Helgarpósturinn - 08.11.1984, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 08.11.1984, Blaðsíða 10
HP HELGARPÓSTURINN Rítstjóri: Ingólfur Margeirsson Ritstjórnarfulltrúi: Hallgrímur Thorsteinsson Blaðamenn: Jóhanna Sveinsdóttir, Ómar Friðriks- son og Sigmundur Ernir Rúnarsson. Útlit: Björgvin Ólafsson Ljósmyndir: Jim Smart Handrit og prófarkir: Magnea Matthíasdóttir Útgefandi: Goðgá h/f Framkvæmdastjóri: Guðmundur H. Jóhannesson Auglýsingar: Steen Johansson t Markaðsmál, sölustjórn og dreifing: Hákon Hákonarson og Sigþór Hákonarson Innheimta: Garðar Jensson. Afgreiðsla: Ásdís Bragadóttir Lausasöluverð kr. 35 Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavík, sími 8-15-11. Afgreiðsla og skrif- stofa eru að Ármúla 36. Sími 8-15-11 Setning og umbrot: Leturval s/f Prentun: Blaðaprent h/f Sveigjanlegt skólastarf Háværar deilur hafa lengi staðið um það hvernig skuli staðið að kennsluháttum og skólastarfi. Þær umræður eru gjarna þrungnar miklum tilfinn- ingahita og láta margir þá brjóstvitið eitt ráða um álit sitt og skoðanir á því hvað beri að kenna börnum og hvernig skuli að því staðið. Allt slíkt endurspeglar trú manna á félagsmótandi þátt skólans í uppvexti barna. Ýms- ar rannsóknir sem gerðar hafa verið erlendis benda þó til að mönnum sé gjarnt að ofmeta áhrifamátt skólans á viðhorf og atferli barna síðar á lífstíðinni. En hvað sem því líður er Ijóst að miklu skiptir hvernig til tekst í skólastarfi. Nokkrir skólar hafa á síðari árum tekið að færa kennslu- hætti sína og starf æ meira í frjálsræðisátt. Það er kallað sveigjanlegt skólastarf og er til umræðu í Helgarpóstinum í dag. Sjónum er beint að Vest- urbæjarskólanum í Reykjavík þar sem hvað mestar nýjungar hafa verið reyndar í nokkur ár. Agaleysið innan skólans er áberandi, þar hafa menn misst trúna á gildi prófa og því fyrir- finnast engin slík, nemendur hafa ríkulegt val um það sem þeir taka sér fyrir hendur í nám- inu og svo mætti lengi telja. Fyrirsvarsmenn skólans telja að þetta breytingastarf muni bera af sér góðan ávöxt og sé raunar í fullu samræmi við markmið grunnskólalaganna. Marktækur árangur hefur þó ekki fengist ennþá og þó svo að fjölmargir foreldrar séu ánægðir með framfarir barna sinna í skólanum eru þeir líka þónokkrir sem bera ugg í brjósti og telja að þarna fari fram áhættusamt tilraunastarf sem geti haft slæmar afleiðing- ar fyrir börnin síðar meir. Þau læri raunverulega ekki neitt í svona opnu og frjálsu skólafyr- irkomulagi. í Helgarpóstsgrein- inni kemur fram að nokkrir for- eldrar, sem þó eru ekki mót- fallnir nýjungum, hafa flutt börnin sín í aðra skóla þar sem gamla sniðið er enn að ein- hverju leyti ríkjandi. Það ber að taka fullan vara fyrir því að steypa nýjungum of aðgæslulaust yfir ófull- þroska fólk, jafnvel þó það byggi á bestu niðurstöðum at- ferlisvísinda. Erlendis hafa líka víða vaknað efasemdir um svona starf. En það gengur líka hægri bylgja yfir hugarheim Vesturlandabúa hin seinustu ár. Morgunbladiö og starfsmanna- félögin í Helgarpóstinum 1. nóvember er klausa um að undirbúningur sé haf- inn að stofnun starfsgreinafélaga á Morgunblaðinu og DV og að ,,urgs“ megi vænta innan Félags bókagerð- armanna og Blaðamannafélags ís- lands vegna þess, enda sé ekki „óhugsandi" að blaðamenn á þess- um blöðum segi sig úr BÍ. Er þess sérstaklega getið, að undirritaður kunni