Helgarpósturinn - 19.07.1984, Blaðsíða 11
Bæjarstaðaskógur:
HÁVAXINN OG FAG-
UR BIRKISKÓGUR
Skammt fyrir inncin Skaftafell er
Bæjarstaðaskógur, sem marga
ferðamenn mun fýsa að skoða.
Þetta er talinn hávaxnasti og feg-
ursti birkiskógur landsins. Þar eru
mörg tré meira en 12 metrar á hæð
og beinvaxin mjög. Bæjarstaða-
birkið hefur verið ræktað víða um
land og þykir bera af öðru íslensku
birki.
Skógrækt ríkisins lét girða skóg-
inn af fyrir 50 árum. Hætta er á
uppblæstri á þessum slóðum og
eyðingcirhættcin því yfirvofandi,
enda þótt friðunin hafi sannarlega
gert sitt til að hindra það.
Bæjarstaðaskógur er 22 hektar-
ar á stærð.
Skeiðarársandur:
FERÐAMANNASTAÐUR
EFTIR AÐ GULL-
SKIPIÐ ER FUNDIÐ?
Aksturinn yfir sandana miklu
þykir fæstu ferðcifólki tilhlökkun-
arefni. Og satt er það, þeir eru til-
breytingarlitlir. Þegar Skeiðará
hefur verið kvödd, þetta mikla
vatnsfall, sem iöngum stíaði lands-
mönnum í sundur að miklu leyti,
þá tekur við Skeiðarársandur.
Reyndar er að finna í þeim mikla
sandi einkar áhugaverðan grip til
að skoða. En því miður er hann
ekki enn kominn í leitimar. Þetta er
hollenska fraktskipið Het Van
Amsterdam, sem enn er leitað.
Forsjálir ferðaskrifstofumenn
eins og Kjartan Lárusson hjá
Ferðaskrifstofu ríkisins eru löngu
búnir að sjá gildi þess að gullskipið
finnist. Allir munu vilja berja það
augum, en þá þarf vana menn til að
koma fólki á staðinn. Þessi mynd
er hugmynd listamanns um það
hvað bíður ferðamanna, — ÞEGAR
GULLSKIPIÐ ER FUNDIÐ!!
Héraðssundlaugin
Laugaskarði Hveragerði
Býður heimamenn og ferðafólk velkomið
Opið júní — júlí — ágúst:
Alla virka daga 7,00 — 20,30
Laugardaga 9,00 — 17,30
Sunnudaga 9,00 — 16,30
Ljósböðin opin á sama tíma
200 m sund á dag kemur heilsunni í lag.
HJÓLBARDACXVERKSTÆDI
FERÐAMENN
Sumarhjólbarðar
★ Dráttarvélahjólbarðar
★ Vörubílahjólbarðar
★ Heyvinnuvélahjólbarðar
★ Heyvagnahjólbarðar
★ Fólksbílahjólbarðar
★ Jeppahjólbarðar og felgur
★ Allar stærðir af slöngum
Greiðslukjör. Leitið nánari upplýsinga.
Öruggasta þjónustan, —1
Opið alla daga kl. 8-22
nema sunnudaga kl. 13-18
Gerið verðsamanburð.
HJOLBARDACXVERKSTÆDI
Björns Jóhannssonar
Lvngási 5, Rangárvöllum
Sími 99-5960
HELGARPÓSTURINN 11 ,