Helgarpósturinn - 08.11.1984, Side 6
INNLEND YFIRSÝN
Þetta verður allt í lagi
Það vakti hvað helsta athygli í umræðum
formanna fjögurra stærstu stjórnmálaflokk-
anna í sjónvarpinu sl. þriðjudagskvöld að
þeir Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra og Þorsteinn Pálsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins voru ódeigir við að verja
stjórnarstefnuna þrátt fyrir viðurkenningu á
skipbroti launastefnu stjórnarinnar frá í
haust. Nýgerðir kjarasamningar hafa raunar
gert að engu marga mikilvægustu þætti
þeirrar endurskoðunar á stjórnarstefnunni
sem gerð var sl. sumar. Þar á ofan bætist
staðfest óánægja innan Framsóknarflokks-
ins með stjórnarsamstarfið og þar á meðal
vaxtaaðgerðirnar sem sjálfstæðisflokks-
menn höfðu fram.
Innan Sjálfstæðisflokksins eru líka ólgandi
umbrot. Nokkuð berorðar yfirlýsingar þing-
flokksformanns flokksins í fjölmiðlum ný-
lega um að þingflokkurinn verði að gera ým-
is stór mál upp við sig á allra næstu dögum
staðfesta þau, þó svo að aðrir talsmenn
flokksins hafi gætt meiri varkárni í yfirlýs-
ingum við fréttamenn.
Af samtölum við áhrifamenn á vettvangi
stjórnmálanna má og ráða það að Sjálfstæð-
isflokkurinn er nánast tvístraður vegna
deilna um framhaldið í stjórnarsamstarfinu
við Framsókn. Þorsteinn er sagður berjast
með oddi og egg fyrir því að stjórnarsam-
starfinu verði haldið áfram en þó aðeins
þannig að skipt verði um menn í ráðherra-
stólunum. Allar líkur eru á því að slíkar
breytingar verði gerðar alveg á næstu dög-
um og öðlist Þorsteinn þar með ráðherra-
dóm. Ekki þó átakalaust, en það ríður á
miklu fyrir hann, formannsstöðu hans
vegna, að geta sýnt árangur af yfirlýsingum
um aðgerðir í efnahagsmálum.
Sú spenna sem virtist ríkja milli þeirra Þor-
steins og Steingríms um tíma í haust virðist
hafa dvínað og lætur Steingrímur nú hafa
eftir sér ákveðnari yfirlýsingar um að hann
telji mjög æskilegt að fá formann Sjálfstæðis-
flokksins inn í ríkisstjórnina.
Sjónvarpsáhorfendur sáu það svo sl.
þriðjudagskvöld að formennirnir voru hinir
glaðbeittustu og stóðu eins og klettar við að
bera af sér spjótalög stjórnarandstæðing-
anna. Það var ekki á þeim að sjá að hrakleg
staða stjórnarinnar og gnæfandi erfiðleikar
í efnahagsmálum sem framundan eru og
bíða lausnar hafi á nokkurn hátt áhrif á fram-
hald stjórnarsamstarfsins.
Þrátt fyrir að þeir hefðu ekki neinar lausn-
ir á takteinum og gæfu litlar vísbendingar
um aðgerðir, hreyktu þeir sér af fyrri árangri
stjórnarinnar við að lækka verðbólguna.
Viðkvæðið var aðeins að stjórnin hefði hrak-
ist af leið nú um sinn en gripið verði til að-
gerða á næstunni sem leiða muni á beinar
brautir á ný til framfara og nýsköpunar í at-
vinnulífinu.
Þingmaður í lykilstöðu innan Sjálfstæðis-
flokksins segir í samtali við HP að sú mikla
umræða sem á sér stað innan flokksins nú
um stundir snúist miklu fremur um hvernig
bregðast skuli við efnahagsvandanum en
það hvort skipta þurfi um menn í stjórninni.
Þó viðurkennir hann að sú umræða snúist
ekki eingöngu um efnahagsaðgerðir heldur
og það hvernig efla megi styrk og tiltrú
stjórnarinnar um leið, þar sem fylgi hennar
hefur dvínað skv. skoðanakönnunum upp á
síðkastið.
