Helgarpósturinn - 07.02.1985, Qupperneq 2
FREJTAPpSTUR
Tillögur stjórnarinnar í efnahagsmálum I
Efnahagstillögur ríkisstjórnar Steingríms Hermanns-
sonar hafa verið til umræðu í vikunni. Talað er um sérstaka j
hækkun á áfengi og tóbaki er gefa muni ríkissjóði 150 millj-
ónir króna í tekjur, niðurskurð á framkvæmdum Lands- I
virkjunar um 350 milljónir. Þá vantar 500 milljónir til þess '
að lækka lánsfjáráætlun um einn milljarð og hefur Stein- ■
grímur reifað þá hugmynd sína að það fé fáist með því að •
heimila sölu á sterku öli og skattleggja það ríkulega.
Lausn á vanda húsbyggjenda!
Albert Guðmundsson fjármálaráðherra hefur komið fram |
með þá tillögu til lausnar vanda húsbyggjenda og húskaup- '
enda að lán þeirra verði lengd til muna frá því sem nú er. Þau l
verði að auki gerð vísitölufrjáls fyrs.tu þrjú til fimm árin. I
Bíkið hættir sjóefnavinnslu
Iðnaðarráðherra, Sverrir Hermannsson, hefur lagt til að
hið opinbera hætti þátttöku sinni í starfsemi Sjóefnavinnsl- )
unnar hf. á Reykjanesi, en ríkið hefur þegar lagt um 400 '
milljónir króna úr sjóðum landsmanna í þetta fyrirtæki, -
sem Iðntæknistofnun ríkisins sagði um í úttektarskýrslu |
sinni fyrir nokkru, að væri svo gott sem glatað fyrirbrigði.
BJ neitar samkrulli við aðra flokka '
Ljóst er að engar formlegar viðræður verða af hálfu i
Bandalags jafnaðarmanna við þá flokka á vinstri væng I
stjórnmálanna sem lýst hafa yfir áhuga á samstarfi við það. ,
Þetta kom meðal annars fram á landsfundi bandalagsins j
sem lauk nú um helgina. Á fundinum var kosin 30 manna
landsnefnd. Formaður hennar var kosinn Kristófer Már I
Kristinsson en varaformaður Valgerður Bjarnadóttir. *
Fjárreiðufals í bílainnflutningi
Framkvæmdastjóri bílainnflutningsfirmans Mótorskips
var úrskurðaður í gæsluvarðhald á föstudag og hald lagt á
allt bókhald fyrirtækisins vegna meintrar fölsunar á reikn- '
ingum þess og tollabrota. Fjárhæðir í þessu dæmi munu i
skipta verulegum upphæðum. Þetta mál kemur upp á sama I
tíma og Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins,
leggur til á þingi að gerð verði ítarleg könnun á innflutnings-
starfseminni á íslandi.
Framhaldsskólahald í lamasessi eftir 3 vikur! 1
Uppsagnir 440 framhaldsskólakennara koma til fram- i
kvæmda 1. mars og munu lama starf semi flestra f ramhalds- I
skóla í landinu, en þess má til dæmis geta að allir kennarar
í öllum framhaldsskólum á suðvesturhorni landsins eru
meðal þeirra sem eru að segja upp. Samningar milli mennta-
málaráðherra og kennara standa nú yfir en gangur þeirra I
þykir ekki gefa tilefni til bjartsýni.
Nýtt námaleyfi Kísiliðjunnar I
Iðnaðarráðherra hefur undirritað heimild til endurnýjun-
ar á námaleyfi til Kísiliðjunnar við Mývatn til næstu fimmt- |
án ára, þvert ofan í tillögur Náttúruverndarráðs sem telur
þessa heimild fásinnu og lítt byggða á þeim rannsóknum I
sem gerðar hafa verið á svæðinu í sambandi við frekara
rask. Náttúruverndarráð hyggst láta reyna á lögmæti þess I
að ráðhera gefi þessa heimild einhliða. I
Átök í verkalýðsarmi Alþýðubandalagsins
Bjarnfríður Leósdóttir var kosin í snarpri formanns-
kosningu hjá verkalýðsmálaráði Alþýðubandalagsins á |
mánudag og felldi þannig Baldur Óskarsson sem sótti einnig
um stöðuna og þótti fyrirfram líklegastur til að hreppa I
hana. Þröstur Ólafsson, einn alþýðubandalagsmanna, hef- •
ur látið hafa eftir sér, að kosningunni kunni að fylgja innri
átök í verkalýðsarmi flokksins.