að segja sig úr Blaðamanna- HP er viðtal við Skúla Thoroddsen um hið nýstofnaða líknarfélag VON sem hyggst hefja innflutning á grænlenskum alkóhólistum til ís- lands í því skyni að gefa þeim bata á sjúkdómi sínum. Skúli segir að nokkrir félagar nálægt SÁÁ standi fyrir þessu framtaki sem líkt er við Freeport-ferðir íslendinga upp úr miðjum síðasta áratug. HP getur hins vegar upplýst nöfn þeirra manna sem standa að baki líknarfé- laginu VON: Hendrik Berndsen, formaður SÁÁ, Othar Örn Peter- sen, varaformaður SÁÁ, Edwald „Lilli“ Berndsen forstöðumaður og Björgúlfur Guðmundsson, for- st[óri Hafskips og fyrrv. formaður SÁÁ. Þeir félagar hafa tekið Hótel Stað á leigu í 3 mánuði sem afvötn- unar- og meðferðarheimili en enn er ekki búið að stofna félagið form- lega og enn hafa ekki greiðslur fyrir sjúklinga verið tryggðar til undir- stöðu rekstrar. Skúli Thoroddsen hefur ferðast um í Grænlandi og Skandinavíu og átt viðræður við ýmsa aðila í þessu sambandi og m.a. hafa Grænlendingar sýnt málinu mikinn áhuga og kemur fjögurra manna sendinefnd til landsins í þessum mánuði til skrafs og ráða- gerða. Búist er við að VON byrji á einum sjúklingi, því lengi er von á einum eins og þar stendur, en enn er óráðið hver það verður.. . félagi íslands verði af því að starfs- mannafélög blaðanna annisf samn- ingagerð fyrir starfsfólk þeirra ein- hverntíma í framtíðinni. Vegna þessa langar mig að taka fram, að þad er óhugsandi að ég segi mig úr mínu stéttarfélagi þótt samið yrði á vinnustaðnum um önn- ur laun en þau, sem gert er ráð fyrir í lágmarkssamningi BÍ við útgef- endur. Ég held að þetta gildi um aðra félaga rétt eins og mig — það er alls ekki hugmyndin að leggja niður stéttarfélögin þótt starfsmenn taki sjálfir að sér samningagerð á hverjum vinnustað, eins og raunar gerist víða. í þeim lauslegu kaffi- s__,- ur mjög verið í fjölmiðlum að und- anförnu og mikið rætt og ritað um úthlutunarleyfi leigubílastöðva. Nú hefur samgöngumálaráðherra Matthías Bjarnason tekið af skar- ið í þessum málum og skipað þriggja manna nefnd til að endur- skoða úthlutunarreglur á leyfum til leigubílaaksturs og mun mikil end- urskipulagning á þessum reglum í bígerð. Formaður nefndarinnar er Othar Örn Petersen lögfræðing- ur. . . M ■ W ■ikil upplausn nkir nu í Sjálfstæðisflokknum um áframhald- andi stjórnarsamstarf við framsókn- armenn (sjá Innlenda yfirsýn). Yms- ir sjálfstæðismenn vilja rifta sam- starfinu þegar í stað og efna til þing- kosninga og leggja mikla áherslu á að fá því máli framfylgt. Einn helsti talsmaður þessarar stefnu úr röðum íhaldsins er Davið Oddsson borgar- stjóri. Aðalástæðan mun vera sú að borgarstjórnarkosningar eru á næsta ári og telur borgarstjórnar- armur Sjálfstæðisflokksins það mun heppilegra að gengið sé til þing- kosninga áður en borgarstjórnar- kosningarnar fara fram svo ekki verði hægt að núa samstarfinu við framsóknarmenn þeim um nasir... u r veitingahúsaheiminum berast nú þau tíðindi að þeir Vignir Guðmundsson, áður þjónn á tímaumræðum, sem farið hafa fram á Mogganum um „kompaní-samn- ing“, eins og það er kallað, hefur aldr^i verið nefnt að nokkur maður myndi segja sig úr sínu stéttarfélagi í framhaldi af slíkri samningsgerð, hvort sem um er að ræða félaga í BI, Félagi bókagerðarmanna, Verslun- armannafélagi Reykjavíkur eða Sókn. Hafi sá möguleiki verið nefndur einhverstaðar, þá