Helgarpósturinn - 30.04.1987, Page 32

Helgarpósturinn - 30.04.1987, Page 32
eftir Gunnar Smára Egilsson mynd Snorri Snorrason I Togarinn Stakfell veldur enn á ný deilum. Nú hefur hann veriö sendur til Akureyrar þar sem honum veröur breytt í frystitogara. Forsvarsmenn frystihússins á Þórs- höfn og Byggöasjóöur telja aö meö þessu sé veriö aö flytja vanda útgeröarinnar yfir á frystihúsiö. Enn á ný er hœtta á atvinnuleysi á Langanesi. Miklar deilur eru nú á Þórshöfn vegna togarans Stakfells. Þrír full- trúar Kaupfélags Langnesinga hafa bariö það í gegnum stjórn Út- gerðarfélags Norður-Þingeyinga aö láta breyta togaranum í frysti- togara, Mikil andstaöa er gegn þessari ákvöröun á Þórshöfn. For- svarsmenn Hraðfrystihúss Þórshafnar óttast aö hver sá þorskur sem frystur veröur um borö í Stakfellinu komi niöur á atvinnu í landi. Stjórn Þórshafnarhrepps er einnig mótfallin breytingunni. Forsvars- menn Byggðastofnunar telja aö stjórn útgeröarinnar sé að flytja vandamál togarans yfir á frystihúsið. Hraðfrystihús Þórshafnar sé framtíöarvandamál stofnunarinnar. Áhöfn Stakfellsins er einnig andsnúin ákvöröun útgeröarstjórnarinnar. Fyrirsvarsmenn SIS hafa reynt aö miöla málum í þessari deilu, en gefist upp og halda nú aö sér höndum. HÖFUÐSTÓLLINN ÖFUGUR UM 90 MILLJÓNIR Stakfellið er með sögufrægustu togurum landsins. Langnesingum var gert kleift að kaupa togarann árið 1981 með því að opinberir aðil- ar lánuðu þeim allt kaupverð hans. Þeir höfðu þá misst sinn eina togara, Suöurnesiö, í gjaldþrot og hrun at- vinnulífs á Þórshöfn og Raufarhöfn blasti við. Þessi ákvörðun var harð- lega gagnrýnd á sínum tíma, en fékkst í gegn vegna mikillar baráttu stjórnmálamanna — ekki síst Stein- gríms Hermannssonar, þáverandi sjávarútvegsráðherra. Eftir að Stakfellið kom til Þórs- hafnar árið 1982, var gert sam- komulag um að togarinn landaði 75% af aflanum á Þórshöfn og 25% á Raufarhöfn. Árið 1985 keypti síð- an Kaupfélag Langnesinga hlut Raufarhafnarhrepps í Stakfellinu og eignaðist við það 52% meirihluta í Útgerðarfélagi Norður-Þingeyinga, og þrjá stjórnarmenn af fimm. Við það minnkaði hlutur Raufarhafnar í aflanum og í ár mun hann skila 15% af honum til Raufarhafnar. Útgerð togarans hefur gengið brösuglega frá upphafi, eins og skilj- anlegt er. Togarinn þarf að standa undir fjármagnskostnaði af 100% lánum. En staðan er þó betri eftir að hagur útgerðarinnar batnaði og einnig var útgerðin heppin með gengistryggingar erlendra lána. Lánin eru að mestu bundin í bresk- um pundum, en á undanförnum ár- um hafa slík lán komið betur út en lán sem bundin hafa verið flestum öðrum gjaldmiðlum. Þrátt fyrir þennan hag var höfuð- stóllinn öfugur um síðustu áramót — 80—90 milljónir í mínus. Verð togarans er bókfært á um 215 millj- ónir, en það mun vera nokkrum tug- um milljóna undir markaðsverði. Raunveruleg staða útgerðarinnar er því skárri en hinn öfugi höfuðstóil gefur til kynna. FRYSTIHÚSIÐ FRAMTÍÐARVANDAMÁL BYGGÐASTOFNUNAR Fyrir ári síðan samþykkti stjórn útgerðarinnar að breyta Stakfellinu svo hægt væri að flaka og frysta þorsk um