Helgarpósturinn - 30.04.1987, Síða 19

Helgarpósturinn - 30.04.1987, Síða 19
höfum bæði svo mikið að gera.“ Karólína segist nýlega hafa fengið gífurlegan áhuga á garðinum sínum: „Einkum eftir að ég uppgötvaði „electric propagators"," segir hún og hlær. „Það er rafmagnsplata sem bakkar eru settir á og fylltir upp með mold. í þá setur maður fræin — og allt kemur upp eftir tvo daga! Ég held að þetta sé eina áhugamálið sem ég hef haft fyr- ir utan vinnuna. Ég kann auðvitað ekkert í garð- yrkju en er að læra þetta smátt og smátt." En svo við snúum okkur aftur að málverkun- um, þú hélst líka einkasýningu í Kaupmanna- höfn, ekki rétt? „Heyrðu — er ekki alveg óþarfi að tala um hana?!“ segir hún og brosir. „Jæja — en hún varð nú eiginlega ekki eins og ég ætlaðist til. Við Frederik fórum nefnilega í mánaðarferð til Suð- ur Ameríku skömmu áður og þar veiktist ég svo hressilega að ég var rúmliggjandi í þrjá mánuði. Er ég ekki farin að hljóma eins og gömul, kvart- andi kerling?!" segir hún hlæjandi. „Ég gat hreinlega ekki hreyft mig en þegar maður er bú- inn að skrifa undir að halda sýningu einhvers staðar er ekkert hægt að bakka með það. Það varð mér til happs að ég hef svo frábæran inn- rammara, konu sem rammar inn myndirnar mínar og hún sá um að bjarga því sem hægt var. Rammaði inn það sem ég átti til, pakkaði niður og sendi til Kaupmannahafnar. Og guði sé lof, það gekk allt vonum framar og eigandinn, Erik Petersen, bauð mér að halda aðra sýningu. Þetta var í fínu galleríi, Gallery Gammelstrand í Kaup- mannahöfn og ég gat því miður ekki sjáif verið viðstödd." VINNAN KEMUR FYRST Hvort henni finnist aldrei einmanalegt að starfa svona ein alla daga svarar hún: „Nei, mér finnst það ekki lengur. Það var hins vegar erfitt í byrjun að vinna heima við því það er svo margt annað sem þarf að sjá um á heimilinu sem bíður eftir mér. Nú er ég hörð á því að mín vinna kem- ur fyrst og síðan heimilið — því ef ég gerði hús- verícin fyrst væri aldrei neinn tími eftir til þess að mála! Vinnudagurinn minn hefst snemma á morgnana og oft vinn ég til klukkan fjögur á daginn og einnig á kvöldin, enda alltaf af nógu að taka. Mér skilst að orðið „persónulegur" sé neikvætt orð hérna heima í sambandi við mynd- ir,“ segir hún skyndilega. „Allar mínar myndir eru persónulegar, þær gætu ekki verið annað. Ég myndi jafnvel segja að því persónulegri sem þær eru, því betri séu þær." Karólína er meðlimur í „Royal Society of Painters, Etchers and Engravers" í Bretlandi og hefur tekið þátt í samsýningum með meðlimum þeirra samtaka allt frá árinu 1980. í fyrra var hún valin sem „full member" í því félagi sem þykir mikill heiður, enda sækja fjölmargir lista- menn um inngöngu árlega en aðeins örfáir eru útvaldir: „Mér finnst góð tilfinning að tilheyra einhverjum samtökum, vera hluti af einhverju í Englandi," segir hún. Við ræðum um teikningu og hvort fólk ætti kannski að gera meira af því að teikna en raun ber vitni: „Já, það ættu allir að teikna minnst í klukkustund á dag,“ segir Karólína ákveðin. „Það er gott fyrir sálina. Eg sá það þegar ég var við kennslu að það sem fólk óttast mest er að byrja að teikna eða mála. Það þarf því fyrst og fremst að sigrast á óttanum því fólk getur miklu meira en það álítur sjálft." Hún er þegar byrjuð að vinna að næstu sýn- ingu sinni sem verður haldin í hinu