Helgarpósturinn - 07.02.1985, Síða 12
Niðurstöður skoðanakönnunar
Aðalblaðsins á fylgi
stjórnmálaflokkanna:
Rratar
vinna
rosalega d
— Yrðu einir þingmarvrva
á Alþirvgi!
Alþýðuflokkur Jóns Baldvins
Hannibalssonar myndi ná svo gott
sem öllum þingsætum og yrði eig-
inlega bara eini flókkurinn á Al-
þingi ef kosið yrði í dag, miðað við
niðurstöður skoðanakönnunar
sem Aðalblaðið gerði rétt í þessu.
Aðrir flokkar og listar eru gjör-
samlega búnir að vera, og er varla
eyðandi frekari orðum á þá.
Af öllu úrtakinu fær flokkur
Jóns Baldvins nú 98,3%, en hafði
11,7% við síðustu kosningar.
Flokkur mannsins kemur næst
með 0,2%, en aðrir flokkar og list-
ar heldur minna og flestir ekkert.
Óákveðnir voru 0,7% en allir
vildu hinsvegar svara.
Spurt var: „Ef kosið væri í dag,
fyndist þér þá ekki langsamlega
sniðugast og mest sjarmerandi,
eða þú veist. . ., huggó; að kjósa
Brynd...! æ, nei, fyrirgefðu, ég
meinti náttúrlega, Jón Baldvin
Hannibalsson og flokk hennar, nei,
ég meina mannsins hennar, og ef
ekki, já: Ef ekki, fyndist þér það
ekki æðislega pínlegt fyrir Jón að
koma illa út úr þessari skoðana-
könnun. Og myndirðu þá ekki
vorkenna manninum?
Til þess að þetta verði sambæri-
legt við kosningar er rétt að taka
aðeins þá sem tóku afstöðu í þess-
ari könnun Aðalblaðsins. Alþýðu-
flokkurinn fær þá alla þingmenn
löggjafarsamkundunnar, en hefur
nú sex á þingi. Aukningin yrði
semsagt 54 þingmenn, miðað við
núverandi fjölda þingmanna.
Spyrlar ( skoðana-
könnun Aðalblaðsins
voru svo vinalegir að
fara í hús til þeirra sem
í úrtakinu lentu og
dvelja með þeim dag-
stund og þiggja kaffi og
bakkelsi á meðan hver
og einn var að ákveða
sig. Þessi skemmtilega
nýbreytni ( vinnslu
skoðanakannana hefur
sjálfsagt haft sín áhrif á
hvað fáir reyndust óá-
kveðnir í könnuninni,
eða aðeins 0,7%.
Fréttaritari Aðalblaðsins I Mur-
mansk, Evgeni Olapov, náði þessari
skemmtilegu mynd I bjórverksmiðjunni
f Murmansk af Helga Seljan smakka á
fyrstu sendingunni af keisaramiðinum
fræga, sem fara á til Islands á vegum
umboðs þingmannsins, Stýkis sf. Við
hliö Helga situr framleiðslustjóri Gapra-
firmans og hvetur austfjarðaþing-
manninn til að selj'ann, þe^.s. bjórinn.
Sovésku bjórumboðin hans Helga Seljan vekja athygli:
Er nú staddur á starfskynningu í
Gapra-verksmiðjunum
Sfmamynd APN.
Síminn á ritstjórnarskrifstofum
Aðalblaðsins hefur vægast sagt
verið rauðglóandi allt frá því blað-
ið kom á göturnar í gærdag með
þá frétt að Helgi Seijan þingmað-
ur, yfirlýstur andstæðingur bjórs í
hvaða mynd sem er, væri búinn að
komast yfir öll fáanleg bjórumboð
frá Sovétríkjunum, þar á meðal
hina göfugu sort Vrodstípratíno-
vatzký Gapra, keisaramjöðinn
grimmsferka, en talið er fullvíst að
drykkurinn hafi fyrst verið brugg-
aður í tíð Ivans grimma og þaðan
sé nafngiftin komin.
Þessa söguskoðun staðfesti Árni
Bergmann ritstjóri Þjóðviljans og
sovétfræðingur í stuttu viðtali við
Aðalblaðið í morgun, en að öðru
Ieyti vildi hann ekki tjá sig um
málið að svo stöddu.
