Helgarpósturinn - 16.08.1984, Page 8
LICENSE AGREEMEMT
* THIS LICEHSE AGREEfjENT is made as of the ^r-., r, t
®P?oc« 198 3, by and between CANNON INTERNATIONAL, a corporS-
tion with Tts principal place of business at 6464 Sunset
Boulevard, Suite 1150, Hollywood, California 90028 (LICENSOR),
and GNTVERSITY CINEMA
with its principal place of business at
Samningurinn um dreifingarrétt Videó Leós á 15 myndum frá Cannon International.
Samningurinn er á nafni Háskólabíós og undirritaður af Friðbert Pálssyni.
fjölda „rassía" gegn ólöglegum
myndböndum á myndbandaleig-
unum. Útsendarar samtakanna
hirtu fjölmargar spólur úr hillun-
um, í fullkominni óþökk eigenda
myndbandaleiganna, auðvitað,
svo að í sumum tilvikum lá við
slagsmálum.
Tónninn
breytist
Tónninn í þessum deilum hefur
að sumu leyti mildast og breyst,
en að öðru leyti orðið harðari og
persónulegri. Á sama tíma og eig-
endur myundbandaleiga ræða
innan sinna nýju samtaka nauð-
syn þess að SRM og SÍM komi sér
sameiginlega niður á lausnir í
þessum málum, hætti öllum kýt-
ingum og stofni jafnvel sameigin-
lega siðareglunefnd, þá hafa
nokkrir félagsmenn SÍM leynt og
Ijóst blásið til atlögu gegn Friðbert
Pálssyni, manninum sem hefur
haft forgöngu um það að grisja
frumskógagróðurinn í mynd-
bandamálunum fyrir hönd SRM
og fyrir hönd Félags íslenskra
kvikmyndahúsaeigenda, þar sem
hann er líka varaformaður. Þessir
félagsmenn SÍM eru gramir Frið-
bert fyrir það sem þeir kalla „yfir-
gang hans og drottnunargirni á
myndbandamarkaðnum“ og saka
hann um grófa misnotkun á að-
stöðu sinni sem forstjóri Háskóla-
bíós.
Forstjórinn
í einkarekstri
Gagnrýnin beinist að verulegu
leyti gegn aðild Friðberts Pálsson-
ar að myndbandaheildsölunni
Videó Leó sf. sem hann á með
bróður sínum, Leó Pálssyni. Fyr-
irtækið er skráð á heimilisfang
Friðberts, hann annast bréfa-
skriftir fyrir það og undirritar
samninga þess við erlend kvik-
mynda- og dreifingarfyrirtæki.
Videó Leó hóf starfsemi sína fyrir
rúmu ári og fyrsti samningur fyrir-
tækisins var gerður 9. mars
1983... í nafni Háskólabíós.
Gagnrýnendur Friðberts telja
þennan samning dæmi um sið-
leysi Háskólabíóforstjórans í
starfi; að þarna hafi hann verið að
hygla bróður sínum, í raun verið
að selja eigur ríkisins, þ.e. Há-
skólabíós, sjálfum sér og bróður
sínum, sem hann hafi engan laga-
legan né siðferðilega rétt haft til
að gera.
Samningurinn er gerður við
bandaríska kvikmyndafyrirtækið'
Cannon International í Holly-
wood í Kaliforníu um íslenska
dreifingarréttinn til þriggja ára á
15 kvikmyndum á myndböndum,
og er undirritaður af Friðbert Páls^
syni fyrir hönd Háskólabíós. í
samningnum er tekið fram að rétt-
arþeginn, Háskólabíó, megi ekki
framselja dreifingarréttinn þriðja
aðila. En myndir úr þessum samn-
ingi sjást nú víða á myndbanda-
leigum, til dæmis myndirnar Last
American Vlrgin, Joyride to
Nowhere, Secret of Yolanda og
Magician of Lublin, en þær eru
allar merktar Videó Leó. Gagn-
rýnendur Friðberts í hópi mynd-
bandaleigueigenda, sem sumir
hverjir eru rétthafar líka, telja að
Videó Leó hafi notið óeðlilegrar
fyrirgreiðslu ríkisfyrirtækis (Há-
skólabíós) í því að komast yfir
þessa titla, og að sér hafi þannig
verið mismunað í samkeppninni
um dreifingarréttinn á þessum
myndum. Sameiginleg samninga-
gerð Háskólabíós og Austurbæjar-
bíós á öðrum myndum frá Cannon
hefur á sama hátt verið gagn-
rýnd fyrir það að dreifingarréttur-
inn hefur skilað sér yfir til Videó
Leós. „Þetta er eins og að ríkið
ræki bílasölu, forstjórinn keypti
10 bíla á vegum hennar og seldi
þá síðan bróður sínum beint, en
færi ekki í gegnum Innkaupa-
stofnun ríkisins með þá, þar sem
þeir væru seldir hæstbjóðanda,“
segir einn reiður myndbanda-
leigueigandi.
