Helgarpósturinn - 16.08.1984, Page 17
ÓSTURINN
„Eins og skipti-
klefi á baöströnd“
# Skálinn sem Island fékk til umráda fyrir sýningu Kristjáns Davíössonar
á Feneyjabiennalnum var ekki með þeim glœsilegustu á svœðinu
„Hinn frægi sýningarskáli sem Alvar Alto teiknaði."
Sýning Kristjáns Davíðssonar listmáiara vakti athygli á Fen-
eyjabiennalnum, sem er ein stærsta og merkasta listsýning sem
haldin er í heiminum í dag. Það kom ekki sérlega á óvart. Hins-
vegar kom „hinn frægi sýningarskáli sem teiknaður var af Alvar
Aito,“ dálítið á óvart. Danska blaðið Information sagði: „Islandsk
farvelyrik í en hytte“ og það eru orð að sönnu. Einn þeirra sem
skoðuðu sýninguna var Eyjólfur Einarsson listmálari sem kom
þar með fleira fólki.
„Okkur brá nú bara þegar við
komum á staðinn. Við vorum búin
að heyra um þennan sýningar-
skála s.em Alvar Alto hefði teikn-
að og bjuggumst því við hinu
besta. Þegar við svo komum þang-
að og sáum dýrðina vorum við
ekki viss um að við værum á rétt-
um stað. Við vorum í fríi þarna og
höfðum verið dálítið á baðströnd-
um og fannst þetta dálítið Iíkt
þessum skúrum sem fólk skiptir
um föt í á ströndinni. Hann var
meira að segja eins á litinn. Ef
hann yrði fluttur hingað gæti
þetta orðið ágætur pylsuskáli í
Hrútafirði.
Að innan var skálinn svo klædd-
ur brúnum striga eins og þeim
sem var á Kjarvalsstöðum áður en
var málað þar, og sem var kvartað
sem mest yfir. Lýsingin var líka
mjög slæm. Það voru að vísu ein-
hverjir ljórar uppi í loftinu en trén
skyggðu alveg á þá. Aðal lýsingin
var frá nokkrum lömpum sem
héngu í snúrum niður í mittishæð.
Ég heid varla að geti verið að sýn-
ingarnefndin hafi séð þessi ósköp
áður en ákveðið var að taka
skálanum.
Ég get heldur ekki séð að þetta
hafi verið í neinni alfaraleið,
klemmt þarna inni í rjóðrinu og
það var ósköp subbulegt í kring.
Samanborið við hina skálana var
þetta óskaplega slæmt. Það er
auðvitað ekki hægt að miða við
það besta hjá stórþjóðunum sem
hafa verið með sýningar þarna í
áratugi, en þetta var einum of
mikið.
Suður-Ameríkuríkin voru til
dæmis mörg saman í einum löng-
um skála sem var stúkaður niður
í deildir. Þetta var svona einsog
mekkanóbygging og mjög ódýrt,
en fyllilega frambærilegt. Ofan á
allt saman var svo mikill raki
þarna að myndirnar slöknuðu í
römmunum. Mér finnst að ef verið
er að taka þátt í svona sýningum,
sem vissulega er mikill heiður, þá
eigi að reyna að standa sómasam-
lega að þessu.“
Fékk rafmagns-
blásara
Kristján Davíðsson hló við þeg-
ar hann heyrði að skálinn hefði
ekki þótt burðugur:
„Já ég hef nú heyrt þetta. Þegar
við Gunnar Kvaran komum þarna
að fyrst virkaði þetta dálitið svona
á okkur. Það eru þessar miklu
hallir þarna allt í kring og eitt
svona lítið hús þar inn á milli virk-
ar dálítið skrýtið.
En húsið er í sjálfu sér ágætt fyr-
ir eins manns sýningu og það er
ágætlega staðsett. Það rigndi
þarna í einn og hálfan dag og það
var dálítið vandamál því myndirn-
ar slöknuðu, en ég fékk rafmagns-
blásara til að hjálpa upp á
sakirnar. Það áttu nú fleiri við það
vandamál að stríða skildist mér.
Þessi hús eru geymd umhirðulítið
í tvö ár, á milli sýninga, og í svona
loftslagi má alltaf búast við ein-
hverjum raka.