Hann segir almennt sjónarmið að það sé
bæði eðlilegt og æskilegt að formaður
flokksins eigi sæti í ríkisstjórninni. Það sé
engum leiðum lokað í þessu efni en það þýði
þó ekki það að verið sé að kanna slíka mögu-
leika beint. Hann vill halda því fram að um-
ræður í fjölmiðlum undanfarið um væntan-
legar mannabreytingar í stjórninni hafi ver-
ið sprengdar langt upp fyrir raunveruleik-
ann.
Sjónvarpsáhorfendur á þriðjudagskvöldið
urðu vitni að því að Kjartan Jóhannsson, for-
maður Alþýðuflokksins, átti í hinum mestu
brösum við að bera af flokknum grunsemdir
um mögulega þátttöku flokksins í stjórninni.
Margir hafa slegið því nánast föstu að Al-
þýðuflokkurinn væri á leið í slíkt samstarf en
þó Kjartan hafi svitnað í sjónvarpssal bendir
Erfidara kjörtímabilið
framundan hjá Reagan
Ronald Reagan hefur unnið kosningasigur
sem á sér aðeins eitt fordæmi í bandarískum
forsetakosningum. Walter Mondale náði
ekki meirihluta nema í einu fylki, átthögum
sínum Minnesota. Eina hliðstæðan er for--
setakosningarnar þegar Richard Nixon varV
endurkjörinn og frambjóðandi demókrata
varð að sætta sig við kjörmenn eins fylkis,
Massachusetts.
Allir vita hvað Nixon varð úr glæsilegum
sigri sínum, afsögn með smán úr forsetastöð-
unni. Enginn býst við að góðlátlegi landsfað-
irinn Reagan komi sér í slíkar ógöngur. En
sigur sinn vann hann með þeim hætti, að
ekki verður sagt að kosningabaráttan hafi
auðveldað honum að fást við verkefnin sem
við blasa á kjörtímabilinu. Þar að auki færist
aldur yfir forsetann, í lok kjörtímabilsins
verður hann 77 ára.
Reagan vann traust bandarískra kjósenda
með því að höfða til þjóðernismetnaðar
þeirra og bjartsýni. Uppgangstími í atvinnu-
lífi að loknu mesta krepputímabili á fjórum
áratugum, sem náði hámarki undir hans
stjórn, var undirstaðan að kosningabaráttu
sem háð var með auglýsingatækni og skír-
skotun til þjóðlegra tákna. Mondale var látið
eftir að ræða pólitísk viðfangsefni eins og
ríkisskuldir, atvinnuleysi, viðskiptahalla,
kjarnorkuvopnakapphlaup. Á slíkt vildu þrír
fimmtu kjósenda ekki hlusta. Þeir fylktu sér
um kjörorðin í sjónvarpsauglýsingum forset-
ans: „Það morgnar í Ameríku. — Bandaríkin
standa á ný hnarreist í heiminum."
En vandamálin hafa ekki horfið við kosn-
ingasigur Reagans. Atvinnuleysið er meira
en þegar hann tók við völdum. Bandaríkja-
mönnum neðan við fátæktarmörkin hefur
fjölgað verulega og eru orðnir 35 milljónir.
Vaxtagreiðslur af aukningu ríkisskulda gera
betur en éta upp allan sparnað sem átt hefur
sér stað í rekstri ríkisins í stjórnartíð Reag-
ans. Halli á utanríkisviðskiptum og ríkissjóði
er fjármagnaður með aðstreymi fjár erlendis
frá, og fyrir þann straum getur tekið að veru-
legu leyti, þegar ofmetinn dollar tekur að
falla nær eðlilegri stöðu um leið og metvext-
ir færast niður á við. Svar fjármagnsmark-
aða við endurkjöri Reagans var veruleg
lækkun á gengi Bandarikjadollars.
