Helgarpósturinn - 15.04.1987, Blaðsíða 31

Helgarpósturinn - 15.04.1987, Blaðsíða 31
TÓNLIST Fyrir hans benjar. .. TO HELL WITH THE DEVIL — Stryper Enigma/Gramm Einhvers staðar í Biblíunni segir að við skulum lofa Drottin með gleðilátum. Og hver er þess um- kominn að banna að lætin skuli koma úr gíturum tengdum við magnara- og hátalarastæður? Guðspjallarokk og popp hefur tek- ið miklum breytingum á undan- förnum árum. Liðnir eru dagar endurfæddra raulara sem voru komnir með annan fótinn í gröfina á dögum blóma og psychedelíu en sáu að sér á síðustu stundu. Nú hlustar ungt kristið fók á Amy Grant, Steve Taylor, Russ Taff, Tim Miner, Sheilu Walsh ... og jafnvel Styper. Einhvers staðar las ég að væri sál Debbyar Boone sett í kroppinn á Ozzie Osbourne yrði útkoman liðsmenn bárujárnsrokksveitar- innar Strypers. Fljótt á litið á myndum og myndböndum líta fjórmenningarnir út eins og hverj- ir aðrir heavy metalistar. Tónlist þeirra er einnig — þegar hæst læt- ur — keimlík því sem bandarískir og jafnvel sumir breskir, þýskir og franskir starfsbræður þeirra eru að fást við. En þegar lagt er við hlustir eru textar Strypers talsvert annars eðlis en gengur og gerist í bárujárnsrokki. Þar er ekki sungið um vergjarnar konur, ofbeldi, slark, karlrembu, lífið á hljóm- leikaferðunum né annað sem 'bárujárnsrokkurum virðist al- mennt vera efst í huga. Liðsmenn Strypers lofa kærleika guðs í sín- um textum og vara við hinum vonda. Nafnið Stryper er líkt og Manna- korn sótt í Biblíuna. Nánar tiltekið í 53. kafla og fimmta vers Jesaja- bókar: „With His stripes we are healed,“ segir þar eða samkvæmt íslensku þýðingunni: „Fyrir hans benjar urðum vér heilbrigðir." Hljómsveitin ætti því að heita Benjar uþp á íslenskan móð. Fjórmenningarnir sem skipa Stryper láta sér ekki nægja að syngja texta sem vitna um kær- leika Drottins. Þeir eru sannkristn- ir piltar sem gleyma ekki að fara með bænirnar sínar fyrir og eftir tónleika: „Drottinn! Blessa þú hljóðfæri mitt, útbúnað allan og lát mig halda hinum rétta tóni í kvöld," hefur People tímaritið eftir Oz Fox gítarleikara. Milli laga boða þeir áheyrendum sínum fagnaðarerindið og í lok hljóm- leika henda þeir tugum eintaka af Nýja testamentinu út í þröngina fyrir framan sviðið. Til saman- burðar dreifðu liðsmenn báru- járnssveitarinnar W.A.S.P. lengi vel hráum kjötbitum til síns fólks í tónleikalok! Stryper hefur sent frá sér tvær LP plötur í fullri lengd og eina til viðbótar af styttri gerðinni. Sú stutta, The Yellow And Black Attack, kom út árið 1984. Henni var þokkalega tekið og hefur hún nú verið endurútgefin. Ári síðar kom út breiðskífan Soldiers Under Command. Fram að þeim tíma er To Hell With The Deuil kom út hafði Soldiers . . . selst í um 350 þúsund eintökum. Það verður að teljast stórt upplag á kristilega popp- og rokkmarkaðnum. Fáir aðrir en Amy Grant geta státað af meiri sölu. Það er kannski full stórt upp í sig tekið að segja að To Hell... hafi beinlínis slegið í gegn. Að minnsta kosti er Stryper ákaflega smá hljómsveit í sniðun- um miðað við Mötley Crúe og Quiet Riot svo að tvær bárujárns- sveitir séu teknar af handahófi. En eigi að síður hefur To Hell. . . ver- ið á Billboard vinsældalistanum mánuðum saman. Vinsældir hennar hafa síðan gert það að verkum að fyrri plöturnar seljast einnig ágætlega. To Hell With The Devil hljómar mjög fagmannlega. Sér til fullting- is við upptökustjórn fengu liðs- menn Stryper gamlan ref, Steph- an Galfas, sem hefur getið sér gott orð með Jack Bruce, Meat Loaf, John Waite og Southside Johnny And The Jukes. Að mínu mati er