Helgarpósturinn - 30.04.1987, Page 10

Helgarpósturinn - 30.04.1987, Page 10
HP HELGARPÓSTURINN Ritstjóri: Halldór Halldórsson Ritstjórnarfulltrúar: Helgi Már Arthursson Sigmundur Ernir Rúnarsson Blaðamenn: Anna Kristine Magnúsdóttir Friðrik Þór Guðmundsson Gunnar Smári Egilsson Kristján Kristjánsson Jónína Leósdóttir og Óskar Guðmundsson. Ljósmyndir: Jim Smart. Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson. Skrifstofustjóri: Garðar Jensson. Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Auglýsingar: Sigurður Baldursson Dreifing: Garðar Jensson (heimasími: 74471) Guðrún Geirsdóttir Afgreiðsla: Bryndfs Hilmarsdóttir Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavík sími 681511. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Ármúla 36, sími 681511. Útgefandi: Goðgá h/f Setning og umbrot: Leturval s/f. Prentun: Blaðaprent h/f. LEIÐARI Stjórnarmyndun eða þreifingar Fyrir alþingiskosningarnar leyfðum við okkur á Helgarpóstinum að nefna þær í fyrir- sögn „kosningar aldarinnar" og var það gert í Ijósi ákaflega óljósra úrslita, ef mið var tekið af niðurstöðum skoðanakannana, og svo mikils óróa á „atkvæðamarkaðnum" vegna hins nýja flokks Alberts Guðmundssonar. Nú liggur fyrir, að síst var ofmælt. í pólitík- inni er allt upp í loft, tveir rótgrónir stjórnmála- flokkar, Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu- bandalagið, eru í sárum, glænýr stjórnmála- flokkur vinnur stærsta kosningasigurinn og Kvennalistinn fær staðfestingu hjá kjósend- um um tilverurétt sinn og gott betur. Aðeins tveir gömlu flokkanna geta sæmi- lega við unað, Alþýðuflokkur vinnur nokkuð á (en mun minna en menn þar á bæ höfðu vonað) og Framsókn nær því að standa nokk- urn veginn í stað eftir að hafa verið í ríkisstjórn í u.þ.b. einn og hálfan áratug. Ótvíræður sigurvegari kosninganna er Al- bert Guðmundsson og Borgaraflokkurinn. Þetta klofningsframboð út úr Sjálfstæðis- flokknum, sem varð til á nánast einni nóttu, kemur inn á þing með 7 þingmenn, einum meira en Kvennalistinn og einum færra en Al- þýðubandalagið. í stjórnmálaumfjöllun dag- blaðanna (flokksblaðanna) hefur mönnum, að því er virðist, sést yfir þetta, eða ekki viljað sjá það. Að vísu er skylt að geta þess, að allar líkur eru til þess, að þingflokkur Borgaraflokksins verði vængstýfður af gömlu flokkunum (Kvennalistinn með talinn) af ástæðum, sem óþarft er að rifja upp hér. Þó gætu stjórnar- myndunartilraunir orðið á þann veg, að Borg- araflokkurinn lendi óvart og skyndilega í lykil- stöðu. Það skyldi enginn vanmeta Albert Guðmundsson í pólitískri refskák næstu daga eða vikna. Helgarpósturinn getur ekki á sér setið og gert athugasemd við þá ósk Steingríms Her- mannssonar og Þorsteins Pálssonar að forseti íslands feli engum umboð til stjórnarmynd- unar fyrr en eftir helgi eða heilli viku eftir að kosningaúrslit lágu fyrir. Þetta mun vera eins- dæmi og er að okkar mati ólýðræðislegt. Hitt er svo allt annað mál hvað er „prakt- ískt" og ekki „praktískt" að mati þessara tveggja flokksleiðtoga. Þeir vilja „þreifa" og kanna óformlega, eins og það heitir, og má vel vera að það beri meiri árangur en hin form- lega leið. Hins vegar má leiða að því sterkar líkur, að með þessu séu þessir tveir flokksleið- togar og e.t.v. fleiri formenn að kaupa sér tíma á fölskum forsendum. Bæði Þorsteini og Steingrími er pólitísk lífs- nauðsyn