Húsið hefði mátt vera stærra en
þetta er fallegur arkitektúr og það
var gott að hafa fengið þetta hús.“
Tilvonandi
góövinir
á sýningu
á grafík-
myndum
Friörik Brekkan hefur veg og vanda af sýningunni.
• Hugmyndir eru uppi um að tslenskir listamenn og uiss hópur
ítalskra listamanna skiptist á vinnustöðum. Um 70 myndir eftir
ítalina verða á sýningu í Gallerí Listamiðstöðinni t september
Um sjötíu grafíkmyndir eftir 14
ítalska listamenn verða á yfirlits-
sýningu í Gallerí Listamiðstöð-
inni frá 8.—16. september
nœstkornandi. Þetta kann að
vera forsmekkur að kynnum
okkar af þessum listamönnum,
því hugmyndir eru uppi um að
þeir skipti á vinnustöðum við
íslenska listamenn. ítalirnir
myndu þá koma hingað til ís-
lands að mála í vinnustofum ís-
lenskra listamanna en
íslendingarnir fara til Mílanó.
Myndirnar á þessari sýningu
eru úr einkasafni Friðriks Brekk-
an, sem hefur kynnst höfundum
þeirra og mun hafa milligöngu um
vinnustaðaskiptin.
„Upphafið að þessu má rekja
aftur til ársins 1977 þegar ég var
leiðsögumaður nokkurra ítala
sem voru við laxveiðar í Grimsá í
Borgarfirði," sagði Friðrik.
„Einn þessara ítala var Gio-
vanni Leom Bianchi, sem er mjög
vel þekktur í sínu heimalandi. Ein-
hverntíma bar á góma hve lítið
væri til af minjagripum sem lax-
veiðimenn gætu haft með sér frá
íslandi og það varð úr að Giovanni
kom aftur til íslands og teiknaði þá
myndir af ýmsum veiðistöðum í
Grímsá. Það voru svo gefnar út
tólf grafíkmyndir í möppu, sem
var mjög vel tekið.
Þessi mappa vakti töluverða at-
hygli og varð meðal annars til
þess að Kanadastjórn fékk Gio-
vanni til Kanada til að vinna sams-
konar verk. Giovanni er ákafur
náttúruunnandi og náttúruvernd-
armaður og ýms verka hans bera
keim af því. Hann er í sterkum
hópi 74 myndlistarmanna sem
hafa höfuðstöðvar í Mílanó og
reka t.d. saman galleri og fjárfest-
ingarfélag, því þetta er stöndugur
hópur.
Nú, ég fór og heimsótti þá 1978
og hélt þá meðal annars fyrirlest-
ur um ísland og þá kom upp hug-
myndin um að skiptast á
vinnustöðum. Þessir fjórtán sem
eiga verk á sýningunni sem hér
verður haldin eru kjéu-ni þeirra sem
reiðubúnir eru að eiga nánari
samskipti við ísland og íslenska
listamenn. Það er alveg opið hvað
vinnustaðaskiptin yrðu í langan
tíma, það færi náttúrlega eftir
aðstæðum hjá hverjum og einum.
Ég mun hafa milligöngu, því það
þarf töluvert að samræma í svona
skiptum, t.d. í sambandi við hús-
næði, eftir fjölskyldustærð, og þar
frameftir götunum.
Myndirnar sem verða á sýning-
unni eru allar unnar með nýrri
tækni sem er sérlega skemmtileg
og falleg. Þetta er kallað Reliefo-
grafia og felur m.a. í sér upphleyp-
ingu myndanna."
— Þær munu allar til sölu.
„Já, þær eru allar til sölu og á
töluvert lægra verði en þær fengj-
ust fyrir á Ítalíu. Verðið er auðvit-
að misjafnt eftir myndum og sumt
eru heilar seríur sem þeir hafa
jafnvel allir unnið saman að. Flest-
ar myndirnar eru eftir Giovanni
og þar á meðal stórskemmtilegar
seríur úr umhverfisstafrófinu
hans.