er það á mis- skilningi byggt: Samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur frá 1938 er ekki hægt að taka upp um- rætt fyrirkomulag nema í fullu sam- starfi við stéttarfélögin. Og mín ein- Broadway og Guðmundur Sigur- hansson framreiðslumaður hafi nýverið tekið á leigu veitingahúsið í Kvosinni og reki það nú af krafti. Þá mun Úlfar Eysteinsson á Pott- inum og pönnunni vera að taka yfir þann rekstur einn, þar sem meðeigandi hans, Siguröur Sum- arliðason, hefur hellt sér út í starf sem þeir félagar hafa unnið um skeið en það er að aðstoða og ráða heilt um kynningu á frystum fisk- réttum hjá Coldwater Seafood Corp. í Bandaríkjunum. . . v Wv ið á HP sögðum frá því fyrir skömmu (í 41. tbl„ þann 25. októ- ber) að nýtt Ieikhús — söngleikhús — væri í burðarliðnum og að það hefði fengið inni hjá Óperunni. Jafn- framt hermdum við að fyrsta verkið sem flutt verður sé amerískur söng- leikur sem heitir Little Shop of Horr- ors. HP hefur nú borist til eyrna að Edda Heiörún Bachmann fari með stórt hlutverk í söngleiknum en hún er ekki með öllu óvön slík- um leikjum því hún fór með heldur minna hlutverk í Gæjum og píum sem Þjóðleikhúsið hóf sýningar á sl. vetur og verður sýnt eitthvað áfram í vetur... læga skoðun er sú, að verði hug- myndin einhverntíma að veruleika, þá geti það orðið til að efla að mun faglegt starf stéttarfélaganna. Það . eru þau, sem hafa síðasta orðið. Inn- an BI — og sömuleiðis innan Félags bókagerðarmanna — hafa þessi mál lítið verið rædd — og nánast ekkert á síðustu 5—6 árum. Af þessu getur því ekki orðið alveg á næstunni — hvað BÍ varðar þarf lagabreytingu til og lagabreytingar verða aðeins gerðar á aðalfundi. Næsti aðalfund- ur BÍ verður væntanlega haldinn um mánaðamótin maí— júní 1985. Reykjavík, 5. nóvember 1984 Omar Valdimarsson M ■ W Wiklar sviptingar eru nu innan veitingahúsabransans og um- talsverð hreyfing á þeim markaði. HP hefur m.a. frétt að nú sé veit- ingastaðurinn Safarí til sölu og að núverandi eigandi Jóhannes Lár- usson (sem reyndar átti áður veit- ingareksturinn á Borginni) hyggist kaupa nýjan stað. .. ■ lokksþing Alþýðuflokks- manna verður haldið þ. 23. nóv- ember. Verður þar ýmislegt á dag- skrá en einna spenntastir bíða menn eftir formannskjörinu því nú þykir sýnt að velta eigi Kjartani Jóhannssyni úr sessi. Ymsir hópar starfa nú leynt og ljóst að því að sameina krata um nýjan foringja og hefur mikið verið fundað undan- farna daga og vikur. Tveir kandi- datar hafa nú skorið sig úr í for- manninn, þeir Árni Gunnarsson og Jón Baldvin Hannibalsson. HP hefur heyrt að Árni muni tregur fara í bardaga við Kjartan og bendir allt til þess að Jón Baldvin bjóði sig einn fram gegn Kjartani og má þá búast við tvísýnni kosningu. .. LAUSNÁ SKÁKÞRAUT A. Mansfield. Svarið er nei, það er hvítur sem er í klípu! Manni finnst hrókurinn á gl þurfa að vera þar til þess að geta svarað 1. — Kh5 með g4 mát. En ekki er auðvelt að finna bið- leik. Lausnarleikurinn er óvænt- ur: 1. Hhl! Nú er hægt að svara Kh5 með Kg3 mát. 1. - Kfl 2. He4 mát. 1. — B eitthvað 2. Dg4 mát. B. Úr tefldu tafli. Svarið er já: Eina hættan er sú að hvítur loki biskupinn inni, en svartur getur bjargað honum: 1. — Bh2+ 2. Khl + Hxf2 3. Bel Hf7 4. g3 De8 5. Dd2 Hf 1 + eða 5. Bd2 Bxg3 6. Dxg3 Hfl + og De2 + . 10 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.