Helgarpósturinn - 30.04.1987, Qupperneq 27
KVIKMYNDIR
eftir Sigmund Erni Rúnarsson
Loggan og
fanturinn
Stjörnubíó, Engin miskunn
(No Mercy): ★★★
Bandarísk, árgerd 1987.
Framleiðandi: D. Constantine
Conte. Leikstjóri: Richard Pearce.
Handrit: Jim Carabatsos.
Kuikmyndun: Michel Brault.
Tónlist: Alan Silvestri. Adalleik-
arar: Richard Gere, Kim
Basinger og Jeroen Krabbe.
Richard Pearce á að baki stuttan
en athyglisverðan feril sem kvik-
myndaleikstjóri. Eftir nokkra við-
urkenningu við gerð heimildar-
mynda söðlaði hann yfir í leiknar
myndir með góðum árangri í
fyrstu atrennu, svo sem myndir
eins og Heartland og Country
bera vitni um. Heartland var ódýr
og notaleg, Country dýr og nota-
leg og víst er að nýjasta mynd
hans No Mercy er líka rándýr. En
nú er yfirbragðið annað, all kröft-
ugur tryllir um hefndina sætu — a
la lögga/fantur/dauði vinar...
Richard Gere sem hefur verið í
leikaralægð um nokkurt skeið
nær sér svolítið á strik í rullu lögg-
unnar í Chicago sem missir félaga
sinn fyrir fanti sunnan úr New
Orleans, leiknum af Jeroen
Krabbe sem eins og samlandi hans
Rutger Hauer aflar sér sívaxandi
vinsælda með hverri myndinni af
annarri utan Hollands, þar sem
þeir voru báðir dáðir leikarar fyrir.
I myndinn No Mercy lokast þrí-
hyrningurinn með þokkafullri
Kim Basinger í hlutverki ástkonu
fantsins og síðar löggunnar úr
norðri.
Einkenni þessarar myndar eru
sannferðugur spennuhlaðningur
sem sakir vandvirkni nær ágæt-
um tökum á áhorfendum. Það er
að sönnu lítið kvikað frá formúl-
unni og persónusköpunin er gam-
alkunn. En það sem heldur þessari
mynd vel ofan við meðallag er
natin og skýr framsetning, afskap-
lega snjöll filmuvinna sem sleppir
stælum og er svo gott sem frumleg
— í daðri sínu við formúluna.
Semsé; Pearce skilar hér af sér
ágætri afþreyingu, trylli sem tekur
i.
Brokkgeng
Bíóhöllin,
Paradísarklúbburinn (Club
Paradise)
★★
Bandarísk, árgerd 1986.
Framleidandi og leikstjóri:
Harold Ramis.
Handrit: Harold Ramis og Brian
Doyle-Murray.
Kvikmyndun: John Hicks.
Tónlist: Ýmsir.
AöaUeikarar: Robin Williams,
Peter O’Toole, Rick Moranis,
Twiggy.
A stuttum tima hefur Rick
Moranis orðið stjarna uppi í Breið-
holti, en eitt grín af öðru hefur tek-
ið við með honum á hvítu tjaldi
Bíóhallarinnar, fyrst sem Baldur í
Litlu hryllingsbúðinni og nú í litlu
og snaggaralegu hlutverki í Para-
dísarklúbbnum Haraldar Ramis.
Ramis kynntist líka stjörnu-
himninum snögglega eftir að
hann sendi frá sér dæmalaus ærsl
um draugabana á strætum New
York og bíóunnendur kannast vei
við. Þar naut hann liðsinnis
margra skærustu stjarna banda-
rísks gamanleiks, svo sem Bill
Murrays og Dan Aykroyds.
i Paradísarklúbbnum, sem gerir
út á sömu hláturtaugar og Ghost-
busters, er einneginn einvalalið
grínista að finna ásamt Peter
O’Toole sem fráleitt fríkkar með
árunum. Ég nefni Robin Williams
og Joseph Caesar, þá öldnu sviðs-
kempu, sem síðast sást framan
vélar í Soldiers’s Story.
En þessi góða áhöfn kemur fyrir
ekki. Ekki einasta Twiggy í lítt-
klæddri rullu ljóskunnar fær
breytt þeim úrslitum að Paradísar-
eyjan er rétt í meðallagi skemmti-
leg. Sagan er ákaf lega brokkgeng,
framvindan óljós — og það sem er
kannski verst þar eð hér er um
gamanleik að ræða: persónusköp-
unin er ómarkviss.
Hér segir af slökkviliðsmanni í
New York sem er orðinn hundleið-
ur á starfanum og ákveður eftir að
hafa lent í vinnuslysi að skella sér
til einhverrar dáindis eyjar í Kara-
bíska hafinu, þar sem hann síðar
meir ræðst í uppbyggingu ferða-
mannastaðar í samvinnu við inn-
fædda, en í óþökk stjórnvalda.
