Helgarpósturinn - 22.03.1984, Page 7
HEF
YFIRLEITT
TAPAÐ
í
SJÓMANNI
• Helgarpósturinn ræðir
við afreksmanninn
Guðlaug Friðþórsson
eftir Sigurgeir Jónsson myndir: Gunnar V. Andrésson
Það mun nœsta öruggt að halda því fram að maður
þessa mánaðar sé Vestmanneyingurinn Guðlaugur
Friðþórsson. Vart mun það mannsbarn fyrirfinnast á
landinu sem ekki kannast við hann og það frábœra
afrek er hann vann á dögunum er hann synti í land eftir
að bátur hans sökk, u.þ. b. þriggja sjómílna vegalengd í
köldum sjó, tók land gegnum brimgarðinn og braust
upp hamraveggi og lagði síðan leiðsína til bœjarinsyfir
apalhraun, berfœttur þar sem flestum þykir nóg um að
ferðast vel skóaðir. Þetta hefur allt verið itarlega rakið í
fjölmiðlum og kunna menn fáar skýringar á því fá-
dœma þreki sem þarna varsýnt. En hér er ekki œtlunin
að rifja upp þetta atvik, heldur skyggnast aðeins nœr
manninum sjálfum, Guðlaugi Friðþórssyni, og fá upp
hver hann er.
Við tókum hann tali í fyrrakvöld á sjúkrahúsinu í
Vestmannaeyjum, þar sem hann liggur á góðum bata-
vegi, hress að vanda þrátt fyrir erfiða aðgerð um morg-
uninn og aðra erfiða aðgerð fyrirhugaða nœsta dag.
Hann taldi raunar ekki eftir miklu að slœgjast fyrir
okkur að fara að tala við sig um liðna tíð, það vœri ekki
svo ýkja merkilegt sem borið hefði við á lífsleiðinni,
nema þá síðustu dagana. Við töldum okkurvita beturog
útkoman varð þessi
Sjá nœstu síðu.