Helgarpósturinn - 30.04.1987, Side 33
vegar hvaða áhrif þetta hefði á
rekstur togarans og Hraðfrystihúss-
ins, sem heildar. Niðurstöðurnar
urðu þær að breytingin bætti hag út-
gerðarinnar, en þegar litið var á at-
vinnulífið á Þórshöfn sem heild,
kom annað í ljós. Bættur hagur út-
gerðarinnar bitnaði á frystihúsinu.
DEILDARFUNDI í
KAUPFÉLAGINU FRESTAÐ
Sambandsmenn að sunnan komu
norður til að miðla málum. Sigurður
Markússon, framkvæmdastjóri
Sjávarafurðadeildar og Árni Bene-
diktsson, framkvæmdastjóri fisk-
framleiðenda, fóru erindisleysu.
Meira að segja Guðjón B. Olafsson,
forstjóri SÍS, fór norður, en án árang-
urs.
Stakfellið fór síðan til Akureyrar
síðastliðinn þriðjudag, þar sem tog-
aranum verður breytt í frystiskip í
Slippstöðinni. Á mánudaginn var
ráðgert að halda deildarfund í Kaup-
félagi Langnesinga, en þeim fundi
var frestað. Andstæðingar breyting-
arinnar eiga ekki í vandræðum með
að skýra þá frestun. Að þeirra áliti
hafa andstæðingar breytinganna
meirihluta í kaupfélaginu og því var
hætta á að deildarfundurinn setti
strik í reikninginn.
Aðalfundur Kaupfélagsins verður
síðan haldinn innan tíðar. Þar má
búast við deilum vegna ákvörðunar
fulltrúa Kaupfélagsins innan stjórn-
ar Útgerðarfélags Norður-Þingey-
inga. En þá verða breytingarnar um
garð gengnar.
Að sögn Þórólfs Gíslasonar, kaup-
félagsstjóra og stjórnarmanns í Út-
gerðarfélagi Norður-Þingeyinga,
hefur verið gert samkomulag við
frystihúsið til að tryggja að það fái
ekki minni afla til vinnslu en var í
fyrra. Þá landaði togarinn 1.200
tonnum af þorski á Þórshöfn. Stak-
fellið er á sóknarmarki og má veiða
allt að 2.244 tonnum af þorski. Ekk-
ert hámark er á öðrum fisktegund-
um. Þegar togarinn hefur skilað
1.200 tonnum af þorski til Þórshafn-
ar og 15% til Raufarhafnar, hefur
hann rúmlega 800 tonn af þorski til
að frysta. Það eru tveir túrar.
BREYTINGAR I ANDSTÖÐU
VIÐ ALLA
Andstæðingar breytingarinnar
segja að óeðlilegt sé að miða við síð-
asta ár þegar hlutur frystihússins á
Þórshöfn er ákvarðaður. Þá hafi
minni þorskafli borist á land en árið
áður og einnig árið þar áður. Auk
þess segja þeir að tveir frystitúrar á
ári muni ekki gera þau kraftaverk
sem kaupfélagsmenn í stjórninni
búast við. Freistingin að frysta meira
en nú er ráðgert er því næg.
Jóhann Jónsson, frystihússtjóri,
sagði í samtali við Helgarpóstinn,
að eðlilegt væri að togarinn og hús-
ið væru undir sömu stjórn. Þórólfur
Gíslason, kaupfélagsstjóri, sagði aft-
ur á móti að það hefði gefist illa með
Suðurnesið, endað í gjaldþroti.
Komið hefur til tals að Kaupfélag-
ið legði sinn hlut í togaranum í
frystihúsið og yrði með því eignar-
aðili að því. Hlutur þess yrði þó
aldrei hærri en tæp 30% og af orð-
um Þórólfs að dæma er stjórn Kaup-
félagsins ekki ginnkeypt fyrir slík-
um skiptum.
Ástandið í atvinnumálum Þórs-
hafnar og Langaness er því enn
deiluefni. Forsvarsmenn Byggða-
sjóðs og SÍS fylgjast með, en fá ekki
að gert. Þeir stjórnmálamenn sem
málið hefur verið lagt fyrir hafa enn
ekki gripið inn í. Afstöðu þeirra er
kannski best lýst með orðum Stein-
gríms Hermannssonar þegar hann
tjáði þeim sem lögðu málið undir
forsætisráðherra að hann hefði bar-
ist í þrjá daga í þinginu fyrir Stakfell-
ið og hann vildi ekki þurfa að gera
það aftur.
SUMARAÆTLUN 1987
1 - MAÍ júní *n JÚNÍ JÚNÍ JÚLÍ JÚLÍ JÚLÍ ij
i NÆSTU FERÐIR .* CM 1 6 23 7 14 28
5 ÁGÚST 4 ÁGÚST 18 ÁGÚST 25 SEPTEMBER 8 SEPTEMBER 15 SEPTEMBER 29 OKTÓBER 6 OKTÓBER 20 OKTÓBER 27
SOL OG SJOR
Benidorm - hvíta ströndin á Spáni - þar finna allir eitthvað
við sitt hæfi.
Flestar ferðír eru að fyllast. Pantaðu strax og tryggðu þér
sæti í rétta ferðina fyrir þig
26. mai - 3 vikur - Dæmi um verð: Hjón með tvö börn, verð
frá kr. 26.200,- á mann.
Mundu að Benidorm er einn sólríkasti staðurinn á Spáni.
Þar mælast 306 sólardagar á ári.
m
FERÐA
MIÐSTÖÐIN
Cí4licat
Jccwet
STÖRKOSTLEGT
ÖRVAL
PLAKÖT OG MYNDIR
RAMMA
MIÐSTOÐIN
SIGTÚN 20, 105 REYKJAVÍK. SÍMI 25054.
HELGARPÖSTURINN 33