Hafi Reagan einhver úrræði til að mæta
þeim vanda sem við blasir, er þeim haldið
vandlega leyndum. Kosningastefnuskrá
flokks hans hefur ekkert til slíkra mála að
leggja, nema almennar yfirlýsingar. Henni
réðu menn sem lögðu megináherslu á að
heita því að koma á bænahaldi í barnaskól-
um, banna fóstureyðingar og fjölga aftökum
sakamanna.
Yfirburðasigur Reagans nýttist ekki flokki
hans til að bæta hlut sinn á þingi svo um
munaði. í Öldungadeildinni virðist meiri-
hluti repúblíkana, þegar þetta er ritað, hafa
rýrnað. í Fulltrúadeildinni hafa þeir bætt
hlut sinn, en ekki nóg til að ráða gangi mála
ásamt íhaldssömum demókrötum. Til þess
hefðu þeir þurft að fjölga sínum mönnum
helmingi meira en þeir gerðu. Viðbót repú-
blíkana virðist ætla að verða 12 fulltrúa-
deildarsæti.
Af einstökum mannaskiptum á þingi sætir
fall Charles Percy, öldungadeildarmanns
repúblíkana frá Illinois, mestum tíðindum.
Hann var merkisberi frjálslyndari manna í
flokki sínum og formaður utanríkismála-
nefndar deildarinnar. Nú stendur næstur
þeirri miklu valdastöðu Jesse Helms, öld-
ungadeildarmaður frá Norður-Karólínu,
sem sigraði vinsælan fylkisstjóra úr röðum
demókrata í einhverri óþverralegustu
kosningabaráttu í öllum viðureignum ársins.
Helms er yst í hægra armi flokks síns, sér-
stakur verndarvættur bakhjarla dauðasveit-
anna í E1 Salvador, sem búið hafa um sig í
Bandaríkjunum og stjórna illvirkjum þaðan.
Helsta von flokksbræðra Heims er að hann
meti meira að halda formennsku í landbún-
aðarnefnd Öldungadeildarinnar, þar sem
hann hefur notað yfirburðaaðstöðu til að
hygla tóbaksbændum í fylki sínu, en að
sækjast eftir formennsku í utanríkismála-
nefndinni, sem yrði að meirihluta skipuð
andstæðingum öfgasjónarmiða hans.
Að öllu samanlögðu hefur aðstaða Reag-
ans til að ráða gangi mála á þingi heldur
versnað en batnað við kosningaúrslitin.
Þrátt fyrir fylgisaukningu í Fulltrúadeildinni,
á hann á brattann að sækja gagnvart þing-
inu. Þar kemur einkum tvennt til. Reagan er
að hefja síðara kjörtímabil sitt, og því eiga
flokksbræður hans á þingi ekki eins mikið
undir honum og áður. Þessa gætir í vaxandi
mæli eftir því sem á kjörtímabil forsetans líð-
ur. „Hölt önd“ heitir í daglegu tali sá banda-
rískur stjórnmálamaður, sem er á síðasta
kjörtímabili og enginn á neitt undir til lang-
frama. Eftir að fram á mitt kjörtímabil kem-
ur, lendir Reagan í hópi „haltra anda“.
eftir Ómar Friðriksson
nú flest til að aldrei hafi verið neinar alvar-
legar þreifingar í þessa átt, rætur þessára
sögusagna megi frekar rekja til óróleika inn-
an flokksins og deilna um forystustöður.
Ýmsir vilja einnig gera lítið úr þeim óró-
leika sem ríkir innan Framsóknarflokksins
og birtist í leiðurum NT. Forystan byggi enn
á verulegum stuðningi flokksmanna við
áframhaldandi stjórnarsamstarf en „upp-
hlaupið" megi rekja til ákveðinna afla yngri
manna sem fylkt hafi liði reiðubúnir að snúa
sér til vinstri að gömlum sið. Hefur HP það
eftir ónefndum heimildarmanni sem vel
þekkir til að menn hafi rökstuddan grun um
að formaðurinn hafi veitt leiðarahöfundi NT
ofanígjöf fyrir málflutninginn. Hefur ekki
heyrst bofs frá ritstjóranum síðan um málið.
