Helgarpósturinn - 30.04.1987, Blaðsíða 4
YFIRHEYRSLA
staða Formaður Alþýðubandalags og þingmaður heimili: Ásgarður 77 bifreið: Lada Sport árg. '78
heimilishagir Kvæntur Jónínu Benediktsdóttur, 3 börn áhugamál Pólitík, bækur og útivera
Ekki nóg ad skipta um formann
eftir Sigmond Erni Rúnorsson myricjir jim Stnort
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins tapaði þingsætum í nýafstöðum
kosningum. Flokksformannsstaða bans er veik, flokkurinn í sárum. Það sem e.t.v.
er sögulegt við þetta tap er sú staðreynd að flokkurinn er minni en Alþýðuflokkur
í fyrsta skipti eftir stríð. Fyrsta spurning til Svavars í Yfirheyrslu er því hvort áróður-
inn um að Alþýðubandalagið sé eini vinstri flokkurinn hafi mistekist?
„Það er vitaskuld versta mál að kratarnir
skyldu hafa komist 2 prósent yfir okkur, en
ég er sannfærður um að það er 100 prósent'
samstaða innan Alþýðubandalagsins að það
muni aidrei endurtaka sig. Hitt er rétt að
okkur hefur mistekist áróðurinn, auðvitað."
— Eftir átök um framboðslista vegna
borgarstjórnarkosninga á síðasta ári,
um Þjóðviljann og ritstjórnarstefnu þar
og eins átök vegna framboðsiista vegna
nýafstaðinna kosninga, má þá ekki
halda því fram með nokkrum rétti að
flokkurinn hafi boðið fram í þrennu lagi
og tapað ails staðar?
„í þrennu lagi, ég átta mig nú ekki aiveg á
því... En það er ljóst að flokkurinn sýndi
ekki nógu samstæða mynd fyrir kosningar.
Það er t.d. engin leið fyrir mig að neita því að
í kjaramálum gengum við ekki heil til skóg-
ar, við vorum ekki með sama tóninn á öllu
iandinu...“
— En neitarðu armaskiptingunni, t.d.
að þú hafir leitt einn, Ólafur Ragnar ann-
an og Ásmundur þann þriðja — og allir
tapað?
„Allir jafn aumir ... Ja, ætli ég hafi leyfi til
að fara út í svona armaskiptingu, en það er
satt, það verður alls staðar tap ...“
— Af hverju máttu ekki tala um arma-
skiptingu?
„Eg held bara að það sé ekki alveg rétt að
einfalda þetta svona, en ég sé að fjölmiðlar
gera það — og ætli við verðum ekki að leyfa
þeim það.“
— Getur verið að sú staðreynd að allir
flokksmenn tapa, þjappi ykkur saman,
menn náí loks saman eftir allt og alit?
„Að hann rísi sameinaður upp úr ösku-
stónni. Já, það er akkúrat það sem gæti
gerst. Ég fann geysilegan stuðning alls staðar
síðustu daga fyrir kosningar. Og ég hef
reyndar aldrei skynjað það eins sterkt og þá
hvað þetta er í rauninni fjölmennur, góður og
sterkur flokkur."
— En Svavar, þetta hefur aldrei verið
fámennari stuðningur. Hveijir kiikk-
uðu?
„Úrslit þessara kosninga eru fyrst og
fremst óljós, og það er galli. En mér er það
ljóst og ég viðurkenni það að t.d. opinberir
starfsmenn, heilbrigðisstéttirnar og jafnvel
fieiri, fóru yfir á Kvennalistann. Og eitthvað
af því verkamannafylgi sem við höfum haft
aðgang að gæti hafa farið yfir á Borgara-
flokkinn."
— Verkalýðstengslin hafa beðið skip-
brot hjá ykkur. Ertu ekki að segja að
áherslan á þau tengsi hafi verið hræði-
leg mistök?
„Ja, ég held að það sé óhjákvæmilegt fyrir
flokk eins og Alþýðubandalagið að leggja
rækt við verkalýðshreyfinguna, spurningin
er hins vegar hvernig hann gerir það. Ég
held við þurfum að læra af þessum úrslitum
að vanda okkur betur að ná beint til fólksins,
en ekki að horfa alltaf yfir öxlina á stofnun-
um til þess ...“
— Varðar þetta Ásmund Stefánsson?