Ég minntist á það áðan að hann
er mikill umhverfisverndarmaður
og hann hefur búið sér til sérstakt
umhverfisstafróf þar sem meðal
annars höfuðskepnurnar hafa sín
tákn. Þessi tákn fléttar hann svo
gjarnan inn í myndir sínar og segir
með þeim sögu. Mig hefur lengi
dreymt um að halda þessa sýn-
ingu og er ánægður með að sá
draumur skuli nú orðinn að veru-
leika. En ekki minna spennandi
verður að sjá árangurinn af því
þegar íslenskir og ítalskir lista-
menn skipta um bústaði og fara að
vinna hver í annars umhverfi."
Norrœna húsid
sunnudag:
„Yngri
djasslög“
segir Tómas Einars-
son bassaleikari sem
er nýkominn úr námi
hjá kennara 0rsted-
Pedersen
„Ég er kominn heim til að spila
djass. Ég var í námi í Kaupmanna-
höfn í eitt ár fyrst og fremst til að
reka endahnút á klassíska bassa-
menntun mína,“ sagði Tómas Ein-
arsson bassaleikari í samtali við
HP. „Ég var hjá góðum dönskum
bassakennara sem er mjög viður-
kenndur. Hann kenndi meðal
annars Nils Henning 0rsted-Ped-
ersen bassaleikara. Nú, svo er
meiri eftirspurn eftir kontrabassa-
leikurum á íslandi en i Kaup-
mannahöfn svo ég gerði ráð fyrir
að fá meira að gera hér.“
Tómas kveðst ekki ætla að
leggja meiri stund á klassískt
kontrabassanám heldur snúa sér
að því að spila djass. „Djasshluti
námsins í kontrabassaleik og
impróvisasjónin lærist ekki nema
með því að spila nógu mikla djass-
músík," segir hann. „Sá hluti er að
mestu leyti eftir í mínu námi. Ég
hef ekki lært nema hluta af því
sem þeir læra sem stefna að því að
spila í sinfóníuhljómsveit. Vegna
þess að ég stefni ekki að því að
spila klassíska tónlist. Ég tók því
bara undirstöðu hennar í náminu
til að geta betur spilað djassinn
síðar. En eins og ég segi lærist
hann bara í praksís og það líða því
örugglega nokkur ár áður en
veruleg reynsla er fengin á því
sviði."
Tómas heldur konsert í Nor-
ræna húsinu næstkomandi sunnu-
dag ásamt félögum sínum þeim
Sigurði Flosasyni og Reyni Sig-
urðssyni hljóðfæraleikurum.
„Konsertinn helgast af því að Sig-
urður Flosason saxafónleikari er
að fara til Bandaríkjanna í næstu
viku eftir stutt sumarfrí. Við höf-
um því verið að æfa upp pró-
gramm eftir að ég kom heim
ásamt Reyni Sigurðssyni. Við er-
um að prófa að spila lög sem við
höfum ekki spilað áður en langar
til að spila yngri djasslög, og það
er hið beina tilefni konsertsins. Á
konsertinum spilum við lög eftir
ýmsa fræga djasskompónista;
Mingus, Carla Bley, Herbie Han-
cock, Cedar Walton, Mike Gibbs
og Nils Henhing 0rsted-Pedersen,
svo einhverjir séu nefndir."
— Geta íslendingar búist við að
í þér leynist nýr 0rsted-Pedersen?
„Það að hafa sama kennara og
einhver segir ekki nema örlítið
brot af heildinni vegna þess að
djassinn er umfram allt praksís.
Það er því engin hætta á því á
næstunni. Eigum við ekki að segja
að ég fái svona tuttugu ár til að
gera tilraun?" segir Tómas Einars-
son.
10 vinsælustu vídeó-
myndirnar í Bretlandi
HEITI MYNDAR LEIKSTJÓRI ÁRGERÐ EINKUNNA- GJÖF HP Mest 4 stjörnur
1. An officer and a gentleman Taylor Hackford 1981 ★ ★
2. Never say never again Irvin Kershner 1983 ★
3. Porky's II Bob Clark 1983 ★
4. Superman III Richard Lester 1983 ★ ★
5. Raiders of the lost Ark Steven Spielberg 1981 ★★★
6. Christine John Carpenter 1984 ★ ★
7. Airplane II Ken Finkleman 1982 ★ ★
8. First blood Ted Kotcheff 1982 ★★
9. Amityville III Richard Fleischer 1984 ★
10. Staying alive Sylvester Stallone 1983 ★
-GHS
HELGARPÓSTURINN 17