Helgarpósturinn - 30.04.1987, Síða 21
SKOÐANAKÖNNUN HELGARPÓSISINS
JIM SMART
BJÓRLÖNGUN
AÐ MINNKA?
Bjórlöngunin virdist eitthvad
vera að minnka hjá íslendingum
þessa dagana ef marka ná niður-
stöður skoðanakönnunar sem
SKAIS gerði fyrir Helgarpóstinn
dagana 11. og 12. apríl. Af þeim
838 sem tóku afstöðu voru 62,3%
fylgjandi sölu áfengs bjórs hér á
landi en 37,7% voru andvígir.
Helgarpósturinn hefur tvívegis
áður gengist fyrir skoðanakönn-
unum af þessu tagi og leiddi síð-
asta könnun — sem gerð var í jan-
úar 1985 — í Ijós aðþá voru 71,5%
fylgjandi bjórsölunni en 28,5%
andvígir henni.
I framhaldi skoðanakönnunar
HP 1985 þótti iíklegt að bjórfrum-
varpið yrði afgreitt frá Alþingi þá
um vorið enda hafði talning leitt í
ljós að 32 þingmenn væru fylgj-
andi bjórnum. Þar var þó naumur
meirihluti á ferð en talið var lík-
legt að meðal hinna óákveðnu
þingmanna væri að finna marga
sem myndu flytjast yfir í hóp
stuðningsmanna frumvarpsins
þegar til atkvæðagreiðslu kæmi.
Raunin varð hins vegar önnur eins
og ljóst er orðið.
Hins vegar er ekki hægt að sjá á
sölu áfengs bjórs í fríhöfninni að
íslendingar séu orðnir fráhverfir
honum. Sala á bjór í fríhöfninni ár-
ið 1986 reyndist vera um 615.000
lítrar samkvæmt upplýsingum
Guðmundar Vigfússonar skrif-
stofustjóra fríhafnarinnar, en á ár-
inu 1984 seldust þar 550.000 lítrar.
íslenski bjórinn selst ekki eins vei
og sá erlendi en þó fóru 235.000
lítrar af honum út um hlið fríhafn-
ar á síðasta ári meðan erlendur
bjór seldist í 380.000 lítrum. Þá á
eftir að taka með í reikninginn
bjórsölu á barnum á Keflavíkur-
flugvelli sem reyndist vera u.þ.b.
70.000 lítrar. íslénskir og erlendir
ferðamenn hafa því að minnsta
kosti ekkert haft á móti bjórnum
þar sem á annað borð var hægt að
fá hann. Þessi sala, 685.000 lítrar
af bjór, var til u.þ.b 92.000 ein-
staklinga.
Að sögn Guðmundar þykir ljóst
að sala á bjór hefur síður en svo
farið minnkandi það sem af er
árinu og taldi hann að hún ætti
enn eftir að aukast, enda talið að
um verulega aukningu ferða-
manna verði að ræða á þessu ári.
Eins og sjá má af meðfylgjandi
töflu breytist afstaða fólks milli ára
og aldrei hafa færri verið á móti
bjórnum en á árinu 1984.
GREINARGERÐ
SKÁÍS
Þessi skoðanakönnun var gerð
dagana 11. og 12. apríl 1987. Valið
var handahófsúrtak 1474 síma-
númera á landinu öllu samkvæmt
tölvuskrá um símanúmer einstakl-
inga. Spurningum var beint til
þeirra sem svöruðu og voru 18 ára
eða eldri og var miðað við jafnt
hlutfall kynja.
Úrtakið skiptist í þrjú svæði:
Reykjavík (612 númer), Reykjanes
(339 númer) og önnur kjördæmi
(523 númer).
Þeim sem svöruðu var greint frá
því að þeim væri ekki skylt að
svara og úrtakið tengdist ekki
nöfnum heldur aðeins tölvuúrtaki
um símanúmer.
Spurt var:
Ertu fylgjandi eða andvígur sölu
áfengs bjórs á íslandi?
Niðurstöðurnar birtast í með-
fylgjandi töflu.
