Helgarpósturinn - 19.07.1984, Side 3
HEFUR KARL
BRETAPRINS SNÚIÐ
BAKIVIÐ LAXINUM?
- Vopnfirðingar sakna kóngafólksins
Egilsstaðir:
ÞJÓNUSTA VIÐ FERÐAFÓLK
Vopnafjörður og sveitimar þcir í
kring er einkar áhugaverður
ferðamannastaður. Þó verður að
segjast eins og er að staðurinn er
talsvert úr alfaraleið ef svo má
segja. Frá þjóðvegi númer eitt er
langur spölur niður til Vopnafjarð-
ar, þó halda margir þangað. Einnig
eru tcdsvert margir sem skoða sig
um á Melrakkasléttu og á Langa-
nesi og aka síðan Stindvíku'heiði
til Vopnafjarðar og skoða sig um
þar.
Frá Vopnafirði er hægt að aka
yfir Hellisheiði hina eystri, talsvert
mikinn og erfiðan rall-veg, en und-
urfagra leið. Þessi leið er ekki alltaf
opin, helst í júlí og ágúst og betra
að afla sér upplýsinga áður en lagt
er á heiðina. Komið er niður í Jök-
Þegar haldið er yfir Möðrudals-
öræfin stefna víst flestir á Hérað
sem áfangastað, - og þá helst af
öllu Hallormsstaðaskóg, nánar til
tekið Atlavík, sem margir telja
öðru fremur paradís á landi hér og
þurfa menn þá sannarlega ekki að
vera Austfirðingar til að hafa þá
skoðun.
En lítum aðeins á akveginn frá
ulsárhlíð og ekið sem leið liggur
inn dalinn til Egiisstaða og Héraðs.
Leið sem óhætt er að mæla með,
svo fremi að hún sé opin.
Á Vopnafirði er lítið en huggu-
legt hótel, sem þau Bjarni Magnús-
son og kona hans Svava Víglunds-
dóttir reka, Hótel Tangi. Furðu
margt hefur verið gert til að laða að
ferðafólkið og tekist betur en þeir
bjartsýnustu þorðu að vona. Þama
er í nágrenninu hin konunglega
laxveiðiá, Hofsá, auk þess sem
blankir menn geta stundað sjó-
stangaveiði. Hægt er að leigja sér
hesta og fara um skemmtilegar
slóðir ríðandi, - eða þá á postul-
unum tveimur, ef vill.
Að okkar mati er Vopnafjörður
einkcir viðfelldinn staður og góður
heim að sækja.
Mývatni til austurs. Þegar komið er
á Biskupsháls em menn komnir í
Austfirðingafjórðung. Aksturinn til
Egilsstaða tekur nálægt þrem tím-
um, - hálftími í viðbót og fólk er
komið í skóginn góða.
Á Möðrudalsöræfum og á Jökul-
dcdsheiði mun vera möguleiki á
veiði í vötnum. Rétt að spyrjast
fyrir um þetta hjá bændum.
Það em ekki margir staðir á
landinu þar sem þjónusta við
ferðafólk er stærsti einstaki liður-
inn í atvinnulífinu. Þannig háttar
þó til á Egilsstöðum, nær 1300
manna kauptúni, þar sem ferða-
maðurinn finnur sig sérlega velkom-
inn. Þar er nánast allt sem ferða-
fólkið þarfnast.
Hótel er í Valaskjálf, - og Ásdís
Sveinsdóttir rekur alltaf eitthvert
sérstæðasta og skemmtilegasta
hótel landsins á Egilsstaðabúinu.
Valaskjálf fékk reyndar á baukinn á
dögunum, þegar verðlagsstjóri
gerði könnun á verði veitinga vítt
og breitt um landið, en þar er þó
hægt að fá ágæta þjónustu í mat og
drykk, og gistiaðstaðan splunkuný.
Valaskjálf hýsir einnig fólk í húsi
Menntaskólans á staðnum.
Matsölustaðir eru víðar, t.d. við
Lagarfljótsbrú hjá Sigurði Grétcu-s-
syni, og einhvem bita er hægt að fá
á flugvallarkaffinu hans Þráins
Jónssonar, og gott kcdfi. Þá er
kaupfélagið með matsölu og Skelj-
ungur er að byggja nýjan matsölu-
stað.
Bílaleigur starfa á Egilsstöðum
af miklum þrótti og flugvöllurinn
er oft eins og einhver vasaútgáfa af
alþjóðaflugvelli, því þar er einatt
mikið um að vera, flogið til og frá
Reykjavík 17 sinnum í viku í það
minnsta, auk þess sem Flugfélag
Austurlands er stöðugt á ferðinni
milli fjcirða.
Eins og áliugasamir menn um
veðurfréttir þekkja, þá er hitastig
að sumri oft og einatt hátt á Ey-
vindará, en það er veðurathugun-
arstaðurinn fyrir Héraðið. Þcuna er
sumablíða með eindæmum mikil.
Stmnkallað ferðamannakauptún
státar að sjálfsögðu af aivöru
ferðciskrifstofu, Ferðamiðstöð
Austurlands. Þar geta ferðamenn
fengið allar upplýsingar, auk þess
sem hægt er að kaupa spennandi
hestaferðir í eyðibyggðir í fjórð-
ungnum. Fararstjóri í ferðunum er
Anton Antonsson, forstöðumaður
Ferðamiðstöðvarinncir, franskur
maður að uppruna, en íslenskari
en cdlt það sem íslenskt getur tal-
ist. Þessar ferðir eru reyndar aðeins
fyrir þá sem ekki kalla allt ömmu
sína í ferðamennskunni.
Meðcd viðkomustaða í hesta-
ferðunum er Loðmundarfjörður,
fallegur dalur, sem nú er í eyði, en
var blómleg byggð til skamms
tíma.
Frá Egilsstöðum ferðcist menn
gjaman um nágrennið, t.d. inn að
Eiðum, en þar er Edda með hótel á
sumrum, að maður tali ekki um
Hallormsstað og Atlavik, en þar er
fegurð og friður í ómælanlegu
magni.
FRÁ MÝVATNI
YFIR (ATLAVÍK
- og stönginni dýft í vatn á Möðrudalsöræfum
eða Jökuldalsheiði
ÞJÓÐBRAUT
HELGARPÓSTURINN 3