á því að verða í ríkisstjórn og báðum er lífsnauðsyn á því að verða forsætisráð- herra, einkum þó Þorsteini vegna hrikalegrar útreiðar sjálfstæðismanna í kosningunum. Hvað um það, þá hlýtur að setja hlátur að öllu hugsandi fólki, sem heyrir þessa sömu menn gagnrýna Jón Baldvin Hannibalsson fyrir að hafa hafið stjórnarmyndunarviðræður „án umboðs" af þeirri ástæðu einni, að hann hefur gengið ötulast fram í viðræðum við full- trúa annarra flokka. Því bæði Steingrímur og Þorsteinn hafa verið á sömu buxunum frá því úrslit kosning- anna lágu fyrir. Þeir hafa einnig verið á kafi í „stjórnarmyndunarviðræðum". Gallinn við þetta allt saman er sá, að forseti átti að ræða við fulltrúa flokkanna strax og fela síðan einum þeirra vandaverkið stjórnar- myndun. VACUUM POKKUNARVELAR ERU HAGÆÐA VELAR A HAGSTÆÐU VERÐI FYRIR KJÖT- OG FISKVINNSLUR HÓTEL, VEITINGAHÚS OG KJÖRBÚÐIR Nú eru Henkovac vélarnar tölvustýrðar (Microprocessor control), sem þýðir að öll stig Vacuum pökkunarinnar frá því vélinni er lokað og þar til hún opnast er stýrt sjálfvirkt af tölvu forriti. Með , ,Microprocessor“ stýringunni hefur Henkovac skotið öðrum framleiðendum ,,Vacuum pökkunarvéla" langt aftur fyrir sig. w. v- llpPíJÍ; Henkovac byggir á 35 ára reynslu og er leiðandi framleið- andi Vacuum pökkunarvéla með útflutning til 55 landa. Yfirburðir Henkovác véla endurspeglast best í því að á síð- ustu árum hefur framletðslan aukist um 600%. VIÐ HÖFUM EINKAUMBOÐ FYRIR HENKOVAC 1'lilSl.lHÍ llF KRÓKHÁLS 6 SÍMI 671900 Athugasemd Kristín Njarövík leiðsögumaður hafði samband við blaðið og vildi gera eftirfarandi athugasemdir við smáfrétt í síðasta blaði, sem fjallaði um verkfall leiðsögumanna: 1. Félag leidsögumanna heitir ekki Félag íslenskra leiðsögu- manna. 2. Kynnisferðir eru sf. en ekki hf. 3. I samningaviðræðum hefur ekki staðið á samningsvilja leið- sögumanna, að sögn Kristínar. 4. Smáfréttin fjallar einkum um tvær konur, leiðsögumenn, og stað- hæft, að þær skilji ekkert í því hvers vegna verkfall leiðsögumanna var látið hefjast jafn snemma og raun ber vitni. Þetta mun vera þeim stöll- um fullljóst. Þessu er hér með komið á fram- færi. Ritstj. Athugasemd Fimmtudaginn 23. apríl birtist í þeim dálkum HP, sem manna á meðal ganga undir heitinu „slúður- dálkar" klausa, þar sem undirritað- ur kemur við sögu — og er reyndar haft svo mikið við að birta mynd með. Þarna segir frá hópi fólks, sem ég fékk til þess að spá í hin pólitísku spil á kosningavöku sjónvarpsins. Venjulega kippi ég mér ekki upp við það sem í þessum dálkum stend- ur, en þar sem þarna er heldur ónotalega að mér vikið, þykir mér rétt að greina nokkuð nánar frá þessu. Upphaflega hafði ég ætlað að í þessum hópi yrði kynskipting sem jöfnust, en svo fór að karlar reynd- ust fúsari til þátttöku en konur og þar kom að ég var kominn með hóp fjögurra karla, en hafði fengið af- svar hjá þeim konum sem ég leitaði til. Þá hringdi ég í Þórhildi Þorleifs- dóttur kvennalistakonu þeirra er- inda að leita eftir nöfnum kvenna, sem hún teldi líklegar til þátttöku í umræðum af þessu tagi, því að mér þótti ótækt með öllu, að þarna yrði þó ekki að minnsta kosti ein kona. Þórhildi þekki ég sem skelegga konu og einarða í málflutningi og hóf því mál mitt við hana með því að segja sem var, að helst hefdi ég kosið að fá hana sjálfa til umræðn- anna. Það var þó ekki hægt vegna reglu sem ég