Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 30.04.1987, Qupperneq 12

Helgarpósturinn - 30.04.1987, Qupperneq 12
eftir Önnu Kristine Magnúsdóttur myndir Carsten Kristinsson og Jim Smart EG ER EKKERT Sagt er aö stjörnur fœöist á einni nóttu. Þegar Gudmundur Pétursson, 14 ára nemandi íLang- holtsskóla steig fram á sviðid hjá Ríkissjónvarpinu á kosningakvöldið var það mál manna að hér vœri kominn nýr Jimy Hendrix. Guðmundur tók gítarsóló á þann hátt að nœstu daga á eftir varengu minna rœtt um hann manna á meðal heldur en hinar. „stjörnurnar" sem fœddust þessa nótt. Við mæltum okkur mót í Langtjoltsskólan- um snemma morguns. Guðmundur hafði feng- ið frí úr tíma til að koma í viðtalið og eiginiega var ég alveg viss um að þessi stórsnjalli gítar- leikari myndi skera sig úr hópi jafnaldra í and- dyrinu. Því var þó ekki þannig varið. Guð- mundur virtist hlédrægari og rólegri en flestir þeirra og það var ekki nokkur leið að þekkja þarna sama strákinn og hafði skömmu áður slegið í gegn í sjónvarpinu. Feimnin fór þó fljótt af'Og yfir mjólkurglasi sagði hann mér frá tildrögum þess að hann var beðinn að koma fram í sjónvarpinu: „Ég byrj- aði að læra á píanó þegar ég var 10 ára hjá Tónskóla Sigursveins. Þá ætlaði ég að stofna hljómsveit með vini mínum en við komumst aldrei lengra en á æfingar. Vinur minn spilaði aftur á móti á gítar og ég fékk að leika mér á hann. Ég varð svo hrifinn af þessu hljóðfæri að þegar ég var 12 ára keypti ég mér rafmagnsgít- ar og hef spilað síðan. Eg hef eiginlega ekkert lært að spila á gítar, var bara fyrst í tvo mánuði að læra hjá Birni Thproddsen en síðan hef ég aðallega æft sjálfur. Ég er enn að læra á píanó og er líka í tónfræði." Þegar Bylgjan og Tónabær efndu til Músik- tilrauna í vetur tók Guðmundur þátt í þeirri keppni ásamt félögum sínum í hljómsveitinni „Bláa bílskúrsbandið": „Við stofnuðum þessa hljómsveit fyrir jólin. Með mér í henni eru Guðvin Flosason sem spil- ar á trommur og Björn Logi Þórarinsson á bassa. Við spiluðum fjögur lög sem ég hafði samið, en textana sömdum við í sameiningu. Að vísu komumst við ekki í úrslit en þegar ver- ið var að tilkynna sigurvegarana var ég einn kallaður upp á sviðið og beðinn um að taka gítarsóló á úrslitakvöldinu með Þorleifi og Halldóri úr MX 21. Við í hljómsveitinni höfð- um áður komið fram, bæði í Laugalækjarskóla og í félagsmiðstöðinni Árseli svo við vorum ekkert feimnir. Ég hafði verið að tala við Bubba Morthens þarna um kvöldið og það var hann sem hringdi í mig á kosningakvöldið og bað mig að spila í sjónvarpinu. Hann hringdi með hálftíma fyrirvara..." Það sem mörgum kom á óvart var hversu lík- ur Guðmundur var Jimy Hendrix í töktum, því sjálfsagt er ekki algengt að jafnaldrar hans hlusti á slíka tónlist: „Nei það er alveg rétt. Jimy Hendrix er ekki í neinu sérstöku uppáhaldi hjá jafnöldrum mínum" segir Guðmundur. „Aftur á móti hlusta mamma og pabbi mikið á hann. Það er ekki algengt að hljómsveitir hér spili svona tónlist aðallega vegna þess að það er ekki svo mikili áhugi á henni fyrir hendi." Gítarinn hans Guðmundar þykir nokkuð merkilegur gripur: „Þetta er Gibson Les Paul Custom, tuttugu ára gamall gítar. Ég keypti mér hann í vetur á 20.000 krónur. Hvar ég fékk peningana? Nú auðvitað vann ég mér fyr- ir þeim sjálfur! Ég var í unglingavinnunni í sumar en áður hafði ég verið að bera út blöð. Mér var líka skuldað. Þetta er mjög góður gítar og ekki margir slíkir til hér á landi." En hvað finnst honum um tónlistarsmekk jafnaldra sinna? „Ég held að það sé of algengt að krakkar á mínum aldri hlusti mest á vinsældalistann og haldi upp á lög sem eru á honum. Kannski kemur lag sem þykir ekkert sérstakt en um leið og það er komið ofarlega á vinsældalist- ann finnst öllum það gott. Mér finnst lítið varið í svoleiðis tónlistarmenningu! Sjálfur hlusta ég Guðmundur Ffetursson kom, sá og sigraði á kosn- ingakvöldið þótt hann væri ekki í framboði. mjög lítið á útvarp, vil heldur hlusta á plötur. Tónlistarsmekkur hér er oft eins og „tíska“. Það er eins og krakkar hlusti helst á það sem er í tísku og fari eftir því sem er mest leikið í útvarpi. Þeir sem lenda ofarlega á vinsælda- listanum fá mikla kynningu í útvarpinu og þar er alltof lítið gert af því að kynna eitthvað nýtt — til dæmis óþekktar hljómsveitir sem gera eitthvað merkilegt í sínu heimalandi." — Hvað hlustar þú sjálfur á? „Ég hlusta til dæmis mjög mikið á blús. Það er mikill áhugi á þannig tónlist heima hjá mér. Krökkunum sem eru með mér í skóla finnst gaman að því þegar ég spila eða kem fram ein- hvers staðar en þau pæla lítið í því hvernig tón- list ég hlusta mest á sjálfur." Hann segir að for- eldrar sínir leiki bæði á hljóðfæri og hann hafi fengið tónlistaráhugann frá þeim; enda hafi alltaf verið mikið hlustað á tónlist á heimilinu: „Pabbi spilar á gítar — en hann byrjaði á eftir mér. Það var hann sem fékk áhugann frá mér en ekki öfugt! Pabbi spilar mikið blús en mamma spilar á píanó, aðallega klassiska tón- list." Blúsáhugi Guðmundar kom í góðar þarfir því Bubbi Morthens varð strax hrifinn af þess- um efnilega gítarleikara þegar hann heyrði í honum og hefur nú boðið honum að leika með „Blúshundunum" á tónleikum sem haldnir verða innan tíðar. — En ertu það sem fólk kaliar þig þessa dag- ana, undrabarn? „Nei — ég er ekkert undrabarn!" segir Guð- mundur og brosir hæversklega. „Þetta er bara spurning um að þróa með sér hæfileika og að æfa sig. Ég æfi mig mikið og hlusta á rétta tón- list. Ég held að enginn fæðist með svo mikla hæfileika að það þurfi ekkert að hafa fyrir hlutunum. Það þarf að rækta alla hæfileika til þess að maður geti orðið góður." 12 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.