Á köflum fyndin mynd, stund-
um sprenghlægilegt gaman, en
alltof sjaldan á heildina litið.
Bílagalli
Laugarásbíó, Tvífarinn (The
Wraith): ★
Bandarísk, árgerð 1986.
Framleiöandi: John Kemeny.
Leikstjóri og handritshöfundur:
Mike Marvin. Kvikmyndun: Reed
Smoot. Tónlist: Michael Hoenig
og J. Peter Robinson. Aöal-
leikarar: Charles Sheen, Nick
Cassavetes, Sherilyn Fenn og
Randy Quaid.
Stundum hendir það mann að fá
svo gallaða vöru að maður skilar
henni með öðru og talsvert svaka-
legra augnaráði en þegar kaupin
fóru fram. Maður er svolítið
ánægður með sjálfan sig á eftir —
og telur enda réttlætinu náð.
Ef hægt væri að skila bíómynd-
um með svipuðum hætti og vör-
um sem maður kaupir í næstu
búð, færi Tvífarinn þá leiðina. The
Wraith eins og verkið heitir á
enskunni sinni er afskaplega gall-
að verk, ef ekki — svo maður noti
flott orðalag — alfarið slappt.
Þetta er bíladellumynd sem læt-
ur væla í beygjunum, skemmir
bíla og menn og þegar hæst lætur,
sprengir hvorutveggja í loft upp.
Og þá er leikin graðhestatónlist
undir, annars strengir þegar
drengurinn í góða hlutverkinu er
að heimta fögru stúlkuna úr helju.
Myndin er annars að mörgu
leyti með ólíkindum. Til dæmis
sagan sjálf, en illþýði myndarinn-
ar hefur drepið besta son bæjar-
ins, sem snýr aftur utan úr geimi á
ósigrandi rennireið sem bílar
gengisins eiga barasta ekkert í.
í reyndinni er ekki hægt að tala
um leikstjórn eða handrit í sömu
andrá og Tvífarann. Hér ræður
framleiðandinn í blindni á stelgda
formúlu, þar sem að auki er bland-
að saman vænlegustu gróðaþátt-
um í bíóframleiðslu síðustu ára —
með hörmulegum árangri.
!
KVIKMYNDAHUSIN
AllSTURBÆJARRÍfl
LOKAÐ VEGNA BREYTINGA
bMhö
Ráöagóði róbótinn, Hundaiíf,
Öskubuska og Heföarkettir sýndar
kl. 3 um helgina.
BIOHUSIÐ
LITLA HRY LLINGSBÚÐIN
★★★
(Little Shop of Horrors)
Þetta er íslendingum að góðu kunnugt
eftir að Hitt leikhúsið setti upp sam-
nefnt leikrit, en myndin er ekki síður vel
heppnuð.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
PARADlSARKLÚBBURINN
(Club Paradise)
★★
Grínmynd um sumarleyfi og sól, leik-
stjóri Harold Ramis sem gerði m.a.
Ghostbusters.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
LIÐÞJÁLFINN
(Heartbreak Ridge)
★
Clint Eastwood leikur liðþjálfa sem
þjálfar sérsveitir í bandaríska hernum.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
NJÓSNARINN
(Jumpin Jack Flash)
★★
Gamanmynd með stjörnunni úr Color
Purple, Whoopi Goldberg.
Sýnd kl. 5, 7 og 11.
FLUGAN
(The Fly)
★★
Galdrar og hrollur fyrir það sem þess er
virði. Bönnuð yngri en 16 ára.
Sýnd kl. 11.
PENINGALITURINN
(The Color of Money)
★★★
Paul Newman hlaut óskarinn fyrir leik
sinn I þessari mynd.
Sýnd kl. 9.
KRÓKÓDlLA dundee
(Crocodile Dundee)
★★★
Léttgrln.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
ÁBENDING
Fáar nýjar myndir prýða sali blóhús-
anna um þessar mundir. Hinsvegar
hlýtur það að fara að breytast og þess-
vegna er rétt að benda á myndir sem
hafa gengið lengi s.& Skytturnar, Ren-
ingalitinn og Krókódíla Dundee.
KOSSKÖNGULÓARKONUNNAR
(Kiss of the Spider Woman)
NÝ
Afar umtöluð og athyglisverð mynd.
William Hurt hlaut óskarinn fyrir leik
sinn í henni.