AFSTAÐA TIL BJÓRSINS I SKOÐANAKÖNNUNUM 1983, 1984, 1985 og 1987:
HP '83 DV '84 HP '85 HP '87
Með bjórnum 57,8% 59,5% 71,5% 62,3%
Móti bjórnum 42,2% 40,5% 28,5% 37,7%
Með eða á móti bjórnum?
Landið allt fjöldi % af úrtaki % af þeim sem næst I % af þeim sem tóku afstöðu
Fylgjandi 522 35,4% 57,7% 62,3%
Andvígur 316 21,4% 34,9% 37,7%
Óákveðinn 67 4,5% 7,4%
Náðist ekki f/svara ekki 569 38,6%
Alls 1474
Náðist 1 905
Tóku afstöðu 838
Augustine W. Kanyanjua: Mestu viðbrigðin eru kuldinn og dýrtíðin
Hudson K. Adambi: Þess er gætt að hraðinn sé ekki of mikill
fornar heföir hverfi ekki.
og
að
Paul W. Wangombe. Allir eru þeir þremenningarnir af Bantu-kyn-
þætti.
20 HELGARPÓSTURINN
KALT VEDUR
HLÝTT FÓLK
STUTT SPJALL VIÐ 3 KENYABÚA SEM STUNDA
NÁM VIÐ JARÐHITASKÓLA ORKUSTOFNUNAR
OG SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA.
PIZZAHÚSIÐ
GRENSÁSVEGI 10 108 R.
Eina ekta pizzahúsið — ávallt í leiðinni.
Njótið þægilegra veitinga í þægilegu umhverfi
Einnig skyndiþjónusta — takið með ykkur pizzu
heim eða pantið í síma 39933.
,,V7ð vonumst auövitað til að geta lœrt meira um nýt-
ingu jarðhitans og við erum að sérhœfa okkur hver á
sínu sviði. Hingað hafa komið ófáir landar okkar á
undan okkur og reynslan er mjög góð af því að nýta
þessa þekkingu heima. Jarðhitanotkun í Kenya er að
aukast, við fáum um 8% orkunnar þannig nú og ácetl-
anir ganga út frá því að auka þetta hlutfall frekar."
Viðmælendur Helgarpóstsins eru þrír Kenyabúar
sem nýkomnir eru hingað til lands til að taka þátt í 6
mánaða námskeiðum Jarðhitaskóla Orkustofnunar og
Sameinuðu þjóðanna. Starfræksla þessa skóla hér á
landi hófst 1979 og síðan hafa 57 einstaklingar frá lönd-
um þriðja heimsins útskrifast eftir slík námskeið auk
þess sem fleiri hafa tekið þátt í styttri námskeiðum. Að
þessu sinni munu nema í skólanum 12 einstaklingar.
Flestir nemendanna frá 1979 hafa komið frá Kína,
Filippseyjum, Kenya og Eþíópíu. í núverandi árgangi
eru fyrrnefndir 3 Kenyabúar, þeir Augustine W. Kany-
anjua, jarðeðlisfræðingur, Paul W. Wangombe jarð-
fræðingur og Hudson K. Adambi jarðeðlisfræðingur.
Óhjákvæmileg spurning: Hvernig finnst þeim að vera
komnir allt í einu úr hitabeltisloftslagi Kenya til íslands?
„Mestu viðbrigðin eru auðvitað veðrið," segir
Augustine. „Það er of kalt, en við höfum aðeins verið
hér fáeina daga og vonandi að maður venjist þessu.
Fyrir utan kuldann er áberandi hversu dýrir allir hlutir
virðast vera. Þetta tvennt er það sem slær mann mest."
„Veðrið er vissulega allt öðruvísi, en að öðru leyti tek
ég sérstaklega eftir hversu hjálpsamt og vinsamlegt fólk
hér er,“ segir Hudson. „Við mætum hvarvetna hlýju og
þurfum ekki að hafa áhyggjur yfir því að týnast, allir
segja okkur til vegar og allt gengur að óskum." Undir
þetta lók Paul eindregið.
Þetr féíagar segja veðrið í Kenya ekki bara öðruvísi
hvað hitastig varðar, heldur á ýmsan annan hátt og
jafnræði á milli dags og nætur. Snjór sjáist þar aldrei
undir 5000 metrum og í hálendi eins og á fjallinu Mt.