Ekki hefur enn náðst í Helga
Seljan vegna þessa máls, en hann
hefur nú um nokkurt skeið verið
staddur á starfskynningu í Gapra-
verksmiðjunum í Murmansk, þar
sem aðalstöðvar keisaramjöðsins
eru til húsa. Aðalblaðið hefur hins-
vegar komist að því eftir öðrum
heimildum, að hafin sé bygging
birgðastöðvar í Neskaupstað á
nafni móðurbróður Helga, þar sem
líklegt þykir að sovéska bjórnum
verði landað og komið í hús á
næstu mánuðum eða þegar sýnt
verði að bjórfrumvarpið komist í
gegn á þingi.
„Við vissum allan tímann að
þetta væri bara í kokinu á Helga,"
segir ónefndur heimildarmaður
Aðalblaðsins á þingi og á þá við
bjórandstöðu austfjarðaþing-
mannsins. „Hann var bara að
þykjast og tefja afgreiðslu málsins
þar til þessi umboð voru endan-
lega orðin hans.“
Samkvæmt upplýsingum Firma-
skrár ríkisins, hefur Helgi Seljan
sótt um nafnið Stýki sf. á þetta fyr-
irtæki sitt, en Orðabók menning-
arsjóðs segir það orð vera dregið
af nafnorðinu stúka.
HVAÐ SEGJA
FORMENNIRNIR
GM KÖNNGNINA:
Jón Baldvin
Hannibalsson:
„Ég á ísland“
„Ég verð að viðurkenna að ég
bjóst við þessu, enda er vel spurt
og alls ekki leiðandi eins og verið
hefur í skoðanakönnunum hinna
blaðanna að undanförnu. Það er
ljóst af þessu, eins og ég hef reynd-
ar haldið fram allt frá því að ég
fæddist í Alþýðuhúsinu, að ég á ís-
land og enginn annar," sagði Jón.
Steingrímur
Hermannsson:
„Soldið hissa“
„Manni bregður nú bara soldið
við þetta," sagði forsætisráðherra
þegar niðurstöður skoðanakönn-
unarinnar voru bornar undir
hann: „Annars hef ég aldrei lagt
það í vana minn að taka mikið
mark á þessum skoðanakönnun-
um ykkar í sjálfu sér. Þetta er í
mesta lagi einhver vísbending, en
ég er ekkert ægilega hræddur."
Þorsteinn Pálsson:
„Skrítið. . .“
„Ég átta mig nú bara ekki alveg
á þessu, þetta er svo skrítið," hafði
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, að segja um út-
komu síns flokks í könnun blaðs-
ins. Formaðurinn bætti við: „Það
er samt ljóst að við verðum að fara
að vinna okkur út úr þessum
vanda."
Svavar Gestsson:
„Óraunhæf
könnun“
„Að því leyti er okkur alþýðu-
bandalagsmenn varðar, þá verð
ég að segja að þetta er minna en
ég bjóst við. En um þessa könnun
sem slíka vil ég segja þetta: Hún er
í fyllsta máta mjög óraunhæf, mér
finnst spurningin í henni, ja, hvað
skal segja, allt að því leiðandi og er
ekki laust við að hún sé svolítið
hliðholl krötunum."
Guðmundur Einarsson:
„Frekar fyndið“
„Mér finnast þessar niðurstöður
nú bara frekar fyndnar, ha, ég get
ekki sagt annað. Hvað útkomu
Bandalags jafnaðarmanna snertir,
þá sannar þessi könnun eins og
allar aðrar sem gerðar hafa verið
að undanförnu að við höfum
nokkuð örugga undirstöðu til að
byggja frekara fylgi okkar á,“ sagði
Guðmundur Einarsson þing-
flokksformaður.
Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir:
„Vil lítið segja“
„Ég vil lítið gefa út á þessa skoð-
anakönnun, við stelpurnar eigum
eftir að skoða hana í sameiningu
og fyrr ætla ég ekki að mynda mér
skoðun um niðurstöður hennar,"
sagði Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir hjá Samtökum um kvenna-
lista.
12 HELGARPÓSTURINN