Helgarpósturinn - 30.04.1987, Blaðsíða 8
SKOÐANAKÖNNUN HELGARPÖSTSINS
eftir Helga Má Arthursson og Halldór Halldórsson
mynd: Carsten Kristinsson
LANGFLESTIR TREYSTA STEINl
Adrir flokksleidtogar koma ekki til greina sem
forsœtisráöherra — Fœstir vilja nýjar kosningar
— Flestir vilja Framsókn og Sjálfstœðisflokk með
tilstyrk Kvennalista eða Alþýðuflokks
A þriðjudagskuöld, sama dag og
Steingrímur Hermannsson forsœtis-
ráðherra gekk á fund Vigdísar Finn-
bogadóttur forseta með lausnar-
beiðni fráfarandi ríkisstjórnar, efndi
Helgarpósturinn til skoðanakönn-
unar, þar sem fram kemur m.a. að
Steingrímur Hermannsson nýtur
svo mikils trausts sem stjórnmála-
leiðtogi að aðrir flokksleiðtogar
verða nánast að hreinu aukaatriði í
samanburði.
í könnuninni, sem náði til Reykja-
víkur eingöngu, var m.a. spurt
„Hver ætti að verða forsætisráð-
herra?" og voru 49% þeirra, sem
tóku afstöðu þeirrar skoðunar, að
það ætti að verða Steingrímur Her-
mannsson.
Samsvarandi tölur fyrir aðra
flokksleiðtoga voru þær, að Þor-
steinn Pálsson formaður Sjálfstæðis-
flokksins nýtur trausts til að gegna
embætti forsætisráðherra meðal
7,7% kjósenda í Reykjavík, Jón
Baldvin Hannibalsson meðal 7,2%,
Guðrún Agnarsdóttir meðal 7,1%,
Albert Guðmundsson hjá 3,1% og
Svavar Gestsson hjá tæplega einu
prósenti þeirra, sem tóku afstöðu í
Reykjavík.
FLOKKARNIR VERÐA
AÐ BREYTAST
— annars lída þeir undir lok, segir Steingrímur
Hermannsson
S.teingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, nýtur fylgis um-
fram aðra stjórnmálaleiðtoga þeg-
ar spurt er um hver skuli gegna
embætti forsætisráðherra. Yfir-
burðir Steingríms Hermannsson-
ar eru ótrúlegir. í fljótu bragði
mætti ætla, að hann nyti meiri
vinsælda í Reykjaneskjördæmi og
í kjördæmum úti á landi, en í skoð-
anakönnun HP voru aðeins kjós-
endur í Reykjavík spurðir. í fram-
haldi útkomu könnunar HP
var forsætisráðherra spurður álits
á niðurstöðunum. Hann sagði
m.a.:
„Mér þykir niðurstaðan mjög
ánægjuleg viðurkenning á mínu
starfi. Mér er það efst í huga, að
bregðast ekki því trausti, sem
menn hafa sýnt mér. Ég mun gera
mitt besta til að tryggja að hér
verði áfram stöðugleiki í stjórn-
málum með ábyrgri rikisstjórn."
Steingrímur Hermannsson var
þá spurður um það hvort hann liti
svo á, að niðurstöðurnar táknuðu
varanlegar breytingar á flokka-
kerfinu í Ijósi þess að Sjálfstæðis-
flokkur hefði beðið mikið afhroð í
kosningunum. „Ég hef hugsað
mikið um þessa hluti," sagði Stein-
grímur, „og ég er sammála því að
gömlu flokkarnir og hefðbundinn
hægri-vinstri dans þeirra — og hér
undanskil ég ekki minn flokk — er
tímaskekkja. Þetta er liðin tíð,
þessi hefðbundna skipting í hægri-
vinstri. Stór hluti af því unga fólki
sem ég hef hitt hugsar eftir öðrum
línum og annað hvort verða flokk-
arnir að breytast og það mikið,
eða þeir líða undir lok.“
IGREINARGERÐ SKAIS
Þessi skoðanakönnun var gerð
þann 28. apríl 1987 á milli klukkan
19 og 23. Valið var handahófsúrtak
744 símanúmera í Reykjavík sam-
kvæmt tölvuskrá um símanúmer
einstaklinga. Spurningum var beint
til þeirra sem svöruðu og voru 18
ára eða eldri.
Ekki náðist að hringja í nema 662
númer og þar af náðist samband við
453. Þar af neituðu 26 að svara, en
auk þess færðust alimargir undan
því að svara einstökum spurning-
um. í svörunarúrtakinu lentu 168
karlar og 259 konur, en konur
reyndust tregari til þess að taka af-
stöðu eins og kemur fram í töflum
hér á eftir.