Kenya og Kilimanjaro við landamæri Tanzéuiíu.
„Það markverðasta sem er að gerast í Kenya á næst-
unni er á íþróttasviðinu, þar verða Afríku-leikarnir í
ágúst. Því miður missum við af þeim viðburði því við
verðum hér á landi. Kenya er meðal allra bestu Afríku-
ríkjanna í íþróttum, sérstaklega í hnefaleikum og frjáls-
um íþróttum. Síðustu leikarnir voru haldnir í Nigeríu að
mig minnir 1978 og þá lenti Kenya í þriðja sætinu."
Að öðru leyti segja þeir félagar allt rólegt í heima-
landi sínu, en hins vegar hafi fjölmargt verið að breyt-
ast í þjóðfélaginu undanfarin ár. „Þróunin á tæknisvið-
inu er ör og allt er að verða æ nútímalegra. En þess er
gætt að hraðinn sé ekki of mikill og að fornar hefðir
hverfi ekki.“
Kenya er sjálfstætt lýðveldi en innan breska sam-
veldisins. íbúarnir eru um 20 milljónir en fjölmennustu
kynþættir landsins eru Bantu, Nilotic, Nilo-Hamitic og
Hamitic. Frá því þjóðin fékk sjálfstæði á sjöunda ára-
tugnum hefur mikil „afríkanísering" átt sér stað. Áður
var Kenya mjög háð landbúnaðinum, en talsverðar
breytingar hafa orðið, meðal annars með mikilli upp-
byggingu orkuvera. Nú ríkja rólegir tímar á stjórnmála-
svðinu, en áður voru miklar hræringar, ekki síst á sjötta
áratugnum þegar hinn herskái leynifélagsskapur Mau
Mau lét sem mest á sér kræla og stóð fyrir ógnaröld um
7 ára skeið.
Þó Kenya sé að flestu ólíkt land íslandi er hitt þó sam-
eiginlegt að mikil orka er í jörðinni. Jarðhitanotkun fer
vaxandi og víða um landið er að finna hveri og gufu-
augu. Þá er talsvert um eldfjöll sem þó hafa ekki verið
virk um skeið.
IBM RT Stórtæka smátölvan
frá IBM!
Tækniundur
Nýja IBM RT tölvan er oft nefnd tækniundrið frá IBM,
slík er snerpa hennar og fjölhæfni. IBM RT er fjöl-
notendatölva og þrátt fyrir smæð sína telst hún í hópi
meðalstórra IBM tölva! Jafnframt má nota hana sem
öfluga einmenningstölvu; á því sviði er hún margfaldur
jafnoki IBM PC AT enda er reiknihraði hennar næsta
ótrúlegur.
Eitt meginhlutverk IBM RT er að gegna hugbúnaði
sem hannaður er fyrir Unix stýrikerfið. Hún hentar
sérlega vel sem verkfæri fyrir verkfræðinga, tæknifræð-
inga og vísindamenn auk þess að koma að góðum
notum á viðskiptasviðinu. Vert er að benda á að_ með
IBM RT í þjónustu þinni getur þú nýtt þér fullkomin
kerfi á borð við CAD/CAM teikni- og hönnunarkerfi
sem notuð hafa verið á stærstu tölvur IBM!
Opið kerfi
IBM RT er afkastamikil 32 bita örtölva. Meðal kosta
IBM RT kerfisins má nefna stórt vinnsluminni og stóra
seguldiska, fullkomna APA skjái og öflugt bilanaleitar-
kerfi. Kerfið er í senn sveigjanlegt, stækkanlegt og opið
þannig að unnt er að breyta stýrikerfi og vélbúnaði eða
bæta við eftir þörfum og síðast en ekki síst breyta eldri
gerðum í þær nýjustu.
Fjölmargir tengikostir bjóðast við aðrar tölvur og
annan búnað. Sem dæmi má nefna ETERNET,
Tókahring, símstöðvar, stimpilklukkur, vogir, telex,
mæla og svo mætti lengi telja.
Hafðu samband við okkur hjá Örtölvutækni. Við veitum
þér allar frekari upplýsingar um þessa bráðsnjöllu
tölvu.
HELGARPÓSTURINN 21