„Ég vil taka það sérstaklega fram að þessi
kosningaúrslit eru sérstaklega ósanngjörn
gagnvart Ásmundi, fyrst og fremst vegna
þess að það er kannski enginn maður á Is-
iandi sem á meira i baráttunni við verðbólg-
una, staðgreiðslukerfi skatta, húsnæðisum-
bótunum, heldur en hann. Þeirrar uppskeru
fær hann ekki að njóta, heldur Kletturinn."
— En kallar niðurstaða kosninganna
ekki samt á það að Alþýðubandalagið
verði að skera á fjötra sem halda flokki
og hreyfingu saman?
„Ég held að aðalatriðið sé það þegar flokk-
ur verður fyrir áfalii, þá þurfi hann að skoða
allt í senn; málefnin, framsetningu þeirra og
forystusveitina. Það er, held ég, mjög slæmt
fyrir flokk sem lendir í svona áfalli, að skipta
bara um formann eða eitthvað þvíumlíkt —
sem getur þó út af fyrir sig vel komið til
greina. Það þarf að átta sig á því að áfall í
kosningum er fyrst og fremst pólitískt."
— f þessu svari þínu finnst mér gæta
löngunar til áframhaldandi formennsku
þrátt fyrir ýmsar yfirlýsingar flokks-
manna síðustu daga. Hyggstu sækjast
eftir áframhaldi?
„Samkvæmt flokksreglum okkar gæti ég
setið eitt kjörtímabil í viðbót, en auðvitað á
flokkurinn rétt á því að losna við mig og ég
að hvíla mig frá þessu starfi um tíma.“
— Er þér nokkuð stætt á öðru en fara
frá?
„Ég svara flokknum fyrst um þetta mál, en
ekki neinum fjölmiðli. En ég mun að sjálf-
sögðu gegna öllum mínum formannsskyld-
um svo sem verið hefur."
— Undir þinni forystu hefur flokkur-
inn ætíð tapað kosningum til þings og er
kominn úr 14 mönnum ’78 niður í 8 nú.
Klippt og skorið Svavar: Þarf flokkurinn
ekki nýjan mann?
„Það er ekki nokkur vafi á því að ef þetta
hrun er formanninum að kenna og vegna
formennsku hans, þá væri alveg sjálfsagður
hlutur að slátra formanninum bara einn,
tveir, þrír. En ég held, því miður, að orsakir
áfallsins séu dýpri og aðeins flóknari. í
flokknum hefur fjölgað mikið frá 78 og það
eru nú komin viss skil í gamla flokkakerfið.
Niðurstaðan nú er t.d. skýr skilaboð til allra
vinstri manna um að fara að endurskipu-
leggja alla sína hreyfingu til þess að hún rísi
undir hlutverki sínu."
— Muntu beita þér sérstaklega í þessa
átt á næstu misserum?
„Já, ég er tilbúinn til þess."
— Er kominn tími til að tengja A-flokk-
ana t.d.?
„Það er nú orðið langt síðan, en hins vegar
höfum við átt í þeim vandræðum að alþýðu-
flokksmenn hafa ekki viljað tala við okkur
síðustu áratugina, síðan Hannibal var rekinn
úr Alþýðuflokknum, má segja.“
— Eg heyri að þú ert veikur fyrir sam-
einingu.
„Alþýðubandalagið er samfylkingarflokk-
ur. Það vill stuðla að samvinnu vinstri
manna. Ég tel að það mál sé stöðugt á dag-
skrá. Hins vegar mega menn ekki gieyma
því að menn sameina ekki vinstri menn,
ekki verkamenn, með því einu að leggja
saman A, G og t.d. V. Það gerist því aðeins að
málefnin sem þessir flokkar boða, hver í sínu
lagi eða hver fyrir sig, hitti þjóðina fyrir. En
það er alveg ljóst að ég hef alltaf verið mjög
ákveðinn fylgismaður þess að það verði ailt
reynt sem unnt er til að ná þeim saman í sam-
tök sem saman eiga í þessu landi. Félags-
hyggjufólk, vinstri menn, eru núna undir
mörgum regnhlífum. Það er slærnt."
