Helgarpósturinn - 07.02.1985, Side 9

Helgarpósturinn - 07.02.1985, Side 9
Olöglegar fasteignasölur i Reykjavík Þegar HP setti sig í spor ______^vcuAedomgurinn, sem vinnur hjá ríkinu — líka: . .Þaö getur verið að hann líti inn hjá okkur. . .“ Líti inn? Já, áttu við, að hann líti inn hjá ykkur, já, já. . .? Hvernig næ ég í hann? ,,Ja, nú veit ég ekki, bara heima hjá honum. Get ég eitthvað hjálpað þér? Nei. . . ég þarf bara að ná í hann, hann er ekki í símaskránni. . . úð er hara það, að hann er ekkert nerna, hann les bara yfir samninga.“ Já, já, hann er semsagt ekki með aðsetur hjá ykkur, vinnur bara heima? ,,Ja, hann vinnur hjá ríkinu, sko.“ Næ ég þá í hann einhvers staðar. . .? ,,Já, . . . það er hjá tölvudeildinni hjá Ríkisspítölunum." ,,Við hvern tala ég með leyfi?“ Guðjón. ,,Guðjón?“ Guðjón Jónsson. sölunnar Þingholts, en hann er virk- ur félagi í Félagi fasteignasala. Hann sagði, að ástandið eins og það væri núna væri óþolandi. Hins vegar bæri að gæta þess, að enda þótt þessar ólöglegu fasteignasölur væru svona margar, væri alls ekki þar með sagt að hér væru bara bóf- ar á ferðinni. Meðal þess, sem Félag fasteigna- sala hefur gert, er að greina félaga sína frá öðrum fasteignasölum í aug- lýsingadálkum Morgunblaðsins með því að setja merki félagsins í auglýsingar félaga sinna. Félagar eru nú 28 fasteignasalar, en að auki eru jafnan taldir fjórir aðrir fast- eignasalar „af gamla skólanum", sem ekki hirða um að vera með í fé- laginu. En þessi aðgreining er notuð til þess að skilja á milli hinna löglegu í FF og hinna ólöglegu. Hins vegar getur að líta annað merki í auglýsingum tveggja eða þriggja fasteignasala. Það er FFR, sem mun vera skammstöfun á Fé- lagi fasteignasala með réttindi. „Þetta er eins konar mótleikur, blekking þessara manna. Þeir fengu einfaldlega ekki inngöngu í sjálft fé- lagið,“ segir Friðrik Stefánsson í Þingholti. í janúar fékk FF í hendur álits- gerð, sem Þórður Gunnarsson hæstaréttarlögmaður vann fyrir fé- lagið. Hún fjallar um „heimild ein- staklinga og félaga til að kaupa og selja fasteignir fyrir aðra". Þar kemst Þórður að þeirri niðurstöðu, að „all- margar fasteignasölur á Stór- Reykjavíkursvæðinu og e.t.v. víðar (eru) reknar með þeim hætti að fast- eignasalinn hefur skrifstofu á öðr- um stað en fasteignasalan og er þáttur fasteignasalans í mesta lagi fólginn í yfirlestri samninga áður en þeir eru endanlega undirritaðir". „Þjóðfélagslega óæskilegt“ Þetta telur Þórður Gunnarsson vera brot á lögum um fasteignasölu og hugsanlega brot á lögum um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti. Síðan segir Þórður: „Virðist löngu orðið tímabært að gegn þessu ástandi verði spornað, sem teljast verður þjóðfélagslega óæskilegt og andstætt eðlilegum hagsmunum fasteignasala." Hér er rétt að geta þess, að margir þeirra sem HP ræddi við um þessi mál töldu aðgerðaieysi yfirvalda ef til vill stafa af þeirri einföldu ástæðu, að hér væri mestan part við að eiga lögfræðinga og þeir væru „ósnertanlegir", eins og í svo mörg- um öðrum tilvikum. Þessu vísaði m.a. William Möller hjá lögreglu- stjóra á bug. HP þótti það svolítið kostulegt, þegar það kom upp, að „leppur" Fasteignahallarinnar