Strandarkirkju sem hér fór á
undan svarar því ekki hversvegna
farið var að heita fjármunum á
hana. Hvort svarið er röð tilvilj-
ana eða felur í sér þá sérstöðu sem
kirkjan' óefað hefur, skal ekki
dæmt um hér. En sá dýrðarljómi
sem kirkjan hefur fengið á sig og
sá verndarmáttur sem menn
hyggja að felist í henni er örugg;
lega ekki til kominn af engu. í
fyllsta máti væri skrítið ef svo
reyndist.
HELGARPÓSTURINN 25