hafði sjálfur sett, það er að í hópnum skyldi ekki vera fólk úr forystuliði flokka eða stjórnmála- samtaka. Rangt er það hins vegar sem fram er haldið í klausunni í HP, að þetta fólk mætti ekki vera í fram- boði. Skilyrðið fól eingöngu í sér, að það væri ekki í fremstu víglínu, því að ég vildi ekki að á þennan hóp yrði litið sem fulltrúa flokka. Nú má vera, að viðtengingarhátturinn í upphafi samtals okkar Þórhildar hafi ekki komist til þeirra skila sem skyldi, þótt mér væri ekki annað ljóst þá. Það er þá auðvitað miður. En hjá Þórhildi fékk ég nöfn nokk- urra ágætra kvenna og valdi eina úr þeim hópi, sem stóð sig með mikilli prýði kosninganóttina. Það er mér fyrir mestu. Samt get ég ekki neitað því, að mér þykir miður, að HP skyldi senda mér þá ónotapillu sem felst í niður- lagi klausunnar. En með þessum lín- um vona ég, að málið sé nægjan- lega upplýst. Með kveðju, Hetgi H. Jónsson varafréttastjóri Sjónvarpsins LAUSNÁ SKAKÞRAUT 51 Larsen Hér er sem oftar gott að líta á hvað svartur gæti gert, ef hann ætti leik. Hann getur leikið peðinu fram, en auk þess á hann aðeins riddaraleiki. Því liggur 1. Dh5 nærri: peðið er stöðvað og drottn- ingin getur í næsta leik farið til f7 eða e2. Og það kemur í ljós að þetta er einmitt lausnarleikurinn: 1 Dh5 Rb5 2 Ha4 1 - Rd5 2 De2 1 — Aðrlr riddaraleikir (a4, a2, bl, dl, e2, e4) 2 Df7 52 Larsen Ekki þarf að óttast 1 — Hxb2 2 Rc3+ Hbl 3 Hxbl mát. Þá er að- eins að búa sig undir peðsleiki: 1 Kd3 b3 2 Re3+ Kxb2 3 Rc4 1 - Ha3+ 2 Rc3+ Kxb2 3 Hbl 1 - Ha8 2 Hg2! Hc8(e8) 3 Rc3(e3) Hrókurinn þurfti að fara til g2 til þess að hindra vörnina 2 — Hg8 og þá sjá lesendur væntanlega til- gang hvíta peðsins; án þess ætti svartur vörnina 2 — Hf8. Týndu atkvæðin 48 í Vestur- landskjördæmi gætu sett allt á ann- an endann, ef þau finnast nokkurn tíma. Þar sem mjög ólíklegt er að þau dreifist á sama hátt og 9.071 atkvæðið sem þegar hefur verið tal- ið, hafa menn spáð í spilin. Minnsta þúfan sem getur velt hlassinu af stað, er ef Kvennalistinn fær 9 at- kvæðum fleira af þessum 48 en Borgaraflokkurinn og Framsóknar- flokkurinn fær ekki stærra hlutfall af þessum atkvæðum en hann hefur þegar. Ef svo færi yrði Danfríður Skarphéðinsdóttir (V) þar með uppbótarþingmaður Vesturlands- kjördæmis og sá sem er í því hlut- verki nú, Ingi Björn Albertsson (S), dytti út af þingi. Borgaraflokkur- inn tapaði þó ekki manni, því Bene- dikt Bogason (S) kæmi inn fyrir flokkinn sem flakkarinn. Ef hins vegar Kvennalistinn ætti 45 at- kvæði af þessum 48 og hin 3 lentu hjá öðrum flokkum en Alþýðu- bandalaginu, færu hjólin að snúast fyrir aivöru. Þá yrði Danfríður Skarphéðinsdóttir (V) kjördæma- kjörin, en Skúli Alexandersson (G) dytti út af þingi. Alþýðubanda- lagið tapaði þó ekki manni, því Kristinn H. Gunnarsson (G) kæmi inn sem uppbótarmaður Vestfjarða. Við það missti Sighvatur Björg- vinsson (A) sæti sitt á þingi, en Al- þýðuflokkur fengi Láru V. Júlíus- dóttur (A) inn í Reykjavík sem upp- bótarmann. Við það missti Geir H. Haarde (D) sæti sitt, en Björn Dag- bjartsson (D) bætti sjálfstæðis- mönnum það upp í Norðurlandi eystra. Hringurinn lokast svo við það að Málmfríður Sigurðardóttir (V) yrði að flakkaranum, en héldi sæti sínu fyrir Kvennalistann í Norð- urlandi eystra. Þessi sama hringekja fer af stað ef Borgaraflokkurinn ætti 10 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.