Helgarpósturinn - 08.11.1984, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 08.11.1984, Blaðsíða 28
u ■ ýjustu fregnir af hugsan- legum ráðherratilfærslum innan ríkisstjórnarinnar eru þessar: Stein- grímur Hermannsson forsætis- ráðherra hefur lýst yfir þeirri skoð- un sinni við valda félaga innan Framsóknar að vel komi til greina að einhverjir núverandi ráðherrar flokksins verði látnir víkja fyrir nýj- um mönnum. Einnig hefur hann Iýst yfir þeim áhuga sínum að bæta við einum ráðherra í ríkisstjórnina frá hvorum stjórnarflokknum; þannig komist Þorsteinn inn án þess að styggja nokkurn þeirra sem fyrir sitja í stjórninni af íhaldsins hálfu. Nýi ráðherrann af framsóknar- vængnum yrði hinsvegar allt eins maður sem ekki væri í þingliði flokksins sem stendur. I því efni hef- ur Steingrímur hugsað til Guð- mundar G. Þórarinssonar, fyrr- verandi þingmanns úr Reykjavík, en ráðherradómur hans yrði til að undirbúa jarðveginn fyrir frama Guðmundar á uppstillingarlista flokksins í borginni til þingkjörs. . . M .................... ús Þór Jónsson, heldur mikla og veglega tónleika í Austurbæjarbíói á morgun, föstudag, eins og við skýrðum frá í síðasta tölublaði HP. Mun vera uppselt á tónleikana og hafa ýmsir aðilar sýnt þessu ,,come-back“ Megasar mikinn áhuga, þ. á m. sjónvarpið okkar ís- 28 HELGARPÓSTURINN lenska. Mun sjónvarpið taka upp um klukkutíma af tónleikunum og senda út síðar í mánuðinum. Víða erlendis tíðkast það á hljómleikum að þegar sjónvarpað er af þeim, flytja útvarpsstöðvar sama konsert í stereó-útvarpi þannig að áhorfend- ur sem bæði eiga sjónvarp og út- varp geta notið tónleikanna í lit- mynd sjónvarpsins og stereói út- varpsins. Þessari hugmynd reyndi sjónvarpið að koma inn hjá Rás 2 og tók forstöðumaðurinn Þorgeir Ástvaldsson vel í hugmyndina en þegar hann leitaði til framkvæmda- stjóra útvarpsins, Guðmundar Jónssonar, kom annað upp á ten- inginn. Sending Rásarinnar átti nefnilega að kosta 40Jjúsund krón- ur samkvæmt taxta FIH. Þessa upp- hæð neitaði Ríkisútvarpið að greiða og vildi semja sérstaklega við Meg- as og kó um að sleppa greiðslutöxt- um félagsins. Það var að sjálfsögðu ekki hægt og datt þá Rásin úr dæm- inu en sjónvarpið stendur eitt eftir. Það er þó altént huggun. .. E ftir að bandaríska skipafélag- ið Rainbow Navigation hóf flutn- inga fyrir varnarliðið á Keflavíkur- flugvelli hefur þrýstingur mjög ágerst á að bjóða út öll verkefni vegna veru hersins hér á landi. Þessi þrýstingur hefur meðal ann- ars komið frá fyrirtækjum vestan hafs, og svo ekki síður frá Verk- takasambandi íslands sem lengi hefur verið það þyrnir í augum að Islenskir aðalverktakar skuli fá að sitja einir að þessum væna mat- katli. Nú er svo komið að utanríkis- ráðherra, Geir Hallgrímsson, hefur skipað nefnd til að athuga raunhæfa möguleika á þessum frjálsu útboðum. Nefndin er raönn- uð þeim Thor Ó. Thors frá íslensk- um aðalverktökum, Sverri Hauki Gunnlaugssyni frá ríkinu, Ólafi Þorsteinssyni formanni Verktaka- sambandsins, Othari Erni Peter- sen framkvæmdastjóra Verktaka- sambandsins og Jóni Jónssyni frá Keflavíkurverktökum. Til þess er tekið að tveir menn eru í nefndinni af hálfu Verktakasambandsins, en aðeins einn frá íslenskum aðalverk- tökum, og er efalaust að það eigi eft- ir að vega þungt í niðurstöðunni. Nefnd þessi bíður nú gagna frá Bandaríkjunum sem greina frá því hvernig staðið er að samskonar út- boðum í öðrum herstöðvum Banda- ríkjahers, en þrátt fyrir þá bið, þykir nú strax orðið ljóst að hið mikla veldi íslenska aðalverktaka á Kefla- víkurflugvelli hefur misst sína ör- uggu fótfestu þar... RE S TAIJRANT VINNUFÉLAGAR HITTUMST í HÁDEGINU Á HRAFNINUM Við bjóðum góðan mat á hóflegu verði og léttar veigar Jóhann Bragason matreiðslumeistari. Sýnishorn af matseðli: Forréttir Lifrarpaté með ristuðu brauði kr. 140.- Súpur Rjómalöguð krabbasúpa kr. 105.- Fiskréttir Heilsteikt rauðsprettuflök með hnetujógúrtsósu kr. 220.- Kjötréttir Heilsteikt lambainnlæri með rjómalagaðri piparsósu. Eftirréttir Skyrterta með kiwi og Grand Marnier kr. 115.- Björn Guðmundsson matreiðslumaður. Borðapantanir í síma 685670 Skipholti 37 EUROCARO

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.