Það virðist því ríkja sú staða á stjórnar-
heimilinu að stjórnin og æðstu áhrifamenn
flokkanna vinni að því að koma sér saman
um aðgerðir sem duga til áframhaldandi
stjórnarsamstarfs án verulegra mannabreyt-
inga. Nú mun Þorsteinn nær örugglega
ganga inn í stjórnina og samkvæmt heimild-
um HP er talið mjög líklegt að Geir Hall-
grímsson utanríkisráðherra muni þá víkja.
„Hann skilur iíka manna best formanns-
vandamálin í flokknum," segir þingmaður í
stjórnarandstöðu. Háttsettur sjálfstæðis-
maður vill þó bera það til baka og segir ekk-
ert vera sem bendi til þess, þó að hann viður-
kenni að líklegt sé að Þorsteinn fari inn í
stjórnina. Hann bendir líka á þann mögu-
leika sem algengur er erlendis í samsteypu-
stjórnum að skipting ráðuneyta verði stokk-
uð upp innan stjórnarinnar án nokkurra
mannabreytinga. Það virðast því vera að
skýrast línur frá því sem var þegar talað var
um yfirvofandi kosningar eða róttækar
mannabreytingar í stjórninni, yfir í það að
formanni Sjálfstæðisfiokksins verði veitt
innganga, e.t.v. samhliða uppstokkun ráðu-
neyta milli flokkanna. En þjóðin bíður að-
gerða. Ekkert bólar á þeim.
eftir Magnús Torfa Ólafsson
Löngu áður er fyrirsjáanlegt að barátta
hefst um hverjir skuli ráða Repúblíkana-
flokknum. Hægri öflin, sem Reagan hefur
laðað að flokknum án þess að gera þeim eins
til hæfis og þau ætlast til, hafa einsett sér að
ná flokkskerfinu á sitt vald. Þeim tókst þetta
við undirbúning flokksþings í ár. Þar með er
ekki sagt, að þeim veitist auðvelt að tryggja
sér drottnunaraðstöðu við val forsetaefnis
1988. Undirbúningur að þeirri viðureign er
þegar hafinn. George Bush varaforseti hefur
gefið ótvírætt til kynna, að hann telur sig
sjálfsagðan arftaka Ronalds Reagans. Ekki
er hann hægri mönnum að skapi. Yfirlýstur
andstæðingur hægra liðsins er Howard
Baker. Hann var snjall leiðtogi meirihluta
repúblíkana í Öldungadeildinni á síðasta
kjörtímabili, en gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs. Áform hans er að létta af sér þing-
skyldum til að eiga hægara með að hefja
skjóta og skelegga baráttu fyrir að hljóta út-
nefningu flokks síns til forsetaframboðs að
fjórum árum liðnum. Auk þeirra tveggja,
Bush og Bakers, er vitað um þó nokkra aðra,
sem hafa augastað á forsetaframboði, og er
Kemp fulltrúadeildarmaður þeirra kunnast-
ur.
Því eru fyrirsjáanlegir tvennskonar
flokkadrættir í flokki forsetans, annars veg-
ar um svipmót og stefnu flokksins, hins veg-
ar milli forsetaefna. Þessar viðureignir koma
Reagan þeim mun verr í stjórnarstörfum,
sem ríkisstjórn hans sjáifs og starfslið í Hvíta
húsinu er þekkt fyrir innbyrðis ýfingar og
valdastreitu. Að verulegu leyti stafar þetta af
starfsháttum forsetans. Hann hefur ekki fyr-
ir því að kynna sér mál til hlítar, heldur tekur
ákvarðanir að ráðum þeirra, sem hafa að
honum greiðastan aðgang og velur menn til
starfa eftir kunningsskap frekar en hæfileik-
um. En framar flestum öðrum forsetum hef-
ur Ronald Reagan aðstöðu til að brjótast út
úr þessari ljónagryfju, ef valdastreituhópar
kreppa að honum. Urslit kosninganna sýna
að hann hefur fágætan hæfileika til að skír-
skota beint til bandarísks almennings, og
það getur hann haft fyrir svipu á óstýrilátt
þing.
6 HELGARPÓSTURINN