Helgarpósturinn - 07.02.1985, Blaðsíða 7
Lögfræðingar og viðskiptafræðingar
selja nöfn sin fyrir 15% af sölulaunum
Olöglegar fasteignasölur i Reykjavík
LYKILMENNIRNIR
ERU BORGAÐIR
LEPPAR!
eftir Halldór Halldórsson mynd Jim Smart
Helgarpósturinn hefur fyTir því óyggjandi heimildir, að helmingur-
inn af öllum fasteignasölum í Reykjavík sé ólöglegur. Blaðið hefur
undir höndum upplýsingar um hvaða fasteignasölur þetta eru og á
hvern hátt þær eru ólöglegar. Um er að ræða 27 fasteignasölur eða
rösklega helminginn af öllum starfandi fasteignasölum á höfuð-
borgarsvæðinu. Þá hefur HP staðfestar heimildir fyrir því, að upp-
lýsingum um þetta hafi verið komið með formlegum hætti til bæði
lögreglustjóraembættisins í Reykjavík og dómsmálaráðuneytisins.
HP hefur sannreynt heimildir sínar á beinan og óbeinan hátt og
komið hefur í ljós, að þær ásakanir, sem lagðar hafa verið á borð
dómsmálaráðuneytisins og lögreglustjóra, eiga við rök að styðjast.
í sem fæstum orðum snýst mál þetta um fasteignasölur sem ekki
ættu að fá að starfa samkvæmt lögum um fasteignasölu. Eigendur
fyrirtækjanna fara í kringum lögin með því að fá einstaklinga til
þess að ljá fyrirtækjunum nöfn sín til þess að þannig líti út að þau
séu lögleg.
HELGARPÓSTURINN 7