„Hef ekkert
aö fela“
„Þessar ásakanir eiga sér engan
stað í veruleikanum," segir Frið-
bert Pálsson í samtali við Helgar-
póstinn. „Þessir menn eru að
reyna að rakka mig niður vegna
þess að ég hef veitt SRM forstöðu
og þeir telja að samtökin berjist
gegn sér, sem þau gera líka ef þeir
starfa ekki heiðarlega.
Leó hefur séð um efnisútvegun
fyrir fyrirtækið og alla dreifingu.
Eg kem hvergi nálægt rekstrinum
á Videó Leó, að öðru leyti en því
að ég veitti Leó aðstoð við að
kaupa fyrstu myndirnar og ég hef
gefið honum góð ráð. Eg hef séð
um bréfaskriftir fyrir hann vegna
þess að ég er skárri í ensku en
hann. Ég fór líka með honum til
Cannon International í fyrra þar
sem umræddur samningur var
gerður, og það voru mistök að
stíla hann á Háskólabíó. Cannon
fyrirtækinu er fullljóst um tengsl
Videó Leó og mín og jafnframt
Ijóst að vídeórétturinn á þessum
myndum var seldur Videó Leó, þó
svo að samningurinn hafi verið
gerður í nafni Háskólabíós.
Friðbert segir það fásinnu að
hagsmunum Háskólabíós og
Videó Leós sé þarna blandað sam-
an. „Við erum með endurskoð-
anda fyrir bíóið, skipaðan af Há-
skólaráði, og hann væri fljótur að
reka augun í svoleiðis vitleysu, ef
ég væri til dæmis að nota inn-
kaupaferðir fyrir bíóið eða fé bíós-
ins á annan beinan eða óbeinan
hátt í þágu Videó Leós. Slíku er
einfaldlega ekki til að dreifa."
Helgarpósturinn spurði Frið-
bert hvort Videó Leó hefði ekki
fært sér í nyt þau viðskiptasam-
bönd sem Háskólabíó nýtur hjá
fyrirtækjum eins og Cannon. „Ég
vil ekki meina að svo hafi verið.
Ég hef keypt rjómann af því
myndbandaefni sem Cannon hef-
ur boðið upp á fyrir Háskólabíó en
Leó hefur hirt sorann, myndir eins
og Supercock, Ten Violent Wom-
en eða Silent Night/Bloody Night.
Þetta eru myndir sem Háskólabíó
hefur engan áhuga á. Það er allt
annar smekkur sem ræður valinu
á þeim myndum sem Háskólabíó
fær réttinn á að gefa út hér á landi.
Ég hef grun um að ég fengi á mig
bókun í fundargerðarbók stjórnar
Háskólabíós ef ég keypti svona
myndir. Bæði bíóið og ég per-
sónulega myndum setja ofan við
það og ég er ekki viss um að þær
gefi pening heldur.
Sennilega fer það í taugarnar á
mönnum," heldur Friðbert áfram,
„að ég starfa fyrir opnum tjölduim
Eg er ekki að fela eitt eða neitt. í
þessu fyrirtæki, Háskólabíói vita
allir hvað ég er að gera hverju
sinni. Stjórn Háskólabíós var skýrt
frá Videó Leó á sínum tíma og þar
var aðeins rætt um það að hags-
munir þessara tveggja aðila
myndu ekki skarast og þetta
mætti ekki misnotast. Og það hef-
ur heldur ekki gerst."
Aö hjálpa
bróöur sínum
„Þessi mál hefur ekki borið á
góma á stjórnarfundum, svo ég
muni,“ segir Jónatan Þór-
mundsson, lagaprófessor og for-
maður stjórnar Háskólabíós.
„Friðbert segist hafa rætt þetta
við stjórnarmenn. Það kann vel
að vera að ég hafi einmitt verið
fjarverandi þá. En hann er ekki að
gera neitt sem brýtur í bága við
lög og ég hefði vel getað sam-
þykkt eignaraðild hans að Videó
Leó. Samningurinn við Cannon er
tvíhliða gerningur og honum er
hægt að breyta með samþykki
beggja aðila, án þess að nokkuð sé
við því að segja. Friðbert var að
hjálpa bróður sínum af stað þarna
í byrjun og það var klaufaskapur
að gera samninginn í nafni Há-
The Last American Virgin var meðal þeirra mynda sem Háskólabíó fékk lögbann sett á fyrr á þessu ári á grundvelli þess
að bíóið ætti dreifingarréttinn að henni. Nú kannast bíóið ekki við að eiga dreifingarréttinn, og segir Videó Leó eiga hann.
8 HELGARPÓSTURINN