Helgarpósturinn - 15.04.1987, Blaðsíða 7
eftir Jónínu Leósdóttur mynd Jim Smart
Ohugnanleg reynslusaga rúmlega fertugrar
konu, sem bundin er uið hjólastól fyrir lífstíð
eftir ígerð í kjölfar smávœgilegrar aðgerðar á
Landspítalanum
ímyndaöu þér ad þig sé ad dreyma: Þú átt ad gangast
undir smávœgilega skurdaðgerd á spítala. Þú ferð
áhyggjulaus inn á skurðstofuna, grunlaus um að þar
með verður lífþitt lagt í rúst. Upp frá þessari stundu ertu
stofnanamatur. Fatlaður einstaklingur í hjólastól.
Fyrir þig er þetta vondur draumur. Fyrir liðlega fertuga
konu, sem við skulum kalla Svölu, var þetta raunveru-
leiki. Hrœðileg martröð, sem hún mun ALDREI vakna af.
Hún verður bundin við hjólastól það sem eftir er œvinn-
ar, 75% öryrki vegna mistaka.
Igerð komst í tvo litla skurði þegar Svala lá á Landspít-
alanum. Úrskurður hjúkrunarfólks var sá, að hún vœri
með flensu, en í raun voru taugastöðvar sem bera boð
niður í fœturna að eyðileggjast.
Mál konunnar verður innan skamms tekið fyrir í Borg-
ardómi. Lögmaður hennar hefur krafist margra milljóna
króna í skaðabœtur. Sá lífsharmleikur, sem Svala hefur
verið og er að ganga í gegnum, verður þó aldrei bœttur
með peningum.
Bundin viö hjólastól
til œviloka
Höföar skaöabótamál
á hendur ríkinu
Úrskuröuö meö flensu
og ígerö ekki
meöhöndluö
Það fylgdi því undarleg tilfinning
að fara á fund konu, sem maður
vissi að hafði lent í þeirri óhugnan-
legu lífsreynslu að gangast undir lít-
ilsháttar aðgerð á spítala og verða
upp frá því fötluð og bundin við
hjólastól. Ég vissi að hjónaband
hennar hafði endað í skilnaði, eftir
að hún var orðin veik. Hún getur
ekki haft börnin sín hjá sér fyrr en
rætist úr peningamálunum, því
Svala býr sem stendur við afar
þröngan húsakost, þó svo fólkið
sem hún leigir hjá sé henni afar
hjálplegt.
Svala hefur liðið líkams- og sálar-
kvalir í mörg ár. En hún hefur samt
sem áður barist af mikilli hörku.
Hún er í baráttu við Kerfið. Og inn-
an skamms verður mál hennar á
hendur fjármálaráðherra, fyrir
hönd ríkissjóðs, tekið fyrir í Borgar-
dómi. Þetta er prófmál, enda mun
þetta vera fyrsta mál sinnar tegund-
ar fyrir dómi. Skaðabótamál ungrar
konu, sem fyrir mistök varð 75%
öryrki.
Allt þetta vissi ég áður en við
Svala hittumst á heimili systur
hennar fyrir skemmstu, en hvernig
þessi dýrkeyptu mistök gerðust og
hvernig sálarástand þolandans var
og er... það ætlaði hún að segja mér.
OFVIRKANDI
ÆÐASAMDRÁTTUR
Þegar ég barði að dyrum, var kall-
að „kom inn“ fyrir innan. En í for-
stofunni var engan að sjá og ekki
heldur í ganginum, sem við tók. Við
kölluðumst á þar til ég hafði rakið
mig inn í stofu. Svala sat í sófanum,
grönn, dökkhærð, klædd í gallabux-
HELGARPÓSTURINN 7