borð. Togarinn hefur hing- að til getað fryst grálúðu og karfa um borð og er því „hálf-frysti- togari". Astæðuna fyrir þessari ákvörðun sagði stjórnin vera þá, að staða út- gerðarinnar væri orðin það slæm, að það væri um lífsspursmál fyrir útgerðina að ræða. Togaraútgerð hefði mislukkast áður á Langanesi. Það hefði hvergi gerst annars staðar utan Breiðdalsvíkur. Slíkt mætti ekki endurtaka sig. Jóhann Jónsson, framkvæmda- stjóri Hraðfrystihúss Þórshafnar og sveitarstjóri Þórshafnar, greiddi at- kvæði gegn þessari samþykkt stjórnarinnar. Hann situr í stjórninni fyrir hönd frystihússins og afstaða hans mótaðist af ótta við að sá fiskur sem frystur yrði á hafi úti kæmi nið- ur á atvinnu í frystihúsinu. Jóhann átti sér skoðanabræður víðar. Gudmundur Malmquist, for- stöðumaður Byggðastofnunar, sagðist í samtali við Helgarpóstinn óttast að með þessu væri verið að flytja vanda útgerðarinnar í land. Lánafyrirgreiðsla opinberra aðila vegna kaupa á Stakfellinu hefði á sínum tíma verið veitt til þess að bæta atvinnuástandið á Þórshöfn. Þessi ákvörðun stjórnarinnar félli illa að þeim markmiðum. Guð- mundur talaði um Hraðfrystihús Þórshafnar sem framtíðarvandamál Byggðastofnunar. Þegar ársreikningar Útgerðarfé- lags Norður-Þingeyinga voru birtir kom í ljós að togarinn hafði skilað bókfærðum hagnaði á síðasta ári. Hagnaðurinn var lítill, rúmar 4 milljónir króna. Það var þó meira en búist var við og mönnum fannst rök stjórnar útgerðarinnar ekki eins beitt og áður. BREYTINGIN KEMUR NIÐUR . Á ATVINNU ÍLANDI Áhöfn togarans er einnig andsnú- in breytingunni. Þeir eru nú 18 um borð, en eftir breytingar yrði þeim fjölgað upp í 24. Skiptaprósentan myndi þó ekki hækka. Þó tekjur sjó- manna á frystitogurum séu með hæstu tekjum á landinu, þá liggur þar að baki óheyrileg vinna. Auk þess getur Stakfellið nú fryst grá- lúðu og karfa, ódýran fisk, og það gerir það að verkum að áhöfnin á. Stakfellinu hefur dágóðar tekjur. Þeir aðilar á Þórshöfn sem hafa verið andsnúnir breytingunni hafa bent á aðra leið sem þeir telja betri til að bæta stöðu útgerðarinnar. Með litlum tilfæringum getur Stak- fellið stundað úthafsrækjuveiðar, en þær veiðar hefðu ekki áhrif á kvóta skipsins, þar sem enginn kvóti er á rækjuna. Ef þessi leið yrði farin gæti togarinn stundað þorskveiðar og landað honum ferskum, en nýtt stoppin til rækju-, grálúðu- eða karfaveiða og fryst aflann um borð. Með þessu héldi frystihúsið sínu og togarinn hefði eftir sem áður mögu- leika á að auka tekjur sínar. Forsvarsmenn SÍS hafa reynt að miðla málum milli deiluaðila á Þórs- höfn. Kaupfélag Langnesinga er eitt af eigendum Sambandsins og Hrað- frystihús Þórshafnar er í félagsskap sambandsfrystihúsa. Málið er því Sambandinu skylt. Framleiöni h/f, sem er í eigu sam- bands frystihúsanna, gerði hag- kvæmnisúttekt á fyrirhuguðum breytingum á Stakfellinu. Annars vegar var kannað hvaða áhrif þetta hefði á hag útgerðarinnar og hins í INNRÖMMUN ALHLIÐA INNRÖMMUN, SMELLURAMMAR, TILB. ÁLRAMMAR LAUGARDAGA TIL KL. 16.00 NÆG BÍLASTÆÐI 32 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.