— Eru þe8si mál á döfinni núna, milli
ykkar Jóns Baldvins?
„Við höfum talað saman núna eftir kosn-
ingarnar um eitt og annað, en hann er nú í
óða önn að mynda stjórn með Sjálfstæðis-
flokknum og Alþýðuflokkurinn virðist vera
mjög fastur við það. Ég óttast það að værum
við sitt hvorum megin borðsins gæti það
spillt _mjög þessum möguleikum núna."
— Útilokarðu stjórnarþátttöku AI-
þýðubandalagsins eftir þessar kosn-
ingar?
„Ég tel það alveg fráleitt að bæði Alþýðu-
bandalagið og Sjálfstæðisflokkurinn hafi
nokkurt frumkvæði til stjórnarmyndunar
núna á næstu vikum. Það á hiklaust að láta
reyna á hina flokkana."
— Er stjórnarþátttaka af ykkar hálfu
ómöguleg?
„Hún er bara ekki á blaði, fyrst um sinn.
Við erum búin að fá ákveðinn dóm, dóm
kjósenda, sem við áfrýjum að vísu til næstu
kosninga, en það er rugl og barnaskapur að
reyna að vera að breyta þeim dómi.“
— Förum aftur fram fyrir kosningarn-
ar. Formaður Alþýðuflokks tók þá
áhættu að fara í þriðja sæti listans í
Reykjavík til að rýma fyrir nýjum manni.
Heldurðu að það hefði dugað ykkur ef
þú hefðir gert hið sama?
„Þá væri ég að lýsa því yfir að ég hefði
miklu meira álit á sjálfum mér en góðu hófi
gegnir. Menn eiga ekki að vera svona montn-
ir af sjálfum sér. Hins vegar get ég ekki neit-
að því að mér datt í hug að ég hefði jafnvel
átt að taka þennan „sjens", en þá hefði ég
ekki tekið þriðja sætið, heldur fjórða ...“
— Skorti þig pólitískt þor til þess
arna?
„Mig skorti kannski þá eigingirni sem þarf
tii að gera svona lagað .. .“
— Hvað áttu við með „eigingirni‘7
„Mér fannst, að ef ég hefði t.d. farið á Vest-
firði, þá væri ég að yfirgefa þann stað sem ég
hef ríkastar skyldur. En ég get ekki neitað því
að mig langaði vestur. Og það hefði kannski
verið þægilegra fyrir mig persónulega."
— Svavar, hefur þig skort pólitískt
áræði í gegnum tíðina?
„Nú er erfitt að dæma í sjálfs sín sök,
Sigmundur minn. Ég held nú samt að mér
hafi oftar verið legið á hálsi fyrir of mikla
dirfsku, m.a. þegar ég átti hlut að stjórnar-
myndun með Gunnari Thoroddsen. Hins
vegar má kannski gagnrýna mig fyrir það að
ég hef verið of umburðariyndur, m.a. í
flokknum. Ég hef of mikið verið í gæsluhlut-
verki, kannski gert menn of ábyrgðarlausa
með því að taka hluti of einhliða á mig.“
— Svavar, pólitísk sól þín reis ótrúlega
hratt frá '78, en nú stendurðu uppi — að-
eins 42 ára — með mestu niðuriægingu
flokksins frá upphafi. Fórstu of geyst?
„Það getur vel verið, en ég hef nú kannski
ekki átt sök á því einn. Ég var nú kallaður til
þessara verka, settur í þau af flokknum, og
hafi það verið mistök, þá voru þau ekki síður
flokksins en mín, að hafa yfirleitt farið út í
þetta..."
— Ertu bitur?
„Nei, ætli það. Ég er sár. Mér finnast úrslit-
in ósanngjörn. Ég setti fram mjög skýrar lín-
ur fyrir þessar kosningar. Ég hafði svör og
auðvitað er ég sár að þau hafi ekki komist í
gegn, sérstaklega vegna þess að í rauninni
vantaði aðeins herslumuninn."