bárujárnstöktum hljómsveitarinn- ar hampað full mikið. Kannski vegna þess að í útliti og klæða- burði minna fjórmenningarnir á öllu ókristilegri sveitir sem eiga það til að hampa ljótleikanum fremur en fagnaðarerindinu. Best tekst fjórmenningunum upp í millihröðum lögum svo sem Call- ing On You og Holding On. Hress- ustu rokklög plötunnar, More Than A Man og titillagið, hljóma svosem þolanlega en rólegu lögin tvö, Honestly og All Of Me, eru veikustu hlekkirnir. Þrátt fyrir að rokk Strypers sé ekki alveg jafn gratt og menn vilja vera láta fer hljómsveitin samt í taugar ótrúlega margra kristinna manna sem telja rokk einn hluta ljótleikans sem eigi rætur sínar í neðra. Mín skoðun er sú að fagnað- arerindið megi alveg eins boða í pönkhljómlist og bárujárnsrokki rétt eins og væmnum kántríball- öðum að hætti Nashvilleliðsins. Eða hvað segir ekki í sálmi númer 150: Lofið Guð ... með lúðurhljómi, lofið hann með hörpu og gígju! Lofið hann með bumbum og gleðidansi, lofið hann með strengleik og hjarðpípum! Lofið hann með hljómandi skálabumbum*, lofið hann með hvellum skálabumbum! Allt sem andardrátt hefir lofi Drottin! Halelúja! Stryper hefur hægt og sígandi verið að vinna sér nafn utan heimalands síns, Bandaríkjanna, á undanförnum mánuðum. Heima fyrir hefur hljómsveitin verið á stöðugum hljómleikaferðum frá stofnun árið 1983. Nú á hins vegar að fylgja To Hell . . . eftir í Evrópu næsta sumar. Þá eru góðir mögu- leikar á því að Stryper staldri við hér á landi. Hún ætti að verða au- fúsugestur ekki síst vegna þess að bárujárnsrokksveitir hafa ekki beinlínis hópast hingað á undan- förnum árum. Satt best að segja man ég ekki eftir neinni síðan Led Zeppelin lék hér 1970 og Deep Purple ári síðar. * Skálabumba = cymbal KVIKMYNDAHUSIN AIISTURBtJARRiíl LOKAÐ VEGNA BREYTINGA ■Itniini LITLA HRYLLINGSBÚÐIN ★★★ (Little Shop of Horrors) Þetta er íslendingum að góðu kunnugt eftir að Hitt leikhúsið setti upp sam- nefnt leikrit, en myndin er ekki sfður vel heppnuð. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. ALLT I HVELLI (Touch and Go) ★★ Grínmynd með Michael Keaton. Sýnd kl. 7, 9 og 11. LEYNILÖGGUMÚSIN BASIL ★★★★ Teiknimynd. Sýnd kl. 5. LIÐÞJÁLFINN (Heartbreak Ridge) ★ Clint Eastwood leikur liðþjálfa sem þjálfar sérsveitir í bandaríska hernum. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. NJÖSNARINN (Jumpin Jack Flash) ★★ Gamanmynd með stjörnunni úr Color Purple, Whoopi Goldberg, Sýnd kl. 5, 7 og 11. FLUGAN (The Fly) ★★ Galdrar og hrollur fyrir það sem þess er virði. Bönnuð yngri en 16 ára. Sýnd kl. 11. PENINGALITURINN (The Color of Money) ★★★ Paul Newman hlaut óskarinn fyrir leik sinn í þessari mynd. Sýnd kl. 9. ÁBENDING Enn eru ótrúlega góðar myndir í þíó þrátt fyrir að franska kvikmyndavikan sé búin. I Háskólabfó má sjá Marlee Matlin, óskarsverðlaunahafa og f Bfó- höllinni er annar slfkur á ferð, Raul New- man ( Peningalitnum, auk þess endursýnd ein besta mynd slðasta árs, Hanna og systurnar eftir Woody Allen í Regnboganum. KRÖKÓDlLA DUNDEE (Crocodile Dundee) ★★★ Léttgrín. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Ráðagóði róbótinn, Hundalff, öskubuska og Hefðarkettir sýndar kl. 3 um helgina. BÍOHUSIÐ VALDATAFL (Power Power) NÝ Mynd eftir Sidney Lumet með nokkr- um þekktum leikurum s.s. Richard Gere, Julie Christie og Gene Hackman. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. GUÐ GAF MÉR EYRA (Children of a Lesser God) ★★★ Marlee Matlin hlaut óskarinn fyrir leik sinn f þessari mynd f hennar fyrsta hlut- verki. i hófi væmin ástarsaga. Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. LAUGARÁS B I O EINKARANNSÖKNIR (Private Investigations) ★★ Framleiðandi Sigurjón Sighvatsson. Faglega gerð en engin tilraun til ný- sköpunar. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. EFTIRLÝSTUR LlFS EÐA LIÐINN (Wanted Dead or Alive) ★★★ Hörku spennumynd. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. BANDARlSKA AÐFEROIN (The American Way) Um fljúgandi útvarpsstöð. Sýnd kl. 7, 9 og 11. FURÐUVERÖLD JÓA (Making Contact) ★★ Ævintýramynd. Sýnd kl. 5. IREGNBOGIINN HERBERGI MEÐ ÚTSÝNI (Room With a View) ★★★★ Frábær mynd. Ekta bresk f klassa fyrir sig. Sýnd kl. 3, 5.30, 9 og 11.15. TRÚBOÐSSTÖÐIN (Mission) ★★★ Ein sú besta í bænum, frábær kvik- myndataka og stórgóður leikur. Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30. hjartasAr (Heartburn) ★★ Jack Nicholson og Meryl Streep, en ár- angurinn lætur á sér standa. Sýnd 5.05, 7.05, 9.05 og 11.15. SKYTTURNAR ★★★ Metnaðarfull mynd og bara vel heppn- uð að mörgu leyti. Sýnd kl. 3.15, 5.15, 9.15 og 11.15. FERRIS BUELLER ★★ Gamanmynd um skróp og Ferraribíl. Sýnd kl. 3.05. ÞEIR BESTU (Top Gun) ★★★ Þjóðernisrembingur í algleymingi og pfnu ást með. Sýnd kl. 3. HANNA OG SYSTURNAR (Hannah and her Sisters) ★★★ Woody Allen mynd sem svíkur engan. Þrefaldur óskar en Woody spilaði á klarinettið sitt á meðan. Sýnd kl. 7.15. BlA BORG (Blue City) ★★ Með Judd Nelson og Ally Sheedy. Sýnd kl. 5, 7 og 9. PEGGY SUE GIFTI SIG (Peggy Sue Got Married) ★★★ Kathleen Turner fær aðsvif og hverfur aftur (tímann, endurtekur Iffið sig? Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. STATTU MEÐ MÉR (Stand by Me) ★★ Fjórir strákar að leita að líki. Sýnd kl. 5, 7, 9og11. LEIKIÐ TILSIGURS (Best Shot) Mynd með Gene Hackman þar sem hann teikur mann sem kemur til smá- bæjar til að þjálfa körfuboltalið er margt fer öðruvísi... Sýnd kl. 5, 7 og 9. Fallega þvottahúsið mitt Ný mánudagsmynd Fjörug og skemmtileg mynd sem hefur vlða hlotið góða aðsókn. Sýnd kl. 7.10 og 9.10. ★ ★ ★ ★ framúrskarandi ★ ★ ★ mjög góð ★ ★ miölungs ★ þolanleg O mjög vond MYNDBÖND Ran. ★★★★ Til útleigu hjá m.a. Myndbanda- leigu kuikmyndahúsanna. Japönsk/frönsk. Árgerd 1985. Leikstjórn: Akira Kurosawa. Adalhlutuerk: Tatsuya Nakadai, Akira Terao, Jinpachi Nezu, Diasuke Ryu, Mieko Harada, Yoshiko Miyazaki o.fl. Þessi vægast sagt frjálslega út- legging meistara Kurosawa á Lear konungi Shakespeares er tví- mælalaust í hópi þess eftirtektar- verðasta er gefst að líta á hillum myndbandaleiganna þessa dag- ana. Og væri sannarlega vel ef for- ráðaménn þeirra stofnana gerðu meira af því að leita víðar og á önnur mið en þau, er getið hafa af sér þorra þeirra einskisverðu slor- pródúktíóna er í allt of ríkum mæli hafa einkennt úrval leiganna á liðnum misserum. Ran er einfaldlega ólýsanlega stórbrotið listaverk og í þess orðs fyllstu merkingu. Hún hefur allt það til að bera er talist getur höf- uðprýði allra velunninna kvik- mynda: Hún er hvort tveggja í senn ægifögur og hrikaleg aldar- farslýsing á einhverju róstusam- asta tímabili í sögu japönsku þjóð- arinnar, sem og stórkostlega vel stílfærð útfærsla á einhverju mesta leikbókmenntaverki evr- ópskrar menningararfleifðar. Úr þessu tvennu hefur Kurosawa síð- an ofið saman og spunnið upp eitt- hvert stórfenglegasta sjónarspil er gefist hefur að líta í kvikmynda- heiminum á liðnum árum. Unn- endur sannrar kvikmyndagerðar- listar ættu undir engum kringum- stæðum að láta þetta einstaka listaverk framhjá sér fara. (Sjá ennfremur grein um kvik- myndina í næsta blaði.) Ó.A. HELGARPÓSTURINN 31

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.