væri fram- kvæmdastjóri Lögmannafélags ís- lands. Til þess að sannreyna þessa fregn hringdum við í fyrirtækið og var þá staðfest, að lögfræðingur fyr- irtækisins væri Hafþór Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri Lögmannafé- lagsins. Við slógum á þráðinn til Hafþórs og þá kom í ljós, að hann hafði hætt sem „samstarfsaðili" eða „ábyrgð- araðili" í marz í fyrra. Siöareglur lögfræðinga segja „óheimilt“ Þegar við skýrðum honum frá því að okkur hefði verið vísað á hann, sagði Hafþór að ástæðan hlyti að vera kunnáttuleysi starfsmanns Fasteignahallarinnar eða sú stað- reynd, að hann bæri ábyrgð á samn- ingum sem hann hafði staðið að áð- ur en hann hætti eftir fimm eða sex ára samstarf við fasteignasöluna. (Núna leppar Sigtryggur Helgason, viðskiptafræðingur hjá Daihatzu- umboðinu, fyrir fyrirtækið.) HP spurði Hafþór hvort hann hefði hætt vegna þess að hann hefði áttað sig á því að hér væri um ólög- legt athæfi að ræða. Hann kvað svo ekki vera, enda sæi hann ekki að þetta væri ólöglegt. Honum hefði einfaldlega fundizt vera kominn tími til að hætta. Hvað um það. í siðareglum lög- manna segir í 15. grein: „Lögmanni, sem ber ábyrgð á samningsgerð og öðrum skyldum samkvæmt lögum um fasteigna- sölu, er rétt og skylt að láta nafns síns getið á skjölum og í auglýsing- um þeirrar fasteignasölu sem rekin er á ábyrgð hans, enda er honum óheimilt aö reka fasteignasölu utan þess staðar, þar sem hann hefir starfsstofu." Þetta er kjarni málsins. Það stríðir bæði gegn lögum og siðareglum lögfræðinga, að hafa með höndum fasteignasölu en sitja svo í eigin fyrirtæki eða opinberu úti í bæ og láta aðra greiða sér þókn- un fyrir að fá að nota nafnið sitt. Félag fasteignasala Agnar Gústafsson hrl., Málflutnings- og fasteignastofa, Eiríksgötu 4, Reykjavík. Bustaðir, Klapparstíg 26, R., Helgi H. Jónsson, viðsk.fr. Eignamiðlunin, Þingholtsstræti 3, R., Þórólfur Halldórsson lögfr. Eignasalan, Ingólfsstræti 8, R., Magnús Einarsson lögg.fasts. Eignaval, Laugavegi 18, R., Grétar Haraldsson hrl. Fasteignamarkaourinn, Óðinsgötu 4, R., Magnús Guðlaugsson. Fasteignaþjónustan, Austurstræti 17, R., Þorsteinn Steingrímsson lögg.fasts. Gimli, Þórsgötu 26, R., Árni Stefánsson viðsk.fr. Huginn, Templarasundi 3, R., Óskar Mikaelsson lögg.fasts. Hús & eignir, Bankastræti 6, R., Lúðvík Gizurarson hrl. HÚS & eignir, Deildartúni 3, Akranesi, Hallgrímur Hallgrímsson lögg.fasts. Húsaval, Flókaa ötu 1, R., Helgi Ólafsson lögg.fasts. Húseignin, Skólavörðustíg 18, R., Pétur Gunnlaugsson lögfr. Húseignir & skip, Veltusundi 1, R., Daníel Árnason lögg.fasts. Húsvangur, Laugavegi 24, R., Viðar Böðvarsson viðsk.fr. Kjöreign sf., Ármúla 21, R., Dan V.S. Wiium lögfr. Laufás, Síðumúla 17, R., Magnús Axelsson lögg.fasts. Skúlatún, Skúlatúni 6, R., Kristinn Bernburg viðsk.fr. Vaan E. Jónsson, fasteignasala, Suðurlandsbraut 18, R. Atíí Vaansson lögfr. Þinghoít, Þingholtsstræti 1, R., Friðrik Stefánsson viðsk.fr. Grund, Ólafur Geirsson viðsk.fr. Stakfell, Þórhildur Sandholt Eignamiðlun, Sverrir Kristinsson Kjóreign, Kristján V. Kristjánsson Húsakaup, Ragnar Tómasson Húsafell, Bergur Guðnason HELGARPÓSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.