LOKAÐ UM SINN
LAUGARÁS
BJO
TVfFARINN
★
Bandarísk spennumynd um ungan pilt
sem flyst til smábæjar og þá fer ýmis-
legt yfirnáttúrulegt að gerast.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
LEPPARNIR
(Critters)
★★
Endursýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
IREGNBOGIINN
HERBERGI MEÐ ÚTSÝNI
(Room With a View)
★★★★
Frábær mynd. Ekta bresk í klassa fyrir
sig.
Sýnd kl. 3, 5.30, 9 og 11.15.
GUÐ GAF MÉR EYRA
(Children of a Lesser God)
★★★
Marlee Matlin hlaut óskarinn fyrir leik
sinn í þessari mynd í hennar fyrsta hlut-
verki. I hófi væmin ástarsaga.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
BLA borg
(Blue City)
★★
Með Judd Nelson og Ally Sheedy.
Sýnd kl. 3.10, og 11.15.
TRÚBOÐSSTÖÐIN
(Mission)
★★★
Ein sú besta í bænum, frábær kvik-
myndataka og stórgóður leikur.
Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30.
HJARTASÁR
(Heartburn)
★★
Jack Nicholson og Meryl Streep, en ár-
angurinn lætur á sér standa.
Sýnd 5.05, 7.05, 9.05 og 11.15.
SKYTTURNAR
★★★
Metnaðarfull mynd og bara vel heppn-
uð að mörgu leyti.
Sýnd kl. 3.15, 5.15, og 11.15.
FERRIS BUELLER
★ ★
Gamanmynd um skróp og Férraribíl.
Sýnd kl. 3.05.
ÞEIR BESTU
(Top Gun)
★ ★★
Þjóðernisrembingur í algleymingi og
pínu ást með.
Sýnd kl. 3.
FALLEGA ÞVOTTAHÚSIÐ MITT
(My Beautiful Laundrette)
Ljómandi góð mánudagsmynd.
Sýnd kl. 7.10 og 9.10.
ENGIN MISKUNN
(No Mercy)
★★★
Bandarísk lögreglumynd með Richard
Gere og Kim Basinger.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
PEGGY SUE GIFTI SIG
(Peggy Sue Got Married)
★★★
Kathleen Turner fær aðsvif og hverfur
aftur í tfmann, endurtekur lífið sig?
Sýnd kl. 5 og 9
STATTU MEÐ MÉR
(Stand by Me)
★★
Fjórir strákar að leita að l(ki.
Sýnd kl. 7 og 11.
/fiámtík
LEIKIÐ TIL SIGURS
(Best Shot)
★★
Mynd með Gene Hackman þar sem
hann leikur mann sem kemur til smá-
bæjar til að þjálfa körfuboltalið er margt
fer öðruvísi...
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ mjög góð
★ ★ miðlungs
★ þolanleg
O mjög vond
MYNDBAND VIKUNNAR
Vil du se min smukke navle. (Sjáöu
sœta naflann minn) irk-k
Til útleigu hjá m.a. Vídeómeist-
aranum.
Dönsk. Árgerö 1979.
Leikstjórn: Sören Kragh
Jacobsen.
Aöalhlutverk: Birger Larsen, Lise
Lotte Rao o.fl.
Kvikmyndir Sörens Kragh
Jacobsens, ásamt verkum þeirra
Nils Malmros og Bille August geta
á margan hátt skoðast sem kjarni
þeirrar blómlegu nýsköpunar er
átt hefur sér stað í danskri kvik-
myndagerð á liðnum árum. Það
sem þessir leikstjórar eiga sér
einna helst sameiginlegt er að þeir
hafa allir lagt sérstaka rækt við að
gera unglingsárunum viðhlítandi
skil í verkum sínum. Og það á svo
hjartnæman og fordómalausan
hátt, að aðrar kvikmyndir sömu
tegundar, sem í ofgnótt hefur ver-
ið ausið yfir heimsmarkaðinn á
liðnum misserum standast þar
hvergi samanburð.
Vil du seminsmukke navle f jall-
ar um Claus sem er einkar feiminn
og óframfærinn nemandi í níunda
bekk, er fer ásamt bekkjarfélögum
sínum í skólaferðalag. Áfanga-
staðurinn er eyðibýli í Suður-Sví-
þjóð. Með í hópnum er Lene, sem
er öllu framfærnari og opnari í af-
stöðu sinni til hins kynsins en
nefndur Claus. Þau dragast engu
að síður hvort að öðru og lýsir
myndin þessu brothætta fyrsta
ástarsambandi þeirra á svo hug-
ljúfan, smákíminn en þó svo for-
dómalausan hátt, að áhorfendur
komast engan veginn hjá því að
hrifast með. Það gerðu alltént
Danir á sínum tíma, því myndin
reyndist ein sú söluhæsta þar í
landi á áttunda áratugnum.
Ó.A.
HELGARPÓSTURINN 27