Spurt var í þessari röð:
1. Komu úrslitin í alþingiskosning-
unum þér á óvart?
2. Telur þú að það eigi að kjósa
fljótlega aftur?
3. Ef svo, hvenær á að kjósa?
4. Hvernig stjórnarmynstur vild-
irðu helst sjá?
5. Hver ætti að verða forsætisráð-
herra?
Niðurstöðurnar birtast í meðfylgj-
andi töflum. í hverri töflu eru birt
vikmörk miðað við 95% öryggi.
8 HELGARPÓSTURINN
Einnig eru sýnd efri og neðri mörk
fyrir hvern þátt. Fjöldi þeirra sem
svara er gefinn fyrir neðan hverja
töflu. Út frá honum má að sjálfsögðu
reikna fjölda þeirra sem svara ekki.
Dálkurinn með yfirskriftinni leið-
rétt, tekur tillit til mismunandi svör-
unarhlutfalls kynjanna. Eins og sést
breytir þessi leiðrétting yfirleitt ekki
miklu.
Niðurstöðurnar eru einnig sýndar
á súluritum. Súlurit þessi eru nokk-
uð nýstárleg að því leyti að vik-
mörkin eru sett inn. Þannig sýnir
neðsti hluti súlunnar (dökkur) það
sem nefna má grunnfylgi við ákveð-
ið svar, þ.e. hve lágt fylgið gæti verið
miðað við 95% vissu. Þessi hluti að
viðbættum skástrikaða hlutanum
sýnir hve margir gáfu í könnuninni
þetta svar. Efsti hlutinn (hvítur) sýn-
ir svo hve hátt hlutfall þeirra sem
hafa ákveðna afstöðu gæti teygt sig
miðað við 95% vissu. Sé grunnfylgi
við ákveðna skoðun hærra en efri
mörk við aðra, er hægt að segja að
marktækur munur sé á fylgi, en
annars ekki. Framsetning af þessu
tagi hlýtur að teljast mjög æskileg til
þess að undirstrika óvissu þá er ríkir
ávallt þegar byggt er á tilviljanaúr-
tökum.
Óákveðnir voru 22,4% og 2,9%
nefndu aðra einstaklinga.
AFGERANDI OG ÞVER-
PÓLITÍSKUR
Þessi niðurstaða er svo afgerandi
stuðningsyfirlýsing við Steingrím
Hermannsson, sem jafnframt er af
mörgum talinn sigurvegari kosning-
anna, að líkurnar á því, að honum
verði falin fyrsta tilraun til stjórnar-
myndunar hljóta að vera yfirgnæf-
andi.
Rétt er að ítreka, að könnunin
náði einvörðungu til Reykjavíkur,
en fullvíst má telja, að Steingrímur
hefði fengið mun betri útkomu, ef
könnunin hefði náð til kjördæmis
hans, Reykjaness og landsbyggðar-
innar, þar sem Framsóknarflokkur-
inn hefur verulega meira fylgi en í
Reykjavík. Annars er óhætt að stað-
hæfa, að þessi mikli stuðningur við
Steingrím er fyrst og fremst stuðn-
ingur við persónu hans og er þver-
pólitískur.
í könnun Helgarpóstsins var spurt
um fleira.
BDV EÐA BDA
Ein spurningin varðaði það hvers
konar stjórnarmynztur nyti mestrar
hylli. Niðurstaðan er sú, að flestir
hallast að því, að mynduð verði
samsteypustjórn Framsóknarf lokks,
Sjálfstæðisflokks og Kvennalista
eða alls 16,2% þeirra, sem tóku af-
stöðu. Rétt er að taka fram, að svör-
un við þessari spurningu var tiltölu-
lega slök, um 36% þeirra sem svör-
uðu voru óákveðnir.
Næstvinsælasta stjórnarmynztrið
reyndist vera stjórn Alþýðuflokks,
Sjálfstæðisflokks og Kvennalista
eða það stjórnarmynztur, sem Jón
Baldvin hefur lagt mesta áherzlu á,
bæði fyrir og eftir kosningar. 12,7%
þeirra sem tóku afstöðu töldu slíka
stjórn æskilegasta.
Loks er rétt að nefna samsteypu-
stjórn fráfarandi stjórnarflokka,
Framsóknar og Sjálfstæðisflokks,
auk Alþýðuflokks. Alls voru 7,5%
Telur þú að það eigi að kjósa aftur?
70
60
50
40
Hlutfall
30
20
10
Já Ne i
0 Efri mörk
S Neöri mörk
| Grunnfylgi
Ekki viss
25
20
ABD ABGS ABGU ADS ADU BDG BDU BDS UTANÞMINNI
HL.
Hvernig stjórn?
Hvaða forsætisráðherra?