virta „Gall- ery 10“ á Grosvenor Street í London í kringum næstu áramót en Karólína hélt einnig sýningu þar fyrir þremur árum. En áður en hún fer á fullt við að undirbúa sýninguna segist hún ætla að njóta þess að fara í gott frí með manninum sín- um: „Við förum fyrst til Brússel að heimsækja vinafólk okkar og þar ætla ég að líta á gallerí Karólína Lórusdóttir myndlistarkona, sem starfar ó Englandi í HP-viðtali sem mér stendur til boða að sýna í á næsta ári. Þaðan förum við til Feneyja þar sem við verðum í viku og heimferðin verður örugglega spenn- andi því þá förum við með „Austurlandahrað- lestinni". Það er nauðsynlegt að komast í burtu í smá tíma,“ segir hún, og bætir við: „Mér finnst alveg nóg að fara til Feneyja — Suður Ameríka og þessi fjarlægu lönd heilla mig ekki leng- ur. ..!“ Hún viðurkennir að sér hafi gengið betur i líf- inu en hún átti von á: „I'm a lucky girl!" segir hún brosandi og bank- ar þrisvar í tré að góðum og gömlum íslenskum sið. Enda er það öruggt mál, jafnvel þótt einhver breskur blaðamaður hafi ekki þekkt hana fyrr en í april. Fyrirsögnin á greininni hans var „More honoured in her own country" og Karó- lína segir brosandi frá tilurð hennar: „Hann var sífellt að spyrja mig hvort ég væri ,,fræg“ á Is- landi. Ég sagðist bara ekkert vita um það en sjálfsagt vissu sumir þar hver ég væri. Hann lét sér ekki nægja það svar og ítrekaði þessa spurn- ingu hvað eftir annað. Það endaði með því að hann hringdi í sendiráð íslands í London og spurði þar hvort ég væri þekkt á íslandi. Sá sem varð fyrir svörum sagði svo vera — enda meinti hann sjálfsagt eins og er: Á íslandi þekkja allir alla!! Og þetta varð tilefni til fyrirsagnar... “ segir hún brosandi. „ÉG ER HÆTT AÐ ÞÓKNAST ÖÐRUM!" Þótt við höfum nú eytt drjúgum tíma í að ræða um lífið og listina hafði Karólína lýst því yfir við mig þegar við hittumst í London fyrir tveimur árum að hún væri ekkert fyrir að láta hafa við sig viðtal: „Ég er málari, ekki ræðu- manneskja. Það er eitt af því versta sem ég lendi í að fara í viðtal!" Enda fór það svo á þeim tíma að ekkert varð úr viðtali en þeim mun meira af góðum kynnum. Og núna hafði hún eytt dýrmætum vormorgni í að sitja í viðtali í stað þess að ganga úti í góða veðrinu: „Ég elska að ganga um Reykjavík," segir hún. „Ég fór nið- ur í MR í gær og þar hafði ekkert breyst. Það var eins og að stíga rúm tuttugu ár aftur í tímann og það fannst mér góð tilfinning. . . “ Hún segist alveg geta hugsað sér að eiga hér litla íbúð og dvelja meira á Islandi síðar: „Það bjóða mér alltaf góðir vinir að búa hjá sér þegar ég kem heim,“ segir hún. „Það eru bara alltaf svo mikil læti í kringum mig, ég þarf að tala við svo marga og hitta svo marga að það er varla hægt að bjóða fólki upp á að búa með mér! Þeg- ar Stephen og Samantha verða bæði komin í framhaldsnám gæti ég alveg hugsað mér að eyða nokkrum vikum á hverju sumri hér heima. Hver veit nema ég geri það.“ Hún segir að það sem lífið hafi helst kennt henni sé hversu miklum tíma hún hafi eytt í að þóknast öðrum: „Ég hef eytt svo miklum tíma og krafti í að hlusta á aðra og hlaupið í hringi til að þóknast fólki að nú er ég hætt þvi. Núna hlusta ég bara á sjálfa mig. Ef ég geri mistök þá reyni ég að læra af þeim og muna þau svo þau endurtaki sig ekki.“

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.