Helgarpósturinn - 15.04.1987, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 15.04.1987, Blaðsíða 14
eftir Friðrik Þór Guðmundsson myndir Jim Smart Lucas lávarður: „The Scots are a funny lot of people." Isíðustu viku gafst okkur hin- um jarðbundnu íslendingum tækifæri á að virða fyrir okkur alvöru lávarö og ekki á hverj- um degi sem það happ hendir okkur. Á vegum Verslunarráds /s- lands var hér staddur Lucas lávarö- ur af Chilworth, ráðherra viðskipta og iðnaðar, og um leið málsvari rík- isstjórnar Margrétar Thatcher í hinni virðulegu lávarðadeild breska þingsins. Við litum inn á „morgun- verðarfund", ásamt rjóma íslenskra viðskiptamanna með lávarðinum, þar sem hann reifaði viðskipti land- anna og þá sér í lagi í ljósi hugmynd- ar um sameiningu Evrópu í eitt markaðssvæði. 14 HELGARPÓSTURINN Eftir að viðstaddir höfðu gengið hringinn í kringum morgunverðar- borðið og fengið sér væntanlega sæmilega dæmigerðan breskan morgunverð, kynnti Jóhann Ólafs- son, formaður V.í. hinn góða gest og erindið hófst. Um 55 gestir hlýddu á Lucas lávarð fjalla um framtíð Evr- ópubandalagsins, viðhorfin í upp- hafi nýrra viðskiptaviðræðna í GATT, mikilvægi utanríkisviðskipta í efnahagslífi þjóða og hvernig örva megi og styðja við útflutninginn. Áheyrendurnir voru alvarlegir á svip, klæðskerasaumaðir og ábyrgð- arfullir. Þeir voru á öllum aldri, en allir steyptir í sama „svart-hvíta“ mótið. Líka þrjár af fjórum konum, sem sáust innan um alla karlana. Eina undantekningin var áberandi; glæsileg kona í hárauðri dragt. En hún var ensk, gestkomandi frá breska verslunarráðinu, fröken Kiki Allerman. „ ... Á sínum tíma var Bretland í öðru sæti yfir þau lönd sem fluttu mest af varningi til íslands, en nú er Bretland aðeins í fimmta sæti með rúmlega 8% af innflutningi landsins. Vitaskuld er ég óánægður með þessa þróun og ég vonast til að þið getið upplýst mig um hvort þetta er okkur að kenna eða ykkur ...“ Lucas lávarður talaði skýrt og skorinort. Sjóaður gestur upplýsti, að mállýskan væri millistéttar- mannsins og bankastjóraleg Lund- únamállýska. Röddin sterk og féll eðlilega inn í svart-hvítan áheyr- endahópinn, eins og snjókoma í drifalogni. Eina sem truflaði: Þjónar í gráum mittisjökkum með ljósbláar slaufur, rukkandi fyrir morgunmat- inn. „ ... Efnahagsbandalagið og Frí- verslunarbandalagið þurfa að auka samvinnu sín á milli og það voru einmitt Bretar sem höfðu frum- kvæði að því að ályktun í fyrra um aukna samvinnu á þessum vett- vangi...“ Sigmar Pormar, blaðafulltrúi V.í. upplýsti að sumir gestanna kæmu af einskærum áhuga, en aðrir sérstak- lega vegna viðskiptahagsmuna sinna og auðvitað blandast þetta saman. Eg horfi í svip gestanna; við- brögðin eru ekkert sjálfgefin. Þetta er nú ekki eins og t.d. kosningafund- ur, þar sem hrópað er og kallað framí. Enginn aðdáunar- og undrun- arkliður. Af hverju ekki? Prúður og stilltur hópur, sem kann sig. Lávarð- urinn sjálfur féll vel inn í heildar- myndina; jakkafötin óaðfinnanleg, bindið dökkt, skyrtan ljósblá og yfir- vararskeggið vel snyrt. Af ytra borði hans að dæma gæti hann allt eins verið stjórnarformaður Flugleiða, forstjóri SÍS, eða bankastjóri Lands- bankans. „ . . . það þjónar auðvitað engum tilgangi að leggja skatt á vöru ef skatturinn er síðan hærri en verð vörunnar sjálfrar. Við berjumst hart gegn þingmáium sem bera slíkt með sér . ..“ Að ræðu Lucasar lá- varðar lokinni tóku við fyrirspurnir. For- vitnilegust var þó fyr- irspurn Ragnars Hall- dórssonar. Hann upplýsti lávarðinn um, að þúsundir íslenskra hús- mœdra færu árlega til Glasgow í verslunarerindum og spurði hvort þau viðskipti væru inní tölum hans um viðskipti landanna. Það vissi lá- varðurinn ekki almennilega: „The Scots are a funny lot of people". En Ragnar upplýsti einnig, að fyrir um 10 árum hefði álverið keypt mikið af Bretum, en síðan nánast gefist upp, því ómögulegt reyndist í mörgum tilfellum að fá varahluti og varla einu sinni svör við fyrirspurnum. En að þetta væri sem betur fer að batna. Lucasi létti við að heyra það og upplýsti að mikil hugarfarsbreyt- ing hefði átt sér stað í Bretlandi hin síðari ár. Nú væri t.d. unga fólkið að átta sig æ betur á þeirri staðreynd, að það hefði mikla efnahagslega þýðingu að leggja fremur út á braut verslunar og iðnaðar í stað þess að fara, eins og svo margir forverar, út í kennslu og þjónustu og önnur störf utan framleiðslugreinanna. Ragnar var ánægður með svörin, og sagði blaðamanni eftir á þá meiningu sína, að auðvitað væri þetta allt Thatcher að þakka. „Hún hefur tekið til hendinni og nú eru Bretar orðnir alvöru viðskiptavinir.“ Lucas lávarður nefndi frú Thatcher reyndar ekki á nafn, en vafalaust er hann sammála Ragnari, og í ræðu sinni nefndi hann sérstaklega þá ánægjulegu þróun, að fólk áttaði sig betur og betur á því, að auðurinn væri undir- staða velferðarinnar. Allt væri að þróast í rétta átt og nú væru at- vinnulausir í Bretlandi einni milljón færri en fyrir 4 árum. í fréttum síðar um daginn var reyndar sagt frá því, að Margrét hefði neitað manni ein- um um biskupdóm á þeirri forsendu að hann væri of vinstri sinnaður, en hvað er einn maður á móti milljón? Að „morgunverðarfundi" loknum streymdu gestirnir út, eitthvað svo yfirmáta virðulegir og tígulegir í fasi. Kannski einhverja þeirra hafi verið að dreyma um dásemdir þess, að bera titilinn „lávarður". Því mið- ur verða þeir víst að láta sér nægja risminni vegtyllur á borð við Fálka- orður, Stórriddarakrossa og þvíum- líkt. En auðvitað eru þeir allir lá- varðar í sjálfu sér, þessir valdsmenn og stórmenni íslenskra viðskipta og iðnaðar. Ragnar Halldórsson, greif- inn af Álveri, Jónas Haralz, mark- greifinn af Landsbanka, Sigurður Helgason, jarlinn af Flugleiðum, Hörður Sigurgestsson, hertoginn af Eimskip, Einar Sveinsson, baróninn afSjóvá, Axel Gíslason, prins afSIS. Og sendimenn bandaríska sendi- ráðsins, Pétur Snæland og James Le Desma, hafa vafalaust látið sig dreyma líka um leið og þeir „njósn- uðu“ fyrir stórveldið í vestri. En fundi var slitið og ískaldur veruleik- inn beið utan dyra.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.