Nýtt skipulag á flugvallarsvæðinu í Reykjavík I
Helstu nýjungar í skipulagi sem gert hefur verið um flug- '
völlinn í Reykjavík og framtíð hans eru að flugstöð fyrir inn- ,
anlandsflugið verði reist við Loftleiðahótelið. Þá er lagt til að |
ein flugbrautin — austur-vestur-brautin — verði lengd um
300 metra í sjó fram en það yrði til þess að flugumferð yfir
miðborginni myndi minnka verulega frá því sem nú er.
Fréttapunktar: 1
• Bensín hækkaði í vikunni um 3,1 prósent og kostar lítr- i
inn nú krónur 26,70. I
• Áfengi og tóbak var hækkað í vikunni um 15 til 30% að ,
ráði ríkisstjórnarinnar til að leysa efnahagsvandann að |
hluta. Flaska af brennivíni kostar nú 680 krónur en algeng
amerísk sígarettutegund 76,30 krónur.
• Austurrískt fyrirtæki hefur sýnt áhuga á að kanna aðild
að Kísilmálmverksmiðjunni á Reyöarfirði. i
• Fyrsta þota íslendinga, Gullfaxi, sem hingað kom 1967, I
hefur nú verið seld til útlanda. Sniff. ,
• Á fundi Stéttarsambands bænda í vikunni kom meðal |
annars fram að íslendingar ala einhver verstu svín í allri
Evrópu.
• Þórdís Þorvaldsdóttir bókasafnsfræðingur hefur verið *
ráðin borgarbókavörður til eins árs, í stað Elfu-Bjarkar I
Gunnarsdóttur sem nýlega tók við starfi framkvæmda- •
stjóra útvarps. ,
• Verkfall undírmanna á farskipum sem hófst síðastliðinn |
miðvikudag, stendur enn, og miðar lítt í samkomulagsátt í
kjaradeilunni. Hartnær tíu farskip hafa nú þegar stöðvast |
vegna verkfallsins.
• Heildarfjárþörf Kvikmyndasjóðs er nær 200 milljónir
króna samkvæmt nýjum reglum þar að lútandi og fjölda ’
umsókna í ár. Rikisstjórnin hafði ákveðið rúmar 30 milljón- i
ir í sjóðinn.
• Samvinnuferðir-Landsýn hafa ákveðið að endurgreiða ,
viðskiptavinum sínum 5 milljón króna gróða sem varð hjá |
ferðaskrifstofunni í fyrra.
• íslendingar lentu í öðru sæti á franska handboltamótinu I
sem lauk um helgina, töpuðu naumt fyrir Tékkum í sínum '
síðasta leik, og þar með unnu Tékkar mótið. i
Litla tóbaksbúðin
Ingólfur I Tóbakssölunni.
Smartmynd.
★ Þegar gengið er niður Lauga-
veginn, vinstra megin, og mann
vantar allt í einu eldspýtur til að
stanga úr tönnunum eftir vel
heppnaðan hádegisverð, þá er
opin lítil búlla í eldgömlu húsi
númer fjórtán. Hálfrar aldar
gamalt kókskilti hangir yfir
hurðinni og gefur forsmekkinn
af innviðum búðarinnar.
Ingólfur Hafberg tekur á móti
manni við búðarborðið, lítill
maður vexti og svipsterkur og
spyr eflaust hvað vanti. Að
fengnum eldspýtunum segir
hann kannski að reyndar heiti
þessi búlla hans Tóbakssalan
fullu nafni, en nei, hann hafi
ekki hingað til séð ástæðu til
þess að fá sér neonljósaskilti
að utanverðu til að minna á
nafngiftina. Það myndi bara
skemma framhlið þessa vina-
legs húss, sem hann kveðst
ætla að hafi verið byggt 1896
og búið hafi verið í fram til
1926, þegar farið var að höndla
þar með tóbakið.
Sjálfur hafi hann tekið í nefið
frá því að hann tók við rekstrin-
um, tja, fyrir einum fjörutíu
árum, í loks stríðsins, en þetta
sé sama tóbakið og þá. í raun-
inni hafi fátt eitt breyst.. .☆
HELGARPUSTURINN
Efnahagstillögur Steingríms
Manni verður um og ó,
áhyggjurnar stórar.
Inn á milli eru þó
ýmsir góðir bjórar.
Niðri
Heitur heimilismatur
í hádeginu
Kaffi, smurt brauð
og kökur.
Hamborgarar og
franskar kartöflur.
Heitar og kaldar
samlokur
Nœg bílastæði
Opið virka daga fré kl. 7.00—21.00,
laugardaga frá kl. 7.30—18.00
Allan mat er hægt að taka með sér út
Sundakaffi
við Sundahöfn. Sími 36320
2 HELGARPÓSTURINN